Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 20
20 Fréttir 21.–27. desember 2011 Jólablað Bílaverkstæði Varahlutaverslun Smurstöð Dekkjaverkstæði Bremsur, spindilkúlur, stýrisendar, o.fl., o.fl. Allar gerðir bætiefna fyrir vél, drif og gírkassa www.bilaattan.is Allt á einum stað F rá því 14. desember hafa blaðamaður DV, Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, og tveir góðviljaðir borgarar ekki getað haft upp á einstæðri móð- ur sem Pressan sagði hírast ásamt börnum sínum í kaldri íbúð án hita. Pressan segir konuna ekki geta staðið skil á leigu eða hita auk þess sem börnin hennar tvö geti ekki búist við jólagjöfum frá sér. „Við höfum þó fengið hlý föt gefins frá hjálparsam- tökum og oft reyni ég bara að liggja þétt við hliðina á krökkunum til að ná upp hita áður en þau fara í skólann,“ hefur Pressan eftir konunni. Seinna sama dag fjallaði Pressan um góðvilj- aðan einstakling sem mun hafa greitt bæði leigu og orkureikning konunn- ar. Aðrir sem hafa viljað hjálpa kon- unni geta alls ekki fundið hana. Hjá Fjölskylduhjálp fengust þær upplýs- ingar að margir hefðu leitað til þeirra með það í huga að leggja konunni og börnum hennar lið eftir ábending- ar frá Pressunni um að vitneskja um aðstæður hennar væri þaðan komin. Það væri þó ekki rétt enda kannaðist enginn við málið hjá Fjölskylduhjálp. Aldrei heyrt um tilvik sem þetta „Á þeim sextán árum sem ég hef ver- ið í þessum geira hef ég aldrei fengið inn á borð til mín fólk sem ekki get- ur borgað rafmagn og hita um leið og það er í vanda með mat, leigu og fatakaup. Slíkt gerist bara ekki og við hefðum ekki sent aðila í slík- um vanda burt,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir hjá Fjölskylduhjálp Ís- lands og bætir við að hún vilji endi- lega fá konuna til Fjölskylduhjálpar. „Við getum ekki hjálpað henni ef við vitum ekki hver hún er.“ Starfsmenn fleiri hjálparsamtaka sögðu ólíklegt að í desember myndi nokkur senda aðila burt án aðstoðar sem væri með börn í kaldri íbúð. Blaðamaður hafði samband við starfsmenn og sjálf- boðaliða hjálparsamtaka víða um land en fátt var um svör. Móðgun við fátæka „Þetta mál kom bara í símtali til okk- ar,“ segir Steingrímur Sævarr Ólafs- son, ritstjóri Pressunnar, aðspurður um málið. „Þetta kom til okkar og hún óskaði ekki eftir neinum gjöf- um,“ sagði Steingrímur spurð- ur hvers vegna öðrum, en ónafn- greinda manninum sem Pressan sagði hafa greitt leigu og orkureikn- ing fyrir hana, tækist ekki að koma aðstoð til konunnar. Steingrímur segir þá greiðslu hafa verið innta af hendi með persónulegri milligöngu hans. Spurður hvers vegna enginn kannaðist við málið sagði hann kon- una hafa óskað nafnleyndar. Þeg- ar blaðamaður spurði hvort konan að baki fréttinni væri til sagði Stein- grímur spurninguna móðgandi við fátæka á Íslandi. „Ertu að halda því fram að þetta sé lygi? Að sjálfsögðu er þetta raunverulegt. Heldurðu að þetta væri birt ef þetta er ekki raun- verulegt?“ sagði Steingrímur. „Ég tel mig ekki þurfa að sýna fram á fá- tækt á Íslandi,“ svaraði hann spurður hvort hann væri tilbúinn að leggja fram einhverjar heimildir. „Það er voðalega lítið sem ég get gert í þess- ari rannsóknarblaðamennsku þinni. Ég bara vænti þess að hún sé á svip- uðu plani og mörg önnur mál hjá DV,“ bætti Steingrímur svo við. Margra daga leit Fréttin hefur vakið verðskuldaða at- hygli en tæplega sex þúsund hafa látið sér líka við fréttina og dreift á Facebook. Þess má geta að fréttir af konunni eru skreyttar myndum af matarúthlutun Fjölskylduhjálpar en hvergi er tekið fram að myndin tengist málinu ekki. „Móðirin vildi koma á framfæri innilegu þakklæti til þeirra lesenda Pressunnar sem vildu rétta henni hjálparhönd. Hún sagðist hrærð yfir velvilja fólks og hún benti þeim sem ættu eitthvað aflögu að koma því á hjálparsamtök á borð við Fjölskylduhjálp Íslands, Mæðrastyrksnefnd, Hjálparstofn- un kirkjunnar og fleiri aðila,“ segir í frétt Pressunar af góðverki óþekkta engilsins. Þegar leitað var til hjálpar- samtakanna var fátt um svör. Sama hvert var leitað, enginn kannaðist við málefni konunnar. Þó má benda á að Orkuveita Reykjavíkur hefur staðfest við blaðið að opnað hafi verið fyrir hita tveggja hjá tveimur lögaðilum daginn sem fréttin birtist. Í fréttinni kemur þó ekki fram hvar á landinu konan er. Gjafir komast ekki til skila „Undanfarna daga hef ég verið að reyna að hafa upp á konunni sem Pressan fjallaði um vegna þess að ég hef áhuga á að gefa henni jólagjöf frá fyrirtæki sem ég er í forsvari fyrir,“ sagði viðmælandi DV sem vildi gefa konunni sumarfrí fyrir sig og börn- in. Upphaflega var honum bent á að ræða við Fjölskylduhjálp þaðan sem fréttin væri komin. Þar kannast fólk ekki við söguna en fyrst var talið að átt væri við einstæða móður sem brotnaði saman á fatamarkaði fyrir nokkru. Raunar er vitnað í þá sögu í frétt Pressunnar þótt Fjölskylduhjálp segi konurnar ekki þær sömu. Þegar gengið var á Pressuna var manninum lofað að reynt yrði að hafa milligöngu um að koma aðstoð til konunnar og að hann fengi að heyra í henni. Það hefur enn ekki gengið eftir. Annar að- ili sem sendi bréf til Pressunnar fékk þau svör að konan væri afar þakklát en kærði sig ekki um meiri aðstoð þótt hægt væri að aðstoða í gegnum ýmis hjálparsamtök. Móðirin finnst ekki n Pressan bendir á Fjölskylduhjálp sem þekkir málið ekki n Ókunnugur maður greiddi leigu og hitaveituskuld án vitneskju konunnar n Starfsmenn hjálparstofnana kannast ekki við svipuð tilvik „Á þeim sextán árum sem ég hef verið í þessum geira hef ég aldrei fengið inn á borð til mín fólk sem ekki getur borgað rafmagn og hita um leið og það er í vanda með mat, leigu og fatakaup. Óstaðfest frásögn send á tölvupósti birt sem frétt „Já, ég gerðist hóra!“ vitnaði Pressan í fjögurra barna föður í október. Í fréttinni sagði að maðurinn hefði byrjað að selja sig öðrum karlmönnum vegna fjárhags- erfiðleika, og tengdi hann það við þann „ömurleika sem á sér stað á Íslandi í dag, á meðan ríkisstjórnin er að þráast við að hætta og eltast við sérduttlunga um Evrópusamband,“ eins og maðurinn lýsti því. Frásögnin var byggð á bréfi sem sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason fékk sent og birti á bloggsíðu sinni á Pressunni. Í samtali við DV sagðist Sölvi ekki hafa fengið tilvist mannsins stað- festa, enda hefði ætlun hans ekki verið að birta frétt. Samskiptin fóru aðeins fram í gegnum tölvupóst og var ekki hægt að rekja tölvupóstinn til mannsins eða staðfesta frásögn hans á nokkurn hátt. Þótt frásögnin sé áhrifamikil og hafi verið birt opinberlega hefur hins vegar ekki komið fram að óvíst er að maðurinn sé til í raunveruleikanum. Tilvist hans er óstaðfest. Játningar reyndust þýðingar Í september á þessu ári var nokkuð skrifað um játningar bleikt.is. lengi höfðu játningarnar verið með helsta aðdráttarafli vefsins. Ritstjórn vefsins var sökuð um að þýða í heilu lagi greinar úr erlendum kvennablöðum og breyta nöfnum og staðháttum til að láta líta út eins og játningarnar væru íslenskar en ekki erlent efni. Á bloggsíðunni Málbeininu sem haldið er úti af Gísla Ásgeirssyni eru nokkur dæmi um slíkt rakin. Til dæmis er greinin „Svaf hjá giftum manni og sagði konunni hans það“ en höfundur er merktur Nafnlaus. Bent er á grein sem ber heitið „Cheating Husband: Screw NOT Telling His Wife!“ á vefnum I am divorced not dead. Fleiri álíka dæmi eru rakin. Ásgerður Jóna Flosadóttir Kannast ekki við konuna en vill hafa upp á henni og koma til hjálpar. Biðröð Matarúthlutun hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrr á árinu. Myndin er úr myndasafni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.