Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 13
Fréttir 13Jólablað 21.–27. desember 2011
Verið
velkomin
í bjartari og betri búð
Erum flutt í glæsilegt
húsnæði að Síðumúla 20
Gleðileg jól og bestu
þakkir fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða
É
g fæ ekki flugleyfi eins og stað-
an er í dag,“ segir Ragna Er-
lendsdóttir, móðir Ellu Dísar
Laurens sem greind hefur verið
með taugaskaða vegna sjálfsof-
næmis í kjölfar bólusetningaróþols.
Ragna átti fund með barnaverndar-
yfirvöldum á mánudaginn síðast-
liðinn þar sem farið var yfir henn-
ar mál. En fulltrúar barnaverndar
meinuðu henni að fara til London
með Ellu Dís í síðustu viku. Ragna
var stöðvuð við hliðið á Keflavíkur-
flugvelli þar sem bréfi frá barna-
læknum á Landspítalanum var fram-
vísað. Þeir segja Ellu Dís of veika til
að fljúga. Ragna, sem vill flytja með
fjölskyldu sína til London, batt vonir
við að málin myndu leysast á fund-
inum og að læknarnir myndu sjá að
sér. Það gerðist hins vegar ekki og var
hún miður sín þegar DV náði tali af
henni eftir fundinn.
Barnalæknarnir mættu ekki á
fundinn
Ragna hefur staðið í deilum við
barnalæknana á Barnaspítala
Hringsins í nokkur ár og iðulega
gagnrýnt þá opinberlega. Henni
finnst þeir ekki hafa sinnt Ellu Dís
sem skyldi.
Fyrir rúmu ári snéri hún sér til
Sverris Bergmanns, heila- og tauga-
læknis, sem sjúkdómsgreindi Ellu
Dís. Að sögn Rögnu hefur hann met-
ið hana nógu hrausta til að fljúga. „Ég
er með undirritað læknisvottorð upp
á að Ella Dís sé fullfær um að fljúga
og að ég sé fullfær um að sjá um hana
í svona stuttu flugi.“ Sverrir tók þátt í
fundinum með barnavernd í gegn-
um síma.
Barnalæknarnir voru einnig boð-
aðir á fundinn en báru við tíma-
skorti og því varð ekkert úr því að
þeir mættu. „Við ætlum ekkert að
bíða eftir því að þeir gefi sér tíma til
að verja þessa ákvörðun sína,“ segir
Ragna sem er búin að fá sig fullsadda
af Íslandi og vill komast til London.
Enn í óvissu
Þá voru á fundinum tveir lögfræðing-
ar sem starfa fyrir Rögnu. Hún segir
þá hafa verið jafn hissa og hún á því
um hvað málið virðist snúast. „Þetta
er ekki lengur að snúast um flug-
færni Ellu Dísar heldur er þetta bara
einhver valdabarátta á milli lækna
barnaspítalans og Sverris um það
hver veit betur.“
Niðurstaða fundarins var í raun
engin og Ragna er enn í jafn mik-
illi óvissu og áður. Það er nú í henn-
ar höndum að hafa samband við
barnalæknana og reyna að fá þá til
að breyta áliti sínu. Ragna skilur
ekki af hverju álit Sverris er ekki nóg.
„Hvernig getur barnavernd valið á
milli barnaspítalalækna og hans? Ég
kýs að leita til hans og hann er búinn
að sjá um barnið mitt síðasta árið.“
Í sambandi við lækna úti
Ragna fór með dóttur sína í skoðun
á Landspítalanum daginn áður en
hún ætlaði til London. Þá var Ella Dís
skoðuð af háls-, nef- og eyrnalækni
sem sagði hana líta vel út, að sögn
Rögnu sem vill því meina að lækn-
arnir hafi skipt um skoðun yfir nótt.
Hún segir móður sína hafa haft sam-
band við barnavernd og sett þannig
allt ferlið af stað, en þær hafa varla
talast við í heilt ár.
Sverrir hefur skrifað barnaspít-
alanum við Great Ormond Street í
London bréf þar sem hann óskar eft-
ir því að Ella Dís verði skoðuð og það
metið hvort hægt sé að setja hana í
aðra öndunarvél sem hentar henni
betur. En kokið á henni virðist vera
farið að bólgna upp og þrengjast.
„Ég fíflast alltaf heim aftur“
„Ég fékk að heyra það á fundinum
að ég hefði verið tilkynnt til barna-
verndar því börnin mín lyktuðu illa
og ég væri drekkandi og fleiri æru-
meiðingar.“ Ragna segir það hafa
verið nafnlausa ábendingu sem
eigi sér enga stoð í raunveruleik-
anum.
„Ég er með forræði yfir börn-
unum mínum og hef ekki gert neitt
nema gott fyrir þau. Öll skiptin sem
eitthvað hefur komið upp á með
Ellu Dís hef ég þurft að leita til út-
landa því þeir hafa ekki geta hjálpað
henni hér. Svo fíflast ég alltaf heim
aftur eins og bjáni og lendi aftur í
veseni með læknana.“
Ragna segir lögfræðinginn sinn
ætla að reyna að koma þeim út fyrir
jól, og það væri í raun besta jólagjöf-
in sem hún gæti fengið. Að komast
burt frá Íslandi. „Ég vil líka fá endur-
greiddan spítalakostnaðinn eins og
mér var lofað,“ segir Ragna, en fyrr í
desember sá hún vonarglætu þegar
mál hennar var tekið fyrir hjá Trygg-
ingastofnun. Það rættist þó ekki úr
því. „Ég hélt ég væri bara að fara út
og byrja nýtt líf en þá er allt tekið frá
mér,“ segir Ragna sem er hálfráða-
laus.
„Allt tekið frá mér“
n Fær ekki að fara úr landi með Ellu Dís n Átti fund með barnavernd á mánudag n Skilur ekki vald nefndarinnar
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Vill komast burt Ragna fær ekki leyfi til að fara með Ellu Dís úr landi.
„Við ætlum ekk-
ert að bíða eftir því
að þeir gefi sér tíma til að
verja þessa ákvörðun sína.