Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Qupperneq 42
42 Lífsstíll Helgarblað 11.–14. apríl 2014
Lægra kólesteról
– betra kynlíf
Lækkaðu kólesterólið ef þú vilt
lifa betra kynlífi. Þessu halda vís-
indamenn við Rutgers-háskól-
ann fram eftir að hafa rýnt í 11
rannsóknir á risvanda og notk-
unar á statini, lyfi gegn of háu
kólesteróli, hjartasjúkdómum og
heilablóðfalli.
Í ljós kom að lyfið lækkaði ekki
aðeins of hátt kólesteról heldur
hjálpaði einnig í baráttu við ris-
vandamál. John Kostis, einn vís-
indamanna rannsóknarinnar,
segir risvandamál oft tengjast
hjartasjúkdómum og geti verið
vísbending um slíka sjúkdóma.
Hann segir þó frekari rann-
sóknir nauðsynlegar og að lækn-
ar eigi ekki að ávísa lyfinu fyrir
karlmenn sem eigi aðeins við ris-
vandamál að stríða. Hann bend-
ir þó á að niðurstöðurnar gætu
komið sér vel ef læknar eiga í
erfið leikum með að fá sjúklinga
til að taka lyfið.
M
argir kannast kannski við
þreytutilfinninguna sem
kemur upp í kjölfar neyslu
stórrar máltíðar. Rannsak-
endur við Kaliforníuháskóla hafa nú
gefið út niðurstöður rannsóknar sem
þeir segja að sýni fram á að neysla
unninnar matvöru og offita auki á
þreytu og hreyfingarleysi. Oftast hefur
hinu öfuga verið haldið fram, það er
að segja að leti leiði til offitu.
„Fólk í yfirþyngd er oft brenni-
merkt sem latt og sagt skorta aga.
Niðurstöður okkar benda hins vegar
til þess að þessir fordómar, sem fá oft
að heyrast í fjölmiðlum, séu rangir og
eigi ekki rétt á sér. Okkar gögn sýna að
offita af völdum mataræðis sé orsök
leti frekar en afleiðing,“ sagði Aaron
Blaisdell, einn rannsakendanna í við-
tali við Medical News Today nýlega. n
Ruslfæðið letur okkur
Offita af völdum mataræðis orsök leti frekar en afleiðing
Skyndibiti
Skyndibitinn
getur haft slæm
áhrif á okkur.
Skiptu út frönskum
Ofnbakað blómkál er dæmi um nokkra holla kosti sem koma í stað franskra kartaflna
F
ranskar kartöflur er vinsælt
meðlæti með mat og flestum
finnst þær eru hrikalega góð-
ar á bragðið. En stundum er
gott að skipta þeim út fyrir að-
eins hollari valkosti. Hér koma tvær
uppskriftir sem hægt er að prófa í
staðinn fyrir frönskurnar.
Ofnbakað blómkál
Ofnbakað blómkál getur verið frá-
bært í staðinn fyrir fyrir franskar
kartöflur og hér kemur einföld
uppskrift að slíku. Það er líka hægt
að prófa sig áfram með krydd sem
manni finnst gott.
Innihald:
n Einn meðalstór blómkálshaus
n Karríduft
n Ólífuolía
n Sjávarsalt
Aðferð:
Forhitið ofninn í 220°C. Hlutið blóm-
kálið niður í litla bita og setjið í eld-
fast mót. Passið að hlutarnir séu all-
ir svipað stórir svo þeir bakist jafnt.
Hellið ólífuolíunni yfir blómkálið og
kryddið vel með saltinu og karríduft-
inu. Gott er að velta blómkálinu að-
eins til í mótinu til að þekja það allt.
Setjið álpappír yfir mótið og
hitið í 10–15 mínútur eða þangað til
að það fer að mýkjast og verða að-
eins glærra. Þegar því er náð er ál-
pappírinn tekinn af og blómkálið
eldað þangað til það fer að brúnast
á endunum og stökkna. Gott er að
salta aðeins eftir á.
Rófufranskar
Rófur eru bráðhollt grænmeti og því
frábært að nota þær sem meðlæti í
stað franskra kartaflna.
Innihald:
n 1 stór rófa
n Gróft salt
n Chili-duft
n Pipar
Aðferð:
Forhitið ofninn í 200°C. Skrælið
rófuna og skerið niður í strimla.
Þekið frönskurnar með ólífuolíu og
kryddið með saltinu, piparnum og
chili-duftinu.
Bakið í ofni í 15 mínútur eða
þangað til þær eru eldaðar í gegn.
Gott er að velta þeim nokkrum sinn-
um á meðan þær bakast.
Sætkartöflufranskar
Sætar kartöflur passa með mörgum
réttum og eru mun hollari en venju-
legar kartöflur. Hér er einföld upp-
skrift að sætkartöflufrönskum:
Innihald:
n 1 stór sæt kartafla
n Gróft salt n Grófmalaður pipar
n Ólífuolía
Aðferð:
Forhitið ofninn í 200°C. Skrælið
sætu kartöfluna og skerið í franskar.
Þekið frönskurnar með ólífuolíu og
kryddið með salti og pipar.
Bakið í ofni í 15 mínútur eða
þangað til þær eru eldaðar í gegn
og farnar að dökkna örlítið. n
Jón Steinar Sandholt
jonsteinar@dv.is
Ofnbakað
blómkál
Sætkartöflu-
franskar
Þvoðu þér
í 20 sekúndur
Samkvæmt rannsókn vísinda-
mannsins Rolf Halden er líklegt
að þú notir bakteríudrepandi
handsápu á rangan hátt. Og, það
sem verra er, sápan kann að hafa
haft áhrif á hormónakerfi þitt.
Þetta kemur fram í LiveScience.
Að sögn Haldens þurfum við
að þvo okkur í 20–30 sekúndur
svo sápa virki en hann segir flesta
þvo sér um hendurnar aðeins í
sex sekúndur.
Enn fremur segir Halden ör-
verur vera að aðlagast bakteríu-
drepandi efnum sem svo mögu-
lega geti eflt þol þeirra gagnvart
sýklalyfjum.
Rófu-
franskar
Svona mikið
er mátulegt
Nú þegar páskarnir eru handan
hornsins má með sanni segja
að tími sætindanna sé runninn
upp. Foreldrar ættu að hafa í
huga að mjög ung börn ættu, líkt
og foreldrar þeirra, að gæta hófs
þegar kemur að neyslu sælgætis.
Ágæt regla er að barnið fái einn
sælgætisbita fyrir hvert lífsár, ef
um er að ræða til dæmis bland í
poka. Þannig fengi fjögurra ára
barn fjóra mola, en sex ára barn
sex mola. Svo er einnig hægt að
miða við grammafjölda, en börn
á aldrinum fjögurra til fimm ára
ættu ekki að borða meira en um
45 grömm af sælgæti á dag, þau
sem eru sex til níu ára 45 grömm
og börn 10–12 ára ættu ekki að
borða meira en fimmtíu grömm á
dag. Hafa má í huga að ef þessari
reglu er fylgt, endist páskaeggið
mun lengur en annars.