Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Síða 22
Helgarblað 11.–14. apríl 201422 Fréttir Erlent
Hollywood í hart við Kim Dotcom
Telja að megaupload.com hafi haft hálfan milljarð dala af kvikmyndafyrirtækjum
S
ex stór kvikmyndafyrirtæki í
Hollywood hafa ákveðið að
stefna Kim Dotcom, stofn-
anda skráarskiptasíðunnar
megaupload.com, vegna
brota á höfundarrétti.
Kvikmyndafyrirtækin sem um
ræðir eru Twentieth Century Fox,
Disney, Paramount, Universal, Col-
umbia og Warner Bros, en í stefn-
unni kemur fram að skráarskipta-
síðan hafi gert notendum kleift
að sækja kvikmyndir og annað af-
þreyingarefni frítt með tilheyrandi
tekjutapi fyrir fyrirtækin.
Megaupload.com var ein
stærsta skráarskiptasíða heims
áður en bandarísk yfirvöld lokuðu
henni árið 2012. Stofnandinn, Kim
Dotcom, er talinn hafa þénað ótrú-
legar fjárhæðir vegna síðunnar, en
hann berst nú með kjafti og klóm
gegn framsalsbeiðni bandarískra
yfirvalda. Handtökuskipun var gef-
in út á hendur honum í kjölfar þess
að síðunni var lokað, en síðan þá
hefur hann haldið sig á Nýja-Sjá-
landi þar sem hann hefur haft hægt
um sig.
Samtök kvikmyndafyrirtækja
í Bandaríkjunum, MPAA, áætla
að tekjutap fyrirtækja í banda-
rískum kvikmyndaiðnaði vegna
Megaupload nemi um hálfum millj-
arði Bandaríkjadala, eða 56 millj-
örðum króna á núverandi gengi. Þá
halda þau því fram að Megaupload
hafi greitt einstaklingum fyrir að
setja efni á síðuna og þar af leiðandi
brotið skýrt gegn ákvæðum laga um
höfundarrétt. n
einar@dv.is
Sunnudaginn 13. apríl
verður safnaramarkaður í
Síðumúla 17 (2. hæð)
kl. 13 - 16
Mynt • Seðlar • Minnispeningar
Barmmerki • Smáprent • Frímerki
Póstkort o.fl. • Sala - Kaup - Skipti
MYNTSAFNARAFÉLAG
ÍSLANDS
www.mynt.is
Safnaramarkaður
13. apríl
Í S L A N D S
•
M
Y
N
T S
A F N
A R A F É
L
A
G
•
Í hart Sótt er að Kim Dotcom úr öllum áttum. Bandarísk yfirvöld vilja fá hann framseldan til
Bandaríkjanna. Mynd ReuteRs
É
g vil nota tækifærið og biðja fjöl-
skyldu Reevu afsökunar, öll ykk-
ar sem þekktuð hana og eruð
hér í dag og alla vini hennar,“
sagði spretthlauparinn Oscar
Pistorius þegar hann settist í vitna-
stúkuna í morðmálinu á þriðjudag.
Meðal þeirra sem sátu í salnum og
hlustuðu á afsökunarbeiðni Pistorius
var móðir Reevu, June Steenkamp.
Grætur sáran
Meira en ár er liðið frá því að Oscar
Pistorius skaut Reevu Steenkamp,
unnustu sína, til bana á heim-
ili þeirra í Suður-Afríku. Meina-
fræðingurinn Jan Botha lýsti sárum
Reevu á mánudaginn. Hún varð fyrir
skotum í mjöðmina, handlegginn,
hönd og höfuð. Alls skaut Pistorius
fimm sinnum á Reevu, sem hann
hélt að væri innbrotsþjófur, en eitt
skotanna hæfði hana ekki.
Pistorius hefur átt afar erfitt með
að bera sig í vitnastúkunni en hann
hefur grátið sáran og skelfur þegar
hann hefur upp raust sína. Fresta
þurfti réttarhöldunum á þriðju-
daginn þar sem tilfinningarnar
báru spretthlauparann ofurliði. Að
sögn Pistorius fylltist hann hræðslu
kvöldið sem hann myrti Reevu þegar
hann heyrði umgang frá baðher-
bergi þeirra. Þegar hann hafði skot-
ið úr byssu sinni og komist að því að
unnusta hans varð fyrir þeim varð
honum brugðið að eigin sögn. Hann
hafi setið hjá líkinu og grátið þegar
sjúkrabíl og lögregluna bar að garði.
Lést í örmum Pistorius
„Reeva lét lífið í örmum mínum áður
en sjúkrabíllinn kom,“ lýsti Pistorius í
réttarsalnum. Spretthlauparinn seg-
ist nota þunglyndislyf og þá vakni
hann upp í kvíðakasti á næturnar.
„Ég vissi því að það var ekkert sem
þeir gætu gert fyrir hana. Ég spurði
lögreglumann hvort ég gæti þvegið
mér um hendurnar vegna
þess að lyktin af blóðinu
varð þess valdandi að ég
kastaði næstum því upp.“
Pistorius sagði jafnframt
að þau hafi átt náðugan dag
saman en hún lést að kvöldi
Valentínusardags, 14. febr-
úar 2013. Þau hafi horft á
sjónvarpið saman í mak-
indum. Frásögn sprett-
hlauparans rímar ekki við
lýsingar nágranna þeirra
sem eru einróma um að
mikil öskur hafi borist frá
heimilinu umrætt kvöld.
Varð öfundsjúkur
og óöruggur
Smáskilaboð á milli
Pistorius og Reevu rétt
fyrir dauða hennar hafa gefið vís-
bendingar um að ekki hafi allt verið
með felldu í ástarsambandi þeirra.
Pistorius segist hafa verið algjörlega
heillaður af Reevu í upphafi sam-
bandsins en að með tímanum hafi
hann orðið öfundsjúkur og óörugg-
ur. Í skilaboðum á milli þeirra seg-
ir Reeva að það sé þvættingur að
hún hafi verið að daðra við annan
karlmann og að stundum væri hún
hrædd við Pistorius.
Pistorius sagði í vitnastúkunni
að þau hafi verið hamingjusöm og
gjörn á að ræða framtíð sína saman.
Þau hafi stefnt að því að flytjast til
Jóhannesarborgar.
Réttarhöldum yfir sprett-
hlauparanum var frestað þann 28.
mars til mánudagsins 7. apríl vegna
veikinda annars aðstoðardómar-
ans. Talið er að réttarhöldunum
muni ekki ljúka fyrr en um miðjan
maí. n
Sat hjá
líkinu
og grét
Ingólfur sigurðsson
ingolfur@dv.is „Ég spurði lög-
reglumann hvort
ég gæti þvegið mér um
hendurnar vegna þess
að lyktin af blóðinu varð
þess valdandi að ég
kastaði næstum því upp.
n Segist hafa orðið hræddur vegna umgangs
frá baðherberginu n Baðst afsökunar
Á góðri stundu Reeva lést á Valentínusardag í fyrra.
Líklega frá
Tékklandi
Interpol tilkynnti á fimmtudag að
kennsl hafi verið borin á minnis-
lausa manninn sem fannst með-
vitundarlaus í snjóskafli í Ósló í
desember síðastliðnum. Málið
þykir hið dularfyllsta enda virð-
ist maðurinn ekkert muna; ekki
hvaðan hann er, hvað hann heitir
eða hver fjölskylda hans er. Tékk-
nesk hjón höfðu samband við
Interpol eftir að myndir af mann-
inum birtust í fjölmiðlum í vik-
unni. Segja þau að hann sé sonur
þeirra.
Gagnslaust
flensulyf
Hundruð milljörðum króna af
bresku skattfé var eytt í flensu-
lyfið Tamiflu sem gagnast ekki
betur en Parasetamól. Þetta segja
Cochrane-samtökin, alþjóðleg
samtök sem hafa það markmið
að taka upplýstar ákvarðanir um
heilbrigðisþjónustu.
Í aðdraganda fuglaflensu-
faraldursins árið 2009 sönk-
uðu mörg ríki að sér birgðum af
Tamiflu og eyddu Bretar til að
mynda 473 milljónum punda í
lyfið, 89 milljörðum króna á nú-
verandi gengi. Að mati Cochrane-
samtakanna gagnast lyfið lítið,
það hafi ekki komið í veg fyrir út-
breiðslu sjúkdómsins.
Lyfjaframleiðandinn Roche,
sem framleiðir lyfið, gagnrýnir
málflutning samtakanna og segir
niðurstöður þeirra byggðar á
röngum forsendum.