Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 26
H óphugsun Íslendinga er á endanum ástæða kerfis- hrunsins hér á landi. Hóp- hugsunin teygði sig inn í huga flestra landsmanna og hafði áhrif í smærri hópum, innan fyrirtækja eða í stjórnkerfinu, sem og opinberri umræðu. Í leitinni að skýringunni á efna- hagshruninu hafa stjórnmálamenn kennt bisnessmönnum um, en út- rásarvíkingar stjórnmálamönnum. Stundum segja þeir að þetta sé eng- um að kenna. Þetta hafi bara gerst – eins og fellibylur gerist bara. Margir eru enn haldnir landsdómsvillunni; að fólk beri annaðhvort alla ábyrgð eða enga. Þjóðin kenndi báðum hópum um. Á endanum gerðist þetta bara, og það er á ábyrgð stjórnmála- manna, bankamanna og allra Íslend- inga sameiginlega hverjar afleiðing- arnar voru. William Buiter, aðalhagfræðing- ur Citibank, talaði um sameigin- lega „heimsku“ okkar Íslendinga í erindi sínu á hagfræðiráðstefnu Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins í Hörpu fyrir nokkrum vikum. Hann hafði skrifað skýrslu um efnahagslífið á Íslandi í ársbyrjun 2008, sem breyttist í enn eitt þjóðarleyndarmálið þegar henni var stungið undir stól í Landsbankan- um, vegna þess að hún var neikvæð. Í greiningu á orsök íslenska hruns- ins benti hann á að lausafjárkreppan hefði verið alls staðar, en ekki bara á Íslandi, og því hafi eitthvað sérís- lenskt valdið því að hér hrundi allt strax með hvelli. Sjúkdómurinn sem leiddi Ísland í einstakt hrun var miklu djúpstæðari en hið algenga siðleysi stórfyrirtæki og skortur á lánsfé: „Það var líka nánast algilt afnám almennr- ar skynsemi og sameiginleg hóp- heimska sem ég hef ekki séð áður í þróuðu ríki. Við þurfum að horfast í augu við að þetta var tilfelli sameigin- legs brjálæðis, sem gerir þjóðir ber- skjaldaðar.“ Jarðvegurinn fyrir íslenska hrunið var samansafn gilda, viðmiða og menningar, sem lifði í flestum Ís- lendingum. Einkenni ástandsins voru afnám heilbrigðrar skynsemi og brotthvarf frá grundvallaratriðum. Þetta var þegar græðgi varð góð, en hófsemd slæm; blekkingin varð rétt, en sannleikurinn rangur; misskipting varð réttlát, en jöfnuður óréttlátur; og ábyrgð var skipt út fyrir frelsi hinna raunverulega ábyrgu undan ábyrgð. En „heimska“ er of einföld, innantóm og endanleg skýring, þótt merking íslenska orðsins fangi þröngsýni og reynsluleysi af heiminum, ekki síður en þekkingarleysi. Það sem hrjáði Ís- lendinga er þekkt ástand sem hægt er að lækna. Sjúkdómur okkar er vel skilgreint félagssálfræðilegt ástand sem er kallað „hóphugsun“. Bandaríski sálfræðingurinn Irv- ing Janis er þekktur fyrir skilgrein- ingu sína á hóphugsun. Kjöraðstæð- ur fyrir hóphugsun eru þegar sterk tengsl eru milli meðlima hópsins og þar sem þeir eru með einsleitan félagslegan bakgrunn og hugmynda- fræði. Lýðfræðilega hefur eitt helsta sérkenni íslensku þjóðarinnar verið einsleitni hennar. Auk þess er fá- mennið slíkt að fleiri í efstu röðum þjóðfélagsins þekkjast persónulega en í fjölmennari ríkjum. Þetta átti ekki síst við um Ísland góðærisins. Meðlimir úr einum hópi manna, Eimreiðarhópnum, höfðu til dæmis raðað sér í efsta lagið. Forsætis- ráðherrann, seðlabankastjórinn, hæstaréttardómari, forstjóri fjölda stórfyrirtækja, ráðuneytisstjóri fjár- málaráðuneytisins, og svo framvegis, voru allir hluti af þessum hópi. Aðrar aðstæður sem valda hóp- hugsun eru skortur á aðferðafræði- legum ferlum og fagmennsku, og skortur á hlutlausum leiðtoga. Seðla- bankanum var stýrt af hinum lög- fræðimenntaða Davíð Oddssyni, sem hafði óformleg völd yfir forsætisráð- herranum Geir H. Haarde, eins og lýst er í rannsóknarskýrslu Alþing- is. Bönkunum var stýrt af mönnum sem virtust reiðubúnir að brjóta lög og reglur í þágu sjálfs sín og eigenda bankanna. Álag vegna utanaðkomandi ógnar, áföll og sérstakir erfiðleikar í ákvarð- anatöku geta aukið hóphugsun. Af- leiðingar hóphugsunar eru að ákvarð- anataka verður kerfislægt gölluð. Mat á valmöguleikum, markmiðum og áhættu verður lélegt. Upplýsinga- leit verður hlutdræg og óvönduð og neyðarplön eru ekki gerð. Ísland var skólabókardæmi fyrir hóphugsun á smærri og stærri skala. Gagnrýnni umræðu er fórnað í ástandi hóphugsunar. Í góðærinu þótti gagnrýni innan ríkisstjórnarinn- ar vera sérstakur löstur. Eftir að Fram- sóknarflokkurinn féll úr ríkisstjórn og Samfylkingin tók við ríkisstjórnar- samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn árið 2007 gagnrýndu þingmenn Fram- sóknar ítrekað að samfylkingarfólkið gengi ekki nógu vel í takt með Sjálf- stæðismönnum. Framsóknarþing- konunni Siv Friðleifsdóttur þótti það til dæmis „hneyksli“ þegar samfylk- ingarmaðurinn Helgi Hjörvar gagn- rýndi forsætisráðherra ríkisstjórnar sinnar, Geir Haarde, fyrir að halda yfirstjórn Seðlabankans óbreyttri eftir hrun. Þrýstingurinn á samstöðu, tál- sýnin um að vera ósigrandi, óhóf- leg bjartsýni, þröngsýni og árásir á gagnrýnendur voru ekki bundnar við stjórnmálastéttina eða bankana. Al- menningur, sem veitti þeim aðhald, var að stórum hluta líka haldinn sömu einkennum. Allt vann þetta saman. Fjölmiðlar, ríkisstyrktir og aðrir, endurómuðu áróður stjórn- málamanna og bankamanna, án þess að kanna sannleiksgildi orða þeirra. Bankarnir nutu næstum 100 prósent trausts, þótt þeir verðskulduðu raun- verulega ekkert. Hluti vandans var lygin, en annar hluti að lygin var ekki aðeins umborin heldur upphafin. Þetta er sjúkdómurinn okkar og við verðum að muna hann til að verða honum ekki að bráð. Þegar fólk svarar gagnrýni eða nýjum upp- lýsingum með kröfu um þögn og samstöðu, er ástæða til að varast. Þá er sjúkdómurinn aftur að láta á sér kræla. Sandkorn Saklaus sem hangikjöt n Ólafur Arnarson, pistlahöf- undur Pressunnar, er ókátur með það að DV skuli hafa uppljóstrað því að hann þáði fjármuni frá flugfélagi Pálma Haralds- sonar með því að þiggja frí- miða og láta flugfélagið borga flug- vallarskattana. Áður hafði verið upplýst að Ólafur, sem er staðfastur í vörn sinni fyrir valda útrásarvíkinga, hafði þegið greiðslur í gegnum fyrir- tæki Gunnars Steins Pálssonar. Ólafur telur eðlilegt að hann þiggi slíkan greiða þar sem hann þurfti að hitta Pálma í London! Svo líkti hann sjálf- um sér við sakleysislegt jóla- kjöt. „Heilagt stríð gegn vondu hangikjöti er vitanlega hlut- verk alvöru fjölmiðils. Já, DV er þungavigtarmiðill,“ skrifaði hann á heimasíðu sína. JPV ósáttur n Metnaðarfyllsti útgefandi landsins, Jóhann Páll Valdi- marsson, er líklega ósáttur við að rithöfundinum Arnaldi Indriðasyni hafi fatast flugið að því marki að Yrsa Sigurðar- dóttir hefur náð að selja meira um nokkurt skeið í jólamán- uðinum. Orðið á götunni á Eyjunni telur sig hafa heim- ildir fyrir því að Arnaldur og Jóhann Páll hafi setið saman á Kaffivagninum þegar sló í brýnu milli þeirra. Ekki var ljóst hvert ágreiningsmálið var en þó talið fullvíst að það væri salan á Einvíginu. Drottning skákar n Arnaldur Indriðason hefur um langt árabil verið konung- ur glæpasagnanna. Hann hef- ur skammtað völdum fjöl- miðlum viðtöl og haldið sig til hlés. Sumir telja það vera vegna hroka en aðrir nefna ótta um að fá ekki frið. Drottning glæpasagnanna, Yrsa Sigurðardóttir, er með allt öðrum brag. Hún mætir sjálf á upplestra og er úti um allt í viðtölum. Þetta hefur skapað henni svo vaxandi vinsældir að hún ógnar nú sjálfum kon- unginum. Sníkjulíf n Hannes Hólmsteinn Gissurar- son prófessor er enn og aftur í vanda vegna bókarskrifa sinna. Að þessu sinni er það vegna heimildavinnu við bók- ina Íslenskir kommúnnistar þar sem hann leitar fanga hjá öðrum. Fræðimaðurinn Jón Ólafsson, prófessor á Bifröst, er ómyrkur í máli þar sem hann rekur meintar rangfærslur Hannesar sem hann telur að eigi rót sína í rangri dagsetn- ingu í annarri bók og leiði Hannes í algjörar villigötur um styrk Rússa til verkalýðs- félagsins Dagsbrúnar. „Þessi sérkennilegu mistök Hann- esar sýna vel hve varhugavert það er að lifa sníkjulífi á heim- ildavinnu annarra,“ segir á heimasíðu Jóns. Þú verður að spyrja Ólaf að þessu Æfingarnar munu snúast mikið um taktík Dorrit Moussaieff var spurð hvort hún haldi jól á Bessastöðum að ári. – DV Lars Lagerbäck velur bráðum sinn fyrsta landsliðshóp. – DV Hóphugsun Íslendinga Leiðari Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 26 21.–27. desember 2011 Jólablað Einkenni hóphugsunar - Irving Janis, 1977 Stig I: Ofurtrú á hópnum, getu hans og siðferði 1 Tálsýn um að vera ósigrandi, sem skapar óhóflega bjartsýni og hvetur til áhættu Dæmi: Ræður Ólafs Ragnars Grímssonar forseta um eðli Íslendinga, umræður í samfélaginu um sérstöðu og getu Íslendinga. 2 Óvéfengd trú á siðferði hópsins, sem veldur því að meðlimir hópsins hunsa afleiðingar gjörða sinna Dæmi: Eini þekkti viðskiptasiðfræðingurinn á Íslandi tók þátt í vafasamri hallarbyltingu í Sambandi ungra sjálfstæðismanna og lagði síðan undir sig stéttarfélag. Grundvallaratriðum eins og hófsemd og sannsögli var vikið til hliðar þegar kom að efnahagsmálum, efnahagskerfið ofur- skuldsett án tillits til afleiðinga samdráttar. Stig II: Þröngsýni 1 Beita réttlætingum gegn viðvörunum sem ögra því sem hópurinn gerir ráð fyrir Dæmi: Geir Haarde gerði lítið úr öllum viðvörunum í aðdraganda hruns. Ingibjörg Sólrún birtist í forsíðuviðtali í Viðskiptablaðinu skömmu fyrir hrun: „Hér er engin kreppa.“ 2 Útmála þá sem veita hugmyndum hópsins andstöðu sem steríótýpur, til dæmis sem veikgeðja, illa, hlutdræga, hefni- gjarna, óhæfa eða heimska Dæmi: Hagfræðingurinn Robert Aliber varaði við yfirvofandi skipbroti árið 2007 og varð í kjölfarið fyrir ýmsu aðkasti. Til dæmis sagði Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir hann þurfa á endurmenntun að halda. Stig III: Þrýstingur á samstöðu 1 Sjálfsritskoðun hugmynda sem víkja frá samþykktum hugmyndum hópsinsDæmi: Gagnrýni á áhættu bankanna, skuldsetningu efnahagslífsins og vafasömum gjörningum í stjórnsýslu og viðskiptum var sáralítil. Fjórar af hverjum fimm fréttum um bankana og fjármál fengust frá fjármálafyrirtækjunum sjálfum. 2 Blekking um einróma samþykki meðal meðlima hópsins – þögn er metin sem samþykki Dæmi: Davíð Oddsson efaðist í viðtali við Sigmar Guðmundsson í Kastljósi í febrúar 2009 að víðtæk óánægja væri með störf hans, þrátt fyrir fjölmenn mótmæli við Seðlabankann. Hann taldi skoðanakannanir falsaðar. „Þú hefur oft verið gagnrýndur...,“ sagði hann við Sigmar á móti. 3 Beinum þrýstingi beitt gegn þeim sem efast um hópinn – þeir sakaðir um tryggðarsvik Dæmi: Hagfræðideild HÍ varð fyrir þrýstingi vegna umræðu um mögulegt fall bankanna, Þjóðhagsstofnun var lögð niður eftir gagnrýni, Björgólfur Guðmundsson lýsti því opinberlega að hann hefði reynt að kaupa DV til að leggja það niður vegna umfjöllunar um hann, án þess að nokkrum þætti það athugunar vert. 4 Hugsanaverðir – sjálfskipaðir meðlimir sem verja hópinn fyrir upplýsingum sem samræmast ekki hugmyndum hans Dæmi: Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor, ráðherrar ríkisstjórnar- innar og bankastjórarnir sem stöðugt börðust gegn umfjöllun fjölmiðla, aðallega erlendra – því þeir innlendu tóku bara viðtöl við þá. Björn Ingi Hrafnsson, kúlulánþegi Kaupþings og viðskiptaritstjóri 365, tók viðtal við Sigurð Einarsson, forstjóra Kaupþings, um að íslenskir bankar hefðu orðið fyrir „kerfisbundnum árásum“ og birti frétt þess efnis á forsíðu Fréttablaðsins, 9. apríl 2008, sem dreift var inn á flest heimili landsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.