Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Síða 56
Rúm | Sængurver | Springdýnur | Púðar og rúmteppi | Kistur og náttborð
Gaflar | Heilsukoddar | Dýnuhlífar og lök | Fylgihlutir
Allt fyrir svefnherbergið
RB rúm | Dalshrauni 8 | Hafnarfirði | Sími: 555 0397
Opið alla virka daga frá kl. 09.00–18.00, laugardaga 10.00–14.00, sunnudaga lokað
www.rbrum.is | rum@rbrum.is | erum á
Íslensk
hönnun
RÚM
ára
1943-2013
Framúrskarandi
fyrirtæki 2012
Framúrskarandi
fyrirtæki 2011
Framúrskarandi
fyrirtæki 2010
Er svana-
kjóllinn til
sölu?
Björn dæmir Balta
n Sem kunnugt er heldur stjórn-
málamaðurinn litríki Björn Bjarna-
son úti vinsælli bloggsíðu, bjorn.
is. Þar fer ráðherrann fyrrverandi
um víðan völl og lætur engin svið
mannlífsins ósnert. Nú síðast
skrifaði hann kvikmyndagagnrýni
um nýjustu mynd Baltasars Kor-
máks, 2 Guns. Björn hefur dóminn
á þeim orðum að honum hafi ver-
ið boðið á forsýninguna af Gunnari
Eyjólfssyni, guðföður Baltasars. Svo
hefst lofsöngur. „Baltasar held-
ur fagmannlega á hinum flókna,
hraða og spennandi söguþræði,“
segir Björn sem gerir ávarp
Baltasars fyrir myndina einnig að
umtalsefni. „… sagði Baltasar að
sér hefði kom-
ið á óvart að í
Ameríku kipptu
menn sér
helst upp yfir
því að skotið
væri á hænur í
myndinni.“
Björn Barbapabbi
n Björn Þorláksson, ritstjóri og rit-
höfundur, gerir grín að óförum
sínum á Facebook á föstudag.
„Slasaði mig á fæti í gærkvöld
þegar ég tók til í eldhúsinu og rak
mig í kaffivélina með þeim af-
leiðingum að sjóðheitt kaffið skall
á býfunum. Það var vont – en
verra var að ég reyndi samstundis
að koma báðum fótunum fyrir
á sama tíma í eldhúsvaskinum
þar sem ég skrúfaði frá köldu
vatni. Hefði þurft að sitja til að
geta það, en sú var ekki raunin og
gekk mikið á þegar gamli reyndi
að breyta sér í Barbapabba. Held
ég sé tognaður eftir þetta ævin-
týri en húðin er
kaffibrún og
ókei,“ segir
Björn sem
er sann-
færð-
ur um að
hann yrði
afleitur
heilbrigð-
isstarfs-
maður.
Björk með
fatamarkað
n Kórstúlkurnar úr Graduale
Nobili sem fylgt hafa söng konunni
Björk eftir um heiminn ætla að
halda fatamarkað á Prikinu á
laugardaginn. Stúlkurnar hafa
ferðast með Björk um víða veröld
síðan árið 2010 og eflaust keypt
marga gersemina. Björk sjálf og
dóttir hennar Ísadóra ætla einnig
að taka þátt í
markaðnum og
segir Björk frá
því á Facebook-
síðu atburðarins
að hún og Ísadóra
dóttir hennar hafi
staðið í hreingern-
ingu og verði
á markaðn-
um með
nokkra
kjóla.
É
g er búinn að safna þessum
myndum í 10–15 ár en fyrstu
myndina keypti ég í Kola-
portinu,“ segir Teitur Atlason um
listaverkasafn sitt sem samanstend-
ur af myndum af þokkafullum gyðj-
um og grátandi börnum. Fjöldafram-
leidd list sem var afar vinsæl hér á
landi sem og úti í heimi á sjötta og
sjöunda áratug síðustu aldar. Margir
kannast við myndirnar en Teitur hóf
eigin lega óvart að safna þeim og á
nú á þriðja tug mynda. Honum hafa
borist myndir víða að, hefur keypt er-
lendis og verið gefið héðan og þaðan
enda kominn með nokkuð gott safn.
Nú heldur hann sýningu á safn-
inu í Bryggjubúðinni í Flatey en
Lísa Kristjánsdóttir sem rekur búð-
ina bauð honum að sýna þar. „Það
var engin sérstök ástæða fyrir því að
ég fór að safna þessum myndum. Ég
keypti eina, rakst svo á aðra og áður
en ég vissi af átti ég fimm myndir af
þokkagyðjum. Síðan var ég orðinn
safnari,“ segir Teitur. „Fyrst var ég
alltaf að leita eftir þokkagyðjunum
en þá fór ég að rekast á drenginn
með tárið og fór að safna líka mynd-
unum af börnunum með tárið,“ segir
Teitur og viðurkennir að vera orðinn
mikill áhugamaður um þess konar
list. „Það er gaman að lesa sér til
um þessa fjöldaframleiddu list. Það
eru tragískar sögur í kringum suma
listamennina og margt spennandi
í þessu,“ segir Teitur og rifjar upp
fjöldabrennur á málverkunum af
drengnum með tárið eftir að gula
pressan birti fréttir af síendurteknum
eldsvoðum þar sem allt brann nema
myndin af drengnum með tárið.
Teitur er hvergi nærri hættur að
safna myndum og vonast til þess að
eignast mikið fleiri og að geta haldið
fleiri sýningar. „Það er draumur minn
að sýna í Ráðhúsinu.“ n viktoria@dv.is
„Draumur minn að sýna í Ráðhúsinu“
n Teitur með sýningu á listaverkasafninu sínu
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 16.–18. áGúst 2013 91. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr.
Með safnið Teitur við safn sitt á sýn-
ingunni í Flatey.