Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Side 27
Dómstóll götunnar Mér finnst gulrótar­ kökur svo góðar Ég hafði ekkert um þetta að segja Árni Páll hefur gert þetta vel Edda Baldursdóttir bakaði bestu smáköku ársins. – DVLars Lagerbäck velur bráðum sinn fyrsta landsliðshóp. – DV Elsa Margrét Víðisdóttir, móðir Gabríels sem er hættur í Árbæjarskóla. – DVÓlöf Nordal um vörn efnahagsráðherra í Icesave-málinu.- Morgunblaðið Jólagjöfin í ár „Nei, ég held ekki.“ Finnur Kristjánsson 20 ára nemi „Ég hugsa ekki.“ Bryndís Torfadóttir 19 ára nemi „Nei, það mun ég ekki gera.“ Gunnar Kristjánsson 24 ára háskólanemi „Ég veit það nú bara ekki ennþá.“ Guðríður Þorsteinsdóttir 65 ára vinnur í Stjórnarráðinu „Nei, ég er búin að eyða ansi miklu í jólaföt í ár.“ Margét Kristjánsdóttir 19 ára nemi Ferð þú í jóla- köttinn í ár? Orð eru dýr N okkrir af Íslands bestu drengjum hafa tekið höndum saman um að verja þá sem stóðu fyrir útrásinni svo þeir verði ekki fyrir hnjaski. Af þeirri iðju stafar hlýju í aðdraganda jólanna. Svarthöfði er einlægur aðdá- andi útrásarmanna og hefur að sama skapi óbeit á sérstökum saksóknara og foringjum Fjármálaeftirlitsins. Það er algjörlega óboðlegt að handjárna gull- drengi Íslands og leiða þá eins og saka- menn til yfirheyrslu. Meðal þeirra sem hafa ákafast gagn- rýnt sérstakan saksóknara er dáðadreng- urinn ráðagóði hann Ólafur Arnarson. Hann starfar sem ráðgjafi og bloggar af ákafa auk þess að skrifa bækur. Af djúp- stæðri kímni hefur hann í háðungar- skyni kallað nafna sinn Þór Hauksson Óla Spes. Og yfirheyrslur hans hefur hann kallað sirkus. Ólafur hefur haft alvarlegar athugasemdir við Gunnar Andersen sem kom hoppandi út úr afla- ndsfélagi til að vera forstjóri Fjármála- eftirlitsins. Það er til dæmis um vit- leysisganginn hjá þeim manni að hann afþakkaði fyrir nokkru tilboð og umsókn Ólafs Arnarsonar um að taka að sér að stýra rannsóknarhópi Fjármálaeftirlits- ins. Það er eins og menn skilji það ekki að ef Ólafur hefði verið ráðinn væri búið að upplýsa allt sem er þess virði að varpa ljósi á. Ólafur Arnarson þykir vera ein- staklega skýr á efnahagsmál og sakamál. Hann kann þannig fótum margra forráð. Svarthöfði les og trúir hverju einasta orði sem hann skrifar. Þannig er borðleggj- andi að útrásarmenn eru ofsóttir og þá sérstaklega Pálmi Haraldsson, eigandi Iceland Express, og þeir Exista-bræður sem hafa marga fjöruna sopið í samskiptum við vont fólk. Stór hluti þjóðarinn- ar er samsettur úr vitleysingum sem trúa því að það sé Pálma og bræðrunum að kenna að allt hrundi á Íslandi. Ólafur hefur gert baráttuna fyrir sannleikanum að ævistarfi sínu. En orð eru dýr og Ólafur lifir ekki af loftinu einu saman. Hann hefur því þurft að leita fjár hjá þeim sem eru aflögufærir. Hann hef- ur enda fundið féþúfu. Hann lætur viðmælendur sína og umfjöll- unarefni greiða eins konar stefgjöld fyrir að sitja fyrir svörum. Dæmi um þess hátt- ar fjáröflun var þegar hann átti orðastað við Pálma Haraldsson flugfélagseiganda. Pálmi vildi endilega hitta Óla í Lund- únum sem varð til þess, eðli málsins samkvæmt, að hann varð að greiða flug- fargjald og skatta. Annað hefði verið óeðlilegt. En þarna er komin ákveðin lausn á fjárhagsvandanum. Þeir sem Ólafur álitsgjafi af hlýhug bloggar eða skrifar bækur um greiða ákveðið afnotagjald af honum. Auðvitað mun hann eftir sem áður segja sannleikann um þessa menn og engum hlífa. Hann er fyrst og fremst hlutlaus rannsakandi. Ólafur verður aldrei uppvís að því að ganga erinda útrásarvíkinga. Þótt hann hafi fengið að fljúga frítt með Iceland Express og þegið dularfullar ráðgjafargreiðslur frá öðrum mun hann ekki upphefja velgjörðaöfl sín með neinum hætti. Hann mun áfram lýsa því kalda og yfirvegaða mati að sér- stakur saksóknari sé sirkusstjóri, Iceland Express haldi áætlun og Fjármálaeft- irlitið sé samansafn af illgjörnum bjánum. Ólafur er í fremstu víg- línu gegn ofsækjendum dáða- drengja útrásarinnar. Svarthöfði E ftir að það kom í ljós að smjör- fjallið okkar háa var bara plat og eftir að við áttuðum okkur á því að það smjör, sem sagt var drjúpa hér af hverju strái, var ekki smjör heldur sviti þeirra sem þræla á meðan þeir sem átu allt smjörið blása upp sín sápukúlulán, þá áttum við að fatta, að til eru menn sem ákveða hvernig við hugsum. En við ákváðum að leyfa þeim áfram að ráða hugsunum okkar. Við förum á hestasýningar og klöppum fyrir hrossi Finns Ingólfs- sonar, við lesum Moggann hans Dabba litla, við hlustum á lygar LÍÚ-mafí- unnar og við förum á Pressuna hans Björns Inga. Já, það er einsog búið sé að banna stoltið. Það fer þjóð minni svo einstak- lega vel að þegja á meðan þrjótarnir píska lýðinn áfram. Við leyfum ríkis- stjórninni að svíkja þau loforð sem okkur voru gefin. Í skjóli einhverrar ekkisen neytendaverndar og einhvers enn brjálaðra fæðuöryggis er okkur sagt að vernda verði íslenska þjóð fyrir erlendum áhrifum. Við megum ekki kaupa hvað sem er. Og svarið er: -Afþvíbara. Og svo fylgir sögunni að allt sé þetta vegna þess að einhver Jón Bjarnason er að reyna að vernda bændur. Ef þessi þjóð getur ekki sætt sig við landnámshænuegg, hunda- súrur, hamsatólg og hrútspunga, getur hún étið það sem úti frýs. Það er verið að ofvernda þessa þjóð og sérstaklega er passað uppá það að fólk fari nú ekki að safna sjálfstæðum hugsunum eða leyfi sér að gagnrýna þá hugsunarhætti sem helst hafa fagn- að fylgi síðustu misserin. Okkur var sagt að trúa á góðærið og við leyfðum allri vitleysunni yfir okkur að ganga. En kæru vinir, hafið þið velt því fyr- ir ykkur hver það er sem í raun og veru leyfir hundraðfaldan launamun? Hver það er sem leyfir umræðunni að snú- ast um launamun kynjanna þegar hún ætti í raun að snúast um raunamun mannanna? Menn sem eru einsog graftarkýli á óæðri enda andskotans; menn sem fagna nú milljarða hagnaði í skjóli af- skrifta. Já, nú leika þeir sér að okkur Bakkabræðurnir, Kaupþingsmenn- irnir, bankabræðurnir, allt kúlulána- pakkið, sjálftökumennirnir og fram- sóknarfautarnir. Menn einsog Finnur Ingólfsson, Björn Ingi og allir hinir jólasveinarnir. Og þeir hafa menn á sínum snærum; menn sem ýkja sann- leikann svo svakalega að hann er full- komlega óþekkjanlegur. Það ert þú, kæri lesandi, þú ræður því hvað getur kallast eðlilegur launa- munur. Það ert þú, kæri lesandi sem ákveð- ur hvort jólagjöfin í ár er spjaldtölva eða spakmæli. Og það ert þú, kæri lesandi sem ákveður hvort þú ætlar að fara í biðröð á leið til Boston eða í bið- röð hjá Mæðrastyrksnefnd. Að vísu vona ég að allir menn eigi yndisleg jól og eru slöttólfar á sakabekk samfélagsins þar engin undantekning. Jólagjöfin í ár er fögur hugsun. Er vonin fer á versta stig og veröld fyllist efa þá fagra hugsun fýsir mig fólkinu að gefa. Gleðileg jól! „Það er verið að ofvernda þessa þjóð. Hirðingjar og englar Þau stóðu sig með prýði, börnin í 4. bekk í Hvassaleitisskóla þegar þau fluttu helgileikinn í Grensáskirkju á þriðjudag. Kirkjan var full af nemendum skólans, kennurum og foreldrum sem áttu þar góða og hátíðlega stund saman. Mynd: Sigtryggur Ari JóHAnnSSonMyndin Mest lesið á DV.is 1 Móður Ellu Dísar snúið frá í Leifsstöð Rögnu Erlendsdóttur var ekki leyft að fljúga með dætur sínar til London 2 Markaðsráðgjafi 365: „Hvenær ætlar þú að birta nafnið á stúlkunni?“ Telur að það eigi að birta nafn á þeim sem kærir og kærða 3 Stjörnulögmenn verja Egil Brynjar Níelsson aðstoðar Helga Sigurðs­ son lögmann Egils Einarssonar 4 Hélt að Gunni væri hjá einhverri annarri Björk Jakobsdóttir hélt að Gunni væri að halda framhjá sér þegar hann var ekki heima eitt kvöldið 5 Rannsókn nauðgunarkæru á hendur Agli og kærustu er á lokastigi Leigubílstjórinn varpaði ljósi á ákveðna þætti málsins 6 12 ára strákar sögðu að það þyrfti að nauðga stelpum í skólanum Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur segir frá ummælum drengja í skóla dóttur hans 7 Bjarni Ben kom að ,,stórfelldu“ lögbroti Ákært hefur verið í Vafnings­ málinu en Bjarni Benediktsson tók þátt í viðskiptunum í febrúar 2008. Umræða 27Jólablað 21.–27. desember 2011 Skáldið skrifar Kristján Hreinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.