Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 25
uðum leiðtoga sem íbúar Norður-Kór-
eu litu upp til að því er virðist.
Milljónir létust
Hungursneyð hefur einkennt Norður-
Kóreu í fjöldamörg ár enda hafa yfir-
völd nánast eingöngu reitt sig á eig-
in matvælaframleiðslu. Eitt af fyrstu
verkum Kim Jong-il þegar hann tók við
sem einræðisherra var að leita á náðir
Sameinuðu þjóðanna um matvælaað-
stoð. Erlendir leiðtogar töldu að þetta
væri merki um að breytingar til hins
betra væru yfir vofandi í Norður-Kór-
eu. Fljótlega kom þó í ljós að hann var
ekkert frekar tilbúinn að opna land sitt
fyrir erlendum diplómötum en faðir
hans – landið var jafn lokað og áður.
Svo fór að Norður-Kóreumenn
fengu matvælaaðstoð en talið er að
lítill hluti hennar hafi raunverulega
farið til þeirra sem mest þurftu á að
halda – sveltandi fólks. Menn í innsta
hring einræðisherrans hafi notið góðs
af matvælaaðstoðinni og lifað í vellyst-
ingum. Talið er að á milli tvær til þrjár
milljónir manna hafi látist af völdum
hungursneyðar á milli áranna 1994 til
2004. Einstaklingar sem tókst að flýja
landið lýstu því síðar yfir að mannakjöt
hafi verið selt á útimörkuðum í land-
inu. Ekkert er staðfest í þessum efnum
og virðast margar sögurnar vera áróð-
urskenndar lygar þótt einhver sann-
leikskorn kunni að leynast í þeim.
Deilur um kjarnorkuáætlun
Miklar deilur hafa staðið um kjarn-
orkuáætlun Norður-Kóreumanna
undanfarin ár. Í tíð Madeleine Al-
bright, sem gegndi embætti utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna árin 1997
til 2001, benti margt til þess að Norð-
ur-Kóreumenn myndu láta af áætl-
unum sínum gegn því að Bandaríkja-
menn borguðu fyrir uppsetningu
kjarnorkuvera í landinu. Albright
heimsótti meðal annars Norður-
Kóreu þar sem hún talaði hlýlega
til leiðtogans og sagði að hann væri
„fullkomlega rökvís, dálítið einangr-
aður og ekkert sérstaklega vel upp-
lýstur.“ Þessar áætlanir fóru út um
þúfur þegar ríkisstjórn George W.
Bush tók við völdum í Bandaríkjun-
um árið 2002. Eins og frægt er orð-
ið sagði Bush að Norður-Kórea væri
eitt af „öxulveldum hins illa“ ásamt
Írak og Íran. Eitt leiddi af öðru og
nokkru síðar beittu Bandaríkjamenn
Norður-Kóreumenn viðskiptaþving-
unum og stöðvuðu til að mynda alla
olíuflutninga til landsins. n
Erlent 25Jólablað 21.–27. desember 2011
Furðulegar staðreyndir
um Kim Jong-il
n Breska blaðið The Daily Mirror hefur tekið saman nokkur forvitnileg atriði
um hinn fallna leiðtoga Kim Jong-il
Besti golfari í heimi Það vita það kannski fáir en Kim Jong-il var
langbesti golfari heims og jafnvel sjálfur Tiger Woods komst ekki
með tærnar þar sem Kim var með hælana. Samkvæmt opinberum
gögnum fagnaði Kim sextugasta og öðrum afmælisdegi sínum á
golfvellinum. Þar náði sá gamli að fara átján holu braut á aðeins
34 höggum. Þannig fór hann á 38 höggum undir pari þar sem par
vallarins er 72.
Vill samlit hrísgrjón Árið 2004
uppljóstraði fyrrverandi kokkur forsetans
um einkennilegar kröfur hans. Þegar hann
borðaði hrísgrjón urðu þau að vera samlit og
alveg nákvæmlega jafn stór. Er hann sagður
hafa verið með hóp manna í vinnu við að flokka hrísgrjónin.
Ný stjarna á himnum þegar Kim fæddist
Í opinberri ævisögu forsetans kemur fram að þegar hann
kom í heiminn hafi skyndilega birst tvöfaldur regnbogi og á
sama tíma hafi ný stjarna orðið til á himnum.
Rændi kvikmyndagerðarmönnum í Hong Kong Árið
1978 fyrirskipaði Kim Jong-il að tveimur suðurkóreskum kvikmyndagerðar-
mönnum skyldi rænt í Hong Kong. Var forsetinn orðinn leiður á dræmu úrvali kvik-
mynda í heimalandinu. Kvikmyndagerðarmennirnir reyndu að flýja en án árangurs. Meðan
á dvöl þeirra stóð endurgerðu þeir meðal annars myndina Godzilla undir nafninu Pulgasari.
Engum sögum fer af gæðum myndarinnar.
Hætti að reykja og bannaði reykingar Árið 2007 ákvað forsetinn að
hætta að reykja eftir að læknar hans ráðlögðu honum það. En Kim Jong-il ákvað
að ganga skrefinu lengra og bannaði að sjálfsögðu reykingar hjá almenningi á
sama tíma.
Lét senda til sín humar með þyrlu Rússneskur útsendari segir að
hann hafi eitt sinn ferðast í lest með forsetanum í gegnum Austur-Evrópu. Segir útsendar-
inn að hann hafi verið með starfsmenn á sínum snærum sem fluttu humar með þyrlu hvert
sem hann fór. Forsetinn borðaði svo humarinn af bestu lyst með hnífapörum úr silfri.
Stærsti viðskiptavinur Hennessy Þó að Kim Jong-il hafi verið hættur að
reykja fannst honum enn gott að fá sér í glas. Samkvæmt koníaksframleiðandanum
Hennessy, var Kim einn stærsti viðskiptavinur framleiðandans. Keypti hann koníak fyrir
70 milljónir á hverju ári.
Einræðisherrann
sem elskaði Rambo
Grátur og gnístran tanna Þessar konur komu saman og syrgðu fallinn leiðtoga.
Látinn Ríkisfjölmiðill Norður-Kóreu birti mynd af líki einræðisherrans á þriðjudag.
„Hann var mjög
kappsamur og
þoldi ekki að tapa,
ekkert frekar en við hinir
Hinn mikli kennari blaðamanna
Hvort þessi bók geti nýst blaðamönnum
skal ósagt látið. Hún kom þó út árið 1983.