Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Blaðsíða 34
Helgarblað 11.–14. apríl 201434 Fólk sem hafði ferðast víða. Hann var af verkafólki kominn og þurfti að sjá um sig sjálfur frá unga aldri svo ég held að hann hafi verið mjög þroskaður. Það er lífsins gangur að fólk deyr en það er mjög áhrifaríkt að missa foreldri. Foreldrar þínir eru fólkið sem ól þig upp og mótaði. Aðdrag- andinn var langur og veikindin tóku mjög á okkur öll. Á dánarbeðinum, eins og í lífinu, var hann rólegur og yfirvegaður. Hann tók örlögum sín- um með stóískri ró. Pragmatískur debet og kredit maður. Ég er þakklát fyrir að hafa átt svona góðan pabba.“ Stærsta gjöfin Stærsta gjöf þeirra til Sigríðar Ingi- bjargar var traustið sem þau sýndu henni og trúin sem þau höfðu á henni. „Það var góð tilfinning. For- eldrar mínir lögðu mér lið þegar ég þurfti á þeim að halda og reyndu að yfirfæra eigin metnað á mig. Pabbi var í Verslunarskólanum og fannst að ég ætti að fara þangað. Ég vildi fara í Menntaskólann í Reykjavík og það var aldrei rætt meir. Ég var aldrei beitt þrýstingi um að fara ákveðna leið í lífinu og þurfti aldrei að standa undir miklum væntingum. Foreldrar mínir fylgdust þó með því að ég stæði mína plikt og lyki þeim verkefnum sem ég tók að mér. Þegar ég var alveg að deyja úr leiðindum í MR og langaði mest að hætta og klára síðasta árið í MH lagði mamma hart að mér að klára þetta, ég ætti bara eitt ár eftir. Ég gerði það og held að það hafi verið mér til heilla.“ Hún naut sín aldrei al- mennilega í Menntaskólan- um í Reykjavík. „Svo fór ég í sagnfræði í háskólanum og fannst ég hafa verið svikin um það sem unglingur að fá að beita gagnrýnni hugsun. Það rann upp fyrir mér að ég gæti myndað mér skoðun og þyrfti ekki að láta troða í mig þekkingu. MR er um margt ágætur skóli en mér mislíkaði þessi kúltúr sem og elítisminn. Hann höfðaði aldrei til mín.“ Í sagnfræðinni kynntist hún svo fólki af landi og borg á mismunandi aldri með mismunandi bakgrunn og naut sín í botn. „Það var ofsalega skemmtilegur tími. Sjóndeildar- hringurinn víkkaði og ég fór að sjá margt í öðru ljósi.“ Kvennalistakonurnar Það var svo í gegnum vinkonur hennar í sagnfræðinni að hún fór í Kvennalistann. Það var eins og ást við fyrstu sýn. „Þetta var ástarsam- band. Þarna voru alls kyns konur og enginn greinarmunur gerður á því hvort þú værir einhver stelpu- skjáta eða reynslumikil þingkona. Auðvitað lærði ég af þeim en það gátu allir haft áhrif. Þingflokksfundir Kvennalistans voru alltaf opnir og ég nýtti mér það stundum. Oft voru mikil átök því það voru skiptar skoðanir á málum og stund- um var mér pent gerð grein fyrir því að ég væri dálítið kotroskin að al- hæfa um hluti sem væru ef til vill að- eins flóknari en ég gerði mér grein fyrir í fyrstu. Það sem ég lærði af þeim var að stjórnmál snúast um það sem þér finnst skipta máli. Það segir þér enginn hver dagskrá stjórnmálanna á að vera. Eins og þegar kvennalista- konur fóru að ræða sifjaspell inni á þingi þótti öðrum það ekki viðeig- andi. Það var svo margt sem þær settu á dagskrá íslenskra stjórnmála sem var annars ekki rætt um. Þetta var femínískt breytingaafl með skýra umhverfisstefnu og mannréttinda- stefnu, ekki síst í málefnum samkyn- hneigðra. Það voru ótrúleg forréttindi fyrir mig sem unga konu að fá að ganga inn í þennan heim sem Kvennalist- inn var. Ég man eftir því að á mínu æskuheimili var horft á umræðu- þætti um stjórnmál þar sem karlar töluðu um vísitöluna. Það kveikti aldrei í mér. En Kvennalistinn náði til fólks með boðskap sínum. Þær komu með pólitík hins daglega lífs inn í stjórnmálin. Núna þurfum við að skerpa aftur á því.“ Ósigurinn Enn á ný standa stjórnmálamenn frammi fyrir kalli eftir breyttum áherslum í stjórnmálum. Björt fram- tíð hefur reynt að svara því en hef- ur ekki tekist vel upp að mati Sig- ríðar Ingibjargar. Samfylkingin þarf líka að horfast í augu við eigin mis- tök. „Samfylkingin kom fram sem breytingaafl sem lagði höfuðáherslu á aukið lýðræði, mannréttindi og kerfisumbætur og jöfnuð. Nú verðum við að skerpa á því. Flokkurinn var sex ár í ríkisstjórn, hann var við völd í hruninu og áfram eftir hrun. Það er eðlilegt að það setji sitt mark á flokkinn en það er aug- ljóst að það þarf að skerpa á áhersl- um flokksins.“ Ósigur síðasta vors situr enn í henni. „Við verðum að fara yfir það af hverju fólk var ekki sáttara við okk- ur en raun bar vitni. Ég vissi að það stefndi í laka niðurstöðu en þetta var enn verra en ég hefði nokkurn tím- ann getað ímyndað mér. Niðurstöður kosninganna voru verulegt áfall og ég er ekki enn búin að vinna úr þessum ósigri. Sem sam- fylkingarkonu fannst mér það ótrú- lega sárt og erfitt. Sem félagshyggju- manneskju finnst mér það verulegt áhyggjuefni hvað við erum dreifð á miðju- og vinstrivæng stjórnmál- anna.“ Öllum vopnum beitt Minnihlutinn vinnur þó vel saman segir hún. „Enda er samstaða eina vopnið sem við höfum til að stöðva af þessa hægri stjórn. Heift þeirra er svo mikil. Átökin urðu hörð þegar vinstri stjórnin tók við völdum því gömlu hagsmunaöflin sáu sér ógnað. Það átti að fara að greiða fyrir notkun á aflaheimildum, það áttu að verða breytingar á orkustefnu Landsvirkj- unar, enda er alvitað núna að samn- ingar um raforkuverð til álvera eru forkastanlegir. Það er enginn arður af virkjun eins og á Kárahnjúkum þar sem ruðst var fram með stór- kostlegum óafturkræfum náttúru- spjöllum sem eru í raun ófyrirgefan- leg. Eignarhald var víða í upplausn og nýir aðilar voru að festa sig í sessi. Þetta var gríðarleg hagsmuna- barátta. Barátta yfir auði og valdi yfir auðlindum fer ekki fram í sátt og samlyndi. Valdsækin öfl sækja í sér- hagsmuni og gefa ekkert eftir. Öllum vopnum er beitt, og eitt þeirra er að benda á átök á þinginu og beina athyglinni að látunum og frá málun- um sem tekist er á um.“ Karllæg gildi á þingi Undanfarnar vikur hefur geisað harð- ur slagur á þingi um þingsályktunar- tillögu utanríkisráðherra um að slíta aðildarviðræðum við Evrópusam- bandið og stundum hefur soðið upp úr. Einn daginn steig Sigríður Ingi- björg upp í pontu og sakaði fjár- málaráðherra um kvenfyrirlitningu: „Hann leyfði sér það bragð, sem þekkt er gagnvart konum að segja við þær þegar þær eru ósáttar, róaðu þig. Þetta lýsir kvenfyrirlitningu og virðingarleysi fyrir almennum þing- mönnum,“ sagði hún. Hann hafði þá sagt Katrínu Júlíusdóttur að róa sig þegar hún reiddist honum í ræðustól. Sem femínisti hefur Sigríður Ingi- björg áhyggjur af því hvað karllæg gildi eru ríkjandi. Karlmenn eru í forsvari fyrir ríkisstjórnina, sex ráð- herrar af níu, líkt og hún bendir á máli sínu til stuðnings. „Það var talað fyrir samstöðu og samráði en meirihlutinn á þingi er mjög hlýðinn. Foringjaræðið er áberandi. Forystan ákveður hvernig þetta á að vera og meirihlutinn fylgir eftir í hlýðni. Á síðasta kjörtímabili fór innri gagnrýni stjórnarliðsins stundum út í öfgar en um leið hafði forystan ekki þessi tök á meirihlut- anum. Aðhaldið var meira og ákvarðanatakan lýð- ræðislegri.“ Formannsframboð Þá segir hún að almennt sé meira mark tekið á körlum. Alþingi sé kynjaður vinnu- staður, eins og þeir flestir. Hún hefur reynsluna, enda hefur hún rekið sig á það á vinnumarkaði að fá ekki framgang innan fyrirtæk- isins vegna kynferðis. „Ég hef rekið mig í glerþakið,“ segir hún um leið og hún stendur upp og sækir sér nikótíntyggjó í úlpuvasann. Hún var að hætta að reykja. „Kannski má segja að gler- þakið sé innbyggt í konur að einhverju leyti. Ég hef unnið á vinnustöðum þar sem ég vissi að ég fengi ekki sömu framgöngu og karlar. Þannig að ég hætti og leitaði á önnur mið. Í stjórnmálaflokkum eru líka gler- þök en konur hafa náð frábærum ár- angri í Samfylkingunni.“ Sjálf var hún orðuð við formanns- framboð þegar ljóst var að Jóhanna Sigurðardóttir ætlaði að hætta. Sig- ríður Ingibjörg íhugaði alvarlega að fara fram en fann að hún vildi öðlast meiri reynslu áður. Hún útilokar ekk- ert í framtíðinni. „Það er mikil ábyrgð að vera formaður í stjórnmálaflokki. Í svona slag vil ég fara af fullu sjálfs- öryggi. Við sjáum nú reynslulausa ríkis- stjórn, þar sem fólk hefur ekki byggt upp reynslu til að takast á við verk- efnin og það gengur nú ekki mjög vel. Nú ætla ég ekki að spá því að ég hefði verið svona ömurleg,“ segir hún og hlær. „En ég held að allir finni núna hvað reynsla er nauðsynleg fyrir jafn veigamikið hlutverk.“ Óþolandi framkoma Á móti kemur að konur eru mældar út frá öðrum mælikvörðum en karlar, segir hún. „Mín viðbrögð við þessu eru að herða mig, setja undir mig hausinn og vera ég sjálf, standa með sjálfri mér. Það er svo oft sem þú verður fyr- ir því sem kona að það er talað öðru- vísi við þig en karla. Talað er um kon- ur sem hóp. Alhæft er um konur út frá einni og viðbrögð þín skilgreind sem tilfinningasemi. Þú situr á fundi og karlar leggja á með langar einræður en þegar konur eru að tala þá er minni þolinmæði fyrir því að þær tali lengi. Þær eiga að flýta sér að ljúka máli sínu. Síðan vísa karlar í hvern annan. Sem kona er ég vön því að þetta sé svona, en auðvitað er það óþolandi. Nú skal ég ekki segja að karlmönnum finnist þeir ekki stundum hlutgerðir, það kann vel að vera. En þetta er ein- hvern veginn áþreifanlegt.“ Tengslanet sem valdatæki Hennar upplifun af þinginu er sú að karlarnir standi saman. „Þeir eru í alls kyns flokkum en geta unnið saman að málum sem þeim finnst mikilvæg. Konurnar reyna að mynda tengsl en það er aldrei eins djúpt á því. Það nær því aldrei að verða hagsmunabanda- lag eins og hjá körlunum. Þetta er auðvitað mjög gróf lýsing en ég upp- lifi þetta dálítið svona. Konur eru alltaf að vinna að því að mynda tengslanet en tengslanet skiptir engu máli ef það er ekki not- að til þess að beita áhrifum. Þá verður það bara rosalega þreytandi og niður- lægjandi þetta tal um að við konur eigum að mynda tengsl. Á síðasta kjörtímabili urðu konur á þingi jafn margar og karlar. Það er merkilegt hvað þær nýttu það illa til breytinga og ég er meðsek í því. Auð- vitað var tímasetningin óheppileg af því að það var svo margt að gerast og það voru svo miklir hagsmunir undir, eins og núna. Við erum enn nærri helmingur þingmanna, þó að það nái því ekki. En konur virðast eiga erfiðara með að taka þetta skref frá skemmtilegum kunningskap yfir í það að beita áhrif- um sínum. Kannski er það þessi liðs- heildarhugmynd sem stendur í vegi fyrir því. Þú vilt vera trú þínu liði og þá getur verið erfitt að vinna að breyting- um á öðru plani. Það getur skapað ákveðna togstreitu. Ég held að margar konur séu hræddar við þetta, en það er mikil- vægt að ræða það því þetta er kynjað kerfi sem ég held að henti öllum jafn illa. Margir karlar þrífast ekkert betur í þessum kúltúr en konur.“ Karlar í vanda Ekki bara á þingi. Það er augljóst að ungir karlar hafa ekki áhuga á gömlu staðalímyndunum um karla, segir hún. Þess vegna er mikilvægt að skapa aðstæður þar sem þeir hafa svigrúm til að vera eins og þeir vilja. „Í dag hafa konur meira rými innan kynjakerfisins og meira frelsi til þess að vera eins og þær vilja vera. Engu að síður eru alls kyns hlutir sem eru okk- ur mótdrægir. Kynbundinn launamunur og kyn- bundið ofbeldi eru helstu birtingar- form misréttis. Ég held að ofbeldi gagnvart konum sé valdatæki sem karlar beita í frústrasjón, þegar þeim finnst völdum sínum ógnað eða þeir ekki standa undir hugmyndinni um hinn sterka karlmann. Það er rosalega vond hugmynd um karlmennsku. Enda sjáum við að karlar falla frekar fyrir eigin hendi, lenda frekar í fang- elsi og detta frekar úr skóla en konur.“ Fegurðarsamkeppnin „Á sama tíma og við höldum barátt- unni gegn kynbundnum launamun og kynbundnu ofbeldi áfram þá er mikilvægt að breyta samfélaginu þannig að ungir karlar þurfi ekki að fylla upp í staðalímynd af karl- mennsku. Ekki frekar en að ungar stúlkur þurfa að fylla upp í staðalí- mynd af kvenleika.“ Sigríður Ingibjörg skráði sig einmitt í Ungfrú Ísland-keppn- ina þegar hún var endurvakin árið 2013, til að berjast gegn hlutgerv- ingu kvenna. Framtakið vakti svo mikla athygli að hún endaði í beinni útsendingu á BBC News. „Þá sat ég í eldhúsinu heima á Skype með rann- sóknarskýrslu Alþingis undir tölv- unni til að hækka hana upp. Ég hef sjaldan fengið jafn mikla athygli fyrir neitt sem ég hef gert í pólitík eins og þetta. Það segir sína sögu. Kannski vantar meiri húmor í stjórnmálin. Þetta var náttúrlega bæði fyndið og skemmtilegt.“ Við veitum því eftirtekt að tíminn er runninn frá okkur og hún þarf að hlaupa. Hún grípur símann og tölv- una, klæðir sig í úlpuna og setur á sig varalit. Þar með er hún þotin. Aftur út á þing. Í næsta slag. n „Mér óx það í augum að bera ein ábyrgð á uppeldinu „Tengslanet skiptir engu máli ef það er ekki notað til þess að beita áhrifum. Þá verður það rosa- lega þreytandi og niðurlægjandi. Við getum þetta! Hér er í Sigríður Ingibjörg í kunnulegum stellingum. Fyrirmyndin er sótt í amerískt plaggat frá árinu 1943 sem var seinna notað í femínískri baráttu á níunda áratugnum og hefur æ síðan notið vinsælda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.