Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Page 23
Hetja ársins 23Jólablað 21.–27. desember 2011
Hver er hetja ársins 2011?
Pétur Kristján
Guðmundsson
n Pétur Kristján Guðmundsson kvik-
myndagerðarmaður lenti í alvarlegu slysi
í Austurríki um áramótin og lamaðist.
Hann hrapaði niður fjallshlíð í skógi á
gamlárskvöld og hlaut mænuskaða. Í júlí
var rætt við Pétur sem var þá farinn að
ganga við spelkur. „Ætli það sé ekki svona
einn og hálfur mánuður síðan ég byrjaði
að ganga, það var svolítið erfitt í byrjun
og þá var ég bara í svona göngubrú, það
er að segja með handrið báðum megin
við mig. Ég byrjaði þar. Svo byrjaði ég að
labba með göngugrind en fyrir svona
tveimur eða þremur vikum byrjaði ég að
ganga með hækjur,“ sagði Pétur.
Mugison
n Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guð-
mundsson, betur þekktur sem Mugison,
vakti forvitni margra í byrjun desember
þegar hann boðaði til blaðamannafundar
í Hljómskálanum við Reykjavíkurtjörn en
nýjasta plata hans, Haglél, hafði slegið
rækilega í gegn og sagði tónlistarmað-
urinn að hann væri ævinlega þakklátur
fyrir og vildi launa almenningi með því að
bjóða til tónleika í Hörpu. Vegna gífurlegs
áhuga á tónleikunum endað Mugison á
að halda þrenna tónleika í Reykjavík og
nokkra úti á landi.
Sturla Jónsson
n Vörubílstjórinn og mótmælandinn
er tilnefndur fyrir að hafa barist fyrir
réttlæti og gegn ofríki bankanna. Í til-
nefningunni segir að Sturla hafi lagst í
lagabækur og sýnt í rétti meiri vitneskju
en löglærðir lögmenn og dómarar. Hann
hafi meiri þekkingu á lánasamningum en
bankastarfsmenn og berjist algerlega
einn við vindmyllur kerfisins.
Þorgeir Ingólfsson
n Þorgeir missti annan fótinn þegar hann
varð fyrir gámaflutningabíl í október.
Hann var á leið heim til sín þegar hann
varð fyrir bílnum sem ók gegn einstefnu
við Endurvinnslustöðina við Dalveg í
Kópavogi og í kjölfarið var annar fóturinn
tekinn af honum. Þorgeir þótti sýna
fádæma dugnað og æðruleysi og hefur
náð undraverðum árangri. Hann sagði
menn standa frammi fyrir tveimur val-
kostum eftir stór áfall. Annar þeirra væri
hatur og reiði, sem tæri fólk innan frá og
skemmi allan bata. Hinn væri jákvæða
leiðin þar sem menn eru æðrulausir og
hafa húmorinn að vopni.
Guðrún Ebba
Ólafsdóttir
n Guðrún Ebba fær tilnefningar fyrir að
sýna kraft og þor og miskunnarlausa
hreinskilni í uppgjöri við sársauka-
fulla fortíð. Einnig fyrir sitt framlag til
umræðunnar um kynferðisbrot, meðal
annars innan kirkju og valdastofnana.
Bók hennar, Ekki líta undan, er skrifuð af
mikilli yfirvegun og án fordæmingar en
tilgangur hennar er að veita þolendum
ofbeldis hjálp og von og það hefur tekist.
Bók hennar hefur opnað augu margra
fyrir óhugnaði kynferðisofbeldis og einnig
því að það er oft nær en okkur grunar.
Kristinn Hjartarson
n Kristinn var með félaga sínum Alex-
ander Aroni Davorssyni í febrúar þegar
þeir urðu vitni að því að ungur maður
missti meðvitund og hné niður vegna
hjartastopps. Þeir kölluðu strax á aðstoð
og skjót viðbrögð þeirra eiga líklega mjög
stóran þátt í lífgjöf hans. „Ég hef aldrei
komist í svona aðstæður og þetta mótar
mann,“ sagði Kristinn í samtali við DV.
Magnús Árni
Gunnlaugsson
n Magnús Árni var skipstjóri á lítilli
trillu sem sökk við Akurey á Sund-
unum við Reykjavík. Hann var að sækja
bátinn ásamt félaga sínum Ingibergi G.
Þorvaldssyni til að gera út á grásleppu
frá Akranesi. Þeir voru búnir að vera í
sjónum í 20 mínútur er björgunarbátur frá
Seltjarnarnesi og fleiri bátar komu á vett-
vang og björguðu þeim. Ingibergur var þá
orðinn mjög kaldur og þrekaður, en hann
missti flotgallann frá sér þegar hann
yfirgaf bátinn, sem sökk skömmu eftir að
þeir urðu þess varir að skutur bátsins var
farinn að síga í sjóinn.
Stóra systir
n Félagsskapur sem kallar sig Stóru
systur er tilnefndur sem hetja ársins fyrir
framúrstefnulega baráttu gegn rótgrónu
vandamáli, vændi. Stóra systir vill að
lögreglan setji ólögmæt vændisviðskipti
í forgang. Stóru systur mættu til fundar í
Iðnó í október klæddar kuflum og greindu
frá baráttu sinni. Áður höfðu þær farið til
lögreglunnar og afhent gögn um vændis-
kaupendur sem settu sig í samband við
þær á síðustu vikum. Þær segja að vændi
sé ofbeldi sem sé umborið í samfélaginu
en nú sé tími umburðarlyndis liðinn.
Áhöfnin á
varðskipinu Ægi
n Áhöfnin hefur bjargað fjölda fólks á
árinu og sem dæmi má nefna var skipið
við landamæragæslu fyrir Evrópusam-
bandið í júní er áhöfnin bjargaði 100
manns af vélarvana seglbáti nálægt
eyjunni Krít í Miðjarðarhafi. Fólkið ætlaði
að sigla frá Egyptalandi til Ítalíu, að sögn
grísku strandgæslunnar. Í ágúst bjargaði
áhöfn Ægis alls 58 manns sem höfðu
verið skildir eftir á Radapos-skaganum
við Krít, fjarri mannabyggð. Um var að
ræða flóttamenn frá Afganistan og Sýr-
landi. Í hópnum voru þrjátíu karlmenn,
sextán konur – þar af tvær ófrískar – og
tólf börn. Áhafnarmeðlimir ferjuðu fólkið
fyrst á gúmmíbát og síðar í hraðbát.
Leitin tók um 14 tíma.
Guðmundur Felix
Grétarsson
n Guðmundur Felix missti báða hand-
leggina í vinnuslysi árið 1998. Árið 2007
komst hann í samband við læknateymi
sem framkvæmir handaágræðslur og
hefur verið að vinna að því síðan að
komast í slíka aðgerð. Í september fékk
hann loksins langþráð vilyrði fyrir aðgerð-
inni. „Ég er búin að vera að vinna í þessu
í rúm fjögur ár og er búinn að fara tvisvar
á þessu ári út í viðamiklar rannsóknir og í
rauninni var dagurinn í dag sá dagur sem
allur hópurinn hittist og tók ákvörðun
um hvort að hægt væri að gera þetta eða
ekki. Og sú ákvörðun var jákvæð,“ sagði
Guðmundur Felix í haust.
Andri Vilbergsson
n Andri bjargaði pilti upp úr Reykja-
víkurtjörn í febrúar. Andri þurfti að fara
út í tjörnina og brjóta sér leið í gegnum
þunnan ísinn til að komast til piltsins.
Svo virðist sem pilturinn hafi ætlað að
stytta sér leið yfir Tjörnina en ísinn var
þunnur og brotnaði undan honum. Andri
braut sér leið í gegnum þunnan ísinn á
Tjörninni til að komast að piltinum, sem
gat enga björg sér veitt. Þá kom annar
maður aðvífandi og hjálpuðust þeir tveir
við að draga hann upp úr. Pilturinn var
mjög kaldur og þrekaður þegar þeir komu
honum upp á bakkann.
Hilmar Kristensson
n Leigubílstjórinn var að þvo bílinn sinn
á þvottaplaninu á Seltjarnarnesi þegar
hann fann sex mánaða gamla stúlku sem
hafði gleymst á gangstétt. Hún var orðin
köld og grét og Hilmar hafði samband við
lögregluna. Þrátt fyrir að leigubílstjórar
verði oft vitni að ýmsu í starfi viðurkenndi
Hilmar að hann hefði aldrei lent í öðru
eins. „Það er ekki daglegt brauð að lenda
í svona,“ sagði Hilmar sem var réttur
maður á réttum stað í morgunsárið fyrir
algjöra tilviljun. Foreldrar stúlkubarnsins
gleymdu því þegar þeir fóru að bera út
blöð. Stúlkan varð því eftir á gang-
stéttinni á meðan foreldrarnir héldu
í blaðaútburðinn og klukkutíma síðar
höfðu þau samband við lögreglu.
Frábært grill
fyrir íslenskar
aðstæður
Mjög vandað 3ja brennara
gasgrill á vandaðri viðargrind
Brennarar úr pottjárni
Grillgrindur úr postulíns
emaleruðu pottjárni
Milligrindur úr pottjárni
Lok og grill eru postulíns
emaleruð utan sem innan
Neistakveikja í öllum tökkum
Skúffa undir öllu grillinu sem
tekur fitu - Hitamælir
Orka: 13,2 kw/h = 45.000 BTU
Grillflötur: 64 x 48,5 cm
Stærð: 145 x 108 x 62 cm
13,2
kw/h
Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554-0400
JÓLATILBOÐ
YFIR 30 GERÐIR GASGRILLA
Á JÓLATILBOÐI
Jólagjöf grillmeistarans
FULLT VERÐ
109.900
79.900
Þórir Hergeirsson
n Þórir varð í desember fyrsti Ís-
lendingurinn til þess að verða heims-
meistari í handknattleik þegar hann
stýrði norska kvennalandsliðinu til sigurs
á HM í Brasilíu. Norska kvennalandsliðið
varð einnig Evrópumeistari undir stjórn
Þóris en hann var aðstoðarþjálfari þegar
norsku stelpurnar urðu Ólympíumeistarar
í handbolta.