Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Side 26
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi
Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri
og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéttASkot
512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AðAlnÚmeR
RitStjóRn
áSkRiFtARSími
AUglýSingAR
Sandkorn
26 Umræða Helgarblað 11.–14. apríl 2014
Ég var bara
alltaf í dúnúlpunni
Snorri í Betel og Jón Ásgeir
Jóhanna Elísa, sigurvegari Biggest Loser, var ekkert að auglýsa árangurinn. – DV
R
éttlætið á Íslandi er með
ógnarlangar leiðslur. Árum
saman er fólk og fyrirtæki í
óvissu á meðan rannsókn silast
áfram á hraða snigilsins. Nýjasta
dæmið um þetta er predikarinn
Snorri Óskarsson sem gengið hefur
þvert á almennt velsæmi með útlist
uðum, forpokuðum skoðunum sínum
á hommum og lesbíum. Snorri starf
aði sem grunnskólakennari á Akur
eyri og var rekinn úr starfi eftir að
hafa í bloggpistli fjallað um samkyn
hneigð sem hann telur vera synd.
„Kjarninn í sjónarmiði evangelískra
er sá að samkynhneigðin teljist vera
synd. Syndin er ekki Guðs ríkið og því
óæskileg. Laun syndarinnar er dauði
og því grafalvarleg,“ skrifaði Snorri á
bloggi sínu. Foreldrar barna á vinnu
stað hans, Brekkuskóla, brugðust illa
við og á endanum var Snorri rekinn
úr starfi sínu af yfirvöldum Akureyrar
bæjar. Ekki eru dæmi um að Snorri
hafi haldið uppi áróðri af neinu tagi í
starfi sínu sem kennari. Kæru á hend
ur honum vegna fordómanna var vís
að frá. Brottreksturinn var því ekki
réttlætanlegur.
Alvaran í máli Snorra er sú að það
liðu rúmlega 20 mánuðir frá upp
sögninni þar til innanríkisráðuneytið
úrskurðaði í vikunni að uppsögnin
hefði verið ólögleg. Snorri var svipt
ur lifibrauði sínu en þurfti að bíða
allan þennan tíma þar til sérfræðingar
komust að þeirri niðurstöðu að brotið
hefði verið á honum. Í þessu efni
skiptir engu máli hversu forpokaður
hann hefur reynst í garð minnihluta
hóps. Aðalatriðið er að svona sleifar
lag er ekki boðlegt. Réttarríkið verður
að vera eins skjótvirkt og mögulegt er
til að valda fólki og fyrirtækjum ekki
skaða umfram það sem nauðsynlegt
er.
Annað dæmi um sleifarlag er rann
sókn Seðlabankans á sjávarútvegs
risanum Samherja. Bankinn hefur
reist þær ávirðingar á hendur fyrirtæk
inu að fiskverð í millilandaviðskiptum
hafi verið falsað í hagsmunaskyni. Frá
því ásökunin var borin fram og rann
sókn hófst eru liðin tvö og hálft ár.
Allan þennan tíma hefur fyrirtækið
og stjórnendur þess legið undir grun
um að hafa framið afbrot. Rétt eins
og í máli Snorra í Betel hverfur mál
ið sjálft í skuggann í samanburði við
rannsóknina og allan þann tíma sem
hún tekur. Aðalatriðið er orðið að
aukaatriði. Refsingin liggur í tímanum
sem það tekur að fá botn í málin. Það
er í raun óverjandi að fyrirtækið skuli
liggja undir grun í allan þennan tíma.
Ógnarlangur armur laganna er með
slíkum ósköpum að það er varla boð
legt.
Enn eitt dæmið um réttarkerfi
á hraða snigilsins snýr að Jóni Ás
geiri Jóhannessyni, athafnamanni
og útrásarvíkingi, sem hefur verið
fyrir dómstólum í meira en áratug.
Fyrst var það Baugsmálið sem end
aði eftir óratíma með því að Jón Ásgeir
fékk skilorðsbundinn dóm til örfárra
mánaða. Árum saman hafa mál hans
tengd FL Group, Glitni og fleiri aðil
um velkst um í dómskerfinu. Auðvitað
á Jón Ásgeir að baki þannig feril í við
skiptum og ekki ástæða til annars en
réttarkerfið greini verk hans í þaula.
Það breytir ekki því að vafstur í réttar
sölum í meira en áratug er ekki boð
legt. Í því samhengi má benda á að
sá sem er dæmdur fyrir morð gengur
í gegnum sína refsingu á átta árum
og hefur þá goldið samfélaginu skuld
sína með afplánun á lífstíðarfangelsi.
Íslenskt réttarkerfi er að mörgu
leyti einstaklega óskilvirkt og hægfara
sem leiðir af sér óþarfa þjáningu fyrir
hina grunuðu. Innanríkisráðuneytið
er alræmt fyrir slóðaskap og óhefð
bundin vinnubrögð í meðferð mála.
Það er gríðarlega mikilvægt fyrir alla
að það taki sem skemmstan tíma að
ná niðurstöðu í rannsókn mála. Í því
efni má ekki skipta máli hvort um er
að ræða Snorra í Betel eða Jón Ás
geir. Það verður að vera markmið
ið að refsa með sem skjótvirkustum
og skilvirkustum hætti. Í þeim efnum
má ekki skipta máli hvort menn eru
útrásarvíkingar, fordómamenn eða
heiðvirðir borgarar. Allir verða að vera
jafnir fyrir lögunum. Hægfara réttlæti
er ekki nógu gott réttlæti. n
Atvinnuumsókn Páls
Páll Magnússon skrifaði grein í
Morgunblaðið á dögunum þar
sem hann kom útgerðarmönnum
til varnar með óvæntum hætti og
sagði rangan málflutning að halda
því fram að þeir hirtu af þjóðinni
allan arð af auðlindinni. Um leið
var augljós gagnrýni í grein hans
á ESB. Eigendur Moggans eru að
verða uppgefnir á Davíð Oddssyni
og telja hann vart stofuhæfan. Þeir
eru því farnir að líta í kringum sig
eftir nýjum ritstjóra. Í greininni
stimplar Páll sig rækilega inn með
því að verja útgerðarmenn. Margir
líta á skrifin sem atvinnuumsókn.
Seinheppin Heimssýn
Samtökin Heimssýn voru sein
heppin þegar þau héldu ráðstefnu
og buðu Stefáni Má Stefánssyni
prófessor að halda
aðalerindið. Ein
helsta röksemd
Heimssýnar gegn
aðild er að ESB sé
orðið sambands
ríki. Aðalfréttin af
ráðstefnunni var
yfirlýsing prófessorsins um að ESB
væri ekki sambandsríki. Í síðustu
viku átti svo svo Heimssýn þátt í að
bjóða hingað Frakkanum Francois
Heisbourg, sem er þekktur and
stæðingur evrunnar. Öllum á óvart
var helsta fréttin að Íslandi væri
betur borgið innan ESB en utan.
Valdaklíkan ævareið
Helgi Magnússon, sem var farsæll
formaður Samtaka iðnaðarins um
árabil, hefur verið partur af innsta
kjarna Sjálfstæðis
flokks. Í frægum
tölvupósti sem fór
á flakk lét hann
Davíð Oddsson fá
það óþvegið. Helgi
dró upp þá mynd
að ríkisstjórn
Framsóknar og Sjálfstæðisflokks
ætli sér að endurreisa gömlu
helmingaskiptin og tekur undir
það sem margir vinstri menn hafa
sagt, að tilgangur stjórnarsam
starfsins sé ekki síst að tryggja að
vildarvinir flokkanna tveggja fái
sinn hvorn bankann þegar gert
er upp við kröfuhafana. Innan
valdaklíkunnar eru menn æfir út í
Helga. Helgi er nú búinn að vinna
sigur í keppninni um efsta sæti
svarta listans í Hádegismóum.
Konur í sigti
Ein helsta gestaþrautin þessa dag
ana er sú hver hreppi það hnoss
að verða fréttastjóri Ríkisútvarps
ins eftir að Óðinn
Jónsson missti
starfið og fór í sér
verkefni. Líklegast
er að annar hvor
varafréttastjórinn,
Rakel Þorbergs-
dóttir eða Sigríður
Hagalín Björnsdóttir, verði fyrir
valinu en báðar þykja hæfar. Ólík
legt er að skipað verði pólitískt í
stöðuna þótt innan Framsóknar
flokks hafi þess orðið vart að flokk
urinn vilji ná tökum á fjölmiðlum.
Margir minnast uppákomunnar
þegar Auðun Georg Ólafsson varð
fréttastjóri án þess að ná að skrifa
undir ráðningarsamning.
Reynir Traustason
rt@dv.is
Leiðari „Hægfara
réttlæti
er ekki nógu
gott réttlæti
Ég er í Eurovision-
sætinu
Magni Ásgeirsson er í 16. sæti á framboðslista Bjartrar framtíðar. – DV
Þeir sýna engan
samstarfsvilja
Ragna Erlendsdóttir er ósátt við Barnavernd. – DV
Í
sland fór á hliðina þegar
græðginni var gefinn laus
taumurinn. Svo einfalt var það.
Og nú blasir þetta við að nýju að
græðgi nokkurra landeigenda
er á góðri leið með að eyðileggja
ferðaþjónustuna á Íslandi. Þetta
rann upp fyrir mér þegar ég gerði
mér grein fyrir því hvað rukkunin
við Kerið og Geysi og svipuð áform
á norðausturhorninu er farin að
hafa víðtæk áhrif út fyrir landstein
ana.
Ég leyfi mér að fullyrða að al
mennt séu Íslendingar mjög óá
nægðir með þessa rukkun og lát
um við þá liggja á milli hluta – í
bili – að hún er kolólögleg. Fólk
vill ekki breyta ásýnd Íslands með
posavélum og ágengu rukkunar
fólki eins og nú er að ryðja sér til
rúms við náttúruperlur Íslands.
Þetta er óíslenskt
En þetta er ekki bundið við Ís
lendinga. Mér var sagt af banda
rískum ferðamálafrömuði sem
varð furðu lostinn þegar hann frétti
af hinum nýja sið og sagði í for
undran: „En þetta er svo óíslenskt.
Í huga mínum er Ísland frjálst og
opið og fólkið gestrisið. Þetta geng
ur þvert á allt þetta!“
Það er nú það! Þetta rímar vissu
lega ekki við landið og ímyndina
sem menn hafa af því en því miður
er þetta í fullkomnu samræmi við
landann þegar hann sleppir fram
af sér beislinu og heimtar mikið og
meira og svo miklu meira.
Líka krónur og aurar
En ímyndin er ekki bara huglæg.
Hún hefur líka efnahagslega þýð
ingu. Aðili í ferðaþjónustu sagði
mér þegar við hittumst við Geysi
um síðustu helgi að hann hefði
þegar fengið eina afpöntun fyrir
sumarið vegna frétta af gjald
töku. Sjálfur er ég ekki beintengd
ur inn í þennan atvinnuveg en ég
tek þennan mann trúanlegan og ef
þetta er rétt þá er líklegt að þetta sé
vísbending um það sem koma skal.
Síðan er hitt að erlendir fjöl
miðlar eru farnir að hafa samband
og spyrja hvenær næstu mótmæli
fari fram. Ég vísa hér í samtöl við
þýska útvarpsstöð og Wall Street
Journal. Þetta þykja mér vera slæm
tíðindi.
Erlendir fjölmiðlar spyrja
Áhugi erlendra fjölmiðla er hins
vegar skiljanlegur því hér er verið
að tala um grundvallarmál sem
snertir miklu fleira fólk en okkur
ein hér á okkar skeri. Spurt er um
markaðsvæðingu náttúrunnar.
Ég sagðist ætla að láta hina
lagalegu hlið liggja á milli hluta –
en bara í bili. Það er nefnilega ekki
hægt að horfa framhjá þeirri hlið á
þessu máli. Það er ekki hægt annað
en spyrja hvernig í ósköpunum það
geti gerst að í trássi við lög skuli
það líðast að menn gangi að ferða
fólki og krefji það um peninga án
þess að hafa til þess nokkra heim
ild? Þvert á móti þá eru um það
skýr ákvæði í lögum að þetta sé
með öllu óheimilt. Það er beinlínis
kveðið á um það í lögum að þetta
sé óheimilt!
Áfram verður andæft
Þetta er svo yfirgengilegt að með
ólíkindum er. En eitt mega menn
vita að mótmælum verður haldið
áfram svo lengi sem þessi siðlausa
lögleysa viðgengst og yfirvöld að
hafast ekkert til verndar fólki sem
verið er að féfletta fyrir opnum
tjöldum.
Þess vegna mun ég og án efa
miklu fleiri halda að Geysi á
laugardag klukkan hálf tvö, ganga
inn á svæðið án þess að greiða svo
mikið sem eina krónu og hvet ég
alla til þess að gera slíkt hið sama.
Því aðeins verður hætt við þetta
ef lögbann verður komið til fram
kvæmda.
Ekki óhlýðni
Einhver spurði mig hvort þetta
væri það sem kallað er borgaraleg
óhlýðni. Ég kvað svo ekki vera. Það
værum við sem hlýddum lögun
um en ekki hinir sem hafa tekið sér
vald til að ganga á svig við þau með
þessum hætti. n
Ögmundur Jónsson
þingmaður Vinstri grænna
Kjallari
Á að láta græðgina eyðileggja allt?„En eitt mega menn
vita að mótmælum
verður haldið áfram svo
lengi sem þessi siðlausa
lögleysa viðgengst.