Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Síða 29
Viðtal 29Jólablað 21.–27. desember 2011
„Ég hef einstöku
sinnum þurft að
leita til hjálparstofnana en
það þykir skömm í minni
fjölskyldu. Maður gerir það
ekki nema í ýtrustu neyð.
fleirum í svipaðri stöðu og þau eru í
hafi verið neitað um aðstoð.
Grét af gleði
Þrátt fyrir að ná ekki endum saman
hefur Elín ekki farið oft í Fjölskyldu-
hjálp Íslands til að fá aðstoð, enda
eru skrefin þangað henni þung. Hún
fór þó þangað um daginn eftir nokkra
erfiða mánuði. „Hún tók ofboðslega
vel á móti mér,“ segir Elín og á þar við
Ásgerði Jónu Flosadóttur, formann
Fjölskylduhjálpar Íslands. „Hún lét
mig fá mat í poka og gaf okkur synin-
um í bíó. Svo gaf hún mér inneignar-
kort upp á tíuþúsund krónur í Cosmo
því ég hef ekki getað keypt föt á sjálfa
mig frá því ég flutti heim,“ segir Elín
og brestur í grát. „Ég fékk agalega sæt-
an bolakjól hjá þeim fyrir jólin,“ bæt-
ir hún við og reynir að halda aftur af
grátinum. Það er erfitt fyrir hana að
tala um þetta en það hýrnar yfir henni
þegar hún minnist á nýja kjólinn. Elín
segist ekki hafa keypt sér nýja flík í 13
ár og gengur eingöngu í notuðum
fötum af öðrum sem hún fær gefins.
Hún biðst afsökunar á grátinum. „Ég
hef alltaf látið son minn ganga fyrir
og ég sit á hakanum. Maður gerir það
þegar maður er móðir.“
Elín segist hafa grátið af gleði þeg-
ar hún fékk kjólinn í Cosmo og af-
greiðslustúlkan vissi ekki hvaðan á að
hana stóð veðrið. „Ég get ekki þakkað
ykkur nóg fyrir þetta, sagði ég,“ segir
Elín og reynir að lýsa geðshræring-
unni sem hún komst í þegar hún fékk
loksins nýja flík.
Þakklát fyrir að
hafa hvort annað
Í fyrsta skipti frá því að faðir Elínar
dó fyrir nokkrum árum hefur móðir
hennar óskað eftir að fá að borða
með þeim mæðginum á aðfanga-
dagskvöld. Þau verða því þrjú saman
þetta árið. Hún veit að móðir hennar
er búin að kaupa hamborgarhrygg og
hún þarf því ekki að hafa áhyggjur af
því. Það vantar þó enn allt meðlætið.
Elín segir að það sé númer eitt, tvö
og þrjú að fjölskyldan sé saman um
jólin. „Mamma mín, það eina sem
ég vil í jólagjöf er að fá að vera með
þér,“ sagði John við hana þegar hún
baðst afsökunar á því við hann að jól-
in yrðu léleg. Hún segir að miðað við
allt sem á undan er gengið megi þau
vera þakklát fyrir að vera á lífi og fyrir
að hafa hvort annað. Það sé það sem
skipti mestu máli.
Elín segist stundum fá að heyra að
hún sé bara aumingi á örorkubótum.
En hún segir fólk verða að gæta þess
hvað það segir. Það viti enginn sína
ævina fyrr en öll er. Það geti allir lent í
því að slasast, verða öryrkjar og þurfa í
framhaldinu að treysta á örorkubætur.
Grét þegar hún
fékk nýja flík
F
ólk bíður fram á síðustu stundu
og fólk er enn að skrá sig,“ segir
Ásgerður Jóna Flosadóttir, for-
maður Fjölskylduhjálpar Ís-
lands. Hún stendur vaktina nánast
dag og nótt í desember við að að-
stoða fjölskyldur í neyð. „Þetta er
fólk sem hélt það gæti plumað sig en
það getur það ekki,“ bætir hún við.
Hún gerir ráð fyrir að sex til sjöþús-
und fjölskyldur á Íslandi þurfi á að-
stoð halda fyrir þessi jól. Þau ráða þó
ekki við allan þann fjölda, en fleiri
hjálparstofnanir sjá um að veita að-
stoð fyrir jólin.
„Við erum komin með yfir tvöþús-
und fjölskyldur, sem er mjög mikið.“
Ásgerður bendir á að margfalda megi
þá tölu með 2,5 til að fá út hve margir
einstaklingar eru á bak við þessar út-
hlutanir. Hún segir aðstæður margra
vera ólýsanlega slæmar en fólk veigri
sér hins vegar við að leita sér aðstoð-
ar. Þá sé það yfirleitt síðasta úrræði
hjá fólki að leita til hjálparstofnana.
Í desembermánuði er Fjölskyldu-
hjálp Íslands bæði með hefðbundna
aðstoð og jólaaðstoð síðustu dagana
fyrir jól. Jólaaðstoðin felur í sér ýmiss
konar varning sem tengist jólunum;
jólamat og meðlæti, bökunarvörur
og jólagjafir handa börnunum. Þá
fær fólk einnig úthlutað nauðsynja-
vörum.
„Við vorum með sexhundruð fjöl-
skyldur á föstudaginn og pakkarnir
kláruðust þrátt fyrir að við hefðum
fengið rosalegt magn frá Kringlunni.“
Það eru þó alltaf að bætast við gjafir
og fólk er duglegt að koma með þær
beint í Fjölskylduhjálpina. Ásgerður
segir það mjög vel þegið.
Hún segir fólk fara mjög þakklátt
frá þeim með fulla poka af mat. „Við
segjum fólki að það þurfi alls ekki að
skammast sín fyrir að koma hingað
og það eigi að bera höfuðið hátt.“
Félagsvísindastofnun Háskóla Ís-
lands gerði könnun fyrir Fjölskyldu-
hjálp Íslands í september síðastliðn-
um á samsetningu hópsins sem þáði
matarúthlutun hjá þeim á tímabilinu
1. júní 2010 til 31. maí 2011. Á þessu
tímabili var 23.784 matargjöfum út-
hlutað til 3.562 einstaklinga og fjöl-
skyldna þeirra. Rúmlega helmingur
þeirra sem fengu aðstoð var konur,
eða 55 prósent. Þriðjungur allra sem
fengu aðstoð var öryrkjar.
solrun@dv.is
n Þriðjungur þeirra sem koma í Fjölskylduhjálp Íslands er öryrkjar
Sjöþúsund fjölskyldur þurfa aðstoð
Fólk þakklátt Ásgerður Jóna, formaður
Fjölskylduhjálpar Íslands, segir fólk ekki þurfa
að skammast sín fyrir að leita sér aðstoðar.