Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Side 28
Helgarblað 11.–14. apríl 201428 Umræða Bein lína
„Ég hef ekkert að fela“
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ var spurður um fjármál bæjarins og iðnaðaruppbyggingu á Beinni línu á DV.is.
Guðríður Guðmundsdóttir
Við hjónin erum að velta fyrir
okkur að flytja út fyrir
borgina. Hvernig mundir þú selja okkur
það, að það væri best fyrir okkur að
flytja í Reykjanesbæ? Þannig að það
væri besti kosturinn fyrir okkur að
flytja þangað?
Árni Sigfússon
Sæl Guðríður. Hér eru mjög vandaðir
leik- og grunnskólar. Hér er góð þjón-
usta fyrir öll börn, íþróttir fyrir alla og
menningarlíf blómlegt, stutt að sækja
þjónustu og mikil gróska í atvinnuupp-
byggingu. Verið velkomin.
Einar Aðalbjörnsson Sæll
Árni. Hvaða möguleika á
bærinn á að gera kröfur á
banka og Íbúðalánasjóð varðandi
umhirðu eigna þeirra? Ef möguleikinn
er til staðar er þá ekki um að gera að
nota hann? Gamli malarvöllurinn,
hvað ætlar bærinn að gera til að fegra
það svæði?
Árni Sigfússon Sæll Einar. Við
erum að ræða við Íbúðalánasjóð,
einmitt um þetta og hefur verið
tekið vel í erindi okkar um að laga
húsnæði en mestu skiptir að
sjóðurinn sitji ekki með tóm hús.
Það eru margir á biðlista. Við
viljum setja upp minni grasvöll í
samstarfi við Keflavík en við hlið
Hreystibrautar gæti komið eitt-
hvert skemmtilegt hreyfisvæði.
Gísli Sigurðsson Fáum við
tryggingu fyrir því að þær
þúsundir tonna af CO2 sem
fyrirhugaðar verksmiðjur í Helguvík
munu losa út í andrúmsloftið verði
með einhverjum hætti hreinsaðar úr
útblæstrinum?
Árni Sigfússon Sæll Gísli.
Verksmiðjur eru knúnar áfram af
raforku úr fallvötnum sem annars
staðar eru knúnar af jarðolíu.
Samt leggjum við áherslu á að
hreinsun á útblæstri sé með því
besta sem býðst. Hér eru nokkrar
verksmiðjur sem eru algjörlega
CO2-fríar og spennandi að vinna
slík verkefni áfram.
Jón Kristinsson Hvað ertu
með tekjur frá mörgum
stofnunum/fyrirtækjum sem
vinna í kringum Reykjanesbæ, sem
sagt „nefndarlaun“ og „ráðgjafar-
þóknun“.
Árni Sigfússon Sæll Jón. Tekjur
auk Reykjanesbæjar eru frá HS
Veitum hf. (reyndar að hætta þar)
stjórn Kadeco og stjórn Keilis.
Þorsteinn Jónsson
Reykjanesbær ákvað að
bjóða upp á fríar samgöngur
með strætó í Reykjanesbæ, af hverju
var flugstöð Leifs E. ekki bætt þar inn
í, þar er um er að ræða einn stærsta
vinnustað Reyknesbæinga og hefði
hugsanlega skilað okkur örlítið fleiri
ferðamönnum.
Árni Sigfússon Sæll Þorsteinn.
Góður punktur, fyrst var að tryggja
samgöngur fyrir börn, unglinga
og aldraða á milli íbúðahverfa og
nú þarf að huga að betri tengingu
upp í Leifsstöð.
Arnar Gunnarsson Í tilefni af
komu Jordans Belfort til
Íslands: Ferðu á þá
samkomu? Ert þú ekki „The Wolf of
Reykjanesbær“?
Árni Sigfússon Sæll Arnar. Góður
húmoristi :) Allavega hef ég ekki
tekið þátt í drykkju-, dóp- og
svallveislum og ekki stundað
fjárhættuspil eða hlutabréfakaup
í eigin þágu.
Gunnar Már Yngvason Hefur
Sjálfstæðisflokkurinn í
Reykjanesbæ engar skárri
hugmyndir fyrir nýtingu Helguvíkur en
mengandi fabrikkur sem spúa munu
þúsundum tonna af óþverra yfir
bæjarbúa í ríkjandi norðanáttum,
þannig að Umhverfisstofnun telur að
jafnvel þurfi sérstaka vöktun ef til
kemur?
Árni Sigfússon Sæll Gunnar.
Mikið er gott að þú spyrð að
þessu. Í Helguvík mun rísa grænn
efnagarður, þar af tvö kísilver, þar
sem úrgangur er nýttur í græna
efnavinnslu, stórt fyrirtæki hugar
að vatnsútflutningi til flótta-
mannabúða og nokkur fyrirtæki í
iðnaði eru í undirbúningi sem eru
einstaklega umhverfisvæn. Ef
þú átt við álver þá hefur það mál
hreyfst mjög hægt að undanförnu.
Kostur við flest þessi störf er að
þau eru hrein, kalla á fjölbreytta
menntun og gefa af sér góð laun.
Hannes Friðriksson Held að
við getum verið sammála um
að gott sé að skuldir hafa
lækkað um fjóra milljarða á
tímabilinu, árangur sem að langmestu
leyti var náð með sölu eigna. En
skuldir hafa hækkað um tugi milljarða
króna á tólf árum sem þú hefur verið
við stjórnvölinn, þrátt fyrir
gegndarlausa sölu eigna. Er það líka á
þína ábyrgð og ef svo er telur þú þá
rétt að að þú axlir þá ábyrgð með því
að bjóða þig áfram fram í bæjarstjóra-
stólinn, eða telur þú að aðrir geti ekki
leyst vandann?
Árni Sigfússon Sæll Hannes. Hér
hefur verið mikið fjárfest í um-
hverfi, skólum og atvinnusvæðum
og það mun skila sér margfalt til
baka í öflugu, ungu fólki og betur
launuðum störfum. Ég er tilbúinn
að axla þá ábyrgð.
Rúnar Húsbóndi Bæjarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins
síðustu þrjú kjörtímabil hafa
haft ansi góðan aðgang að SpKef
varðandi lánafyrirgreiðslu, bæði í eigin
nafni og í gegnum fyrirtæki – án veða
og allt afskrifað. Svo finnst engum
þessara bæjarfulltrúa skrítið að
almenningur sé ansi pirraður út í
flokkinn og þessa bæjarfulltrúa, sem
ganga hér um götur bæjarfélagsins
brosandi út að eyrum. Skýrslan um
SpKef, birt í Kjarnanum sýnir alveg
hvernig þetta fólk hefur hagað sér. Er
ekki kominn tími til að flokkurinn dragi
sig út úr bæjarmálapólitíkinni?
Árni Sigfússon Sæll Rúnar. Þetta
er mjög gildishlaðið hjá þér og
margt rangt en þitt er valið. Ég
berst ótrauður fyrir mitt samfélag
hér og fyrir jákvæðri uppbyggingu
þess. Hrunið lék marga grátt – en
við þurfum að halda áfram og ég
hef ekkert að fela.
Trausti Björgvinsson Sæll
Árni. Getur það verið að
Parísarhringtorgið hafi
kostað bæjarsjóð 50 milljónir?
Árni Sigfússon Sæll Trausti. Nei
það er rangt. Steinturninn kostaði
fjórar milljónir, vegagerð og bær
skiptu kostnaði á milli sín því þetta
er þjóðbraut. Þetta voru ein hættu-
legustu gatnamót í bænum vegna
slysa og brýnt að gera hringtorg.
Heildarkostnaður bæjar sjóðs
vegna þess var 19 milljónir (mikið
um mikil vægar rafmagns- og vatns-
lagnir undir torginu).
Atli Gylfason Sæll Árni. Í dag
eru tvær íbúðir skráðar til
leigu í öllum Reykjanesbæ.
Hvers vegna er leigumarkaðurinn á
þessu svæði í svona miklum molum og
þá kannski í framhaldinu – hefur
bæjarstjórnin reynt að gera eitthvað
til þess að pressa á t.d. Íbúðalánasjóð
að koma eignum á markað sem
standa auðar í bæjarfélaginu? Þær
skipta ekki tugum heldur hundruðum.
Árni Sigfússon Sæll Atli. Já við
höfum ýtt á Íbúðalánasjóð um að
flýta losun eigna, bæði til sölu og
leigu. Opinbera kerfið er hægt, því
miður, en við teljum að það sé að
rofa til í þessum málum.
Þorsteinn Jónsson Hver er
ástæða þess að stærsta
bæjarfélagið á Suðurnesjum
er einungis með heimasíðu sína á
íslensku? Reyndar boðið upp á
Google-þýðingu sem verður að teljast
afleit framsetning hvað þýðingu
varðar og ekki nokkur leið að skilja.
Önnur spurning: Mikið er rætt um
vaxandi ferðamannastraum til lands-
ins og ótrúlegt en satt, þá er ekkert
safnanna á vegum bæjarins (nema
Víkingasafnið og það nýlega) með
eigin heimasíðu. Þær litlu upplýsingar
sem veittar eru, þarf að nálgast með
krókaleiðum og með mikla netflökk-
unarkunnáttu á internetinu. Hver er
ástæðan?
Árni Sigfússon Sæll og takk
fyrir ábendinguna. Í efstu línu
á heimasíðu Reykjanesbæjar er
vísað í önnur tungumál og reyndar
eru fleiri söfn með sína heimasíðu.
Þá er Markaðsstofa Reykjaness sá
aðili sem sinnir ferðaþjónustunni.
Þannig er skipulagið. Ábendingin
er allrar athygli verð og ég mun
skoða það í framhaldinu.
Pétur Jónsson Telur þú
Sjálfstæðisflokkinn fara að
vilja þjóðarinnar í landsmál-
um? Hvernig myndir þú bregðast við
ef bæjarbúar myndu krefjast
atkvæðagreiðslu um eitthvert
einstakt mál?
Árni Sigfússon Sæll Pétur.
Sjálfstæðisflokkurinn var kosinn
lýðræðislega í síðustu alþing-
iskosningum og honum ber að
fylgja sinni stefnu. Ég er ekki alltaf
sammála en það er annað mál.
Við erum mjög hlynnt íbúalýð-
ræði og bendi ég sérstaklega á
íbúavef Reykjanesbæjar þar sem
íbúar geta komið að tillögum
sem fara áfram inn í stjórnkerfið,
ábendingasíðu og starfsreglur
okkar sem gera ráð fyrir tækifær-
um til íbúakosninga.
Ingvi Jóhannsson Finnst þér
ekki óheppilegt hversu miklar
afskriftir eru á bak við
frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í
Reykjanesbæ, og eru þeir út frá því
þess bærir að fara með þá ábyrgð að
stjórna fjármálum bæjarins?
Árni Sigfússon Sæll Ingvi. Þetta
er gildishlaðin spurning og margt
rangt. Ég veit ekki til að fram-
bjóðendur hafi verið í einhverjum
afskriftarleik en mörg fyrirtæki
urðu illa úti í hruninu og við eigum
athafnamenn sem störfuðu við
þau. Mér finnst þetta því mjög
ósanngjörn nálgun.
Hrafn Malmquist Hvernig
stendur á því að Reykjanes-
bær er eitt þriggja
sveitarfélaga á Íslandi sem hafa
neitað (og það ítrekað) að friðlýsa sig
fyrir kjarnorkuvopnum?
Árni Sigfússon Sæll Hrafn. Að
baki afstöðu meirihluta bæjarfull-
trúa liggja tvær skýringar, sýnist
mér. Sumir telja að málin snúi
að utanríkisstefnu sem ekki er á
hendi sveitarfélags en ekki síður
veit ég að margir bæjarfulltrúar
vildu ekki gangast undir erindi
frá samtökum sem þeim þótti
hafa gert lítið úr samfélaginu hér.
Við höfum sjálfstætt lýst yfir að
hér skuli engin slík vopn vera og
höfum skömm á drápstólum.
Elías Pétursson Sammerkt
er með Álftanesi, Sandgerði
og Reykjanesbæ að þau voru
með skuldsettustu sveitarfélögum
landsins. Má að rekja stöðu þeirra til
aðildar að Fasteign? Ef Reykjanesbær
hefði ekki getað selt eignarhlut sinn í
Hitaveitu Suðurnesja, hefði þá
Reykjanesbær farið í þrot líkt og
Álftanes? Hvert er samtals
söluandvirði þeirra eigna sem seldar
hafa verið frá Reykjanesbæ á þinni
vakt? Er það rétt að um sé að ræða
sölu eigna að andvirði um 20 þúsund
milljóna?
Árni Sigfússon Sæll Elías. Nei, í
stað lántöku til uppbyggingar inn-
viða, m.a. grunnskóla, leikskóla,
gatnakerfis og atvinnusvæða var
farin sú leið að ganga til liðs við fé-
lag sem sá um fjármögnun. Þetta
var góður kostur á þeim tíma en
versnaði mjög í efnahagshruninu.
Mismunur á heildarskuldum og
tekjum bæjarsjóðs (skuldahlut-
fall) var 270% árið 2002 þegar
ég tók við. Núna er skuldahlutfall
bæjarsjóðs 248%. Eigið fé bæjar-
sjóðs (eignir umfram skuldir)
árið 2002 var 3,8 milljarðar og 3
milljarðar í samstæðu. Um síðustu
áramót, 2013, var eigið fé 6,9
milljarðar í bæjarsjóði og 7,5 millj-
arðar í samstæðu. Ég kýs að svara
þessu svona því þetta er eðlilegi
samanburðurinn. Þetta sýnir að
við höfum aukið eignir á tímabil-
inu og til lítis að tala um þúsundir
milljóna í sölu á minni vakt nema
rætt sé um eignaaukningu á móti.
Davíð Viðarsson Sæll Árni. Er
það rétt að Reykjanesbær sé
rekinn á milljarði í yfirdrátt?
Ef þetta er rétt, hver er kostnaðurinn
við þennan yfirdrátt á ári?
Árni Sigfússon Sæll Davíð. Nei
það er ekki rétt en það var hins
vegar á þriggja mánaða tímabili
sem fjárhagsstaðan var mjög erfið
og lætur nærri að yfirdráttur hafi
numið um milljarði á þeim tíma.
Það var okkur dýrt, líklega um 21
milljón króna.
Gunnar Garðarsson Hversu
mikla fjármuni fær
Reykjanesbær frá ríkinu fyrir
að sjá um þjónustu við flóttamenn og
hvernig er þeim fjármunum varið?
Mundir þú segja að þjónusta
Reykjanesbæjar við flóttamenn sé til
fyrirmyndar?
Árni Sigfússon Sæll Gunnar.
Heildargreiðsla ríkisins vegna
hælisleitenda var um 420 milljónir
í fyrra. Útgjöld eru svipuð, þar í er
húsnæði, fæði, félagsleg þjón-
usta, heilsugæsla, samgöngur og
fleira og fleira. Þetta er samkv.
samningi Útlendingastofnunar
við sveitarfélagið. Nú hefur
einstaklingum fækkað þar sem
Reykjavíkurborg tekur í auknum
mæli við þeim en við sinnum
fjölskyldufólki. Þetta er fólk sem
flest hefur liðið sárar kvalir í sínu
fyrra umhverfi og leitar skjóls hjá
okkur og ég tel að af mannúðar-
ástæðum eigum við að veita þeim
frið og skjól. Aðstaða fjölskyldna
hér er mjög góð en þegar mikið
var um karla sem einstaklinga þá
var í raun yfirflæði sem reyndist
okkur erfitt að bera ein ábyrgð
á. Þess vegna höfum við gert
nýtt samkomulag þar sem færri
hælisleitendur eru í bænum okkar.
Ísak Kristinsson Sæll. Talað
var um að grunnskólar í
Reykjanesbæ stæðu
grunnskólum á höfuðborgasvæðinu
aftar. Hins vegar berast jákvæðar
fréttir úr skólasamfélaginu um
velgengni grunnskóla Reykjanesbæj-
ar. Hvað skýrir þessar jákvæðu
breytingu í skólamálum í Reykjanes-
bæ og hvar standa skólarnir í
samanburði við aðra á landsvísu?
Árni Sigfússon Sæll Ísak.
Mikil áhersla í okkar starfi hefur
snúið að því að bæta menntun
í Reykjanesbæ. Á hverju kjör-
tímabili höfum við sett fram
„framtíðarsýn“ þar sem skólamál
eru mjög ofarlega. Nú fengum við
einmitt sérstaka stjórnsýsluviður-
kenningu fyrir þessi vinnubrögð en
mestan heiður af mjög breyttum
og jákvæðum árangri skólanna
okkar eiga kennarar, stjórnendur
menntakerfisins okkar og
foreldrar sem hafa tekið höndum
saman með okkur um þetta
verkefni. Að mínu mati hefur skipt
mjög miklu máli að byrja snemma
með áherslu á aukinn lesskilning
og talnahugtök, í frábærum
leikskólum. Aldurshópar eru að
skila mjög góðum árangri í þessum
samanburði og nú er mikilvægt að
við höldum honum.
Ragnhildur Guðmunds
dóttir Það er EKKERT að rofa
til í húsnæðismálum. Ætlar
sveitarfélagið að standa undir þeim
lögum að sjá til þess að þeir sem þurfi
fái félagslegt húsnæði? Hvenær má
vænta þess?
Árni Sigfússon Sæl Ragnhildur.
Reykjanesbær er sveitarfélag
sem hefur byggt upp og rekur
mjög margar félagslegar íbúðir í
saman burði við önnur sveitar-
félög. Þó er það svo að aldrei er
hægt að tryggja húsnæði fyrir
íbúa, eingöngu með þeirri leið.
Þetta hefur verið sérstaklega
erfitt þegar almenna leiguíbúða-
kerfið hefur verið lamað en við
gerum okkar besta.
Gunnar Garðarsson Nú hefur
ekki bara atvinnuleysi aukist í
Reykjanesbæ heldur hefur
aðfluttu fólki í atvinnuleit fjölgað í
bænum. Margir hverjir eru búnir að
vera lengi frá vinnu og því fylgja
félagsleg vandamál sem bærinn hefur
ekki svarað með neinum hætti. Hver
voru helstu mistökin í úrlausnum á
vandamálum þessa fólks á
kjörtímabilinu og hvað má gera betur?
Árni Sigfússon Sæll Gunnar.
Aðfluttu fólki í atvinnuleit hefur
ekki fjölgað. Flestir aðfluttir hafa
vinnu. Þegar varnarliðið fór töpuð-
ust ellefu hundruð störf, ári á und-
an kreppunni. Þótt verulega hafi
fækkað á atvinnuleysisskrá erum
við enn um 2% yfir landsmeðal-
tali. Með markvissum aðgerðum
hefur þó tekist að fækka ungu
fólki sem hefur þurft á fjárhagsað-
stoð bæjarins að halda. Mér þykir
mjög leitt að sú mikla vinna og
fjárfesting sem lögð hefur verið
í ný atvinnutækifæri hafi verið
mjög sein að skila sér en þau dæmi
sem ég hef nefnt hér áður munu
snúa þeirri þróun við.
Davíð Viðarsson En gætir þú
þá frætt mig um hver er
yfirdrátturinn í dag? Og
hvaðan komu peningarnir í að borga
niður yfirdráttinn sem var um
milljarð?
Árni Sigfússon Sæll. Eftir að
gengið var frá sölu hluta HS
Veitna hf. þar sem við eigum enn
meirihluta þá er yfirdrátturinn
núllaður út og aðrar skuldir
greiddar.
Nafn: Árni Sigfússon
Aldur: 57 ára
Staða: Bæjarstjóri í
Reykjanesbæ og oddviti
Sjálfstæðisflokksins.
Menntun: B.Ed. frá Kennarahá-
skólanum 1981 og MPA í stjórn-
sýslufræðum frá Tennessee í
Bandaríkjunum 1986.