Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Síða 36
36 Fólk Viðtal Helgarblað 11.–14. apríl 2014
É
g byrjaði að fitna um níu ára
aldurinn og um fermingu var
ég komin í 100 kílóin,“ segir
Anna Lísa Finnbogadóttir sem
vakti athygli í þáttunum The
Biggest Loser sem sýndir voru á Skjá
Einum.
Anna Lísa var þyngsta konan í
keppninni og hafnaði í öðru sæti.
Hún dvaldi í tíu vikur á Ásbrú þar
sem hún hafði nánast ekkert sam
band við umheiminn. Engan síma,
tölvu eða sjónvarp. Hún hitti son
sinn, sem þá var tveggja ára, einu
sinni á þessum tíu vikum. Hún seg
ir þetta vissulega hafa verið erfitt
en líklega bjargað lífi hennar enda
var hún hrædd um að offitan myndi
koma í veg fyrir að hún ætti líf með
syni sínum.
Rúm 70 kíló farin
Nú þegar um sex mánuðir eru liðn
ir frá því að keppnin hófst þá hefur
hún misst 71,7 kíló en aðeins mun
aði 400 grömmum á henni og sigur
vegaranum. Hún segist þó alls ekki
vera bitur, auðvitað hafi verið fúlt
að það hafi munað svo litlu en „eins
og afi segir, peningar koma og fara,“
segir hún hlæjandi þegar blaða
maður hitti hana kvöld eitt í Hamra
borginni í Kópavogi. Hún er Kópa
vogsmær fram í fingurgóma, ólst
hér upp og því erum við á henn
ar heimaslóðum. Anna Lísa, sem
er nýkomin af annarri æfingu dags
ins, fær sér sódavatn og segir frá því
hvernig það þróaðist að hún var allt
í einu orðin tæplega 174 kíló, 28 ára
gömul.
Hætti í fótboltanum
vegna eineltis
„Ég var svona strákastelpa og var
alltaf með strákum. Ég var alltaf á
fullu í íþróttum, fótbolta og öðru.
Ég var og er stórgerð og var alltaf
stærri en jafnaldrar mínir. Framan
af var ég mikið í íþróttum. Ég var til
dæmis í fótbolta þangað til ég var
sextán ára en þetta ágerðist alltaf,“
segir Anna Lísa sem varð fyrir ein
elti vegna stærðar sinnar. Hún hætti
í fótboltanum vegna
eineltis þegar hún var
sextán ára.
„Fyrst var ekki
kvennalið hjá
HK þar sem
ég æfði
þannig
að ég
spil
aði
alltaf með strákunum. Svo kom að
þeim tíma þar sem maður hætti að
vera hallærislegur og varð bara lúða
legur. Þá fór ég að lenda í einelti og
öðru. Ég er hins vegar þannig gerð
að ég hef alltaf svarað fyrir mig og
lét það kannski ekki mikið á mig fá
þannig eða lét allavega ekki bera á
því. Krakkar finna samt alltaf eitt
hvað til að gera grín að. Mér var strítt
út af þyngdinni og af því að ég var í
fötum úr Hagkaup,“ segir hún.
„Í HK var stofnað kvennalið sem
sameinaðist svo kvennaliði Víkings,
þar var mér mikið strítt og á endan
um hætti ég bara. Þyngdin gerði það
líka að verkum að það var oft gert ráð
fyrir að ég gæti ekkert í boltanum
sem var ekki rétt þannig að ég fékk
oft ekki tækifæri heldur.“
Snerist allt um mat
Á unglingsárunum þyngdist hún
meira. Hún stundaði þó yfirleitt ein
hverja hreyfingu með en breytti lítið
mataræðinu. „Ég var sífellt í ein
hverjum megrunarkúrum. Ég missti
nokkur kíló en þyngdist svo alltaf
strax aftur. Svo vatt þetta upp á sig.
Ég borðaði alltaf stærri skammta
og hafði engar hömlur, hætti svo að
hreyfa mig. Áður en ég fór í keppn
ina þá hafði ég aldrei verið jafn
þung,“ segir hún.
Anna Lísa segist vera matarfíkill.
Matur var hennar besti vinur, mesti
óvinur og sálusorgari. „Ég elska góð
an mat en þetta var þannig að það
snerist allt um mat. Ég notaði mat
við öll tækifæri. Til þess að hugga
mig, verðlauna mig, og undir lok
in, til þess að refsa mér líka. Þetta
þróaðist líka út í það að ég borð
aði alltaf alltof mikið og hafði engar
hömlur,“ segir hún.
Þurfti að pæla í öllu
Allt líf Önnu Lísu snerist í kringum
ofþyngdina sem hamlaði henni í
nánast öllu því sem hún tók sér fyr
ir hendur. „Ég þurfti að hugsa fyrir
öllu. Ég þurfti að spá í hvaða stóla ég
gæti sest í, ég var svo breið á þann
veginn að ég þurfti að smeygja mér
ofan í stólinn og svo þegar ég stóð
upp þá þurfti ég að halda í armana
þannig að stóllinn færi ekki með mér
upp,“ segir hún brosandi þó að vissu
lega hafi þetta ekki ver
ið skemmtilegt
að standa í.
„Þetta
var meira segja orðið þannig að
í sumum bílum var öryggisbeltið
varla nógu langt til þess að ná utan
um mig,“ segir hún.
Sérstök tækni í flugi
Anna Lísa lét þyngdina ekki stöðva
sig í að ferðast. Það var þó stórmál
að koma sér fyrir í einu sæti í vél
inni. „Ég var búin að koma mér upp
ákveðinni tækni til þess að taka bara
eitt sæti því að tæknilega séð var ég í
tveimur. Ég varð alltaf að fá sæti við
glugga, helst við neyðarútgang, síð
an smeygði ég mér á ská og sat á ská
allan tímann, klesst við gluggann og
hreyfði mig varla fyrr en flugvélin
var lent. Ég gerði mér auðvitað grein
fyrir því hversu stór ég var á alla
kanta, enda hávaxin líka og var alltaf
að reyna að passa mig að taka ekki
pláss frá öðrum,“ segir hún. „Ég held
ég hefði nú samt líklega ekki kom
ist í flug, jafnvel með þessari aðferð,
þarna í lokin þegar ég var þyngst.“
Komst ekki í tívolítækin
Þegar Anna Lísa fór í útskriftarferð
með skólanum sínum þvældust
aukakílóin líka fyrir henni. „Við
fórum í útskriftarferð til Orlando
þar sem er fullt af skemmtilegum
skemmtigörðum. Þar komst ég ekki í
nein tæki því ég var of feit,“ segir hún
og heldur áfram. „Maður missir af
svo miklu þegar maður er svona stór.
Það er svo margt sem maður getur
ekki gert. Á meðan skólafélagar mín
ir voru að skemmta sér í tækjunum
þá var ég bara að dandalast eitthvað
ein,“ segir hún og viðurkennir að það
hafi auðvitað verið hundfúlt.
„Og eins með ferðatívolíin sem
komu hingað til lands á sumrin fyrir
nokkrum árum. Ég reyndi einu sinni
að fara í tæki þar en þurfti að snúa
við og fara til baka því ég var of stór.
Það var svo niðurlægjandi. Þá var
það heldur ekki bara ég ein sem vissi
það heldur allir hinir líka,“ segir hún.
Var kölluð Keikó
Anna Lísa upplifði fordóma í sinn
garð vegna þyngdarinnar, allt frá
barnæsku. „Mest frá börnum og
eldra fólki. Fólk var oft að benda mér
á þetta eins og ég væri ekki með
vituð um stærðina. Á
meðan ég reyndar
hugs aði um
lítið annað!“
segir hún og skellir upp úr. „Ég lenti í
því að vera kölluð alls konar nöfnum.
Ég var til dæmis kölluð Keikó af ein
hverjum unglingum þegar hann var
mikið í umræðunni og svo kom eldra
fólk upp að mér og spurði hvern
ig ég leyfði mér að verða svona.
Það var ekki að hjálpa,
ég var alveg
meðvituð um þetta.“
Anna Lísa er menntaður hjúkr
unarfræðingur og hefur lengi starf
að í heilbrigðisgeiranum og segist
líka hafa fundið fyrir því að þyngdin
var ekki að hjálpa henni þar. „Þegar
maður er að gefa ráð um heilbrigð
an lífsstíl, þá hugsar fólk þegar það
sér mann af hverju það eigi að fylgja
þessu ef ég geri það augljóslega ekki
sjálf. En það er eins og ég segi alltaf:
Það er ekki skortur á þekkingu sem
er ástæðan fyrir því að fólk er feitt,
það vita allir að hamborgarar og
franskar eru ekki næringarríkasti
matur í heimi. Það er meira sem ligg
ur að baki.“
Hún segir að þó að hún hafi fund
ið fyrir fordómum frá öðru fólki þá
hafi hún sjálf líklega haft einna mesta
fordóma gagnvart sér sjálfri. „Þegar
maður er svona stór þá er sjálfsálitið í
molum þótt maður sýni það kannski
ekki út á við. Ég var minn versti óvin
ur. Ég var voðalega dugleg við það
að rakka mig niður, ég þurfti engan
annan, ég gerði það bara sjálf.“
Óttaðist að deyja frá syninum
Árið 2011 eignaðist Anna Lísa síðan
son sinn, Viktor Mána. Eftir því sem
hann óx og dafnaði fór hún að óttast
að hún yrði ekki til staðar fyrir hann
mikið lengur. „Ég átti erfitt með að
hlaupa á eftir honum, ég var farin að
Aðeins 400 grömm komu í veg fyrir að Anna Lísa Finnbogadóttir sigr-
aði í keppninni The Biggest Loser. Hún er þó ekki bitur vegna þess heldur þakk-
lát fyrir tækifærið. Áður en hún tók sig á óttaðist hún að deyja frá syni sínum
vegna offitu enda stjórnaði ofþyngdin öllu hennar lífi. Hún fann fyrir fordómum
vegna þyngdarinnar en segist sjálf hafa verið sinn versti óvinur. Anna Lísa nýtir
nú reynsluna til þess að hjálpa öðrum sem voru á sama stað og hún til þess að
öðlast líf.
Var hrædd um að deyja frá syninum
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
„Ég var minn
versti óvinur
Keppendur Tólf kepp-
endur kepptu í The Biggest
Loser Ísland. Anna Lísa er
efst til vinstri á myndinni.