Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Síða 2
Helgarblað 11.–14. apríl 20142 Fréttir
GRÍMSBÆ VIÐ BÚSTAÐAVEG · SÍMI 588 1230
Opið: mánudaga - laugardaga 10-19, sunnudaga 11-17
Krosslagðar hendur
n Gunnar í Krossinum fylgdist með úr fjarlægð n Blaðamaður fór á samkomu
T
rúfélagið Krossinn hefur mik-
ið verið í umræðunni síðustu
vikur og mánuði. Allt frá ár-
inu 2010 hafa erjur og inn-
herjapólitík geisað innan
veggja Krossins. Fyrst árið 2010 vegna
ásakana kvenna á hendur Gunnari
Þorsteinssyni vegna meintrar kyn-
ferðislegrar áreitni og nú síðast fyrir
nokkrum vikum vegna ásakana um
fjármálaóreiðu í bókhaldi áfanga-
heimilisins Krossgatna. DV fór á
samkomu í Krossinum síðasta sunnu-
dag og fylgdist með hvernig starfið fer
fram.
Íburðarmikill samkomusalur
Blaðamaður DV mætir fyrir utan
safnaðarheimilið rétt fyrir hálf fimm
á sunnudegi. Fólk er að tínast í hús
og tekur dyravörður á móti gestum
og býður þá velkomna. Blaðamaður
gengur inn í samkomusalinn og fær
sér sæti aftarlega. Salurinn er nokkuð
stór og búið er að deyfa lýsinguna. Um
fjörtíu til fimmtíu manns eru mætt-
ir á samkomuna samkvæmt lauslegri
talningu blaðamanns.
Fremst blasir við stórt svið þar sem
búið er að stilla upp hljóðfærum. Bún-
aðurinn virðist vera mjög góður og
virðist mikið lagt í alla umgjörð safn-
aðarheimilisins. Margar fjölskyldur
eru mættar á samkomuna með börn
sín, sem virðast vera á aldrinum átta
til sextán ára. Meðan á samkomunni
stendur fer fram „öflugt barnastarf“
annars staðar í húsinu.
Forstöðumaðurinn fellir tár
Hljómsveitin hefur komið sér fyrir á
sviðinu. „Við erum komin til að gera
einn hlut og það er að lofa Guð,“ til-
kynnir söngvari hljómsveitarinnar
áður en tónlistarflutningur hefst. Við
tekur tæplega klukkutími af kristilegri
rokktónlist. Fólk byrjar að taka undir
tónlistina, klappa og syngja með, lyfta
höndum og lofa Guð. Fremst í saln-
um stendur Sigurbjörg Gunnarsdóttir,
núverandi forstöðumaður Krossins og
dóttir Gunnars í Krossinum.
Margir gestir standa upp og færa
sig nær. Sigurbjörg stendur fremst og
tekur undir sönginn. Sigurbjörg lif-
ir sig greinilega mikið inn í tónlistina
þar sem hún sést þerra tár og virð-
ist þetta greinilega vera til finningarík
stund fyrir hana. Aftast í salnum
standa nokkrir og fylgjast með. Svo
virðist sem þeir séu að kyrja eitthvað
með sjálfum sér, hugsanlega að „tala
tungum“ en blaðamanni tekst ekki að
greina hvað sagt er.
Gunnar fylgist með úr fjarlægð
Þegar tónlistaratriðinu lýkur tekur Sig-
urbjörg við hljóðnemanum og byrj-
ar að predika yfir söfnuðinum. Þegar
nokkuð er liðið á samkomuna kem-
ur blaðamaður auga á Gunnar í saln-
um, þar sem hann stendur aftast með
krosslagðar hendur og fylgist með,
alvarlegur á svip. Ekki virðist vera létt
yfir honum, heldur stendur hann kyrr
og fylgist með predikun dóttur sinnar.
Eins og DV hefur fjallað um áður
geisa miklar erjur innan Krossins og
andar köldu milli Gunnars og dóttur
hans, eftir að Gunnar var látinn stíga
til hliðar sem forstöðumaður og Sig-
urbjörg tók við stjórnar taumunum
fyrir nokkrum árum. Gunnar stoppaði
þó ekki lengi á samkomunni og lét sig
hverfa eftir tiltölulega stutta stund. Á
meðan hélt Sigurbjörg áfram eldræðu
sinni yfir söfnuðinum, sem tók und-
ir orð hennar og af viðbrögðum við-
staddra er greinilegt að mark er tekið
á henni sem predikara.
Safnaðargestir virtust allir ánægð-
ir með samkomuna og lifðu sig mik-
ið inn í stemninguna sem myndað-
ist. Eftir rúman einn og hálfan tíma
virtist predikuninni vera að ljúka og
blaðamaður lét sig þá hverfa af þessari
forvitnilegu samkomu. n
ritstjorn@dv.is
„Við erum komin til
að gera einn hlut
og það er að lofa Guð.
Samkomusalur
Krossins Mikið virðist
lagt í alla umgjörð
safnaðarheimilisins.
Gunnar Þorsteinsson Gunnar sást á
samkomunni þar sem hann stóð aftast með
krosslagðar hendur
Lofa Guð Söfnuðurinn tók virkan þátt.
Útgáfa DV
um páskana
Útgáfu DV um páskana verður
þannig háttað að næsta tölu-
blað, veglegt páskablað, kemur
út þriðjudaginn 15. apríl. Næsta
blað þar á eftir, helgarblað, kem-
ur út miðvikudaginn 23. apríl,
daginn fyrir sumardaginn fyrsta.
Öflug fréttaþjónusta verður venju
samkvæmt á DV.is alla páskana.
Hæstiréttur sýknar
Skilanefnd Kaupþings vildi fá ríflega hálfan milljarð frá Kristjáni Arasyni
K
ristján Arason þarf ekki að
borga Kaupþingi rúman
hálfan milljarð króna sam-
kvæmt dómi sem féll í
Hæstarétti á fimmtu-
dag – sem staðfesti dóm í héraði.
Slitastjórn bankans stefndi honum
vegna kúluláns sem hann fékk sem
starfsmaður bankans til að kaupa
hlutabréf í bankanum. Slitastjórn
Kaupþings banka var hins vegar
gert að greiða Kristjáni 2,5 milljónir
króna í málsbætur og Kaupþing þarf
að greiða honum 800 þúsund krónur
í málskostnað.
Kristján var yfirmaður eigna-
stýringar bankans og síðar fram-
kvæmdastjóri einkabankaþjón-
ustu. Starfinu fylgdi kaupréttur á
hlutabréfum í bankanum. Í septem-
ber 2005 var það samþykkt af stjórn
Kaupþings að kaup starfsmanna
í hlutum í bankanum skyldu fjár-
mögnuð af bankanum. Kristjáni var
þannig lánað fyrir hlutabréfakaup-
um í sex samningum. Aðalkrafa
slitastjórnarinnar byggði á því að
Kristján ætti að greiða þá lánasamn-
inga sem hann hefði gert persónu-
lega.
Lánasamningar í nafni Kristjáns
voru færðir yfir í einkahlutafélagið 7
hægri í febrúar 2008. Það félag stofn-
aði Kristján og var hann einnig aðal-
maður í stjórn þess. Í mars 2008 var
Kristján leystur persónulega undan
ábyrgð á endurgreiðslu lánanna og
samningarnir færðir yfir á nafn fé-
lagsins. Félagið að var tekið til gjald-
þrotaskipta í desember 2010.
Í dómi héraðsdóms segir að til-
gangur Kristjáns með yfirfærslu
skuldanna hafi verið Kaupþingi ljós
frá upphafi og geti ekki talist ólög-
mætur. Ekki hafi tekist að sanna að
Kristján beri skaðabótaábyrgð á ætl-
uðu tjóni bankans vegna yfirfærsl-
unnar.
Sigraði í Hæstarétti
Kristján Arason var sýknaður af
kröfum skilanefndarinnar.
Háskólaráð
hvetur til
sameiningar
Háskólaráð ályktaði á fundi sín-
um síðastliðinn fimmtudag um
hugsanlega sameiningu Háskóla
Íslands og Landbúnaðarháskól-
ans á Hvanneyri.
Ráðið telur
að því fjár-
magni sem
varið sé til vís-
indasviða eins
og lífvísinda,
búvísinda,
matvæla- og
næringar-
fræði, mat-
vælaverkfræði, auðlinda-
hagfræði, sjávarrannsókna,
umhverfisfræði og landnýtingar,
sé mjög þjóðhagslega arðbær
fjárfesting. Mikilvægt sé að veita
dreifðum kröftum í einn farveg.
„Háskólaráð hvetur því alla
sem kjósa uppbyggingu og sókn
til framfara til að skoða áfram
með opnum huga þau tæki-
færi sem kynnu að skapast með
sameiningu Háskóla Íslands og
Landbúnaðarháskóla Íslands,“
segir í ályktuninni.