Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Blaðsíða 18
Helgarblað 11.–14. apríl 201418 Fréttir
fallvalt líf
björgólfs
t
jöldin eru dregin frá á stóra
sviði Þjóðleikhússins sumarið
2008. Pálmi Gestsson birtist á
sviðinu í gervi Björgólfs Guð-
mundssonar. Sögumaður flyt-
ur ljóð Þórarins Eldjárns um Björgólf
og eiginkonu hans Þóru Hallgríms-
son. Björgólfur Thor Björgólfsson
spígsporar um sviðið í gervi föður
síns á yngri árum. Í salnum sitja hjón-
in forviða ásamt öðrum gestum. Börn
þeirra, þau Örn, Björgólfur Thor og
Bentína höfðu fengið Eddu Heiðrúnu
Backman til þess að setja upp leiksýn-
ingu um lífshlaup hjónanna og koma
þeim þannig á óvart í tilefni af 45 ára
brúðkaupsafmæli þeirra. Þetta er á
meðal þess sem fram kemur í bók-
inni Hamskiptin: Þegar allt varð falt
á Íslandi eftir Inga Frey Vilhjálmsson,
blaðamann DV, en hún kemur út í
dag, föstudag.
Í bókinni kemur fram að leiksýn-
ingin sé glöggt merki um þá stöðu
sem Björgólfur hafði í samfélaginu á
þessum tíma. Hann var enn einn af
áhrifamestu athafnamönnunum á
Íslandi, eigandi og stjórnarformað-
ur Landsbanka Íslands og dáður af
stórum hluta þjóðarinnar. Nokkrum
mánuðum síðar átti hann eftir að
missa allt þetta og meira til. Í ítarlegri
nærmynd skoðar DV meðal annars
hvað tók við hjá Björgólfi stuttu eft-
ir að leiksýningunni lauk og hrunið
skall á. Með útgáfu bókarinnar er sex
ára þögn Björgólfs rofin en þar birt-
ist fyrsta viðtalið við hann síðan hann
fór í frægt viðtal hjá Morgunblaðinu í
október árið 2008. „Ef það er eitthvað
sem ég hef lært þá er það kannski það
hvað lífið er fallvalt, það er ekki öryggi
í neinu og maður veit ekkert hvað
morgundagurinn ber í skauti sér,“
segir Björgólfur í dag.
Handjárnaður og fangelsaður
Áður en greint verður frekar frá leik-
sýningunni og því sem gerðist eftir
sýningu hennar er ekki úr vegi að
rifja aðeins upp bakgrunn Björg-
ólfs. Hann fæddist í Reykjavík 2. jan-
úar 1941 og lauk stúdentsprófi frá
Verzlunarskóla Íslands 1961. Fjór-
um árum síðar eignaðist hann Dósa-
gerðina hf. en árið 1977 tók hann við
starfi framkvæmdastjóra Hafskipa.
Hafskip voru lýst gjaldþrota í byrjun
desember 1985 og við tók Hafskips-
málið sem er eitt þekktasta dóms-
málið á Íslandi á síðari hluta 20. aldar.
Það fór að lokum fyrir dómstóla þar
sem niðurstaðan varð að lokum sú
að Björgólfur Guðmundsson, Ragnar
Kjartansson, Páll Bragi Kristjónsson
og Helgi Magnússon voru dæmdir
sekir um fjárdrátt og skjalafals. Með-
an rannsókn málsins stóð yfir voru
Björgólfur og félagar hans hnepptir
í gæsluvarðhald og var þeim haldið
bak við lás og slá í fleiri mánuði.
Björgólfur Thor Björgólfsson var
nítján ára þegar hann horfði upp á
handtöku föður síns að morgni dags
hinn 20. maí 1986 og hafði atburð-
urinn djúpstæð áhrif á hann. Lög-
reglumenn voru þungbúnir þegar
þeir börðu að dyrum á heimilinu. Í
nærmynd sem birtist í DV þann 24.
október 2008 var vitnað í náinn vin
fjölskyldunnar: „Þeir voru hrottalegir
þessir lögreglumenn í atgangi sínum
og sögðu Björgólfi Thor að drulla sér
í burtu því honum kæmi þetta ekki
við.“ Björgólfur Thor var sagður hafa
staðið agndofa hjá á meðan lögreglu-
menn handjárnuðu föður hans. Þá
var Þóra móðir hans sögð hafa stað-
ið álengdar á náttkjólnum og grátið.
Björgólfur Thor reyndi síðar að hjálpa
föður sínum en lögreglumennirn-
ir eru sagðir hafa gengið af hörku
gegn honum. Trúnaðarvinir Björg-
ólfs Thors segja að hann komi seint
til með að gleyma þessum örlagaríka
morgni. Atvikið átti eftir að hafa mikil
og djúpstæð áhrif á hann. Síðar kom
hann svo eins og stormsveipur inn í
íslenskt efnahagslíf, staðráðinn í að
endurheimta virðingu „Thorsaranna“
og halda merkjum ættarinnar á lofti.
Keypti Landsbankann
Þann 5. júní 1991 féll endanlegur
dómur í Hafskipsmálinu í Hæstarétti
Íslands. Þar fékk Björgólfur Guð-
mundsson 12 mánaða skilorðsbundið
fangelsi. Margra ára dómsmáli var
lokið og í kjölfarið tók hann við
bruggverksmiðjunni Vikingbrugg á
Akureyri. Það markaði upphaf þess
viðskiptaveldis sem hann átti síðar
eftir að stýra. Hann og sonur hans,
Björgólfur Thor, fylgdu verksmiðj-
unni til Pétursborgar í Rússlandi, í
félagi við athafnamanninn Magnús
Þorsteinsson.
Þar áttu þeir síðar eftir að eiga
og reka rússnesku bruggverksmiðj-
una Bravó. Pétursborg var á þessum
tíma álitin „höfuðborg mafíunnar“ en
eins og greint var frá í Guardian á sín-
um tíma voru tveir yfirmenn helsta
samkeppnisfyrirtækis Bravó myrtir
árið 2000. Björgólfsfeðgar seldu Bravó-
verksmiðjuna síðar til Heineken fyr-
ir 400 milljónir dollara, héldu heim til
Íslands árið 2002 með „rússagullið“ og
keyptu ráðandi hlut í Landsbanka Ís-
lands þegar bankinn var einkavædd-
ur. Kaupverðið var um tólf milljarðar
króna en markaðsvirði bankans átti
síðar eftir að margfaldast eftir að bank-
inn hóf lántökur erlendis í stórum stíl í
kjölfar einkavæðingarinnar.
Hermt var að Davíð Oddsson,
þáverandi forsætisráðherra, hafi ráð-
ið mestu um að Björgólfur fékk bank-
ann. Fjallað var um þetta atriði í nær-
mynd um Björgólf sem birtist í DV
þann 19. september 2008. Þar var
greint frá því að Davíð hefði „verið
ósáttur við meðferðina“ á Björgólfi
í Hafskipsmálinu og því liðkað fyrir
því að hann fengi uppreisn æru með
þessu móti.
„Var ekki í Davíðsarminum“
Björgólfur tjáir sig sérstaklega um
þessar sögusagnir í Hamskiptunum
og gefur lítið fyrir þær. Aðspurður um
sýn hans á einkavæðingu bankanna
og það hvort hann hafi átt í samskipt-
um við Davíð Oddsson í aðdraganda
hennar segir hann: „Nei, þau [sam-
skiptin] voru eiginlega ekki nein. Ég
var ekki í Davíðsarminum í flokkn-
um. Ég var aldrei í neinum sam-
skiptum við hann.“ Hann segist ekk-
ert hafa þekkt Davíð á þessum tíma
en hins vegar hafi samskipti þeirra á
milli orðið meiri eftir kaupin sjálf.
„Björgólfur Thor hafði aldrei séð
hann og hvað þá að hann hafi ver-
ið að munstra sig inn í einhvern
stjórnmálaflokk. Við erum dregn-
ir inn í einhverja pólitík sem ekki á
rétt á sér. Við skrifuðum bara bréf að
utan og vorum settir í samband við
einkavæðingarnefnd. Davíð Odds-
son var ekkert inni í því. Svo sáum
við auðvitað hvernig pólitíkin fór að
spila rullu í þessu eftir að við kom-
um heim. Framsókn setti bara fram
sínar kröfur og þá breyttist þetta allt.
Það getur hafa verið pólitísk spilling
af hálfu framsóknarmanna en við
komum ekkert að því. Ég veit ekk-
ert hvernig það gerist að þeir komu
inn í þetta og af hverju var ákveðið
að gera þetta svona, það hlýtur að
hafa verið pólitík þar á bak við.“
„Ég ber ætíð ábyrgð“
Fyrstu árin eftir komuna heim
frá Rússlandi lék allt í lyndi hjá
Björgólfi. Árið 2002 var hann
valinn maður ársins í íslensku við-
skiptalífi, hjá tímaritinu Frjálsri
verslun, Viðskiptablaðinu, Stöð 2
og DV. Árið 2004 keyptu feðgarn-
ir svo stóran hlut í Eimskipum,
sem áður var í bullandi samkeppni
við gamla Hafskip. Hann var síð-
an sæmdur riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til
viðskiptalífs og menningarmála árið
2005. Þá keypti hann 83 prósenta hlut
í enska úrvalsdeildarfélaginu West
Ham United árið 2006, í félagi við
Eggert Magnús son, fyrrverandi for-
mann KSÍ.
2007 fór að halla undan fæti en
2008 var árið sem allt breyttist. Sem
dæmi féllu hlutabréf í Eimskipum
um 90 prósent á fyrstu níu mánuðum
ársins. Svo kom hrunið, Lands-
bankinn var þjóðnýttur
og tæpu ári síðar,
eða í júlí 2009,
var Björgólfur
úrskurðaður
gjaldþrota. Í
tilkynningu
sem hann sendi frá sér í tilefni þessa
greindi hann frá því að frá ársbyrj-
un 2008 hefðu persónulegar ábyrgð-
ir og skuldbindingar hans um það bil
tvöfaldast vegna yfirtöku hans
á ábyrgð-
n björgólfur guðmundsson tjáir sig opinberlega í fyrsta sinn í sex ár
n segist taka einn dag í einu n börnin settu upp leiksýningu um hann
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is „Ef það er eitthvað
sem ég hef lært
þá er það kannski
það hvað lífið er
fallvalt