Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Page 31
Umræða Stjórnmál 31Helgarblað 11.–14. apríl 2014
F
orsætisráðherrann okkar og
fylgismenn hans halda áfram
að hamra á þeirri kennisetn
ingu að helsta vandamál ís
lensku þjóðarinnar sé hópur
fólks sem leyfir sér að gagnrýna það
sem stjórnvöld gera.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
hljómaði meira eins og þaulsætinn
þjóðarleiðtogi sem glímir við skæru
liða í borgarastyrjöld heldur en for
sætisráðherra á Íslandi þegar hann
lýsti illfýsnum hópi föðurlandssvikara
á fundi Samtaka atvinnulífsins í síð
ustu viku.
Óvinir Íslands
– gagnrýnendur Sigmundar
Hann hefur áður lýst „niðurrifsöflum“
í íslensku samfélagi sem ala á sundr
ung til að innleiða „öfgakennda hug
myndafræði“. Hann byrjaði reyndar á
því að lýsa gagnrýni fólks sem „loft
árásum“, aðeins mánuði eftir að hann
fékk völd. En nú var það nánar til
tekið fólkið sem „talar Ísland niður“
af annarlegum ástæðum og vill selja
þjóðina undir erlent yfirvald og fram
kalla byltingu:
„Allt frá efnahagshruninu hefur
markvisst verið unnið að því að tala
land og þjóð niður. Slíkt er ekki gert í
útlöndum, heldur fyrst og fremst hér
heima. Til er fólk sem leit á vissan hátt
á efnahagslegar ófarir Íslands sem
sinn stærsta sigur, sem réttlætingu á
eigin skoðunum. Loksins hlutu allir
að sjá að Íslendingar hefðu í gegn
um tíðina aldrei getað stjórnað sér
sjálfir. Loks var komin réttlæting fyrir
byltingarstjórn sem myndi brjóta á
bak aftur það hræðilega samfélag
sem byggt var upp á Íslandi á 20. öld.“
Sigmundur gefur reglulega til
kynna að hann álíti gagnrýnend
ur sína vera andsnúna þjóðinni og
vilja henni illt. Hann lýsir endurtekið
skaða þess að sýna neikvæðni eða
„sundrung“, rétt eins og ráðherrar
og ábyrgðarmenn bankanna gerðu
þegar staða íslenska þjóðarbúsins var
gagnrýnd mánuðina fyrir efnahags
hrun.
Þið sem ógnið sálum barna
Sigmundur Davíð kallar kenningu
sína „róttæka rökhyggju“. Rökhyggja
er áhersla á að hlutirnir segi sig sjálf
ir – á vissan hátt – að rökfærsla geti
leitt í ljós sannleikann óháð reynslu.
Í ræðum sínum, viðtölum og skrifum
hefur Sigmundur opinberað að hann
hefur lítið þol gagnvart þeim sem
eru ósammála honum og vænir þá
gjarnan um launráð gegn gildum og
hagsmunum íslensks þjóðfélags. Það
kann að tengjast því að samkvæmt
hans eigin skilgreiningu á eigin hug
myndafræði felur hún í sér að hann
búi yfir fyrirfram gefnum sannindum
sem standa nánast óháð öllu öðru.
Þannig virðist Sigmundur í andsvör
um sínum skipta gagnrýnendum sín
um í tvo hópa:
a) Þeir sem hafa ekki yfir að ráða
sömu þekkingu eða rökfærslugetu og
hann sjálfur
b) Þeir sem stýrast af annarlegum
hvötum eða illfýsnum tilgangi
Nýlegt dæmi um að Sigmundur
saki gagnrýnendur sína um dulinn
illvilja birtist þegar þingmaðurinn
Helgi Hjörvar bað um að ríkisstjórnin
gerði virka reiknivél á netinu sem gef
ur fólki upp hversu mikið það fær fellt
niður af húsnæðislánum sínum, eins
og Sigmundur hafði lofað að gerðist
„um leið og tillögurnar [yrðu] kynnt
ar“. Sigmundur svaraði ekki fyrir
spurninni um reiknivélina, en svaraði
því til að Helgi hefði það sem „sérstakt
markmið“ að gera fólk óánægt og
skapa leiðindi: „Ég er að hugsa um allt
það fólk sem háttvirtur þing maður
einbeitir sér að því að blekkja, gera
óöruggt og skapa almenn leiðindi.
Þegar við höfum einmitt ástæðu til að
gleðjast.“
Þingflokksformaður flokks Sig
mundar, Sigrún Magnúsdóttir, hélt
áfram sama boðskap á mánudaginn.
„Við skulum móta þjóðarsálina með
bjartsýni, jákvæðni og trú á mátt okk
ar og megin,“ sagði hún og varaði við
því að sálir barna væru í hættu vegna
neikvæðni á Íslandi, því hún „smýgur
inn í sálarfylgsni þeirra og skelfir þau“.
Leyndarmálið
Orðalagið „að tala niður“ Ísland
endurómar frá þeim sem lýsa gagn
rýni sem skaðlegri í sjálfri sér, bæði
andlega og efnahagslega. Það lýsir
umburðar og skilningsleysi gagnvart
hlutverki gagnrýni í samfélaginu, en
líka ákveðinni ímyndarhyggju.
Trúin á að hlutir verði góðir með
því að trúa því að þeir séu góðir flokk
ast ekki undir rökhyggju, nema að því
leytinu til að hún er óháð áhrifum af
raunheiminum. Hún minnir meira á
þá sem aðhylltust boðskap bókarinn
ar The Secret – Leyndarmálið – sem
kom út árið 2006 og var vinsælasta
bók á Íslandi á tímabili árið 2007, árið
sem talað var upp.
Í lýsingu bókaútgáfunnar Sölku
var þetta leyndarmálið: „Ef við náum
að stilla tilveruna og það sem við vilj
um öðlast á sömu tíðni, getum við
kallað til okkar betra líf, andlegt og
veraldlegt. Þetta er sjálft Leyndarmál
ið – það er falið innra með hverjum
og einum og möguleikarnir eru enda
lausir.“
„Hið stóra efnahagslega plan felst
í því að trúa á Ísland,“ útskýrði Sig
mundur Davíð fyrir atvinnulífinu á
fundinum í síðustu viku.
Andstæðingar íslenska leyndar
málsins koma í veg fyrir að við öðlu
mst það sem við viljum sem þjóð, því
þeir benda á hið neikvæða.
Algengasta andsvarið við gagnrýni
í bóluhagkerfinu fyrir hrun var að það
væri „óábyrgt og óheppilegt“ að „tala
niður“ markaðinn, krónuna, eða Ís
land. Formaður Félags fasteignasala
gagnrýndi þannig Seðlabankann og
greinendur á fjármálamarkaði fyrir
að reyna að fella fasteignaverð með
því að tala það niður:
„Þetta er ljótur leikur, sem sér
fræðingar á fjármálamarkaði eru að
leika, þegar þeir reyna eftir fremsta
megni að tala fasteignamarkaðinn
niður, á sama tíma og hann virðist
þrátt fyrir allt vera að ná sér á strik,“
sagði hún. Innan þriggja mánaða frá
því hún sagði þetta voru þrír stærstu
bankar landsins orðnir gjaldþrota og
fasteignamarkaðurinn fallinn saman.
Þessi hugmyndafræði sem Sig
mundur hefur endurvakið og gert að
ráðandi kennisetningu í opinberri
umræðu er frekar tengjanleg kenn
ingum um ofurraunveruleika en rök
hyggju. Í kenningu Jean Baudrillard,
sem féll frá árið 2007, kemur fram að
raunveruleikinn sé yfirskyggður af of
urraunveruleika sem birtist í fjölmiðl
um og táknmyndum okkar. Þannig eru
mörkin milli raunveruleika og blekk
ingar afmáð og blekkingin orðin hinn
nýi viðtekni sannleikur. Ef við skynjum
það og trúum því verður það satt, óháð
því hvort það samræmist raunveruleik
anum sem liggur að baki. Í slíkri veröld
getur virst þjóðræknisleg skylda að tala
upp, eins og Sigmundur boðar.
En íslenski ofurraunveruleikinn
hrundi árið 2008.
Rökhyggjumaður í
árekstri við raunheiminn
Reynslan hefur sýnt okkur að barátta
gegn því að „tala niður“ er merki um
að eitthvað sé raunverulega að undir
niðri, enda hefur enginn meiri hags
muni af því að kæfa gagnrýni en þeir
sem hafa ekki málstað til að svara
henni.
Reynslan hefur líka sýnt okkur
að róttæki rökhyggjumaðurinn Sig
mundur á það til að rata í miklar
ógöngur gagnvart röksemdum. Í
slíkum tilfellum, þar sem samræmi
hefur skort milli orða hans og raun
heimsins, hefur hann haldið því fram
sem hentar honum best frekar en að
halda sig við réttmæt rök.
Sem dæmi lofaði Sigmundur því
að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla
um hvort aðildarviðræðum við
Evrópusambandið yrði haldið áfram
eða ekki, enda lýsir hann sér sem
fylgismanni þjóðaratkvæðagreiðslna
og hafði talað fyrir þessari leið í ESB
málinu í minnst tvö ár. Þegar hann
rökstuddi af hverju hann vildi svíkja
það lét hann eins og hann hefði ekki
lofað því, en upprifjun á orðum hans
í raunheimi sýndi fram á annað. Á
endanum nefndi hann þau rök í sjón
varpsviðtali að það væri ekki hægt
að halda bindandi þjóðaratkvæða
greiðslu hvort sem er, vegna þess að
stjórnarskráin leyfði það ekki. En hins
vegar er ástæðan fyrir því að stjórnar
skráin leyfir þetta ekki, fyrst og fremst
sú að Sigmundur og félagar hans hafa
stoppað af gildistöku nýrrar stjórn
arskrár, sem var einmitt samþykkt í
þjóðaratkvæðagreiðslu, en hún le
yfir þjóðaratkvæðagreiðslu í krafti
undirskrifta almennings. 73 pró
sent landsmanna samþykktu þetta
ákvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu og
67 prósent samþykktu að nýja stjórn
arskráin yrði byggð á útfærslu stjórn
lagaráðs. Þannig náði Sigmundur,
sem fylgir þjóðaratkvæðagreiðslum
í prinsippinu, að koma með þre
falda blokkeringu á þjóðaratkvæða
greiðslur án þess að rökhyggja hans
upplýsti hann um árekstur hans við
raunheiminn.
Viljinn til valds
Sigmundur var reyndar einn af
forvígis mönnum stjórnlagaþingsins,
þar sem flokkurinn hans gerði þá
kröfu fyrir stuðningi við minni
hlutastjórn VG og Samfylkingar fyrri
part ársins 2009 að stjórnlagaþing
yrði sett á fót. Þegar hann sá móta fyrir
tillögum þjóðkjörins stjórnlagaráðs
snerist honum hugur. Hann sagði
þjóðina vera í of vanstilltu andrúms
lofti til að móta nýja stjórnarskrá.
Fleiri flokksmenn Framsóknarflokks
ins komu til og útskýrðu einfaldlega
að þeim þættu tillögurnar vera svo
óvandaðar, hvað sem fælist í því.
Meðal ákvæða í nýju stjórnar
skránni var að atkvæði allra íbúa á Ís
landi hefðu jafnt vægi í kosningum.
Nú er það þannig að á landsbyggðinni,
þar sem Framsóknarflokkurinn fær
langflest atkvæði sín, hafa einstak
lingarnir meira vægi í kosningum
en á höfuðborgarsvæðinu, þar sem
Framsóknarflokkurinn mælist aðeins
með 2% stuðning fyrir sveitarstjórn
arkosningarnar.
Alla þessa snúninga forsætisráð
herrans og fylgisflokks hans þegar
kemur að aðkomu þjóðarinnar að
ákvarðanatöku má þannig útskýra
með einfaldri baráttu til að ná meiri
völdum í eigin hendur og forðast að
vald dreifist til almennings. Kannski
mætti kenna þetta við frumspeki
Nietzsches – viljann til valds – fremur
en rökhyggju. Viljinn til valds er drif
kraftur alls lífs, samkvæmt Nietzsche.
Við borðum til dæmis mat með því að
beita hann valdi. Völd eru áhrifin sem
við þurfum til að funkera. Og Fram
sóknarflokkurinn nærist á atkvæð
um. Til þess að hann nærist sem mest
og best er honum í hag að stöðva
stjórnar skrána sem almenningur
kaus að taka upp.
Nú þegar Sigmundur er við völd
er honum í hag að gagnrýni sé sem
minnst, en margir muna eftir hon
um sem harðasta gagnrýnanda
ástandsins á Íslandi þegar hann var
án valda. Viðhorf sem breytast eftir
hentisemi flokkast alls ekki undir rök
hyggju, heldur afstæðishyggju.
En á einföldu máli köllum við þá
sem praktísera þessa hugmynda
fræði tækifærissinna.
Myrkraverðir Íslands
Hugmyndafræðilega er Sigmund
ur Davíð ekki róttækur rökhyggju
maður. Hann er tækifærissinnaður
þjóðernis sinni með greinilega and
lýðræðislega tilburði; ekki róttækur,
en með óþol fyrir gagnrýni. Og þar
sem gagnrýni er grundvallaratriði í
lýðræðisríki er full ástæða til að hafa
áhyggjur af stöðugum tilraunum for
sætisráðherrans til að losa landið
okkar við hana, á sama tíma og hann
dregur að sér völd með því að koma
í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur og
ógilda þær sem þegar hafa farið fram.
Í trúarsögu mannkyns hefur
ljósið löngum verið notað til að
tákna hið góða, og myrkrið hið illa.
Í heimsmynd Sigmundar Davíðs
eru gagnrýnendur hans fylgjendur
myrkursins. „Það er einna helst í
innstu myrkviðum netsins og í ræðu
stól Alþingis að hagsmunaverðir
svartnættisins halda vöku sinni,“
sagði forsætisráðherrann okkar við
atvinnulífið, þar sem hann boðaði
ofsasjálfstrú – kenningu Íslands.
Það er eitthvað ógnvekjandi við
þessa heimssýn. Ekki bara vegna þess
að hún er eins og afturgengin útgáfa
af óheilbrigðu gildismati samfélags
sem var á barmi hruns, heldur vegna
þess að hún hefur tekið sér bólfestu í
æðstu valdastöðu landsins okkar. n
Leyndarmálið: Ógnvekjandi
heimssýn Sigmundar Davíðs
Leyndarmálið Sjálfshjálparbókin The
Secret var vinsælasta bók á Íslandi á
tímabili árið 2007. Kenningar Sigmundar
bera keim af boðskap bókarinnar.
Jón Trausti Reynisson
jontrausti@dv.is
Pistill
Sigrún Magnúsdóttir Neikvæðir
Íslendingar valda því að sálir barna eru í
hættu því neikvæðnin „smýgur inn í sálar-
fylgsni þeirra“, að sögn þingflokksformanns
Framsóknarflokksins. Mynd SigTRygguR ARi
Í stríði gegn myrkrinu
Forsætisráðherra telur
gagnrýnendur sína vera
„hagsmunaverði svart-
nættisins“. Mynd SigTRygguR ARi
Bannað að
„tala niður“
Valdafólk á móti
gagnrýninni umræðu
1 Geir HaardeForsætisráðherra - sept. 2007
„Það er óábyrgt og
óheppilegt ef einhverjir
vilja sko tala niður
gjaldmiðilinn okkar.“
Í tilefni af hugmyndum
um hvort taka ætti upp
evru til að forðast gengishrun. Svo kom
gengishrun.
2 Jóhanna SigurðardóttirFélagsmálaráðherra - maí 2008
„Ég held að það hafi verið
mjög óskynsamlegt af
Seðlabankanum að
tala niður fasteigna-
verð með þeim hætti
sem hann gerði.“
Vegna hagspár Seðlabankans þar sem
spáð var 30% falli á fasteignaverði. Spáin
reyndist rétt og rúmlega það.
3 Ólafur Ragnar GrímssonForseti - apríl 2011
„Hættiði að tala niður
íslenskt atvinnulíf!“
Vegna gagnrýni
formanna stéttarfélaga
… því unga fólkið þarf að
heyra góðar fréttir.
4 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Forsætisráðherra - apríl 2014
„Allt frá efnahagshruninu
hefur markvisst verið
unnið að því að tala
land og þjóð niður.“
Vegna þess að innlendir
niðurrifsseggir sem gleðjast
yfir óförum Íslands vilja koma á byltingar-
stjórn og svipta þjóðina sjálfstæðinu.