Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 58
Horfðu á jólamynd Hvernig væri að skella ein- hverri klass- ískri jólamynd eins og Love Actually, Home Alone 1 og 2 eða Miracle on 34th Street í tækið? Þetta eru allt einstaklega jólalegar myndir sem ættu að kveikja á jólaskapinu. Hlustaðu á jólatónlist Settu skemmti- legan jóladisk í tækið eða stilltu útvarpið á útvarpsstöðvar sem spila jólalög. Hækkaðu vel í tækinu og syngdu með. Það ætti að syngja þig inn í jólin. Kveiktu á kertum Kerti eru einstaklega jólaleg. Kveiktu á nokkrum kertum og ekki er verra ef þau eru með jólailm. Opnaðu eina gjöf Það má alveg svindla smá og opna eina gjöf fyrir jól, allt fyrir jólaskapið. Veldu þér eina til að komast í jólagírinn. Ef þú tímir því ekki þá er líka hægt að pakka inn einhverju fallegu frá sjálfum sér og opna svo pakkann. Gerðu góðverk Það er svo sannarlega í anda jólanna að gera góðverk. Gefðu eina eða fleiri aukagjafir til þeirra sem minna mega sín. Það gleður ekkert meira en að gefa og ætti að færa þér sannan anda jólanna. Heitt kakó og kökur Hitaðu þér alvöru heitt súkku laði og nartaðu í smákökur með. Það er jólalegt út í gegn. Slakaðu á Ekki missa þig í stressinu yfir jólagjöfum og að allt gangi upp. Njóttu þess að hafa það gott yfir hátíðarnar og mundu að jólin koma, burtséð frá því hvort allt sé skínandi fínt eða ekki. 58 Lífsstíll 21.–27. desember 2011 Jólablað Þórunn Antonía Magnúsdóttir, söngkona og þáttastjórnandi Gaf mömmu hvít jól Þórunn Antonía segist eiga góðar minningar frá sínum bernskujólum. Hún hafi vanalega eytt þeim heima með móður sinni og bróður og svo hafi verið farið til ömmu og afa seinna um kvöldið. „Ég átti til að gera mjög misheppn- uð góðverk sem barn,“ segir Þórunn en ein jólin ákvað hún að láta draum móður sinnar um hvít jól rætast. „Þegar ég var þriggja ára gömul og það voru alveg að koma jól þá spurði ég mömmu mína hvað hún vildi fá í jólagjöf. Hún sagðist bara óska sér þess að það myndi snjóa og það yrðu hvít jól,“ segir hún. Þórunn ákvað að verða við beiðni móður sinnar er hún svaf einn morgun stuttu fyrir jól. „Mamma var víst nýbúin að gera allt voða fínt fyrir jólin. Ég greip til minna ráða meðan hún svaf einn morguninn og fann hveitipoka og dreifði hveitinu mjög samviskusamlega yfir alla íbúðina,“ segir Þórunn með mikilli áherslu á alla. „Yfir sófann, nýskúrað gólfið, yfir sjónvarpið og svo framvegis.“ Uppátækið vakti ekki alveg eins mikla lukku hjá móður Þórunnar sem hafði staðið í ströngu við að gera fínt fyrir jólin. „Þetta vakti ekki eins mikla lukku og ég hafði vonast eftir, ég held að mamma hafi þurft á smá áfallahjálp að halda frá ömmu,“ segir Þórunn hlæjandi og tekur fram að það sé til langur listi af sögum af slíkum uppátækjum frá henni í æsku og bætir svo við að lokum: „Sorrí, elsku mamma!“ Söngkonan Birgitta Haukdal eyddi sínum æskujólum á Húsavík. „Fyrstu 25 ár lífs míns þá hélt ég jól á Húsavík. Þá var alltaf haldið í allar hefðir og alltaf borðaður lambahamborgarhryggur. Við systkinin máttum opna einn pakka klukkan sex og þá róaðist maður örlítið við að bíða eftir allri gleðinni. Svo var farið í kirkjugarðinn og svo heim og fengið sér góð jólasteik,“ segir Birgitta en jólamaturinn er í algjöru uppáhaldi hjá henni. „Þessi matur hefur alltaf verið uppáhaldsmaturinn minn. Það er örugglega bara eitt- hvað sem er í loftinu á jólunum sem gerir hann svona góðan. Ef ég fer á jólahlaðborð og þetta er í boði þá fæ ég mér ekki því ég vil ekki skemma aðfangadags- kvöldið,“ segir hún hlæjandi. Birgittu eru afar minnis- stæðar tvær gjafir sem hún fékk í æsku. Önnur fyrir að vera besta jólagjöfin en hin er eftirminnileg fyrir að hitta ekki alveg í mark. „Besta gjöfin mín var dúkka sem ég fékk þegar ég var níu ára gömul. Mér fannst hún svo lík mér og ímyndaði mér að svona myndi dóttir mín líta út þegar ég myndi eignast dóttur. Ég var alveg í skýjunum með þetta og á hana enn þann dag í dag. Ég fór mjög vel með hana og það mátti eng- inn leika við hana nema ég,“ segir Birgitta hlæjandi en dúkkan fallega hlaut nafnið Sigurdís Sandra. Önnur gjöf er henni ofarlega í huga en þá gjöf fékk hún jólin þegar hún var 15 ára gömul. „Þá fæ ég refapels frá mömmu og pabba. Það sló ekki í gegn. Fimmtán ára stelpur vilja ekki ganga í svoleiðis,“ segir Birgitta kímin. „Mömmu fannst þetta alveg æðislegt. Var búin að hafa rosamikið fyrir þessu. Ég bara vissi ekki hvað þetta var þegar ég tók þetta upp úr kassanum, bara hvaða dýr er þetta og á ég að vera í þessu?“ segir hún skellihlæjandi. „Ég kunni kannski ekkert að meta þetta þarna. Ég hef nú lært að meta pelsa í dag. Ég leyndi vonbrigðunum samt vel fór í pelsinum á gamlársballið fyrir mömmu. Ég er ekki viss um að hún hafi fattað þetta þá en hún veit það þá núna þegar hún les þetta,“ segir Birgitta og skellir upp úr. Eftir að Birgitta varð sjálf móðir þá hafa jólahefðirnar breyst örlítið. „Þetta breytist þegar það er komið barn í spilin þá vill maður skipta þessu á milli. Við höfum skipst á að vera hjá foreldrum mínum og tengdó. Þá erum við hjá foreldrum hans á aðfangadag og for- eldrum mínum á gamlársdag og svo öfugt árið á eftir.“ Geir Ólafsson söngvari Trúði því að hann væri Stúfur Geir Ólafsson á ljúfar minningar frá sínum bernskujólum. „Ég á ekkert nema bara góðar minningar af jólunum. Þau voru alltaf haldin heima hjá foreldrum mínum, fyrst í Eyjabakka og síðan í Torfufellinu. Hefðirnar voru mjög gamaldags. Skatan og hangikjötið voru alltaf soðin á Þorláks- messu. Síðan voru hamborgarhryggur og rjúpur í matinn á aðfangadag. Það var síðan alltaf sofið út og haft það kósí á jóladagsmorgun og maður dundaði sér við dótið sem maður fékk í jólagjöf. Síðan var alltaf farið í jólaboð til afa seinna um daginn,“ segir Geir brosandi að minningunni. Í jólaboðinu brá hann sér í gervi. „Þar lék ég ásamt nafna mínum Geir, jólasvein. Þar sem það var mikill stærðarmunur á okkur þá lék hann Stekkjarstaur og ég Stúf. Það var alltaf mikið beðið eftir jólasveinunum. Ég byrjaði að leika hann þegar ég var sjö, átta ára gamall og var mjög góður jólasveinn. Ég hafði mjög mikla unun af þessu því ég gat hagað mér alveg eins og ég vildi bak við skeggið og húfuna. Það besta var svo að ég trúði því sjálfur að ég væri Stúfur.“ Jólin verða hefðbundin hjá Geir í ár en þeim eyðir hann með fjölskyldunni. „Vegna stöðu minnar í kvennamálum þá verð ég bara heima hjá mömmu og pabba í ár. Það verða þrettán manns í mat hjá okkur á jólunum þannig að ég hef ákveðið að syngja fyrir börnin jólalög og svo ætla ég að syngja fyrir þau af nýju barnaplötunni minni,“ segir hann. Geir er mjög spenntur fyrir jólunum. „Ég hlakka alltaf til jólanna, er mikið jólabarn og það hefur ekkert breyst að ég hlakka alltaf mest til þess að opna pakkana. Þeim hefur nú farið fækkandi með árunum en ég er farinn að njóta jólanna með öðrum hætti en áður. Mér finnst þetta vera yndis- legur tími, friður og kærleikur.“ Ellý Ármannsdóttir fjölmiðlakona Eftirminnilegar leikhúsferðir Ellý Ármannsdóttir á góðar minningar frá æskujólunum en þeim eyddi hún yfirleitt í faðmi stórfjölskyldunnar. „Við komum alltaf saman hjá ömmu, öll systkini mömmu sem voru fimm talsins, og svo börnin þeirra þannig að þetta var stór hópur. Í minn- ingunni er þetta svo yndislegt, bæði maturinn, spenningurinn og svo bara að hittast og vera saman. Þessi innilega ánægja sem fólst í hlýju jólanna,“ segir Ellý. Hefðin datt upp fyrir þegar amma hennar féll frá. „Ömmurnar og afarnir eru oft límið í fjölskyldum. Eitthvað sem við þurfum að læra að meta. Það er ein árleg gjöf sem Ellý man sérstaklega vel eftir úr æsku. „Það var ein frænka í fjölskyldu stjúpföður míns sem gaf alltaf yngstu frændsystkinunum leikhúsmiða. Við fórum síðan alltaf öll saman í leikhús á milli jóla og nýárs. Það fannst mér alveg rosalega sniðugt hjá henni að gefa okkur upplifun í stað gjafa. Það er einmitt það sem skiptir á endanum öllu máli um jólin, að vera saman. Burtséð frá matnum sósunni og öllum gjöfunum. Þær eru á endanum algjört aukaatriði,“ segir Ellý einlæg. Ellý hefur verið dugleg við að halda í hefðirnar á fullorðinsaldri. „Ég held í hefðirnar og finnst hangikjötið, grænu baunirnar og rauðkálið ómissandi.“ Núna eyðir fjölskylda Ellýjar jólunum hjá tengdaforeldrum hennar. „Við komum saman hjá tengdó, börnin mín og börn mannsins míns. Mér finnst hefðirnar mikilvægar, það eru þessir jólasiðir og vaninn sem ég elska yfir hátíðarnar. Nú er það heimagerði ísinn hennar Kristínar tengdamömmu sem klikkar ekki. Börnin og ísinn finnst mér vera algjörlega ómissandi á jólum.“ Æskujólin Í jólakjólnum Ellý þriggja ára í jólakjólnum. Birgitta Haukdal söngkona Refapelsinn sló ekki í gegn Jólin er tími hátíðar og friðar en kannski ekki hvað síst tími barnanna. DV heyrði í nokkrum þekktum Íslendingum og fékk að heyra af þeirra bernskujólum. Komdu þér í jólastuð Ertu ekki enn komin/n í jólaskap? Þá er ekki seinna vænna að drífa sig í hátíðar- skapið enda stutt í jólin. Hér eru nokkur ráð sem kunna að koma þér í rétta gírinn fyrir jólin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.