Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Qupperneq 4
Helgarblað 11.–14. apríl 20144 Fréttir
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121
Algjört orku- og næringarskot
„ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan
eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar
seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru
fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka
Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik
er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er
líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir
leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí.
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
TREYSTI Á
LIFESTREAM
BÆTIEFNIN!
Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir, N ttó og Fríhöfnin.
Eldsneyti stolið
fyrir tugmilljónir
Fyrrverandi starfsmaður Atlantsolíu sat í gæsluvarðhaldi grunaður um þjófnað frá fyrirtækinu
F
yrrverandi starfsmaður Atl
antsolíu hefur verið kærður
til lögreglu fyrir stórfelldan
þjófnað á eldsneyti frá fyrir
tækinu. Maðurinn sat um
tíma í gæsluvarðhaldi vegna máls
ins. Heimildir DV herma að um sé
að ræða grun um stórfelldan þjófn
að sem átti sér stað á árstímabili, en
maðurinn er sagður hafa nýtt sér sér
þekkingu til þess að komast yfir elds
neytið. Hann starfaði áður hjá tækni
deild Atlantsolíu.
Heimildir DV herma að um sé að
ræða þjófnað fyrir tugi milljóna. Um
mánuður er síðan málið kom upp,
en það var viðskiptavinur sem kom
starfsmönnum Atlantsolíu á spor
ið og gerði þeim grein fyrir hinum
meinta þjófnaði.
Hafði sérþekkingu
„Við getum staðfest að fyrrverandi
starfsmaður Atlantsolíu varð uppvís að
þjófnaði nú í mars og var úrskurðaður
í gæsluvarðhald í framhaldi af hand
töku,“ segir Guðrún Ragna Garðars
dóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu.
Maðurinn sem um ræðir starfaði hjá
fyrirtækinu um tíma en honum var sagt
upp störfum árið 2008. Hann starfaði
hjá öðru fyrirtæki á höfuðborgarsvæð
inu þegar málið kom upp og hann var
hnepptur í varðhald.
„Um er að ræða starfsmann sem
bjó yfir tækniþekkingu vegna þeirra
starfa sem hann gegndi hjá Atlantsolíu
en hann var starfsmaður tæknideildar
félagsins. Tekið skal fram að viðkom
andi starfsmanni var sagt upp störf
um hjá félaginu 2008 vegna misbrests
í starfi og var því ekki starfandi hjá fé
laginu þegar brotin áttu sér stað,“ segir
Guðrún og segir að maðurinn hafi því
beitt þeirri faglegu tækniþekkingu
sem hann bjó yfir eftir að hafa starf
að hjá fyrirtækinu og þannig getað
framið meint brot.
Gátu ekki staðfest grunsemdir
Starfsfólk Atlantsolíu hafði grun um
að ekki væri allt með felldu, segir
Guðrún, en ekki lá fyrir hvernig eða
hvers vegna. Ábending frá viðskipta
vini leiddi til þess að skriður komst
á málið innanhúss og fór svo að það
var kært til lögreglu. „Starfsmenn Atl
antsolíu höfðu áttað sig á að ekki var
allt með felldu en ekki uppgötvaðist
hvað var í gangi fyrr en viðskiptavin
ur félagsins kom með ábendingu sem
hægt var að vinna eftir,“ segir Guð
rún um málið. Þjófnaðurinn var svo
kærður til lögreglunnar sem nú hefur
málið til rannsóknar. Ekki hefur enn
komið til ákæru.
Búið að loka fyrir
Guðrún segir manninn hafa búið yfir
tækniþekkingu sem þýddi að hann gat
komist yfir eldsneytið svo lítið bæri á.
Þjófnaðurinn mun hafa átt sér stað á
um árstímabili, frá árinu 2013 og fram
á þetta ár.
Búið er að koma í veg fyrir að brot
sem þau sem maðurinn er grunaður
um að hafa framið endurtaki sig að
sögn framkvæmdastjórans. Guðrún
vill ekki greina frá því hvernig maður
inn fór að því að stela eldsneytinu og
segir málið í höndum lögreglunnar.
Fyrirtækið bíði nú eftir niðurstöðu
lögreglurannsóknar. Málið sé litið
mjög alvarlegum augum. „Málið er
enn í rannsókn og því kjósum við að
tjá okkur ekki frekar um það að svo
stöddu,“ segir hún. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
„Viðskiptavinur
félagsins kom
með ábendingu.
Notaði sérþekkingu Starfs-
maðurinn nýtti sér tækniþekk-
ingu sem hann fékk er hann var
starfsmaður hjá Atlantsolíu til
ársins 2008. Brotin áttu sér stað
á árstímabili. MyNd úr MyNdASAfNi
Fimm ára fangelsi
n Scott James dæmdur í „shaken baby“-máli n Sýndi lítil svipbrigði
S
cott James Carcary var í
Héraðsdómi Reykjavíkur á
fimmtudag dæmdur í fimm
ára fangelsi, óskilorðsbundið,
fyrir að hafa orðið valdur að dauða
fimm mánaða dóttur sinnar í mars í
fyrra.
Til frádráttar fangelsisvistinni
kemur rétt rúmlega vikulangt gæslu
varðhald sem hann sætti um miðj
an mars í fyrra. Þá var hann dæmdur
til að greiða barnsmóður sinni þrjár
milljónir króna með vöxtum í bætur.
Margir þeirra sem voru viðstadd
ir dómsuppkvaðningu voru aðstand
endur móðurinnar. Scott James
sýndi lítil svipbrigði þegar túlkurinn
færði honum þá niðurstöðu dómara
að hann hefði verið dæmdur í fimm
ára fangelsi fyrir að veita dóttur sinni
áverka sem leiddu til dauða hennar.
Scott var ákærður fyrir að hafa
hrist dóttur sína svo harkalega að
hún lést nokkrum klukkustundum
síðar af völdum áverkanna.
Saksóknari hafði í lok aðalmeð
ferðar málsins í síðasta mánuði lagt
til að Scott yrði dæmdur í að minnsta
kosti átta ára fangelsi en benti dómn
um á að hafa í huga að refsiramminn
væri sextán ár. Sagði saksóknari að
það hefði verið algjörlega óumdeilt
að barnið hefði látist af völdum þess
að hafa verið hrist.
Verjandi Scott sagði við sama til
efni að málatilbúnaður saksóknara
hafi verið gallaður, lögreglurannsókn
hafi verið ábótavant og hún dreg
ist fram úr hófi. Málið hafi fyrst og
fremst byggt á getgátum, kenningum
og ónákvæmum tímasetningum. Þar
sem verjandinn taldi það ekki hafið
yfir skynsamlegan vafa að Scott hefði
beitt barnið slíku ofbeldi og þar sem
hann hefði neitað því væri hræðilegt
ef hann yrði dæmdur í fangelsi fyrir
slíkt. n mikael@dv.is
fimm ára dómur Scott James Carcary
hylur hér andlit sitt í Héraðsdómi Reykja-
víkur.
Vandi betur
til samninga
Forsætisráðuneyti og Þjóðminja
safn Íslands þurfa að ákveða
hvernig varðveislu og sýningu
lækningaminja verði framvegis
háttað. Þetta er mat Ríkisendur
skoðunar sem kemur fram í
skýrslu um málefni Lækninga
minjasafns Íslands. Í árslok
2012 ákvað Seltjarnarnesbær
að hætta rekstri Lækninga
minjasafnsins og afhenda
Þjóðminjasafni Íslands safn
munina. Ástæðan var sú að ekki
náðist samkomulag milli ríkis
og bæjar um skiptingu kostn
aðar vegna byggingar safnhúss
og reksturs safns. Ríkisendur
skoðun hvetur mennta og
menningarmálaráðuneyti til
að ganga hið fyrsta frá fjárhags
legu uppgjöri við Seltjarnarnes
bæ vegna 75 milljóna króna
stofnframlags ríkisins til safn
byggingarinnar. Loks telur Ríkis
endurskoðun að mennta og
menningarmálaráðuneyti beri að
vanda betur til samninga sinna.
Skuldir
lækkuðu um
einn milljarð
Rekstur Akureyrarbæjar gekk vel
á árinu 2013 og varð rekstrar
afgangur umfram áætlanir. Skuld
ir lækkuðu um 950 milljónir króna
en ársreikningar fyrir árið 2013
voru lagðir fram í bæjarráði á
fimmtudag. Áætlun hafði gert ráð
fyrir 534 milljóna króna rekstr
arafgangi og því er niðurstaðan
talsvert umfram væntingar. Sam
kvæmt efnahagsreikningi eru
eignir sveitarfélagsins bókfærð
ar á 38,8 milljarða króna. Bókfært
eigið fé nemur 15,5 milljörðum
króna í árslok og eiginfjárhlutfall
er 40 prósent af heildarfjármagni
en var 37 prósent árið áður.