Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Blaðsíða 12
12 Fréttir Helgarblað 11.–14. apríl 2014
F R E YJ U
UPPLIFÐU ÆVINTÝRIÐ Á FREYJUHEIMUR.IS
Þú gætir unnið glæsilega vinninga!
Fáðu þér gómsætt páskaegg frá Freyju, finndu
fjársjóðinn inni í egginu, og freistaðu svo
gæfunnar með leynikóðanum á freyjuheimur.is.
iPad
iPad mini
iPhone
n Tveir ákærðir fyrir ofbeldi gegn lögreglu n „Teljum okkur sjá aukningu“
T
veir karlmenn hafa verið
ákærðir fyrir brot gegn
valdstjórninni og fyrir hót
anir og ofbeldi gegn lög
reglumönnum sem voru við
skyldustörf. Annar maðurinn hótaði
að skera augun úr lögreglumönnum,
en hinn sló lögreglumann í andlitið
svo sá á lögreglumanninum. Um tvö
aðskilin mál er að ræða.
Mennirnir eru báðir ákærðir
fyrir brot á 106 gr. almennra hegn
ingarlaga, það er brot gegn vald
stjórninni.
Þar segir að hver sem ráðist með
ofbeldi eða hótunum um slíkt á
opinberan starfsmann sem er að
gegna skyldustarfi sínu geti sætt
fangelsi allt að sex árum eða fengið
sekt. Saksóknari krefst þess í báðum
málum að mennirnir verði dæmd
ir til refsingar og til þess að greiða
sakarkostnað málanna.
Hótaði löggunni
Í öðru málinu er um að ræða karl
mann á fertugsaldri sem var að
skemmta sér á skemmtistaðnum
Bunk Bar í miðborg Reykjavíkur rétt
fyrir síðustu áramót. Lögregla var
kölluð til á skemmtistaðinn þar sem
maðurinn var mjög ölvaður og sýndi
af sér bæði „óspektir og hneykslan á
almannafæri,“ að því að fram kemur í
ákæru sem DV hefur undir höndum.
Þar segir að maðurinn hafi ónáð
að gesti skemmtistaðarins og starfs
menn hans með ögrandi framkomu.
Þegar lögregla hafði svo afskipti
af manninum fyrir utan skemmti
staðinn reiddist hann mjög. Segir í
ákæru að maðurinn hafi hótað lög
reglumönnunum ítrekað eftir að þeir
höfðu afskipti af honum, en hann var
grunaður um áfengislagabrot og lík
amsmeiðingar á þeim tímapunkti,
að því að fram kemur í ákærunni.
Maðurinn hrópaði ítrekað að lög
reglumönnunum: „I will cut your
eyes out“ sem útleggst á íslensku:
„Ég mun skera úr þér augun“.
Sló lögreglumann
Hinn maðurinn hefur verið ákærð
ur fyrir að beita lögreglumann lík
amlegu ofbeldi. Í ákæru kemur
fram að í mars í fyrra hafi maður
inn verið fyrir utan skemmtistað
inn Irish Pub við Reykjavíkurveg í
Hafnarfirði. Maðurinn fór ekki eftir
fyrirmælum lögreglumanns um að
hverfa af vettvangi. Þess í stað réðst
hann með ofbeldi á lögreglumann
inn að því að fram kemur í ákæru.
Þar segir að hann hafi slegið lög
reglumanninn með hnefahöggi
vinstra megin í höfuðið. Lögreglu
maðurinn fékk við það yfirborðs
áverka á hálsi. Þetta þykir varða við
sama lagaákvæði, fyrrnefnda 106 gr.
almennra hegningarlaga.
Ofbeldi færist í aukana
Snorri Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna,
segir það því miður vera svo að of
beldi gegn lögreglumönnum og hót
anir séu að færast í aukana. Margir
lögreglumenn verði fyrir slíku við
skyldustörf og jafnvel utan vinnu
tíma. „Við teljum okkur sjá aukn
ingu, þótt það hafi ekki verið mælt
sérstaklega nýlega. Það sem meira
er, er að okkur finnst þetta farið að
verða grófara,“ segir Snorri sem
bendir á að fyrir nokkrum árum
hafi verið gerð skýrsla sem sýndi að
ofbeldi gegn íslenskum lögreglu
mönnum hefði aukist. „Við sjáum
að það er einnig að gerast erlendis,
bæði á hinum Norðurlöndunum og
annars staðar í Evrópu,“ segir hann.
Í flestum tilvikum tilkynna lögreglu
menn um hótanir eða ofbeldi sem
þeir verða fyrir þótt það leiði ekki
alltaf til ákæru segir Snorri. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is „Ég mun
skera úr
þér augun
Ofbeldi gegn
lögreglu grófara
Hóta lögreglunni Snorri segir það
vera algengt að lögreglumenn þurfi
að glíma við hótanir og ofbeldi í starfi.
Myndin er úr safni. Mynd Sigtryggur ari
Endurbætur
á Gerðubergi
Í sumar verður unnið að endur
bótum og breytingum á menn
ingarmiðstöðinni Gerðubergi í
Breiðholti til að mæta framtíðar
þörfum starfseminnar. Fram
kvæmdir verða boðnar út fljót
lega og er stefnt á að þeim ljúki í
september.
Sem kunnugt er er Gerðuberg
alhliða menningar og mannlífs
miðstöð í Breiðholti. Í tilkynningu
frá Reykjavíkurborg segir að með
breytingunum verði auðveldara
að samhæfa starfsemina í húsinu
og styrkja rekstrargrundvöll henn
ar. Breytingarnar eiga að bæta
nýtingu húsnæðisins, auka flæði
milli bókasafns, veitingaaðstöðu,
sem og sýninga og fundarsala.
Ásýnd hússins verður nútíma
legri og fallegri, segir í greinargerð
með breytingunum, og aðstaða
veitingaþjónustu batnar.
Breytingar verða gerðar á
efri hæð hússins og eru helstu
breytingar þær að opnað verður
frá kaffihúsi inn í bókasafnið og
inn í sýningarrými í vesturálmu.
Þá verður eldhúsaðstöðu breytt í
kaffi og fundaraðstöðu, en eld
hús og afgreiðsla flutt nær anddyri
hússins. Tækifærið verður notað
til að bæta lýsingu og hljóðvist í
kaffihúsi.
Í kynningu á breytingunum
fyrir borgarráði segir að unnið sé
að úttekt á tækifærum í samruna
Borgarbókasafns Reykjavíkur
og menningarmiðstöðvarinnar
Gerðubergs. Styrkja á framtíðar
hlutverk almenningsbókasafna
sem menningarmiðja í hverfum
borgarinnar með áherslu á fjöl
breytta dagskrá árið um kring.
Vilji er til að bókmenntum og
bókmenningu verði gert sérstak
lega hátt undir höfði með við
burðum, til dæmis í samvinnu við
Bókmenntaborgina og aðila sem
henni tengjast.
Akstur bannaður
Akstur hefur verið bannaður á
hálendinu að sögn Vegagerðar
innar. Þetta er gert til að koma
í veg fyrir skemmdir á vegum
og náttúru nú þegar frost er að
fara úr jörðu. Þeir sem hyggja á
fjallaferðir eru beðnir að kynna
sér ástand á viðkomandi leið
um og virða akstursbann þar
sem það er í gildi. Umferðar
þjónusta Vegagerðarinnar veitir
nánari upplýsingar í síma 1777.