Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2011, Blaðsíða 24
24 | Erlent 22.–24. júlí 2011 Helgarblað
Varar við „kínverskri innrás“
n David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, harðorður í garð Kínverja
D
avid Cameron, forsætisráð-
herra Bretlands, lét þung orð
falla í garð kínverskra yfir-
valda á lokadegi heimsóknar
sinnar til Afríku. Cameron heimsótti
meðal annars Suður-Afríku og Níg-
eríu, en þurfti að flýta för sinni heim
vegna hleranamálsins í Bretlandi.
Efnahagslegur uppgangur í Kína
hefur verið gríðarlegur undan-
farin misseri. Þeir hafa í auknum
mæli fjárfest í Afríku og meðal ann-
ars keypt svæði sem eru rík af auð-
lindum eins og olíu, járni og kopar.
Cameron varaði við þessari stefnu í
erindi sem hann hélt í Viðskiptahá-
skólanum í Lagos í Nígeríu og sagð-
ist reiðubúinn að beita sér gegn
þessari „kínversku innrás“ eins og
hann orðaði það.
Til marks um aukin umsvif Kín-
verja í Afríku má nefna að árið 2010
nam verslun milli Kína og Afríku 70
milljörðum punda. Árið 2010 var tal-
an margfalt lægri, eða fjórir milljarðar
punda. Kínverjar hafa gert viðskipta-
samninga við 40 ríki í Afríku, þar á
meðal Úganda, Kenía og Alsír. Þá hafa
yfirvöld í Kína lánað háar fjárhæðir til
ríkja Afríku og þar með aukið pólitísk
og efnahagsleg áhrif sín. Áætlað er að
yfir ein milljón Kínverja hafi flutt til
Afríku á undanförnum tíu árum.
„Það er mitt mat að ríkiskapítal-
ismi (e. authoritarian capitalism),
líkt og er í Kína, verði ekki til góðs
til lengri tíma litið,“ sagði Cameron
meðal annars og hvatti enn frem-
ur til lýðræðislegra umbóta í Afríku.
Hann sagði að Bretar væru reiðu-
búnir að efla viðskiptasamband við
þau ríki Afríku þar sem hagvöxtur er
mikill. Eitt þessara ríkja er Nígería,
næststærsta hagkerfi Afríku, en á síð-
asta ári var hagvöxtur þar níu prósent.
einar@dv.is
Harðorður Cameron varar við auknum umsvifum Kínverja í Afríku. MynD ReuteRs
Mount everest
mælt aftur
Yfirvöld í Nepal hafa ákveðið að
mæla hæð Mount Everest, hæsta
fjalls heims, að nýju. Samkvæmt
opinberum tölum er fjallið 8.848
metrar á hæð.
Nepala og Kínverja, sem eiga
landamæri að Mount Everest, hefur
hins vegar lengi greint á um raun-
verulega hæð fjallsins; Nepalar taka
inn í reikninginn snjóalög á toppi
fjallsins en Kínverjar ekki. Þetta
hefur gert að verkum að fjallið er
fjórum metrum hærra í Nepal en í
Kína, samkvæmt opinberum tölum
ríkjanna.
„Núna höfum við tæknina til að
mæla hæð fjallsins sjálfir,“ segir Go-
pal Giri, talsmaður yfirvalda í Nepal,
í samtali við AFP-fréttastofuna. Ind-
verjar mældu fyrst hæð fjallsins árið
1955 og mældist það þá 8.848 metr-
ar. Bandarískir vísindamenn mældu
svo hæð þess árið 1999 og mældist
það þá 8.850 metrar. Yfirvöld í Nepal
hafa hins vegar haldið sig við upp-
runalegu töluna og munu styðjast
við hana þar til þeir hafa sjálfir lokið
við mælingar.
Auðmaður leigir
paradísareyju
Auðjöfurinn Richard Branson, stofn-
andi Virgin-viðskiptaveldisins, hefur
ákveðið að bjóða auðugum einstak-
lingum að leigja sannkallaða para-
dísareyju við Queensland í Ástralíu.
Branson festi kaup á eyjunni, sem er
hjartalaga, árið 2007 og borgaði fyrir
þrjár milljónir Bandaríkjala, eða 360
milljónir króna á núverandi gengi.
Áhugasamir geta leigt eyjuna
en á henni er glæsilegt íbúðarhús
sem rúmar tuttugu og tvo gesti. Þá
er risastór sundlaug í garðinum og
kvikmyndahús utandyra. Það er
hins vegar ekki fyrir hvern sem er að
leigja eyjuna. Nóttin kostar tæpar
tvær milljónir króna.
Fékk stálrör
í höfuðið
Byggingaverkamaður í Quanzhou-
héraði í Kína þykir hafa sloppið ótrú-
lega vel þegar hann lenti í vinnuslysi.
Maðurinn, sem heitir Wu Moude og
er 22 ára, féll með þeim afleiðingum
að fimmtán sentímetra langt stálrör
stakkst í gegnum háls hans og upp í
höfuðið. Moude gekkst undir bráða-
aðgerð í kjölfarið og þótti sú aðgerð
takast vel. „Hann var meðvitundar-
laus þegar hann kom hingað. Það er
mjög sjaldgæft að sjá sjúkling koma
með svona alvarleg meiðsli,“ segir
læknirinn Zhuang Cong sem tók á
móti Moude sem liggur enn mikið
slasaður á sjúkrahúsi en ástand hans
er stöðugt.
V
ersta næturvakt sögunnar
að baki. Nú er það önnur
fjórtán tíma vakt og mig
langar ekkert að fara.“ Þetta
sagði hin 27 ára Rebecca
Leighton á Facebook-síðu sinni fyr-
ir skemmstu. Leighton, sem starfaði
sem hjúkrunarfræðingur á Stepping
Hill-sjúkrahúsinu í Stockport á Eng-
landi, var handtekin á miðvikudag
grunuð um að myrða þrjá sjúklinga
á sjúkrahúsinu. Málið hefur verið
fyrirferðarmikið í bresku pressunni
í vikunni enda virðast morðin hafa
með öllu verið tilefnislaus. Rebecca
er grunuð um að hafa sprautað in-
súlíni í alls 36 poka sem innihéldu
saltlausn, en slíkt getur verið stór-
hættulegt.
Fjórði sjúklingurinn þungt
haldinn
Talið er að þrír sjúklingar; George
Keep, 84 ára, Arnold Lancaster, 71
árs og Tracey Arden, 44 ára, hafi
látist að undanförnu eftir að hafa
fengið saltlausnina. Fjórði sjúkling-
urinn, rétt rúmlega fertugur, liggur
þungt haldinn á sjúkrahúsi. Lög-
regla hefur ekki gefið miklar upplýs-
ingar um málið en húsleit var gerð
á heimili Rebeccu, sem er skammt
frá sjúkrahúsinu, á miðvikudag.
Lögregla hefur þó látið hafa eftir sér
að það muni taka tíma að sanna að
andlát sjúklinganna þriggja tengist
saltlausninni sem Rebecca er grun-
uð um að hafa spillt. Bráðabirgða-
krufningar benda hins vegar allar
til þess.
„Mjög góð stúlka“
Móðir Rebeccu, Lynda Leighton,
er framkvæmdastjóri á hjúkr-
unarsviði spítalans. Fjölskyldu-
vinir hafa lýst því í samtölum við
breska fjölmiðla að handtakan
hafi komið mjög flatt upp á þá.
„Hún hefur unnið þarna í lang-
an tíma og hafði gaman af starf-
inu. Mér er mjög brugðið, ég trúi
þessu ekki,“ sagði vinur Rebeccu,
Gavin Heaton, í samtali við Daily
Mail á fimmtudag, en Rebecca var
brúðarmær í brúðkaupi hans fyrir
tveimur árum. „Þetta hlýtur að
vera misskilningur. Hún er mjög
góð stúlka.“
Það var á fimmtudag í síðustu
viku sem forsvarsmenn sjúkra-
hússins höfðu samband við lög-
reglu. Reyndur hjúkrunarfræðing-
ur á sjúkrahúsinu hafði þá komist
að því að óvenju margir sjúklingar
væru með allt of lágan blóðsykur.
Síðar kom í ljós að fjórtán sjúkling-
ar höfðu fengið hættulega mikið
magn af insúlíni eftir að hafa feng-
ið saltlausn.
sjúklingum brugðið
Ekki virðist liggja ljóst fyrir hvers
vegna grunur beindist strax að
Rebeccu, en hún var handtek-
in nokkrum dögum eftir að málið
kom upp. Dorothy Potter, aldraður
sjúklingur á Stepping Hill-sjúkra-
húsinu, segir að henni sé brugðið
vegna málsins. Hún tekur það þó
fram að starfsfólk hafi reynst henni
mjög vel. „Ég er miður mín yfir
þessu eins og allir á sjúkrahúsinu,“
sagði hún í viðtali við BBC.
Lögregla hefur látið hafa eft-
ir sér að rannsókn málsins sé á
frumstigi og engin ákæra hafi ver-
ið gefin út á hendur Rebeccu. Ör-
yggismál hafa verið tekin til skoð-
unar á sjúkrahúsinu og þurfa nú
tveir starfsmenn að vera viðstadd-
ir lyfjagjafir. Þá hafa einungis yfir-
menn aðgang að lyfja- og birgða-
geymslum.
n Þrír sjúklingar létust eftir að hafa innbyrt insúlínblandaða saltlausn
n 27 ára hjúkrunarkona handtekin n sjúklingum verulega brugðið
Þrír látnir Tracey Arden, George Keep og Arnold Lancaster létust nýlega á sjúkrahúsinu. Fjórði sjúklingurinn liggur enn þungt haldinn.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Grunuð um
að myrða
sjúklinGa
„Hún hefur unn-
ið þarna í lang-
an tíma og hafði gaman
af starfinu. Mér er mjög
brugðið, ég trúi þessu
ekki.
Grunuð Rebecca Leighton, 27 ára, er grunuð um
að hafa spillt saltlausninni sem valdið hefur dauða
þriggja sjúklinga.