Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 60
60 Sport 21.–27. desember 2011 Jólablað
Jólin byrja snemma
í ensku úrvalsdeildinni
n Ekkert jólafrí í ensku deildinni n Snemmbúin jólagjöf á White Hart Lane n Auðvelt hjá flestum stóru liðanna
S
ama hversu margir tala fyrir
jólafríi í ensku úrvalsdeild-
inni eða hversu hátt þeir tala
þurfa knattspyrnumenn á
Englandi alltaf að reima á sig
skóna um jólin, okkur til ánægju og
yndisauka. Þessi jól eru ekkert öðru-
vísi. Nóg er spilað yfir jólahátíðina
en það byrjar strax í dag, miðviku-
dag. Leikið er svo á annan í jólum
og þriðjudaginn eftir það. Stórleikur
jólahátíðarinnar er tveimur dögum
fyrir jól, fimmtudaginn 22. desemb-
er, þegar Lundúnaliðin Tottenham
og Chelsea mætast á White Hart
Lane. Jólin koma því svo sannarlega
snemma í ár hjá knattspyrnuáhuga-
mönnum. Leikir þessara liða hafa
nær aldrei klikkað og sérstaklega
ekki þegar liðin mætast á heima-
velli Tottenham. Það er því vonandi
að leikmenn liðanna séu með fullan
poka að gjöfum og í flestum pökkun-
um séu glæsileg tilþrif.
Ekki gleyma Tottenham
Þrátt fyrir að Tottenham hafi verið á
gríðarlega miklu skriði undanfarið
hefur það verið hvað minnst í um-
fjölluninni af toppliðunum. Frétt-
ir af markaskorun Robins van Per-
sie, orðróminum um að það styttist
í snörunni hjá Andre Villas-Boas hjá
Chelsea, krísunni á Old Trafford og
drottnun Man chester City hafa allar
fengið mun fleiri síður en gott gengi
strákanna hans Harrys Redknapp
það sem af er tímabili. Eftir að hafa
tapað fyrstu tveimur leikjum tíma-
bilsins vann Tottenham átta leiki og
gerði eitt jafntefli. Það tapaði sínum
fyrsta leik í langan tíma um þarsíð-
ustu helgi en kom strax til baka og
lagði Sunderland, 1–0, um síðast-
liðna helgi.
Það sem má ekki gleymast er að
Tottenham á leik til góða og getur
með sigri í honum komist enn nær
toppliðunum frá Manchester. Kaup-
in til að styrkja hryggjarsúlu liðsins,
Brad Friedel í markið, Scott Parker
á miðjuna og Emmanuel Adebayor
í framlínuna, hafa öll heppnast full-
komlegar og spilar liðið fallegan fót-
bolta. Luka Modric er fyrir löngu bú-
inn að gleyma hvað hann langaði í
Chelsea í ágúst og er staðráðinn í að
sýna þeim bláu af hverju þeir misstu.
Þá hefur Rafael Van der Vaart verið
magnaður á miðjunni. Gegn Sun-
derland vantaði þó mikla vídd í lið
Tottenham þar sem Gareth Bale var
meiddur og Aaron Lennon þurfti að
fara snemma af velli vegna meiðsla.
Það þrengdi spil Tottenham mikið
sem mun henta Chelsea vel í leikn-
um á fimmtudaginn verði hvorugur
þeirra kominn aftur. Ljóst er þó að
það má búast við frábærum leik.
Auðveldir jólaleikir
Fyrir utan stórleikinn á White Hart
Lane er ekki búist við því að staðan
á toppnum breytist mikið. Efstu lið-
in eiga tiltölulega auðvelda leiki fyrir
höndum með nokkrum undantekn-
ingum þó. Manchester United held-
ur á fimmtudaginn til Lundúna og
mætir þar Fulham en meisturunum
hefur reynst ótrúlega erfitt að landa
sigri á Craven Cottage. Leikurinn
á annan í jólum á heimavelli gegn
Wigan ætti þó að verða auðveldur.
Skytturnar í Arsenal ferðast til mið-
héraðanna og mætir Aston Villa sem
hefur veitt topp liðunum skammar-
lega litla mótspyrnu og annan í jól-
um fær Arsenal Úlfana í heimsókn.
Með Robin van Persie heilan ættu
þetta að vera sex stig í hús hjá Arsene
Wenger og strákunum hans.
Liverpool gæti vart fengið auð-
veldara prógramm. Liðið mætir Wig-
an í dag, miðvikudag, og á annan í
jólum fær liðið Blackburn í heim-
sókn en bæði lið eru í fall sæti í ensku
úrvalsdeildinni. Liverpool hefur þó
reynst erfiðara en ekki að vinna litlu
liðin á heimavelli á tímabilinu og er
það ein ástæða þess að liðið er ekki
ofar en raun ber vitni. Fyrir utan
stórleikinn sem liðin eiga á fimmtu-
daginn mætir Tottenham nýliðum
Norwich næsta þriðjudag á meðan
Chelsea á nágrannaslag gegn Ful-
ham.
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti Markahæstir
Leikmaður Lið Mörk
Robin van Persie Arsenal 15
Wayne Rooney Man. United 11
Sergio Agüero Man. City 11
Demba Ba Newcastle 11
Edin Dzeko Man. City 10
Yakubu Blackburn 9
Emmanuel Adebayor Tottenham 8
Daniel Sturridge Chelsea 8
Mario Balotelli Man. City 8
Stoðsendingar
Leikmaður Lið Mörk
David Silva Man. City 8
Juan Mata Chelsea 7
Samir Nasri Man. City 6
Dagskráin
Miðvikudagur 21. desember
19.45 Aston Villa - Arsenal
19.45 Man. City - Stoke
19.45 Newcastle - WBA
20.00 Everton - Swansea
20.00 Fulham - Man. United
20.00 QPR - Sunderland
20.00 Wigan - Liverpool
Fimmtudagur 22. desember
20.00 Tottenham - Chelsea
Mánudagur 26. desember
13.00 Chelsea - Fulham
15.00 Arsenal - Úlfarnir
15.00 Bolton - Newcastle
15.00 Liverpool - Blackburn
15.00 Man. United - Wigan
15.00 Sunderland - Everton
15.00 WBA - Man. City
15.00 Stoke - Aston Villa
Þriðjudagur 27. desember
17.00 Swansea - QPR
19.30 Norwich - Tottenham
Markaskorari Arsenal á tvo auðvelda leiki um jólin þannig Persie gæti bætt við mörkum.
Stórleikur
Tottenham á stór-
leik gegn Chelsea.
MyndiR REuTERS