Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Page 37
Fólk Viðtal 37Helgarblað 11.–14. apríl 2014
Var hrædd um að deyja frá syninum
sjá fyrir mér að ef hann færi til dæm-
is að æfa íþróttir þá yrði ég í hjóla-
stól á hliðarlínunni að fylgjast með
honum. Það var eitthvað sem ég
vildi ekki. Þetta var orðið hættulegt
ástand.“
Þegar hún sá auglýst eftir um-
sóknum í The Biggest Loser-þátt-
inn þá freistaði það að taka þátt, þó
var það amma hennar og nafna sem
ýtti hvað mest á hana að sækja um.
„Amma mín er dönsk og hefði sótt
um fyrir mig sjálf ef hún skrifaði ekki
örlítið bjagaða íslensku. Ég fylgdist
með erlendu þáttunum og hafði oft
sagt að ef þeir yrðu gerðir hér þá
myndi ég vera með.“
Anna Lísa sendi inn umsókn
og var beðin um að senda mynd af
sér fáklæddri. „Það var mjög erfitt.
Maður forðaðist myndavélar og leit
varla í spegil þannig að þetta var ekki
auðvelt, en þess virði,“ segir hún.
Erfitt að sýna sig
Í þáttunum var ekkert hulið og kepp-
endur gáfu sig alla í áskorunina.
Keppendur voru vigtaðir fáklædd-
ir og hún segir það hafa verið áskor-
un að bera sig fyrir framan mynda-
vélarnar. „Í fyrstu vigtuninni fór
maður úr bolnum og stóð á vigtinni
á íþróttatoppi. Það var auðvitað
mjög erfitt enda hafði maður ekki
mikið verið að sýna sig. Þetta hafði
áhrif í samböndum og svona, maður
sýndi sig ekkert. Það voru bara slökkt
ljósin og þannig fór maður að sofa.
Svo allt í einu stóð maður þarna með
rosaljós og upptökuvélar. Það var al-
veg titringur sem fylgdi því og ég átti
erfitt með að fara bara ekki að grenja
uppi á vigtinni,“ segir hún.
Gaf ekkert eftir
Hún segir það hafa hjálpað til að
fara alla leið, halda engu eftir og gefa
sig alla í verkefnið. Andlega sem og
líkam lega. „Ég hélt til dæmis fyrst
þegar ég kom að ég hefði nú engin
sérstök vandamál andlega. Þegar
maður fór að kafa dýpra þá sá ég að
ég átti fullt af vandamálum og það
var fullt sem spilaði inn í þótt ég hefði
ekki viðurkennt það. Þarna þurfti ég
að gera það og hætta að brjóta sjálfa
mig niður.“
Keppendum var líka algjörlega
kippt úr sambandi við umheiminn.
Engir símar, tölvur, sjónvörp eða
aðgangur að fjölmiðlum. „Það var
mjög erfitt en líka rosalega gott. Við
vorum bara að æfa og hvíla okkur.
Læra að lifa upp á nýtt. Maður ein-
beitti sér algjörlega bara að þessu,“
segir hún en viðurkennir að hafa
saknað sonar síns mikið. „Það var
miklu erfiðara en ég hafði gert mér
grein fyrir. Ég hafði aldrei verið svona
lengi frá honum. En þegar söknuð-
urinn var hvað verstur hugsaði ég að
ég væri jafn mikið að gera þetta fyrir
hann eins og mig.“
Borða hreina fæðu
„Þetta var frábært tækifæri til að
komast í burtu og gera ekkert annað
en þetta í tíu vikur. Það er auðvitað
ekki raunhæft fyrir fólk sem ætlar að
gera þetta sjálft með vinnu og öðru
að það geti lést jafn mikið og við
gerðum þarna. Við æfðum fjórum
sinnum á dag og hvíldum okkur inni
á milli. Við vorum með toppþjálfara
og mataræðið tekið í gegn,“ segir hún.
Mataræðið sem keppendur voru á
og Anna Lísa fylgir enn, byggist upp á
því að fæðan sé sem hreinust. „Í raun
allt sem er skotið, veitt eða tínt. Kjöt,
fiskur, grænmeti, hnetur og egg til
dæmis,“ segir hún. Keppendur þurftu
sjálfir að útbúa matinn sem þeir
borðuðu. „Það var dýrmætt að læra
þetta. Okkur var kennt í byrjun að út-
búa nokkrar máltíðir úr þessari fæðu
og unnum út frá því og þróuðum okk-
ur áfram í matargerðinni.“
„Af hverju ætti ég að skemma
fyrir mér núna?“
Anna Lísa var ein þriggja sem komust
í úrslitaþáttinn. Hún var í tíu vikur
á Ásbrú en eftir að hún kom heim
þurfti hún að standa sig á eigin veg-
um. „Það var ákveðið sjokk að koma
heim en maður hélt strax áfram og
var duglegur. Gaf ekkert eftir.“
Í dag er Anna Lísa rétt um 100
kíló. Hún er ekki komin í kjörþyngd
ennþá og er hvergi nærri hætt. En
óttast hún ekki að fara í sama far og
hún var í áður? „Það eru margir sem
spyrja mig að þessu og auðvitað er ég
hrædd við það en ég er bara komin
svo rosalega langt, af hverju ætti ég að
skemma fyrir mér núna? Ég þarf ekki
að lifa eins og munkur og leyfa mér
ekki neitt en ég þarf heldur ekki að
lifa eins og ég gerði. Bara finna milli-
veginn.“
Nýtir reynsluna
til hjálpar öðrum
Í dag æfir hún yfirleitt tvisvar á dag,
í hádeginu og eftir vinnu, en hún
starfar við heimahjúkrun sem stend-
ur. Hún er einnig að fara að taka að
sér nýtt verkefni. Hún ætlar að halda
námskeið í Reebok-fitness ásamt
Gurrý, sem var þjálfari í þáttunum,
fyrir fólk sem þarf að missa meira en
20 kíló. „Ég er auðvitað ekki þjálfari
en er hjúkrunarfræðingur þannig að
lýðheilsan mun bætast inn í. Ég kem
líka með mína reynslu inn í þetta. Ég
þekki það að vera á þessum stað og
hvernig það er að byrja.“
Gjörbreytt líf
Anna Lísa segir líf sitt hafa gjörbreyst
eftir þættina. „Að komast þarna inn
var mitt stærsta tækifæri. Ég get varla
líkt saman lífinu, fyrir og eftir. Það er
svo margt breytt,“ segir hún.
Anna Lísa er nú komin í sam-
band. „Við vorum spurð í þáttunum
hvort við hefðum einhvern tímann
verið ástfangin og ég gat ekki svar-
að því. Ég hafði verið í samböndum
en ég vissi ekki hvort ég hefði verið
ástfangin. Ég sætti mig bara alltaf við
hlutina og gerði ekki endilega það
sem ég vildi. Ef einhver sýndi mér
áhuga þá sætti ég mig bara við það
og hugsaði að það vildi mig enginn
annar. Þegar þú ert ekki ánægður
með sjálfan þig hvernig getur þú
þá ætlast til þess aðrir séu það. Ég
treysti engum. Í dag er þetta breytt
og ég geri það sem ég vil og sætti mig
ekki við hvað sem er.“
Mataræðið aðalatriðið
Aðspurð hvað hún myndi ráðleggja
fólki í yfirþyngd sem vill tileinka sér
nýjan og heilsusamlegri lífsstíl seg-
ir hún: „Byrja á mataræðinu, hik-
laust. Það eru margir hræddir við
líkamsræktarstöðvar og halda að
allir þar inni séu í rosalega góðu
formi. Byrjið á mataræðinu, takið
út hveiti og sykur. Byrja bara hægt,
til dæmis ef þú ert nammifíkill,
fækkaðu þá nammidögunum í
einn. Borðaðu hreina fæðu og byrj-
aðu svo rólega að hreyfa þig með.
Það er gott að byrja bara smátt og
ætla sér ekki of mikið í einu, þá
springur fólk oft. Það er ekki auð-
velt að hreyfa sig þegar maður er
í yfirþyngd en þá er bara að byrja
hægt, hreyfingin kemur inn í þetta
með tímanum. En það má samt
ekki gleyma því að líkaminn þolir
meira en maður heldur.“ n
70 kílóum léttari
Anna Lísa hefur öðlast nýtt líf. Á
sex mánuðum hefur hún lést um
rúm 70 kíló. MyNd SiGtryGGur Ari„Ég notaði mat við
öll tækifæri. Til
þess að hugga mig, verð-
launa mig og, undir lokin,
til þess að refsa mér líka.
Vildi vera til staðar Anna Lísa var hrædd um að deyja frá syni sínum ef hún tæki sig ekki
á. Hér sjást mæðginin saman fyrir keppnina.