Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Side 12
12 Fréttir 21.–27. desember 2011 Jólablað
F
élagsleg staða, menntun og
persónulegar skuldir voru
ekki helsti drifkraftur þeirra
sem mættu í mótmælaað
gerðir í tengslum við bús
áhaldabyltinguna í janúarmánuði
árið 2009. Þetta kemur fram í rann
sókn á þátttöku almennings í bús
áhaldabyltingunni sem unnin er af
Jóni Gunnari Bernburg, prófessor í
félagsfræði, og Sigrúnu Ólafsdóttur,
lektor í félagsfræði við Bostonhá
skóla. Fyrst og fremst virðast hug
myndafræðilegir þættir hafa spilað
inn í. Þátttaka er mun meiri meðal
fólks sem telur sig vera til vinstri í
stjórnmálum, bera lítið traust til
stjórnmálamanna og trúa að tæki
færi bjóðist fyrst og fremst þeim
sem þekki réttu aðilana. Það eru því
hugmyndafræðilegir þættir og sýn
á samfélagsgerð fremur en lífskjör
sem áttu stóran þátt í því hvort fólk
tók með beinum hætti þátt í mót
mælum í tengslum við búsáhalda
byltinguna.
Verri lífskjör skipta litlu
Sú upplifun að búa við verri lífs
kjör eftir að kreppan skall á hefur
engin marktæk tengsl við þátttöku
í mótmælunum. „Það að telja stöðu
sína óréttláta tengist ekki þátttöku
í fjöldamótmælunum. Sú upplifun
tengist hins vegar vanlíðan,“ segir
Jón Gunnar um niðurstöðu rann
sóknarinnar.
Óvenjuleg aldursskipting
Einn af hverjum fjórum aðspurðra
sagðist hafa mætt og mótmælt á
Austurvelli einu sinni eða oftar.
Þúsund íbúar höfuðborgarsvæðis
ins sem valdir voru af handahófi úr
þjóðskrá voru beðnir um að taka
þátt í rannsókninni en rúmlega sex
hundruð svöruðu beiðni um viðtal.
Þeir sem voru undir átján ára aldri,
starfsfólk stofnana og þeir sem ekki
tala íslensku voru útilokaðir frá úr
takinu. Aldursdreifing mótmæl
enda er nokkuð frábrugðin því sem
rannsóknir erlendis hafa sýnt. Þátt
taka í mótmælum eykst iðulega
samhliða lækkandi aldri. Í búsá
haldabyltingunni sést hins vegar
mun dreifðari aldursþátttaka og
fólk á aldrinum þrjátíu til fjörutíu og
fimm ára er líklegast til að hafa tek
ið þátt í mótmælaaðgerðum. Raun
ar er þátt takan almennt mikil meðal
fólks á aldrinum átján til fimmtíu og
fimm ára en hrapar svo nokkuð ört í
kringum sextugsaldurinn.
Búseta en ekki menntun
„Fyrstu niðurstöður bentu til þess
að menntunarstig mótmælenda
hefði afgerandi áhrif. Þá bentu
niðurstöðurnar til þess að meiri
menntun þýddi aukna þátttöku í
mótmælaaðgerðum. Áhrif mennt
unar hurfu hins vegar þegar tekið
var tillit til búsetu fólks,“ segi Jón
Gunnar. Hann segir mótmælaað
gerðirnar hafa allar verið miðsvæð
is og menntafólk hafa tilhneigingu
til að búa miðsvæðis. „Því nær mót
mælunum sem þú býrð því líklegri
ertu til að mæta. Burtséð frá mennt
un, starfsstétt og slíku. Við túlkum
þetta einfaldlega sem tækifærisþátt,
það er að nálægðin auðveldar fólki
að taka þátt. Búsetan tengist hins
vegar ekki viðhorfum til mótmæl
anna,“ segir Jón Gunnar og á við að
þótt íbúar miðsvæðis sem studdu
aðgerðir mótmælenda séu líklegri
til að hafa mætt, þá eru íbúar svæð
isins almennt ekki líklegri en íbúar
annarra svæða til að styðja aðgerðir
mótmælenda.
Skuldir skiptu litlu
í búsáhaldabyltingu
„Sú upplifun að
búa við verri lífs-
kjör eftir að kreppan skall
á hefur engin marktæk
tengsl við þátttöku í mót-
mælunum.
n Vinstrisinnaðir voru líklegastir til að taka þátt í búsáhaldabyltingunni
n Menntun, lífskjör og greiðsluerfiðleikar skiptu ekki máli
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Mennska framtíð Lítil tiltrú á samfé-
laginu frekar en áhyggjur af eigin kjörum.
www.pwc.com/is
Við óskum ykkur gleðilegrar
hátíðar og farsældar á
komandi ári
Reykjavík
Akureyri
Selfoss
Húsavík
PwC á Íslandi er framsækið og taust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er
hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem skilgreinir sig sem þekkingarfyrirtæki sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Köstuðu
þvagi yfir
fórnarlambið
Hæstiréttur þyngdi í dag dóm Hér
aðsdóms Norðurlands eystra yfir
Gesti Hrafnkeli Kristmundssyni
og dæmdi í þriggja ára fangelsi
fyrir aðild hans að hrottafenginni
handrukkun.
Gestur og Eyþór Helgi Guð
mundsson voru í mars síðastliðn
um dæmdir í héraði fyrir frelsis
sviptingu, stórfellda líkamsárás,
ólögmæta nauðung og tilraun til
fjárkúgunar. Eyþór fékk þá tveggja
og hálfs árs fangelsi en Gestur 20
mánuði.
Árásin var sérlega hrottaleg en
mennirnir héldu fórnarlambinu,
sem þeir vildu meina að skuldaði
þeim eina milljón króna vegna
fíkniefnaviðskipta, föngnum frá
klukkan 21 að kvöldi sunnudags
ins 9. ágúst 2009 þar til klukkan 09
morguninn eftir. Eyþór og Gestur
börðu ítrekað á fórnarlambinu,
spörkuðu í það. Notuðu járnrör
við barsmíðarnar og hótuðu að
sögn fórnarlambsins að smita það
af lifrarbólgu C.
Þá köstuðu þeir þvagi yfir fórn
arlambið, skvettu yfir það heitu
kertavaxi og áfengi. Þá neyddi
Gestur fórnarlambið til að þrífa
húsnæðið, meðal annars baðher
bergið þar sem hann lét fórnar
lambið sleikja salernisskálina.
Auk þess að smita fórnarlamb
ið af lifrarbólgu hlaut það verulega
áverka við árásina sem var sérlega
hrottafengin.
Jón Gunnar Bernburg Segir hug-
myndafræði ekki efnahagslegar aðstæður
fólks hafa skipt sköpum fyrir þáttöku í
Búsáhaldabyltingunni.
Haninn til
fyrirmyndar
Heldur óvenjulegur gestur mætti
á fund bæjarstjórnar Akureyrar
á þriðjudag þegar rædd var sam
þykkt um búfjárhald. Haninn
Hrólfur, „eini fullvaxta hani bæjar
ins“, mætti með eiganda sínum,
Sigurvini Jónssyni, eftir að bæjar
fulltrúi Bæjarlistans óskaði eftir
því. RÚV greindi frá þessu. Ráð
gert er að banna hana á Akureyri
en Hrólfur er þó ekki í lífshættu
þar sem bannið verður ekki aftur
virkt. Samkvæmt bæjarstjóra Ak
ureyrar var haninn til fyrirmyndar
á fundinum og lét lítið í sér heyra.