Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 34
34 Viðtal 21.–27. desember 2011 Jólablað
Þ
að hefur tvisvar verið lok-
að á rafmagnið hjá mér
þegar ég hef ekki borgað
ákveðna upphæð inn á
skuldina,“ segir Páll Albert
Kristjánsson, 53 ára öryrki búsett-
ur á Blönduósi. „Þetta er svo mikil
harka,“ bætir hann við daufur í
bragði. Um mánaðamótin borgaði
Páll inn á skuld hjá rafmagnsveit-
unni til að verða ekki rafmagns-
laus yfir jólin. Það var stór biti fyr-
ir hann, enda hefur hann ekki náð
endum saman í þrjú ár og á varla
fyrir mat.
Páll segist stundum einfald-
lega bara leggjast í rúmið til að
láta dagana líða. Hann sé ekki með
krónu í vasanum og geti því lítið
annað gert. Ástandið leggst á sál-
ina og hann viðurkennir að sér líði
oft illa.
Hann lenti í alvarlegu bílslysi
fyrir þremur árum, slasaðist illa
og hefur verið öryrki síðan. „Ég fór
mjög illa. Svo fóru fjármálin mín úr
böndunum því ég var alltaf að fara
suður til lækninga út af slysinu.“
Vegna aðstæðna sinna var honum
bent á að sækja um fjárhagsaðstoð
hjá félagsmálastofnun, sem hann
gerði en var synjað.
Getur ekki alltaf haft börnin
Páll á fimm börn á aldrinum 15
til 23 ára sem búa ekki hjá hon-
um. Hann reynir reglulega að hafa
yngri börnin hjá sér í fimm til tíu
daga í senn en stundum getur
hann það hreinlega ekki vegna
bágrar fjárhagsstöðu. Fjögur barna
hans verða hjá honum um jólin, en
eins og staðan var í byrjun þessar-
ar viku sá hann ekki fram á að geta
haldið jól.
Eina innkoma Páls eru örorku-
bætur en þær fara allar í afborgan-
ir, að hans sögn. „Ég get ekki einu
sinni greitt fasteignagjöldin sem
eru á leið í innheimtu.“
Hann er með öll sín fjármál í
biðstöðu hjá umboðsmanni skuld-
ara, en það dugar ekki til. Hann
segir lánin vera að éta upp heim-
ili sitt. „Ég þarf að greiða allar nýj-
ustu afborganirnar af eigninni og
tryggingar og ef það fer úr bönd-
unum þá fer íbúðin mín á nauð-
ungaruppboð. Það litla sem ég átti
í eigninni er farið.“
Mikil pappírsvinna
fyrir litla aðstoð
Presturinn á Blönduósi heimsótti
Pál um daginn og benti honum á
að sækja um jólaaðstoð hjá kirkj-
unni. Til að fá slíka aðstoð þarf þó
að skila inn skattskýrslu, launa-
seðlum og öðrum gögnum til að
hægt sé að meta hvort fólk eigi rétt
á aðstoð. „Ég bara gapti á prest-
inn og spurði hvort þetta væri
virkilega orðið svona.“ Presturinn
sagði einnig að það tæki tíma að
afgreiða umsóknirnar enda þyrfti
að fara yfir öll gögnin hjá Þjóð-
kirkjunni. „Ég hringdi í Þjóðkirkj-
una og spurði hvað upphæðin væri
há ef ég myndi skila þessu öllu inn.
Þá kom í ljós að um er að ræða 10
þúsund króna gjafabréf.“ Páll segist
hafa verið orðinn svo langþreyttur
á þessu að hann hafi ekki lagt í að
sækja um. Hann bað frekar vin sinn
um að lána sér nokkra þúsundkalla
til að eiga fyrir helstu nauðsynjum.
Fjölskylduhjálpin
kemur til bjargar
Páll gerði tilraun til að sækja um
aðstoð hjá félagsþjónustunni á
Blönduósi en fékk þau svör að
barnafjölskyldur gengju fyrir.
Sjóðurinn hjá þeim væri að tæm-
ast og hann yrði að mæta afgangi
þar sem hann væri ekki með skráð
börn á heimilinu. Páll var því orð-
inn ráðþrota þegar Ásgerður Jóna
Flosadóttir, formaður Fjölskyldu-
hjálpar Íslands, hafði samband
við hann. Hún hafði heyrt af stöðu
hans og bauð fram aðstoð. Hann
segir Ásgerði eiga þakkir skildar
fyrir eftirtekt og eljusemi. Vegna
hennar eygi hann nú von um að
geta boðið börnunum sínum upp
á sómasamleg jól.
DV fékk það staðfest hjá félags-
þjónustunni á Blönduósi að eins
og staðan væri núna þá gengju
barnafjölskyldur fyrir með aðstoð.
En félagsþjónustan veitir sérstaka
aðstoð fyrir jólin í samstarfi við
Rauða kross Íslands.
Fólk á ekki að skammast sín
Páll veit ekki hvort börnin geri sér
grein fyrir því í hvaða stöðu hann er.
Hann nefnir það aldrei við þau og
reynir að bera sig vel. „Ég veit að það
eru margir í þessari stöðu í sýslunni,
eru fátækir og eiga bágt yfir jólin en
þora ekki að koma fram.“ Hann seg-
ir það þung skref að leita sér aðstoð-
ar og mörgum finnist þeir eflaust fá
á sig einhver fátæktarstimpil.
Með því að segja sögu sína vill
Páll koma þeim skilaboðum til ann-
arra í svipaðri stöðu og hann, að
skammast sín ekki fyrir að leita sér
aðstoðar. „Fólk sem þarf á aðstoð
að halda verður að stíga fram,“ segir
Páll að lokum, þakklátur fyrir þá að-
stoð sem hann hefur fengið.
Engin skömm
að fá aðstoð
Páll Albert Kristjánsson hefur ekki náð endum
saman í þrjú ár. Hann sér ekki fram á að geta haldið jól
fyrir börnin sín en fékk óvænta hjálp frá Ásgerði Jónu
Flosadóttur í Fjölskylduhjálp Íslands. Hann er segir að
fólk eigi ekki að hika við að leita sér hjálpar. „Ég veit það eru
margir í þess-
ari stöðu í sýslunni, eru
fátækir og eiga bágt
yfir jólin en þora ekki að
koma fram.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Viðtal
Lokað á rafmagnið Páll hefur
tvisvar lent í því að lokað hefur verið
á rafmagnið hjá honum vegna van-
skila. Hann hefur ekki náð endum
saman í þrjú ár. Mynd siGtryGGur ari
Bílasala Funahöfða 1 110 Rvk Sími 580 8900
Óskum
viðskiptavinum okkar
og landsmönnum
öllu gleðilegra jóla
Bílasala Funahöfða 1 110 Rvk Sími 580 8900
Óskum
viðskiptavinum okkar
og landsmönnum
öllum gleðilegra jóla
Bílasala Funahöfða 1 110 Rvk Sími 580 8900
Óskum
viðskiptavinum okkar
og landsmönnum
öllum gleðilegra jóla
Bílasala Funahöfða 1 110 Rvk Sími 580 8900
Óskum
viðskiptavinum okkar
og landsmönnum
öllum gleðilegra jóla
Er þetta jólabíllinn
þinn eða langar þig
kannski í annan?
Eigum fullt af reynslu-
miklum bílum til sölu!