Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 39
Jólin 39Jólablað 21.–27. desember 2011
Á meðan landsmenn flestir gæða sér á jólamáltíðinni og hlusta á hátíðar-
messuna í útvarpinu þurfa aðrir að standa vaktina á aðfangadagskvöld.
Hjá Hjálpræðishernum þarf að útdeila mat handa þeim sem eiga ekki í
önnur hús að venda. Starfsfólk á elliheimili heldur jólin með eldra fólki sem
er ekki með ástvinum og á já.is starfar geðprútt fólk sem svarar hinum
fjölbreyttustu fyrirspurnum.
Á vaktinni
á aðfanga-
dagskvöld
Gunnar Aðalsteinsson vinnur
hjá Orkuveitunni:
Jólamáltíðin í húfi
Þeir eru ekki margir sem velja það að vinna á að-
fangadagskvöld en þeirra sem gera það er vissulega þörf.
Orkuneysla landsmanna er gríðarlega mikil á háannatíma
jólanna milli fjögur og sjö um kvöldið. Þá láta landsmenn
allir renna í bað á sama tíma, kveikja á ofninum á sama
tíma og sjónvarpi og útvarpi.
Gunnar Aðalsteinsson er einn þeirra sem stendur vaktina
þessi jólin. Hann vinnur hjá Orkuveitunni og sér um að
rafmagnið fari ekki af.
„Það er jólamáltíðin sem er í húfi,“ segir hann. „Við
fylgjumst með orkunotkuninni og rafmagnið er sérlega
áríðandi af því fólk er að elda þessa mikilvægustu máltíð
ársins. Við höfum því viðbúnað og styttum viðbragðstíma
eins mikið og mögulegt er. Það slær vissulega út hér og þar
en við bregðumst fljótt við og fólk verður virkilega þakk-
látt. Það er ótrúlegt hvað fólk er umburðarlynt á þessum
tíma ársins. Menn eru jafnvel leystir út með gjöfum,
konfekti og alls kyns góðgæti,“ segir hann og hlær og segir
umburðarlyndið töluvert minna á öðrum tímum ársins.
„Það fer ekki mikið fyrir þolgæðinu þegar rafmagninu slær
út á mikilvægum fótboltaleikjum, þá erum við alls ekki
leystir út með gjöfum og fáum miklar skammir.“
„Ég hef aldrei unnið á aðfangadag áður
þannig að ég veit ekki hvernig það er, en ég er
mjög spennt,“ segir Margaret Saue Marti hjá
Hjálpræðishernum. Það er í nógu að snúast hjá
henni enda sér hún um að skipuleggja hátíðar-
kvöldverð Hjálpræðishersins á aðfangadag.
Mikið fjölmenni borðar þar saman, þar á meðal
fólk sem hefur ekki í önnur hús að venda. „Það
hafa um 90 manns skráð sig nú þegar og svo
eru um tíu sjálfboðaliðar. Við getum því miður
ekki tekið við fleiri sjálfboðaliðum því að það
er bara ekki pláss fyrir fleiri,“ segir Margaret og
tekur fram að engum sé vísað frá, allir fái að
borða. „Það er matur og svo ís í eftirrétt. Síðan
er smá dagskrá, við syngjum saman og dönsum
í kringum jólatréð og allir fá gjafir þegar þeir fara
heim.“ Forsetahjónin komu á Hjálpræðisherinn í
fyrra en Margaret segist ekki vita hvort þau komi
í ár. „Ég veit ekki hvað þau gera í ár en það kemur
í ljós.“ Margaret og eiginmaður hennar, Paul,
halda þó jólin saman á jóladag. „Þá höldum við
okkar jól. Stelpurnar okkar koma heim frá Noregi
yfir jólin þannig við verðum að gera það,“ segir
hún brosandi.
Séra Bolli Pétur Bollason:
Messurnar hluti af jólunumPétur sjúkraflutningamaður:
Fyrstu jólin erfið
„Mér fannst skelfilega erfitt að vinna á
jólum í fyrsta skiptið,“ segir Pétur Tryggvason
sjúkraflutningamaður á Akureyri en Pétur er
heppinn í ár og verður í fríi á stærstu hátíðar-
dögunum. Pétur segir þessi fyrstu jól hafa verið
erfið og minnisstæð. „Ég var 21 árs og þetta var
fyrsta aðfangadagskvöldið sem ég eyddi ekki
heima hjá mömmu og pabba. Ég átti ofsalega
erfitt með að vita af öllum systkinunum
samankomnum og upplifði mig hálfeinmana,“
segir Pétur og bætir við að honum hafi svo aftur
fundist erfitt að vera að vinna á jólum eftir að
hann varð pabbi. „Ég er helgarpabbi og hef
börnin önnur hver jól. Ég hef því reynt að púsla
þessu þannig að ég er að vinna þau jól sem þau
eru ekki hjá mér. Þetta er alltaf svolítið mál sem
þarfnast skipulagningar og er allt útpælt út frá
börnunum,“ segir Pétur og bætir við að hann sé
afar spenntur fyrir jólunum þetta árið. „Ég er
bæði spenntur og glaður enda er ég bæði með
börnin hjá mér og í fríi. Þetta er toppurinn.“
Kamilla Hansen:
Erfitt með lítil börn
„Maður er bara í þessari vaktavinnu og stillir sig
inn á það því maður veit að það kemur alltaf röðin
að manni með reglulegu millibili,“ segir Kamilla
Hansen hjúkrunarfræðingur sem verður á vakt á
aðfangadagskvöld á barnadeild Sjúkrahússins á
Akureyri.
Kamilla segir að það sé sérstök stemning að
dvelja á barnadeildinni á jólunum. „Núna eru
þó nokkur börn hér inni og við reynum að hafa
það hátíðlegt hjá okkur. Að þurfa að vinna þetta
kvöld er ekkert á við það sem foreldrar veikra
barna upplifa. Það setur allt úr skorðum að vera
með veikt barn.“
Kamilla á sjálf uppkomin börn. „Mér fannst mun
erfiðara að þurfa að vinna á jólunum þegar þau
voru lítil. Og þeim þótt það líka erfitt. Við hér á
deildinni reynum samt að skipta þessu þannig
að við getum annaðhvort haldið jólin áður en
við komum í vinnuna eða eftir að vinnu lýkur.
Jólin byrja ekkert fyrr en ég kem heim,“ segir hún
brosandi og bætir við að hún sé mikið jólabarn.
„Algjörlega. Og ég hlakka mikið til jólanna, jafn-
vel þótt ég sé að vinna.“
Margaret Saue Marti hjá Hjálpræðishernum:
Allir fá að borða
Guðbjörg Garðarsdóttir hjá já.is:
Konurnar á 118 vita allt
Á já.is er opið allan sólarhringinn allt árið um kring. Á vaktinni á aðfangadag
verður Guðbjörg Garðarsdóttir. Hún segir fólk þurfa að vita margt og mikið
þennan hátíðisdag og sumir hringi meira að segja til þeirra og spyrji um ráð við
sósugerðina og ýmislegt annað sem kemur heimilishaldinu við. „Flestir hringja
nú inn til að spyrja um opnunartíma veitingastaða og verslana. En svo eru
alltaf einhverjir sem hringja inn og þurfa að vita eitt og annað um sósugerðina.
Þá er gott að þeir lendi á okkur sem erum gamalreyndar. Við höfum gefið ráð
um allt frá því hvernig eigi að sjóða egg til þess hvort það megi setja heitt
kjötið inn í ísskáp. Einn sem hringdi inn sagði sigri hrósandi við konuna: Sko,
konurnar á 118 vita allt!“
Guðbjörg segir líka eitthvað um það að fólk sem eigi bágt hringi inn um jólin
til þess að spjalla. „Sumir gera sér enga grein fyrir því hvar þeir eru staddir í
heiminum og bara ef það væri svo einfalt að við gætum vísað þeim veginn rétt
eins og þeim sem finna ekki rétt hús eða götu.“
„Ég er mjög mikið jólabarn. Ég elska jólin,“ segir
Bolli Pétur Bollason, prestur í Laufásprestakalli,
og bætir við að hann eigi gullfallegar minningar
um sín bernskujól. Bolli Pétur verður með aftan-
söng í Svalbarðskirkju klukkan 16 á aðfangadag
og í Grenivíkurkirkju klukkan 18. „Svo held ég
heim þar sem hátíðarmaturinn bíður. Kvöldið
fer svo í þetta hefðbundna með fjölskyldunni.
Við setjumst að borði, opnum pakka og lesum
jólakortin,“ segir Bolli sem messar einnig á
jóladag, annan dag jóla, gamlársdag og á nýjárs-
dag. Aðspurður segir hann messurnar hluta af
hans jólahaldi. „Alveg síðan ég vígðist 2002 hef
ég verið á fullu um jól og áramót og reyndar í
desember öllum því helgihaldi og öðrum við-
burðum hefur fjölgað á aðventu.“
Bolli segir fjölskylduna taka þátt í messunum.
„Þau fara með mér eins og þau geta en komast
ekki á alla staði. Frúin skiptir sér í kirkjur á milli
ára og dæturnar fylgja með og unglingurinn oft-
ast líka. Laufásprestakall er mjög umfangsmikið
landfræðilega, innifelur fimm sóknir og telur
1.000 sóknarbörn alls og mæting í jólamessur er
hlutfallslega góð. Til dæmis telur Ljósavatns-
sókn tæplega 80 manns en um 80–90% íbúa
mæta í jólamessu,“ segir hann og bætir við að Ís-
lendingar séu almennt duglegir að mæta í kirkju
á jólum. „Jólin tala skýrt inn í gleði og sorgir fólks
því barnsfæðingin í Betlehem nærir von og sam-
vitund,“ segir Bolli að lokum.