Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Síða 24
Faðirinn og arftakinn Hér sjást feðgarnir Kim Jong-il og arftakinn væntanlegi Kim Jong-
un í heimsókn í fyrirtæki í Pyongyang fyrr á árinu.
24 Erlent 21.–27. desember 2011 Jólablað
K
im Jong-un, ungur sonur ein-
ræðisherrans Kim Jong-il,
verður næsti leiðtogi Norður-
Kóreu. Stjórnmálaskýrendur
eru flestir á einu máli um að
hann muni viðhalda ættarveldinu sem
hefur stjórnað í Norður-Kóreu með
harðri hendi frá lokum Kóreustríðs-
ins árið 1953. Samkvæmt heimildum
fæddist Kim Jong-un þann 8. janúar
1983. Hann stundaði um tíma nám
í Bern í Sviss árið 1998 og er sagður
hafa dvalið í landinu undir dulnefni.
Ljóst er að mikil ábyrgð hvílir á herð-
um hans enda hefur ástandið á Kóreu-
skaga verið eldfimt að undanförnu svo
ekki sé fastar að orði kveðið.
Þoldi ekki tapa
„Hann var ósköp venjulegur náungi
og skar sig ekkert sérstaklega úr,“ sagði
Joao Micaelo, sem var bekkjarfélagi
leiðtogans verðandi árin 1998 til 2001,
í samtali við CNN í fyrra. Bekkjarfé-
lagar hans segja að hann hafi verið
hlédrægur, talað ensku og þýsku reip-
rennandi og haft sérstakan áhuga á
öllu sem við kom körfubolta. „Hann
var mjög kappsamur og þoldi ekki að
tapa, ekkert frekar en við hinir,“ sagði
Joao sem sagðist hafa verið sessunaut-
ur hans á skólaárunum í Sviss. Hann
rifjaði upp þegar Kim Jong-un, sem að
vísu gekk undir nafninu Pak Un á þeim
tíma, sagði honum að hann væri sonur
leiðtoga Norður-Kóreu.
Tilefni viðtals CNN við Joao var að
Kim Jong-un var árið 2009 útnefndur
sem næsti leiðtogi Norður-Kóreu. Þeg-
ar Joao var spurður hvernig leiðtogi
fyrrverandi bekkjarfélagi hans yrði
sagði hann: „Ég á erfitt með að segja
til um það. Hann var samt fínn náungi
þegar hann var sextán ára. Ég held að
hann muni ekki gera neitt slæmt en ég
veit ekkert hvað hefur breyst á þessum
árum sem liðin eru.“
Sorg í Pyongyang
Mikil sorg ríkir vegna fráfalls Kim
Jong-il í höfuðborginni Pyongyang
og þustu íbúar borgarinnar út á götur
eftir að tilkynnt var um andlát hans í
ríkisfjölmiðlinum aðfaranótt mánu-
dags að íslenskum tíma. Leiðtoginn
fallni var í lestarferð í Pyongyang þeg-
ar hann fékk hjartaáfall sem dró hann
til dauða. Hann hafði fengið hjartaáfall
árið 2008 og var í kjölfarið mikið rætt
og ritað um heilsufar hans og virðist
hann sjálfur hafa gert sér grein fyrir því
að hann ætti skammt eftir ólifað þegar
hann tilkynnti að sonur hans yrði arf-
taki sinn í embætti árið 2009.
Hindranir í vegi
Kim Jong-il fæddist samkvæmt
ævisögu hans árið 1941 við rætur
Paektu-fjalls á landamærum Norður-
Kóreu og Kína. Fæðing leiðtogans var
einstök, en samkvæmt ævisögu hans
birtist skyndilega tvöfaldur regnbogi
á himnum og á sama tíma varð til ný
stjarna skömmu áður en hann kom í
heiminn. Þessi aðferðafræði Kim Jong-
il, að upphefja sjálfan sig eins og hann
gat, var vel þekkt enda hafði hann
tangarhald á íbúum Norður-Kóreu
sem lifað hafa í mikilli einangrun frá
alþjóðasamfélaginu undanfarna ára-
tugi.
Heimildum ber ekki saman um
fæðingarstað leiðtogans því breska
blaðið Telegraph fullyrðir að hann
hafi fæðst nærri Kabarovsk í Síberíu
þar sem faðir hans dvaldi árin fyrir
Kóreustríðið. Þannig séu til myndir af
honum sem ungum dreng í sovéskum
herklæðum. Bróðir hans drukkn-
aði þegar hann var ungur að árum og
móðir hans lést þegar hann var ein-
ungis sjö ára, eða skömmu eftir að fað-
ir hans snéri aftur heim til Kóreu.
„Lítill dvergaskítur“
Kim Jong-il var sendur til Mansjúríu
í norðvesturhluta Kína þegar Kóreu-
stríðið braust út árið 1950 og snéri
hann ekki aftur til Kóreu fyrr en stríð-
inu lauk árið 1953. Fáar heimildir eru
til um ferðir hans eftir það, eða allt til
áttunda áratugar liðinnar aldar þeg-
ar hann útskrifaðist úr háskóla. Eftir
það er hann sagður hafa farið til Aust-
ur-Þýskalands þar sem hann lærði til
flugmanns og þá er hann einnig sagð-
ur hafa dvalið á Kúbu og í Kína áður en
hann snéri aftur til Norður-Kóreu.
Leið Kim Jong-il til valda hófst í
raun fyrir alvöru árið 1975, eða þegar
hann var 34 ára. Þá var hann gerður að
yfirmanni menningarmála í landinu.
Hann er sagður hafa samið sex óperur
á tveimur árum og eru þær sagðar hafa
verið „betri en nokkur maður hefur
samið.“ Því miður hafa engar hljóð-
upptökur verið gerðar opinberar og
því alls óvíst hvort hann hafi búið yfir
þeim hæfileikum sem lýst er hér að
framan. Áhugi hans á kvikmyndalist-
inni kom snemma í ljós og árið 1978
lét hann ræna suðurkóreska leikstjór-
anum Shin Shang Ok og eiginkonu
hans sem var leikkona. Þau voru flutt
til Pyongyang þar sem þau voru höfð í
haldi í átta ár. Suður-Kóreumenn voru
framarlega í kvikmyndagerð á þessum
árum og átti Shin Shang að auka veg
norðurkóreskrar kvikmyndagerðar.
Eftir átta ára prísund tókst hjónunum
að flýja landið.
Frásögn Shin Shang er ein besta
heimild sem til er um þá persónu sem
Kim Jong-il hafði að geyma. Hann lýsti
fyrstu kynnum sínum af honum í við-
tali og sagði leikstjórinn að Kim hafi
spurt sig um líkamsbyggingu sína.
„Hvernig finnst þér ég vera byggður?
Lítill eins og dvergaskítur, er það ekki?“
Shin segir að Kim hafi í samtölum
þeirra lýst yfir dálæti sínu á bandarísk-
um kvikmyndum og að James Bond
og Rambo væru í sérstöku uppáhaldi.
Þá tókst honum að lauma upptökum
af samtölum þeirra með sér til Suður-
Kóreu þar sem Kim sagði að tæknin
sem Norður-Kóreumenn bjuggu yfir
væri á „leikskólastigi“ í samanburði
við aðrar þjóðir.
Lét lítið fyrir sér fara
Árið 1980 tilkynnti Kim Il-sung að son-
ur sinn yrði næsti leiðtogi Norður-Kór-
eu og fékk hann viðurnefnið „Leið-
toginn kæri“ í kjölfarið. Hann lét hins
vegar lítið fyrir sér fara eftir útnefn-
inguna. Erlendum diplómötum gekk
bölvanlega að fá fund með leiðtog-
anum verðandi og fengu þeir yfirleitt
þá afsökun að leiðtoginn væri á með-
al fólksins í sveitum landsins. Slíkur
var leyndar hjúpurinn að bandaríska
leyniþjónustan, CIA, komst ekki að því
fyrr en 1992 að hann ætti tvö börn.
Árið 1994, áður en hann tók við
stjórnartaumunum, voru blikur á lofti
um það hvort hann tæki við embætt-
inu af föður sínum. Þegar faðir hans
féll frá stóðu yfir miklar deilur um hver
myndi taka við embættinu. Honum
og seinni eiginkonu föður hans, Kim
Song Ae, hafði aldrei komið vel sam-
an og vildi hún að hennar eigin sonur,
Kim Pyong-il, tæki við embættinu. Þá
naut hann ekki fulls stuðnings hersins
til að byrja með. Kim Jong-il yfirsteig
allar þessar hindranir og varð að elsk-
n Mikil sorg í Pyongyang vegna fráfalls Kim Jong-il n Hafði sérstakt dálæti á James Bond og Rambo
n Ungur sonur hans mun taka við stjórnartaumunum n Sá stundaði nám í Sviss og var „fínn náungi“
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Einræðisherrann
sem elskaði Rambo
Konurnar í lífi
einræðisherrans
n Kim Jong-il er sagður hafa verið
mikill nautnaseggur og hafði hann
sérstakt dálæti á Hennessy-koníaki
og kavíar. Í úttekt breska blaðsins
Telegraph þar sem farið yfir æviskeið
hans kemur ennfremur fram að
tvö þúsund unglingsstúlkur hafi
skemmt einræðisherranum og vinum
hans reglulega í glæsivillum hans.
Stúlkunum var raðað í svokallaða
„ánægjuhópa“ sem voru þrír talsins.
Í fyrsta hópnum voru stúlkur sem
veittu gestum einræðisherrans kyn-
lífsþjónustu. Í öðrum hópnum voru
stúlkur sem nudduðu þá og í þriðja
hópnum voru stúlkur sem dönsuðu
og sungu fyrir gesti. Kim Jong-il er
sagður hafa horft á það sem fram fór
á sjónvarpsskjá í lokuðu herbergi.
Kim er sagður hafa eignast að
minnsta kosti fjögur börn með
þremur konum en hann hafði mikinn
áhuga á leikkonum, dönsurum og
ljóshærðum stúlkum.
Til gamans má geta þess að árið
2008 fullyrti japanskur sagnfræð-
ingur að Kim Jong-il hefði hrokkið
upp af árið 2003. Frá þeim tíma
hefðu að minnsta kosti fjórir tvífarar
hans komið fram fyrir hans hönd
opinberlega.
15. apríl, 1912 Kim Il-sung, faðir Kim
Jong-il og stofnandi Norður-Kóreu,
fæðist í höfuðborginni Pyongyang.
16. febrúar, 1942 Kim Jong-il kemur í
heiminn. Samkvæmt heimildum í Norður-
Kóreu fæddist hann í skæruliðabúðum
við rætur Paektu-fjalls á landamærum
Norður-Kóreu og Kína. Heimildum ber
ekki saman um fæðingardag og -stað.
Samkvæmt sumum þeirra fæddist hann í
þorpi í Síberíu árið 1941.
9. september, 1948 Kim Il-sung
stofnar Alþýðulýðveldið Kóreu á norður-
hluta Kóreuskaga.
25. júní, 1950 Norður-Kóreumenn
ráðast inn í Suður-Kóreu.
27. júlí, 1953 Kóreustríðinu lýkur með
vopnahléi.
September 1973 Kim Jong-il tekur
við næstæðstu valdastöðu í Verka-
mannaflokki Norður-Kóreu. Verður ritari
flokksins og yfirmaður áróðursmála.
10. október, 1980 Tilkynnt opinber-
lega að Kim Jong-il taki við völdum í
landinu þegar faðir hans stígur til hliðar.
8. janúar, 1983 Samkvæmt heimildum
kom þriðji og yngsti sonur Kim Jong-il,
Kim Jong-sun, í heiminn þennan dag.
Fæðingardagurinn er ekki staðfestur.
24. desember, 1991 Kim Jong-il
verður æðsti yfirmaður norðurkóreska
hersins.
8. júlí, 1994 Kim Il-sung fellur frá af
völdum hjartaáfalls og Kim Jong-il verður
leiðtogi Norður-Kóreu.
8. október, 1997 Kim Jong-il verður
aðalritari Verkamannaflokksins.
Ágúst 2008 Kim Jong-il fær hjartaáfall
og sést lítið opinberlega í kjölfarið.
21. júlí, 2010 Bandaríkin beita Norður-
Kóreumenn viðskiptaþvingunum til að fá
þá ofan af kjarnorkuvopnaáætlun sinni.
28. september 2010 Kim Jong-un
er gerður að hershöfðingja og tekur við
valdamiklum stöðum í hernum. Þetta
gefur til kynna að hann verði næsti
leiðtogi landsins.
10. október 2010 Kim Jong-un kemur
fram opinberlega í fyrsta skipti þegar
haldin er ein stærsta hersýning í sögu
Norður-Kóreu.
16. febrúar, 2011 Kim Jong-il fagnar 69
ára afmæli sínu.
15. apríl, 2011 Almenningur fagnar
því að 99 ár eru síðan Kim Il-sung kom
í heiminn. Dagurinn er nefndur „Dagur
sólarinnar“.
18. desember 2011 Kim Jong-il deyr af
völdum hjartaáfalls, 69 ára að aldri.
Helstu atburðir í sögu Norður-Kóreu
„Hvernig finnst þér
ég vera byggður?
Lítill eins og dvergaskítur,
er það ekki?
Námsmaður Kim stundaði hefðbundið
nám árin 1950 til 1960. Hér sést hann
þegar hann er á unglingsárunum.
Ungur að árum Hér sést Kim Jong-il með föður sínum og móður þegar hann var ungur að árum á mynd sem tekin var árið 1945.
Áhugamaður um kvikmyndir Kim
Jong-il hafði sérstakt dálæti á kvikmynd-
um, þá sérstaklega James Bond og Rambo.
Hér sést hann í kvikmyndaveri í Pyongyang.