Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Page 41
Helgarblað 11.–14. apríl 2014 Skrýtið Sakamál 41
n Dökkir draumórar höfðu lengi hrærst í huga Grahams Coutts
Morðóður músíkant
Graham Coutts upplifði
eigin fantasíu á kostnað
Jane Longhurst.
Jane Longhurst
Kennari sem
galt fyrir draumóra
vinar með lífi sínu.
S
érþarfakennarinn Jane
Longhurst, 31 árs, hvarf 14.
mars, 2003, í kjölfar sím-
tals. Á þeim tíma bjó Jane
með kærasta sínum og varði
gjarna tíma með samkennara sín-
um, sem þá var barnshafandi, og
kærasta hennar, Graham Coutts,
gítarleikara sem vann sem sölu-
maður í hlutastarfi. Kynni þessa
hóps höfðu hafist fimm árum fyrr.
Páskar voru að ganga í garð þegar
starfsfólk geymsluþjónustunnar Big
Yellow Storage í Brighton varð vart
við frekar undarlegan fnyk sem
lagði upp úr kjallara geymsluhús-
næðisins. Slíkur var ódaunninn að
starfsfólk treysti sér vart til að sýna
nýjum viðskiptavinum neðri hæð-
irnar. En hvað olli lyktinni var þeim
hulin ráðgáta – sem myndi ekki
leysast fyrr en rúmum mánuði síðar.
Hryllilegar fantasíur
Jane og vinkona hennar áttu það
til að hittast í morgunsárið því vin-
konan var tíðum frá vinnu sökum
morgunógleði sem vill hrjá barns-
hafandi konur. Því hringdi Jane að
morgni 14. mars í hana ef svo vildi
til að hún væri heima við.
Það var Graham sem svaraði,
og nei, vinkonan var farin til vinnu.
Graham taldi Jane aftur á móti á að
koma í sund í sundhöll ekki fjarri
heimili Jane í Shaftesbury í Brighton
– hann myndi sækja hana.
En ekkert varð úr sundferðinni
því í stað þess að fara í sundhöllina
fór Graham heim til sín, á Waterloo-
stræti, með Jane.
Síðar átti eftir að koma í ljós
að í hugarheimi Grahams hrærð-
ust myrkar hugsanir og hryllilegar
fantasíur. Þær ku hann hafa opin-
berað gagnvart Söndru Gates, sem
hafði verið í ástarsambandi með
honum á níunda áratug liðinnar
aldar.
Að sögn Söndru hafði Graham
sagst hafa til langs tíma dreymt um
að kyrkja, nauðga og drepa konu.
Við réttarhöld síðar meir taldi dóm-
ari þó að of langt væri um liðið og
ekki ástæða til að opinbera þann
vitnisburð fyrir kviðdómi.
Draumur verður að veruleika
En aftur í íbúð Grahams Coutts
þennan örlagaríka morgun.
Graham hófst handa við að laga te
og á meðan það var að lagast tók
hann nælonsokkabuxur kærustu
sinnar og vafði þeim í tvígang utan
um háls Jane og herti svo vel að að
hann gat með annarri hendi haldið
þeim um háls hennar og fróað sér
með hinni.
Korrið í Jane æsti Graham til
mikilla muna og hann herti enn
frekar að hálsi hennar með sokka-
buxunum – allt þar til súrefnisþurrð
varð henni að bana. Þegar þarna var
komið sögu hafði Graham upplifað
að hluta til fantasíu sína og talið er
að hann hafi áður en upp var staðið
kynferðislega misnotað lífvana lík-
ama Jane.
Sóðalegar vefsíður
Vikurnar fyrir morðið hafði Graham
eytt yfir 100 sterlingspundum á að-
gang að sóðalegum vefsíðum sem
báru heiti á borð við „Club Dead“,og
„Brutal Love“.
Rannsókn á tölvu hans leiddi í
ljós að á vefnum hafði hann leit-
að eftir niðurstöðum sem vörðuðu
samfarir við lík og einnig slegið
inn „vídeó af kyrktum konum“ og
„dauðar konur“. Í tölvu hans var að
finna sjúklegar myndir af líkum og
nauðgunum og ljóst að hann hafði
verið að á öllum tímum sólarhrings.
Notaðir smokkar
Þegar Graham hafði myrt og mis-
notað Jane kom hann líkinu fyrir í
öflugum pappakassa, en fór þó ekki
lengra með hann en út í garðskýli
sitt. Þar geymdi hann líkið í ellefu
daga eða allt þar til lögreglan bank-
aði upp á hjá honum til að forvitnast
um hvort þau hefðu einhverja hug-
mynd um hvað orðið hefði af Jane.
Þá flutti hann kassann í geymslu-
rými hjá Big Yellow Storage þar sem
kassinn var í 24 daga. Að sögn starfs-
manna þar kom Graham í geymsl-
una nokkrum sinnum á því tímabili,
en staldraði alla jafna stutt við.
Síðar fann lögreglan notaða
smokka í geymslu Grahams og taldi
ekki loku fyrir það skotið að Graham
hefði kynferðislega misnotað líkið af
Jane þegar hann kíkti í geymsluna.
Líkið brennt
Upp úr 18. apríl tók starfsfólk Big
Yellow Storeage eftir því að ódaunn-
inn sem hafði plagað það var á
undanhaldi, enda hafði Graham
þá sótt kassann, hent honum í skott
bíls síns og ekið á brott. Fleira gerði
hann ekki þann daginn og var lík-
ið af Jane í skotti bílsinDaginn eftir
ók Graham til Wiggenholt Common
í Vestur-Sussex þar sem hann tók
kassan úr skottinu og bar síðan eld
að líkamsleifum Jane.
Óhapp, sagði Graham
Þegar Graham Coutts var loks hand-
tekinn fullyrti hann að dauði Jane
hefði verið óhapp sem hefði átt sér
stað þegar þau stunduð „kæfikyn-
líf“ sem Jane hefði samþykkt. Kvið-
dómur lagði ekki trúnað á frásögn
Grahams og 3. febrúar, 2004, var
hann sakfelldur fyrir morð og
dæmdur til lífstíðarfangelsis. Far-
ið var fram á að hann gæti ekki sótt
um reynslulausn fyrr en að lokinni
30 ára afplánun.
Eftir áfrýjun voru 30 árin stytt í 26
þann 26. janúar 2005.
En fyrir fjölskyldu Jane var mál-
inu ekki lokið því 19. júlí, 2006, ógilti
áfrýjunardómstóll dóminn yfir
Graham á þeim forsendum að kvið-
dómi hefði ekki verið gefinn kostur
á manndrápsúrskurði.
Það breytti þegar upp var staðið
ekki miklu og eftir ný réttarhöld, 4.
júlí 2007, var Graham dæmdur fyrir
morð. n
FÓRNARLAMB
FANTASÍU
„Í hugarheimi
Grahams hrærð-
ust myrkar hugsanir og
hryllilegar fantasíur
Réðst á
hótelgesti
Breska lögreglan leitar logandi
ljósi að manni sem réðst á þrjár
systur frá Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum þegar
þær sváfu vært á hótelherbergi
sínu í London. Þær hlutu allar
áverka, þó mismikla, og voru
fluttar á spítala. Ekki er vitað
um tilefni árásarinnar en hótel-
herbergi systranna var ólæst
þegar árásarmaðurinn réðst
á þær. Lögreglan fann hamar
í eigu árásarmannsins á vett-
vangi. Hvorki gestir né starfs-
menn hótelsins urðu varir við
heimsókn mannsins en lög-
reglan skoðar nú upptökur úr
eftirlitsmyndavélum.
Átti í ástar-
sambandi
við nemanda
Breski kennarinn Kelly Burgess
varð uppvís að því að eiga í ást-
arsambandi við fjóra nemend-
ur sína á aldrinum 13 til 17 ára
í fyrra og var í kjölfarið kærður
til lögreglu. Burgess, sem er 26
ára gömul, var vikið úr starfi
sínu en hún kenndi í skóla við
Bristol á Englandi. Burgess ját-
aði brot sitt og að hafa átt í sjö
mánaða ástarsambandi við
einn unglinganna. Konan hlaut
tíu mánaða dóm sem er skil-
orðsbundinn til tveggja ára.
Barði kærast-
ann til dauða
Marissa Devault, fyrrverandi
strippari, hefur verið sakfelld
fyrir að hafa framið hrottalegt
morð á kærasta sínum, Dale
Harrell, árið 2009 í Arizona í
Bandaríkjunum. Kviðdómur
á eftir að skera úr um hvort
Devault eyði restinni af ævinni
í fangelsi eða hljóti dauðadóm.
Devault barði kærasta sinn til
dauða með hamri en hún segist
hafa verið að verja sig þar sem
Harrell hafi ráðist á hana. Þá
segir hún að Harrell hafi ítrekað
misnotað hana kynferðislega.