Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 4
4 Fréttir 21.–27. desember 2011 Jólablað
Vill ekki ræða Fell
n Kaupfélagsstjóri býr yfir upplýsingunum
G
uðsteinn Einarsson, kaup-
félagsstjóri Kaupfélags Borg-
firðinga og fyrrverandi stjórn-
arformaður Giftar, neitar að
upplýsa um hvaðan 11 milljarða
króna hlutafé Fjárfestingarfélagsins
Fells var komið. DV greindi frá því á
mánudaginn að árið 2006 hefðu 11
milljarðar króna runnið inn í Fell og
aftur út úr félaginu árin þar á eftir.
Fell var skráð hjá KS á Sauðárkróki
og lentu eignir félagsins að hluta inni
í kaupfélaginu. Þórólfur Gíslason var
einnig stjórnarformaður Giftar um
tíma. Ekki er vitað hvaðan þessir pen-
ingar komu inn í Fell né hvert þeir
fóru að öllu leyti.
„Ég veit alveg hvaðan þeir pen-
ingar komu og hvert þeir fóru,“ segir
Guðsteinn en vill ekki greina frá þess-
um upplýsingum. Guðsteinn seg-
ir ekkert óeðlilegt hafa átt sér stað í
rekstri Fells og að féð hafi runnið til
þeirra sem áttu réttmætt tilkall til
þeirra. Því hvílir enn leynd yfir Fjár-
festingarfélaginu Felli.
DV reyndi að ná tali af Sigurjóni
Rúnari Rafnssyni á sunnudaginn,
mánudaginn og þriðjudaginn en það
bar ekki árangur. Sigurjón var stjórn-
arformaður Fells. ingi@dv.is
S
igurjón Rúnar Rafnsson, að-
stoðarkaupfélagsstjóri á
Sauðárkróki, tók sér nærri
104 milljóna króna arð út úr
eignarhaldsfélagi sínu, Ar-
næus, sem áður hét Háahlíð 3. ehf.,
eftir íslenska efnahagshrunið árið
2008. Arðgreiðslurnar voru vegna
rekstraráranna 2008 og 2009 en voru
teknar út úr félaginu árin 2009 og
2010. Arnæus fjárfesti meðal annars
í fyrirtækjum tengdum Kaupfélagi
Skagfirðinga, meðal annars FISK
Seafood, á árunum fyrir íslenska
efnahagshrunið, líkt og DV greindi
frá fyrr í desember.
Arðgreiðslan árið 2009 nam 66,5
milljónum króna á meðan arð-
greiðslan árið 2010 nam 37,4 millj-
ónum króna. Bókfærður hagnaður
félagsins nam rúmlega 188 millj-
ónum króna árið 2008 og nærri 28
milljónum króna árið 2009.
Skeggrætt á Króknum
DV hefur upp á síðkastið fjallað
um málefni Kaupfélags Skagfirð-
inga. Meðal þess sem greint hef-
ur verið frá í blaðinu eru stórfelld
hlutabréfaviðskipti stjórnenda
Kaupfélags Skagfirðinga og fram-
kvæmdastjóra FISK Seafood, Jóns
Eðvalds Friðrikssonar, sem og að
um 13 milljarðar króna í reiðufé hafi
horfið út úr einu af dótturfélögum
Eignarhaldsfélags Samvinnutrygg-
inga og Giftar, Fjárfestingarfélag-
inu Felli, á árunum 2008 og 2009,
án þess að fyrir liggi hvernig þetta
gerðist. Um var að ræða flókna
fléttu þar sem 11 milljarðar króna
voru greiddir inn í Fell sem nýtt
hlutafé á árinu 2006 en svo hurfu
þessir fjármunir út úr félaginu á
næstu árum án þess að rökréttar
skýringar væru fyrir hendi.
Umfjöllunin hefur vakið um-
talsverða athygli á Sauðárkróki og í
Skagafirði þar sem Kaupfélag Skag-
firðinga er langstærsti vinnuveit-
andinn með 727 starfsmenn auk
þess sem um 1.500 einstaklingar
í byggðarlaginu eiga kaupfélagið
í sameiningu. Af þessum sökum
þora fáir Skagfirðingar að tjá sig
opinberlega um málið: Kaupfélag
Skagfirðinga og stjórnendur þess
eru valdamestu aðilarnir í sveitinni
og eiga fjölmargar fjölskyldur af-
komu sínu undir fyrirtækinu.
Fjörugar umræður hafa þó ver-
ið um málin á fésbókinni og um
síðustu helgi sagði Erla Einars-
dóttir meðal annars: „Ég hef bara
ekki þolinmæði fyrir svona þögg-
un. Fólki líður ekki vel með þetta,
gleymum því ekki að þetta fyrirtæki
gerir marga góða hluti og er lang-
stærsti atvinnurekandinn hérna
á svæðinu. Mér er ekki skemmt!“
Eitt af innleggjunum í þessa um-
ræðu kom frá Ástu B. Pálmadótt-
ur, sveitarstjóra í Skagafirði, sem
taldi fréttaflutninginn af kaupfélag-
inu ekki svaraverðan: „Það er ekki
hægt að svara rógburði!“ Umfjöllun
DV byggir þó nær eingöngu á opin-
berum gögnum, ársreikningum,
sem hver sem er getur nálgast hjá
embætti ríkisskattstjóra.
Samtals 183 milljóna arður
Þessar arðgreiðslur Sigurjóns Rún-
ars eftir hrunið 2008 bætast við
arðtökur hans á árunum fyrir það.
Sigurjón tók sér 13 milljónir króna
í arð árið 2006, 9 milljónir 2007 og
57 milljónir króna 2008. Heildar-
arðgreiðslurnar sem Sigurjón Rúnar
hefur tekið út úr eignarhaldsfélag-
inu á árunum 2006 til 2010 nema því
samtals 183 milljónum króna.
Þessi arðtaka Sigurjóns Rúnars
er hærri en þær arðgreiðslur sem
Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri
í Kaupfélagi Skagfirðinga, hefur tek-
ið út úr eignarhaldsfélagi sínu á síð-
ustu árum. Líkt og DV greindi frá
fyrr í mánuðinum tók hann sér sam-
tals 155 milljónir króna í arð út úr
eignarhaldsfélaginu Háuhlíð 2. ehf.
á árunum 2007 og 2008.
Þórólfur og Sigurjón Rafnar
stunduðu meðal annars saman fjár-
festingar í gegnum félögin Matrónu,
Gildingu, Gullinló og Fiskileiðir. Um
var að ræða fjárfestingar í hlutabréf-
um í Kaupþingi, Landsbankanum
stofnfjárbréfum í Sparisjóði Reykja-
víkur og í umræddu dótturfélagi
Kaupfélags Skagfirðinga, FISK Sea-
food, sem hefur verið að 100 pró-
senta leyti í eigu Kaupfélags Skag-
firðinga frá árinu 2008.
Eignarhaldsfélag Sigurjóns Rún-
ars á ennþá rúmlega 115 milljónir
króna í eignir þrátt fyrir þessar arð-
greiðslur út úr félaginu. Ekki hefur
náðst í Sigurjón Rúnar síðustu daga
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
183 milljóna arður Heildararðgreiðslur til Sigurjóns Rúnars eru 183 milljónir króna á
árunum 2006 til 2010. Hann sést hér með Þórólfi Gíslasyni kaupfélagsstjóra.
n Aðstoðarkaupfélagsstjórinn í Skagafirði greiddi út arð eftir hrun n Sveitarstjórinn
telur umfjöllun DV rógburð n Stjórnendur högnuðust á hlutabréfaviðskiptum
Sigurjón tók sér
104 milljónir í arð
„Það er ekki hægt
að svara rógburði!
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Útgáfa DV
um hátíðar
Þar sem jólablað DV kom út 21.
desember kemur ekki út blað
á föstudaginn, Þorláksmessu.
Næsta tölublað kemur út mið-
vikudaginn 28. desember. Veg-
legt áramótablað kemur svo út
30. desember en þar upplýsir
völva DV um það sem mun
gerast á næsta ári. Þar á eftir
kemur DV út miðvikudaginn
4. janúar en upp frá því kemur
blaðið út þrjá daga vikunnar
eins og venja er.
Stálu jólagjöfum
Óprúttnir aðilar brutust inn í tvær
bifreiðar í Reykjavík á mánudag
og var jólagjöfum stolið úr annarri
þeirra. Lögreglan varar eigendur
og umráðamenn ökutækja við því
að skilja verðmæti eftir í bílum. Sé
það óumflýjanlegt er mikilvægt að
verðmæti séu ekki í augsýn. Mælir
lögreglan með því að fólk reyni
frekar að skilja bíla sína eftir á vel
upplýstum bílastæðum sé þess
kostur. „Þjófum finnst nefnilega
fátt betra en að athafna sig í myrkr-
inu þar sem ekki sést til þeirra.“
Geðveikt
jólalag
Geðveikum slag um titilinn Geð-
veikasta jólalagið 2011 er nú lokið
og bar Eimskip sigur úr býtum. Lag
og myndband þeirra í jólalaga-
samkeppninni Geðveikum jólum
bar sigur úr býtum í söfnunarátaki
atvinnulífsins í þágu Geðhjálpar.
Lagið nefnist Ég óska þér góðra jóla
og eru bæði lag og texti eftir starfs-
manninn Gotta, en hann söng lag-
ið ásamt dyggum hópi samstarfs-
manna sinna. Öll lög keppninnar
eru frumsamin af starfsfólki fyrir-
tækjanna sem tóku þátt í keppn-
inni. Jólalagakeppnin safnaði í
heildina 3.129.000 krónum og
rennur allur ágóði söfnunarinn-
ar óskertur til uppbyggingarstarfs
Geðhjálpar. Hægt er að hlusta á öll
jólalögin og finna nánari upplýs-
ingar um þau á gedveikjol.is.
Fell Var stýrt af stjórnendum KS.