Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Qupperneq 70
Gifti sig í svörtu
n Kolla í Bítinu gifti sig um helgina
F
jölmiðlakonan Kolbrún Björns-
dóttir gifti sig um helgina en sá
heppni heitir Árni Árnason og
starfar sem markaðssérfræð-
ingur. Kolla, eins og hún er oftast köll-
uð, er einn þáttarstjórnenda Íslands í
bítið. Þau Árni hafa verið saman frá
árinu 2003 og eiga eina dóttur saman
en sú stutta heitir Helena og verður
tveggja ára í febrúar. Kolbrún á einn-
ig soninn Arnór Blæ sem er að verða
13 ára og dótturina Theodóru sem er
15 ára en Árni á Sólveigu Maríu, sem
er 17 ára, svo ljóst er að um stóra fjöl-
skyldu er að ræða.
Samkvæmt heimildum DV voru
brúðhjónin pússuð saman í Lága-
fellskirkju sunnudaginn 18. desemb-
er en það var séra Ólafur Jóhann
Borgþórsson sem gaf þau saman. Um
litla og fallega athöfn var að ræða þar
sem einungis nánasta fjölskylda var
saman komin til að fagna með brúð-
hjónunum. Eldri krakkarnir fengu að
taka þátt í athöfninni með því að taka
á móti gestum en sú yngsta vék ekki
úr fangi pabba síns í gegnum athöfn-
ina. Hópurinn hélt að athöfn lokinni
heim til brúðhjónanna þar sem blás-
ið var til veislu.
Kolla fór óhefðbundna leið í fata-
vali en svartur, lítill og sætur kjóll
úr Boss-búðinni varð fyrir valinu.
Samkvæmt heimildum ætla hjónin
að lauma sér í nokkurra daga brúð-
kaupsferð á nýju ári en óvíst er hvaða
áfangastaður verður fyrir valinu.
70 Fólk 21.–27. desember 2011 Jólablað
É
g vildi gjarnan eyða jólunum
fyrir vestan en af því verður því
miður ekki í ár,“ segir leikar-
inn Pálmi Gestsson en Pálmi
er Bolvíkingur í húð og hár og
kann síður við hátíðina í borginni.
„Mér finnst þetta vera dálítið erfið-
ur tími, bæði þrúgandi og firrtur. Í
gamla daga var allt miklu eðlilegra.
Þá var meiri kyrrð og ró og þá komu
jólin betur til manns. En kannski er
þetta svona hjá öllum, bernskujól-
in eru gjarnan þau eftirminnileg-
ustu,“ segir hann og bætir við að í
dag minni jólin hann helst á kjöt-
kveðjuhátíð.
„Allt snýst um neyslu, græðgi og
skuldsetningu. Þessi hraði, streita
og sú krafa að allt eigi að gerast á
þessum örfáum dögum – sá jólaandi
mætti dreifast jafnara yfir allt árið,“
segir Pálmi sem notar Vestfirðina til
að núllstilla sig. „Ég byrja stundum
árið fyrir vestan en nú er ég á fullu
við æfingar á Heimsljósi, sem verður
frumsýnt annan í jólum, og í öðrum
sýningum og verð því að finna aðrar
aðferðir til að núllstilla mig. Kannski
tekst það ekki fyrr en í sumar.“
Pálmi er á meðal leikara í kvik-
myndinni Vaxandi tungl en mynd-
in verður frumsýnd í Sjónvarpinu á
jóladagskvöld. Vaxandi tungl er lítil
saga úr sjávarplássi á Vestfjörðum en
myndin byggir á sannsögulegum at-
burðum og segir frá bræðradeilu sem
tekur óvænta stefnu í kjölfar þungun-
ar. Samkvæmt Pálma er kvikmyndin
fyrir alla aldurshópa þótt tekið sé á
viðkvæmum umfjöllunarefnum.
„Myndin teiknar upp mjög trú-
verðuga mynd af landsbyggðinni.
Þetta er trúverðug kvikmynd sem er
ekki að reyna að vera neitt annað en
hún er. Ég leik útgerðarmann sem
eins og aðrir í fjölskyldunni kem-
ur að krossgötum þegar höfuð fjöl-
skyldunnar deyr. Fjölskyldan hittist í
útförinni og, eins og gengur og ger-
ist í íslenskum fjölskyldum, þarf að
ákveða framhaldið á ýmsum prakt-
ískum hlutum,“ segir Pálmi og bætir
aðspurður við að myndin eigi vel við
um jól.
„Þetta er jólaleg mynd að því leyt-
inu að hún gerist um vetur í kulda
og er fjölskyldumynd sem fjallar um
týpíska íslenska fjölskyldusögu. Þessi
saga skírskotar til tilvistarkreppu
fólks í víðu samhengi. Í þessu til-
felli er spurningin; að
vera eða fara, hvort
fólk sé á réttum
stað. Er maður ekki
alltaf að spyrja sig
hvort maður sé að
gera rétt eða ekki?“
indiana@dv.is
Jólin minna helst
á kjötkveðjuhátíð
n Pálmi Gestsson kann ekki við jólin í borginni
n Kvikmynd frumsýnd í Sjónvarpinu á jóladag
Bolvíkingur Pálmi
er Bolvíkingur og vildi
helst komast vestur um
jólin til að núllstilla sig.
Af því verður þó ekki í ár
vegna anna í leikhúsinu.
Týpísk fjölskyldusaga Pálmi
segir myndina fjalla um venjulega
fjölskyldu sem kemur að krossgötum
þegar höfuð fjölskyldunnar deyr.
Komnar heim
í jólafrí
Þær Steinunn Camilla Stones,
Klara Elias og Alma Goodman eru
mættar heim á Klakann í jólafrí.
Stelpurnar, sem mynda íslensku
stelpnasveitina The Charlies, hafa
ekki komið til Íslands í heilt ár. Á
fésbókarsíðu sveitarinnar segjast
þær hæstánægðar með að vera
komnar til fjölskyldna sinna og að
þær elski snjóinn. Hins vegar eru
þær ekki jafn ánægðar með kuld-
ann sem er kannski ekki skrítið
þar sem þær stöllur hafa eytt síð-
asta ári í sólríkri Kaliforníu þar
sem þær vinna hörðum höndum
að því að koma sér og tónlist sinni
á framfæri.
Stjörnum prýdd
afmælisveisla
Athafnakonan glæsilega Sigrún
Lilja Guðjónsdóttir sem á og rekur
tískumerkið Gyðju Collection hélt
upp á þrítugsafmælið sitt með
stæl um síðustu helgi. Sigrún Lilja
er ekki þekkt fyrir neitt hálfkák
og veislan mun hafa verið í flott-
ari kantinum. Þekktar stjörnur
skemmtu afmælisbarninu og gest-
um hennar en á meðal listamanna
sem tróðu upp voru Magdalena
Dubik og Védís Vantída Guð-
mundsdóttir ásamt Haffa Haff,
meðlimir íslensku stúlknasveitar-
innar The Charlies og Geir Ólafs.
Svona svo einhverjir séu nefndir.
Með hjartað á
réttum stað
Frásögn DV af ungri, einstæðri
móður í Reykjavík sem ekki hafði
efni á jólamatnum hreyfði við
mörgum. Á meðal þeirra sem
höfðu samband við ungu móður-
ina er athafna- og leikkonan María
Birta Bjarnadóttir en María Birta
á verslunina Maníu. Samkvæmt
heimildum DV setti María Birta
sig í samband við konuna og bauð
henni að koma í verslunina og
velja sér jólaskó án endurgjalds.
Hin unga og hæfileikaríka leik-
kona er greinilega með hjartað á
réttum stað.
Vaxandi tungl Kvikmyndin
Vaxandi tungl verður frumsýnd í
Sjónvarpinu á jóladagskvöld.
Fallegar mæðgur Kolbrún og
Helena en sú stutta sat í fanginu á
pabba sínum alla athöfnina.