Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Page 19
Helgarblað 11.–14. apríl 2014 Fréttir 19
um í þágu félaga honum tengdum
og gengisfalls íslensku krónunnar. Á
meðan persónulegar ábyrgðir hans
námu um 96 milljörðum króna höfðu
eignir hans, sem námu um 143 millj-
örðum króna, að mestu leyti horfið
vegna yfirtöku ríkisins á hlutabréfum
hans í Landsbankanum og Straumi
og verulegrar verðmætarýrnunar
annarra fyrirtækja sem hann var
hluthafi í.
Í dag segist Björgólf-
ur ekki ætla að hlaupa und-
an ábyrgð sinni þegar kemur
að hruninu: „Ég ber að sjálf-
sögðu ætíð ábyrgð á mín-
um athöfnum og hleyp ekki
undan henni, hvort sem
gengur vel eða illa. Þegar ég
lít til baka yfir árin frá 2002
til 2008 sé ég, að margt hefði
ég mátt gera öðruvísi. Í dag er
ég samt enn fullviss um, að á
þeim tíma tók ég allar mínar
ákvarðanir í góðri trú og taldi
þær réttar. Hins vegar minnkar
ábyrgð mín á stöðu minni ekk-
ert við það.“ Björgólfur vill hins
vegar ekki fara út í umræðu um
ábyrgð sína í tilteknum málum,
samkvæmt því sem fram kemur í
bókinni, þar sem hann hafi ekki sett
það niður fyrir sér í einstaka málum
hvaða ábyrgð hann nákvæmlega ber.
Sagan endurskrifuð
Ljóst er að Hafskipsmálið hvíldi ávallt
þungt á Björgólfi og hann þráði að
fá uppreisn æru. Ásamt fleiri Haf-
skipsmönnum fékk hann nýútskrif-
aða sagnfræðinga, þá Björn Jón
Bragason og Stefán Gunnar Sveins-
son, til þess að skrifa bækur um mál-
ið. Þær náðu litlu flugi enda féll útgáfa
þeirra algjörlega í skuggann af hruni
íslenska bankakerfisins. Bók Björns
Jóns – Hafskip í skotlínu – kom út
sama dag og Geir H. Haar-
de forsætisráðherra
bað guð um að
blessa
Ísland í dramatísku sjónvarpsávarpi,
þann 6. október 2008.
Lárus Jónsson, fyrrverandi
bankastjóri Útvegsbankans, gagn-
rýndi efni bókanna í grein sem birt-
ist í tímaritinu Þjóðmálum árið
2009. Sagði hann að þar væri reynt
að hreinsa Hafskipsmenn af stærsta
gjaldþrotamáli í sögu íslenska lýð-
veldisins með spuna og blekking-
um. Lárus sagði fjölmörg atriði röng
í veigamiklum atriðum í bókunum og
að höfundar hefðu þagað um grund-
vallaratriði málsins. Þá hefði margt
verið missagt, mótsagnakennt og
hreinlega tilbúningur. Hann fór hörð-
um orðum um bók Björns Jóns: „Hún
er víða skrifuð í stíl sem líkja mætti
við spuna og er í því efni höfundi sín-
um lítt til sóma sem fagmanni.“ Þá
gagnrýndi hann Björn Jón
sérstaklega fyrir að hafa
villt á sér heimildir og
fyrir að þegja um það í
formála bókarinnar að
hún væri tengd Haf-
skipsmönnum.
Björn Jón svar-
aði síðar fyrir sig í
grein sem birt var
Þjóðmálum. Þar
sagði hann gagn-
rýni Lárusar ekki
eiga við rök að
styðjast: „Grein
Lárusar er upp-
full af innantóm-
um gífuryrðum,
sem gera ásakanir
hans í minn garð
enn alvarlegri en
ella og aðdrótt-
anir hans fela í
sér grófa aðför
að fræðimanns-
heiðri mínum.“
„Týndi
kaflinn“
Bækur tengdar
Björgólfi og efni
þeirra hafa oftar
ratað á síður fjöl-
miðla. Það vakti
mikla athygli
þegar fréttist að
hann hefði látið
eyða kafla úr
bók um Thorsar-
ana. Árið 2007
viðurkenndi
hann í samtali
við breska blað-
ið The Observer,
að hafa verið
ósáttur við kafla
í bók Guðmund-
ar Magnússon-
ar sagnfræðings
um Thorsar-
ana. Edda-út-
gáfa gaf bók-
ina út árið 2005
en ekki fyrr
en búið var
að farga öllu
upplaginu af
frumútgáfu
bókarinnar. Hún var gefin út án þessa
kafla sem fór fyrir brjóstið á Björgólfi.
Edda-útgáfa var þá í eigu Björgólfs.
Á blaðsíðunum sem um ræðir
var fjallað um hjónaband eiginkonu
Björgólfs, Þóru Hallgrímsson, og
stofnanda nasistaflokks Bandaríkj-
anna, George Lincolns Rockwells.
Björgólfi þótti ósanngjarnt að sam-
band Þóru og Rockwells hafi verið
gert að aðalatriði í bókinni, þar sem
hún hafi fjallað um Thors-ættina, en
ekki hjónabandið. Guðmundur féllst
á að endurskrifa kaflann.
Í Hamskiptunum segist Björgólf-
ur ekki hafa gefið forstjóra Eddu,
Páli Braga Kristjónssyni, skipun um
að eyða fyrsta upplagi bókarinnar.
Björgólfur segir Pál Braga hafa tek-
ið þá ákvörðun. Hann gengst hins
vegar við því að hafa verið ósáttur við
að kaflinn um hjónabandið hafi ver-
ið í bókinni. Björgólfur reiddist mjög
þegar DV birti opnugrein um mál-
ið undir yfirskriftinni „Týndi kafl-
inn“. Þar setti blaðamaður DV sig í
spor Guðmundar. Kynnti sér ævisögu
Rockwells og aflaði sér þeirra upplýs-
inga sem hann gat um samband hans
og Þóru. Í kjölfarið hótaði Björgólfur
því að kaupa DV til þess eins að leggja
það niður. Þetta atvik sýnir kannski
skýrar en mörg önnur hversu mikil
völd Björgólfur hafði á þessum árum
og með hvaða hætti ítök hans í ís-
lensku samfélagi gátu birst.
Leikritið á stóra sviðinu
Í dag segir hann að lífið hafi breyst
mikið. „Lífið breyttist algjörlega. Það
er ekki spurning um það. Eftir að hafa
verið mikið út á við verður maður
mikið inn á við. Maður fer ekki eins
hratt og maður fór áður. Ég er ekki
mikið í kokteilboðum, ég fæ ekki
mikið af slíkum boðskortum. Það
eru fjölskyldan og vinir sem maður
umgengst mest og maður lokast af.
Það gerðist bara í höfðinu á manni
sjálfum líka. Ég get ímyndað mér að
margir séu ekkert of ánægðir að sjá
mann.“
Óhætt er að segja að tíðarandinn
hafi breyst á Íslandi frá því fyrir hrun.
Þegar börn Björgólfs og Þóru tóku sig
til og ákváðu að setja upp leiksýningu
í Þjóðleikhúsinu fyrir og um foreldra
sína hafa þau eflaust ekki séð fyrir
sér að nokkrum mánuðum síðar yrði
faðir þeirra eignalaus, úthrópaður
og á leið í gjaldþrot. Þau leigðu stóra
svið Þjóðleikhússins og ekkert var til
sparað. Eins og fyrr segir var Edda
Heiðrún Backman fengin til þess að
halda utan um sýninguna.
Draumar rættust Björgólfur eignaðist breska knattspyrnuliðið West Ham árið 2006 í
félagi við Eggert Magnússon, fyrrverandi formann KSÍ.„Þegar ég
lít til baka
yfir árin frá 2002
til 2008 sé ég, að
margt hefði ég
mátt gera öðruvísi.