Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Qupperneq 56
56 Lífsstíll 21.–27. desember 2011 Jólablað
Mamma leggur grunninn
n Við lærum hvers virði við erum fyrstu mánuði ævinnar
V
ið lærum að treysta,
elska og leysa ágrein-
ing við ástvini í barn-
æsku – og fyrr en halda
mætti. Þetta eru niðurstöð-
ur rannsóknar sem birtust
í tímaritinu Current Direc-
tions in Psychological Sci-
ence á dögunum. „Samskipti
einstaklings við móður sína
fyrstu tólf til átján mánuði
ævinnar segja til um hegðun
hans í ástarsamböndum 20
árum síðar,“ segir sálfræðing-
urinn Jeffry A. Simpson, höf-
undur rannsóknarinnar.
Simpson segir að börn
sem sæta illri meðferð þessa
fyrstu mánuði lífs síns séu lík-
legri til að verða reiðir full-
orðnir einstaklingar á meðan
börn umhyggjusamra for-
eldra eigi auðveldara með
að takast á við vandamál og
treysta til þess á góðvild ann-
arra. „Hvernig komið er fram
við okkur, áður en við munum
eftir okkur, verður ómeðvitað
greypt í huga okkar og seg-
ir okkur hvers virði við erum
og leggur þannig grunninn að
samskiptum okkar við aðra,“
segir Simpson sem segir þessi
viðhorf geta breyst með nýj-
um samböndum, sjálfsskoð-
un og sálfræðimeðferð.
Fylgst var með börnum 75
láglaunaðra mæðra frá fæð-
ingu í rúm 20 ár. Einnig var
rætt við nána vini og ástvini
auk þess sem börnin og mæð-
urnar undirgengust reglu-
lega ýmiss konar próf. Kenn-
ingin, um að það sem kemur
fyrir okkur í æsku hafi áhrif á
það hvernig einstaklingar við
verðum, er ekki ný af nálinni
en rannsókn Simpson og fé-
laga er sú fyrsta sem virðist
veita sannanir fyrir henni.
Sannir
töffarar
n Í anda Parísardömunnar
Mæðgin Hvernig komið
var fram við okkur fyrstu
mánuðina skiptir miklu máli
varðandi samband við maka.
Fallegar nýjungar:
Íslensk hönn-
un í pakkann
Demo-loftljós
Með Demo-loftljósinu endurvöktu
þau Dagný Elsa Einarsdóttir og
Magnús Ólafsson húsgagnasmíða-
meistari íslenskt
handverk sem
var algengt
á sjötta
og
sjö-
unda
áratug
síð-
ustu
aldar.
Það
hafa ekki
varðveist
mörg eintök
af þessum fallegu
ljósum en framleiðendur Demo-
loftljóssins hafa sótt innblástur
í þau.
Þetta er fyrsta samstarfsverkefni
þeirra en bæði eru áhugafólk um
varðveislu og endurvakningu
á íslensku handverki og hús-
gögnum frá árunum 1940 til 1960
en þau voru oft hönnuð og unnin
af iðnaðarmönnum. Demo-loft-
ljósið er fáanlegt í ýmsum litum en
einnig ólitað. Snúran er tauklædd
og fáanleg í mörgum litum, bæði
einföld og vafin.
Gígur
Gígur heita splunkunýir kertastjak-
ar eftir Guðrúnu Valdimarsdóttur,
en stjakarnir eru framleiddir á
Íslandi og handmálaðir í sjö mis-
munandi litum.
Stjakarnir sem ætlaðir eru fyrir
sprittkerti koma í þremur mis-
munandi hæðum, fólk getur þá
valið sér liti og stærðir sem því
finnst passa saman og hentar inn
á heimilið.
Retró fegurð
Tinna Pétursdóttir og eiginmaður
hennar, Ingvi, mynda hönnunar-
teymið Dóttir&Sonur. Vörur
þeirra eru skemmtilega retró,
stílhreinar og í fallegum litum og
hafa vakið mikla eftirtekt. Lampar
með perlum, púðar og plaköt með
origami-fuglum, veggfóður og
fleira er hægt að finna á heimasíðu
þeirra: dottirandsonur.com, og þá
má panta vörur þeirra á order@
dottirandsonur.com en parið er
búsett í Berlín.
Víkingar og valkyrjur
Hönnuðir íslensku barnafatalín-
unnar Húnihún, Diljá Jónsdóttir og
Ríkey Kristjánsdóttir, framleiða
og hanna frá grunni fatnað á
drengi frá aldrinum eins til sex ára.
Í línunni sem fæst í versluninni
Kirsuberið eru skemmtileg
víkinga- og valkyrjuföt sem henta
vel í skemmtilega leiki. Ein-
staklega falleg hönnun sem glæðir
ímyndunaraflið lífi.
S
agt er að munurinn á
skemmtanalífinu í New York
og París sé sá að í París er allt
inn á við en í New York er allt
út á við. Í París fer fólk út að
skemmta sér með vinum sínum og
það sem gerist þar er einkamál sem
ekki er talað um, slúðrið berst á milli
innan hópsins en fer sjaldan lengra.
Þar klæða konur sig heldur ekki of
mikið upp þar sem það þykir ekki
töff að fara alla leið í því. Þær þykj-
ast nefnilega hafa annað og betra
við tímann að gera. Hins vegar eyða
tískudrottningarnar þar þeim mun
meiri tíma í að ná hinu fullkomna
kasjúal-lúkki með tilheyrandi metn-
aði fyrir snyrtingu, förðun og hár-
greiðslu. Í New York fer fólk hins
vegar eitt út að skemmta sér ef því
ber að skipta, þar snýst allt um að
sýna sig á réttum stöðum og sjá aðra,
fanga athygli og komast á síður blað-
anna.
Ef þú vilt taka Parísardömuna á
hátíðarnar skaltu því varast að of-
hlaða þig skarti eða öðru skrauti.
Það er ekkert sem segir að þú þurfir
að klæðast kjól til að komast í spari-
gírinn. Fallegar buxur, dragt og sam-
festingur geta verið jafn fínn klæðn-
aður og hann er töff. Þú kórónar
heildarútlitið bara með háum hæl-
um, réttum fylgihlutum og fallegri
förðun.
Balmain
Balmain
Balmain
Christian Dior
Balmain
Balmain
Eli Saab
Eli Saab
Chanel
Celine
Celine
Marc Jacobs
Marc Jacobs