Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Side 36
36 Viðtal 21.–27. desember 2011 Jólablað
Hjónabandið er ekki eintómur glassúr:
É
g byrjaði hér á Sögu árið 1964
með hljómsveit Svavars Gests,“
segir Raggi um leið og hann
kemur sér haganlega fyrir í
sæti nálægt barnum. Við sitj-
um niðri á Mímisbar og erum ein
enda eiga fáir erindi á hótelbar um
miðjan dag í miðri viku. Raggi þekkir
vel til hér á Sögu, heilsar barþjónin-
um og segir honum frá því að Hótel
Saga fagni 50 ára afmæli á næsta ári.
„Ég fer að skemmta hérna þá,“ segir
Raggi en barþjónninn kemur af fjöll-
um og er ekki kunnugt um afmælið.
„Now you know,“ segir Raggi hlæj-
andi, pantar kaffi og heldur áfram að
segja frá því hvernig það atvikaðist
að hann fór að syngja hér á Sögu.
Bréfið örlagaríka
Kallið kom þegar hann var í Dan-
mörku, að spila og leika sér eins og
hann segir sjálfur. „Það stóð þannig
á að ég fór út til þess að syngja inn á
plötu. Það var íslenskur strákur með
mér, Kristinn Vilhelmsson, en hann
var á leið til Hollands. Við lentum
síðan í mikilli veislu í Kaupmanna-
höfn og þetta klikkaði allt saman og
við urðum að fá okkur vinnu. Við fór-
um þá að spila með tveimur Svíum
sem við þvældumst út um allar triss-
ur með,“ segir hann og fær sér sopa
af kaffinu.
Þá fékk hann bréf heiman frá Ís-
landi. Bréfritari var enginn annar en
Svavar Gests sem vildi fá hann heim
en Raggi var þá á leið í frekara tón-
leikaferðalag. „Við ætluðum að fara
að þvælast meira með þeim, vorum
að fara til Evrópu og Suður-Ameríku.
Ég var um það bil að fara að skrifa
undir tveggja ára samning þegar ég
fékk þetta bréf. Ég var bara að labba
út af hótelinu þegar hótelstjórinn
kom hlaupandi á eftir mér. Ég settist
á bekk og las bréfið frá honum. Þarna
var hann með SG hljómplötur og
sagðist vilja hætta eftir ár. Hann vildi
enda hér á Sögu með mér og Ellý Vil-
hjálms.“
Hjónabandið gekk ekki upp
Raggi sló til. Eftir tvö ár í mikilli ævin-
týramennsku var komið gott og kom-
inn tími á að fara heim. „Hann bjarg-
aði mér eiginlega með þessu bréfi.
Maður var búinn að sjá þessa gæja og
þetta lið sem var búið að vera í þessu
í tuttugu ár, þvælast á milli. Þetta er
náttúrulega ógurlega erfitt líf.“
Áður en hann fór út hafði hann
komið sér upp fjölskyldu, farið hina
venjubundnu íslensku leið, byggt
hús, gift sig og eignast tvö börn.
Hjónabandið gekk hins vegar ekki
upp og þau skildu. „Við höfðum ver-
ið saman frá því við vorum ungling-
ar, 13–14 ára, og eiginlega engin leið
að segja af hverju það gekk ekki upp.
Þetta er bara eitthvað sem gerist. Við
áttum tvö börn saman, Kristjönu og
Bjarna. Ég var búinn að byggja flotta
130 fermetra hæð úti á Nesi þegar ég
var 21–22 ára. Nægur var krafturinn í
manni,“ segir hann og skellir upp úr
og bætir svo við: „En hann fór bara í
allar áttir. Ég var grallaraspói.“
Hann lét konuna og börnin hafa
íbúðina og hélt svo út á vit ævintýr-
anna, til Danmerkur að syngja inn á
plötu. Hann viðurkennir þó að auð-
vitað hafi það verið erfitt að fara frá
börnunum. „Þetta var auðvitað erf-
itt og ég tala nú ekki um fyrir börnin.
Ég fór bara út til að vinna en saknaði
þeirra auðvitað mikið.“
„Æ, ég fæ mér einn öl“
Þegar hann kom út var hins veg-
ar ekki allt eins og það átti að vera.
„Þetta var svona einhver fljótfærni.
Ég fór í upphafi til að syngja inn á
plötu en svo var það ekki tilbúið þeg-
ar ég kom út. Þá vorum við orðn-
ir blankir og þurftum að fá okkur
vinnu. Og það var nú eiginlega bara
grís hvernig hún kom. Við vorum
brunnir inni á hótelinu og allt í tómu
tjóni. Það var söngkona með okkur
sem átti að fara með Kristni til Hol-
lands.
Þá fór ég og heimsótti einn Clau-
sen sem ég þekkti. Hann bjó á Ves-
terbrogade 10, ég man það alltaf,“
segir hann og brosir að minningunni.
„Ég labbaði upp eftir til hans þegar
allt var brunnið utan af okkur. Sat
hjá honum yfir einum öl og þá kom
einn bissnessmaður sem ég þekkti
í heimsókn til hans. Hann sagði við
mig: Ertu ekki orðinn blankur? og
rétti mér 30 krónur danskar. Með
þær fór ég á næturklúbb. Ég hugs-
aði með mér, áður en ég færi aftur til
þeirra: Æ, ég fæ mér einn öl.
Ég settist niður og þekkti strákana
sem voru að spila. Þeir kölluðu á mig
og báðu mig að koma að syngja því
þeir vissu að ég gæti sungið. Ég gerði
það og um leið og ég var búinn að því
kom færeyskur/danskur umboðs-
maður og bauð mér vinnu. Þannig
hófst þetta. Ég gat komið þeim báð-
um með mér og þannig byrjaði þetta
músíkferðalag okkar út um allar
trissur.“
Svingandi partí og eldsvoði
Ævintýralífið átti vel við Ragga á
þessum árum. „Mér fannst þetta
allt í lagi þá, maður var ungur, laus
og liðugur og engar kvaðir á manni.
Þetta var náttúrulega bara ævintýra-
líf. Þangað til það kviknaði í restaur-
antnum,“ segir hann sposkur. „Þá
vorum við að spila í Árósum hjá ynd-
islegum karli. Bandið sem við vorum
með var mjög gott, þó ég segi sjálfur
frá, sérstaklega píanistinn okkar sem
var sænskur. Svo gott var bandið að
hljóðfæraleikararnir sem voru að
spila á undan okkur komu upp eftir
að hlusta.
Daginn sem ég átti afmæli feng-
um við að halda partí um nóttina. Þá
kom fullt af liði sem við þekktum og
svo var bara svingandi partí og spilað
á restaurantinum til fimm um morg-
uninn. Þá fórum við síðastir út, ég,
vinur minn og barþjónninn. Vinur
minn kom svo náfölur inn klukkan
10 um morguninn og sagði að það
væri kviknað í staðnum. Það fyrsta
sem manni datt í hug var náttúrulega
að einhver hefði gleymt sígarettu eða
eitthvað en svo var ekki.
Þá hafði forstjórinn komið um
morguninn og sá að það var eldur í
litlum kastara í loftinu. Hann hljóp,
náði í slökkvitækið og sprautaði á
þetta og þá logaði allt loftið. Um það
bil fékk ég þetta bréf og þá ákvað ég
bara að fara heim.“
Og þá fór hann beint á Sögu. „Þá
kom ég hérna og söng með hljóm-
sveit Svavars Gests. Þegar það ár
var búið buðu þeir mér, hótelstjór-
inn og Svavar, að taka við. Ég stofn-
aði þá mína eigin hljómsveit og hún
var hérna í nítján ár. Aldrei á sumrin
reyndar, þá vorum með Sumargleð-
ina.“
„Steinlá fyrir henni“
Í ævintýrunum úti kynntist Raggi
ástinni. Ballettdansmær að nafni
Helle fangaði hjarta hans. Stuttu eft-
ir að Raggi kom heim kom Helle á
eftir honum. „Við kynntumst í Árós-
um. Við vorum mikið saman meðan
ég var þar og ég kom þar nokkrum
sinnum meðan ég var úti. Við vor-
um ágæt saman og erum enn,“ seg-
ir Raggi með blik í augum og viður-
kennir að hafa fallið fyrir henni strax.
„Ég steinlá fyrir henni. Gullfal-
leg stelpa,“ segir hann og brosir út
að eyrum. „Hún kom rétt á eftir mér
heim. Við byrjuðum að búa í gamla
herberginu mínu í kjallaranum hjá
mömmu í Meðalholtinu.“ Síðan þá
hafa þau verið saman og eiga saman
soninn Henrý Lárus auk barnanna
tveggja sem Raggi á úr fyrra hjóna-
bandi.
Raggi segir þau þó hafa deilt eins
og önnur hjón, enda eðlilegt í rúm-
lega fjörtíu ára hjónabandi. „Við höf-
um eflaust rifist einhvern tímann og
pönkast eins og gengur í hjónabönd-
um. En mér finnst þetta bara indælt
og er voða happí með þetta. Við nátt-
úrulega rifumst eins og allir aðrir
gera. Hjónabandið er ekki eintómur
glassúr, einn, tveir og þrír. Það kem-
ur ýmislegt upp. Þá er bara að leysa
úr því og láta ekki frekjuna og vit-
leysuna alveg stjórna sér út í loftið.“
Hjónin eru mjög samrýnd og
eyða miklum tíma saman. „Við för-
um voðalega mikið saman. Hún er
eiginlega alltaf með mér. Við förum
mikið út og borðum saman, vorum
til dæmis úti að borða í gær. Hún fer
mikið með mér líka þegar ég er að
spila á elliheimilunum, er með tón-
leika eða að æfa, þá kemur hún oft
með. Við erum voða mikið á fartinni
og erum samhent hjón. Hún er hætt
að vinna og í staðinn fyrir að bíða eft-
ir mér heima kemur hún bara með
mér.“
Vaskar alltaf upp
Hann segir eiginkonuna líka vera
lunkna söngkonu þótt hún hafi lít-
ið sungið opinberlega. „Hún er góð
söngkona. Það var eiginlega bara ég
sem ýtti ekkert undir það. Hún fór í
söngtíma til Guðmundu Elíasdóttur
og söng alveg prýðilega. Ég var alltaf
syngjandi úti um allt og hugsaði ekk-
ert út í þetta. Ef ég hefði hugsað al-
mennilega út í það þá hefði hún get-
að orðið fín söngkona.“
Þau hjónin syngja oft saman
heima. „Við förum oft niður á píanó
og tröllum saman. Við syngjum bara
það sem okkur dettur í hug. Ég er
með svona músíkherbergi sem er
eiginlega bara ruslakompa full af
drasli, textum og músík og flygill-
inn hans pabba er þar líka. Þetta er
ábyggilega drullugasta herbergi á Ís-
landi en ég veit nákvæmlega hvar allt
er þarna.“
Raggi segist vera jafnréttissinni og
þau skipti húsverkunum á milli sín.
„Ég elda nú ekki mikið, kannski
svolítið, er ekki mjög góður kokkur.
Ég myndi segja að það væri kannski
ekki alveg toppurinn. Ég er bara að-
allega í því að steikja og svona. Ekkert
fansí vesen. Ég steiki bara svínakóti-
lettur og svona dót, eitthvað einfalt,“
segir Raggi kíminn og viðurkennir að
hann sé liðtækur í uppvaskinu. „Ég
vaska alltaf upp. Ég þríf eldhúsið og
sé um það og hef gert í áraraðir. Já, já,
konan fer bara inn í sófa og hefur það
huggulegt eftir matinn.“
Raggi segir Helle ekki kippa sér
mikið upp við það að vera gift svona
frægum söngvara. „Hún er ósköp ró-
leg yfir þessu og er sko ekki að „mikla
mig upp“. Ég kem kannski heim og
segi: Nú sló ég svakalega í gegn, og þá
segir hún: Já, elskan, ég veit. Farðu út
með ruslið,“ segir Raggi og skellihlær.
„Hún heldur niðri stjörnustælunum
hjá mér.“
Þurfti að taka símann
úr sambandi
Raggi hefur verið í sviðsljósinu lengi
og því fylgir mikil athygli. Hann seg-
ist lítið spá í það en vissulega hafi
Einn, tveir og þrír!
„Ég er búinn að segja
þeim sem spyrja
að ég ætli að fá mér tölvu
þegar ég fer að eldast.
Röppuðu saman Raggi og Erpur röppuðu
saman í laginu Allir eru að fá sér. Hér bregða
þeir félagarnir á leik.
Ástfangin Helle og Raggi eru mjög ástfangin en Raggi segir þó að auðvitað rífist þau eins
og önnur hjón.
Nóg að gera Það er nóg að gera í söngnum
hjá Ragga og hann segist munu syngja eins
lengi og röddin leyfir.
Áritanir Raggi er vinsæll og hér er hann
að árita fyrir aðdáendur. Helle stendur við
bakið á sínum manni enda eru þau að sögn
Ragga afar samrýnd hjón.
Á sínum yngri árum Raggi á langan
söngferil að baki, hér er hann á sínum yngri
árum.
Þrátt fyrir að vera orðinn 77 ára slær Ragnar Bjarnason hvergi slöku við og
skemmtir jafnt á elliheimilum sem í framhaldsskólum. Viktoría Hermanns-
dóttir hitti hinn ástsæla söngvara á Hótel Sögu og fékk að heyra af ævintýrum
og ástum í Danmörku, örlagabréfinu sem sendi hann heim, konunni í lífi hans og
söngnum sem hann fær aldrei leið á.
Bílaáhugamaður Raggi rak í nokkur
ár bílaleigu sem hann segir hafa verið
rugluðustu bílaleigu á Íslandi.