Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Blaðsíða 16
16 Fréttir V ið höfum ítrekað þurft að biðja aftur um svör við spurningum sem við höf- um lagt fram fyrir lifand- is löngu. Það er ekki við embættismenn að sakast, þetta er vilji meirihlutans. Fulltrúar hans eru ekki alveg nógu viljugir,“ segir Líf Magneudóttir borgarfulltrúi. Í janúar ítrekaði hún ósk um álit borgarlögmanns á því hvort Oddný Sturludóttir hefði brotið verklags- reglur í tengslum við New York- ferð sem hún fór í árið 2012. Báðar sitja þær í skóla- og frístundaráði og Oddný er einnig formaður. Upphaflega hafði hún óskað eftir álitinu í september 2012 en það var hins vegar ekki lagt fram fyrr en í febrúar síðastliðnum, eftir ítrekun Lífar. Álit borgarlögmanns var hins vegar unnið í janúar árið 2013. Það vekur furðu hversu langur tími leið frá því að álitið var unnið, eða rúmt ár, þangað til það var lagt fram eftir þrýsting minnihlutans. Mannleg mistök Í svari frá sviðsstjóra skóla- og frí- stundaráðs, Ragnari Þorsteinssyni, segir að mannleg mistök hafi átt sér stað og að búið sé að fara yfir verklagið svo slíkt gerist ekki aftur. Ragnar er einn þeirra starfsmanna sviðsins sem fór til New York með Oddnýju. „Það var ekki rakið neitt sérstaklega hvaða mistök þetta voru og ég fékk ekki nánari skýr- ingu á þeim. Pólitískir fulltrúar bera ábyrgð á því að fyrirspurnum sé svarað, þó þær séu lagðar í hend- ur á embættismönnum. Pólitíkus- ar, meirihlutinn hverju sinni, á að þrýsta á að mál séu unnin á réttum tíma. Málsmeðferðarreglan ætti auðvitað að gilda líka um okkur sem í pólitíkinni erum, og þarna er dæmi þar sem henni er ekki fram- fylgt því álitið var tilbúið í janúar 2013,“ segir Líf. Gagnrýndi kostnað Upphaflega óskuðu þær Líf og Marta Guðjónsdóttir, fulltrúar minnihlutans í ráðinu, eftir því að borgar lögmaður gæfi álit sitt á því hvort farið hefði verið eftir reglum borgarinnar um ferðakostnað þegar Oddný, sem er formaður ráðsins, fór í vikuferð til New York-borgar. Slíkt hefði Oddný átt að tilkynna á fundi með ráðinu en það gerði hún ekki. DV fjallaði um málið í febrúar 2012, þar sem Marta gagnrýndi kostnaðinn við ferðina sem hún taldi að hefði verið óþörf, en ferðin kost- aði í heild 1,4 milljónir króna. Á sama tíma og Oddný fór utan tilkynnti borgin um viðamikinn niðurskurð í skólakerfinu. Líf tekur undir það sjónarmið Mörtu og segir það undar- legt að þörf hafi verið á því að fara út, þar sem eitt af markmiðunum var að fá upplýsingar um Biophilia-verk- efni Bjarkar Guðmundsdóttur. Verk- efnið var hins vegar einnig kynnt hér á landi í Hörpu. Braut reglur Í áliti borgarlögmanns segir að Oddný hafi ekki farið eftir verklags- reglum þegar henni láðist að til- kynna um ferðina áður en haldið var út. Í álitinu segir: „Telja verður með vísan til tilgangs ferðar og fjár- mögnunar að formaðurinn hafi ver- ið „á vegum hlutaðeigandi nefndar“ eins og framangreint ákvæði kveður á um. Með vísan til þessa verður að telja að ferð formannsins hafi fallið undir ferðir sem ber að kynna fyrir skóla- og frístundaráði.“ Í álitinu kemur einnig fram að Oddný hafi óskað upplýsinga frá skrifstofu borgarstjóra um reglur í tengslum við utanlandsferðir en hafi ekki verið upplýst sérstaklega um þær reglur sem í gildi eru, held- ur fengið aðrar upplýsingar. n Helgarblað 11.–14. apríl 2014 Útgáfa DV yfir hátíðarnar 15. apríl Þriðjudagur – stórt páskablað 18. apríl Föstudagurinn langi – ekkert blað 23. apríl Miðvikudagur – helgarblað daginn fyrir sumardaginn fyrsta 25. apríl Ekkert blað Eftir það verður útgáfa DV eins og venjulega. Gleðilega páska Starfsfólk DV „Þetta er vilji meirihlutans“ n Álit borgarlögmanns lagt fram ári eftir að það var unnið n Oddný braut verklagsreglur Rögnvaldur Már Helgason rognvaldur@dv.is Þurfa að bíða eftir svörum Líf Magneudóttir segir það undarlegt að álit borgarlög- manns hafi gleymst í heilt ár. Mynd SiGtRyGGuR ARi Oddný Sturludóttir Samkvæmt áliti borgarlögmanns braut Oddný verklagsreglur þegar hún tilkynnti ekki um ferðina hjá skóla- og frístundaráði.„Það er ekki við embættis- menn að sakast, þetta er vilji meirihlutans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.