Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Page 43
Lífsstíll 43Helgarblað 11.–14. apríl 2014
EyeSlices augnpúðar
Ferskari augu á 5 mínútum
Púðana má nota í 10 skipti
facebook.com/Eyeslices/IcelandUpplýsingar um sölustaði:
7 hlutir í veskið
Sumir segja að það leynist
alltof mikið af drasli í veskjum
kvenna. Þau eru líklega jafn
misjöfn og þau eru mörg en
nokkra hluti getur verið gott að
vera ávallt með í veskinu.
1 Varalitur Góður
varalitur getur
gert kraftaverk
fyrir útlitið á
slæmum degi.
Stundum hefur
maður ekki tíma til að mála sig
en þá getur varaliturinn komið
til bjargar og lyft útlitinu upp í
hæstu hæðir.
2 Reiðufé Það er alltaf
gott að hafa
smá klink, t.d.
fyrir stöðumæli
eða bara til spara
færslu gjöldin á kortið.
3 Túrtappar eða
dömubindi Það
útskýrir sig sjálft,
blæðingar gera
ekki alltaf boð á
undan sér og því gott
að vera viðbúin.
4 Blaut klútar Þeir geta
verið gagnlegir við
svo margt. Ef þarf
að þrífa blett eða
að þurrka burt svita.
5 Verkjatöflur Gott ef
maður fær til
dæmis hausverk
og ekkert apótek er
í grenndinni.
6 Penni Pennar eru
til svo margs gagn
legir, ef þú þarft að
taka niður skilaboð
eða skrifa eitthvað
niður en hefur ekki tíma til að
skrá það inn í símann.
7 Neyðarupplýsingar Hafðu upplýsingar um þína
nánustu ef eitthvað skyldi koma
fyrir og það þarf að bera kennsl
á þig.
Gefur gömlum
gullmolum nýtt líf
Sigrún opnaði vefverslunina Kizu
É
g ákvað að opna verslun á
netinu því mig langaði til að
vinna með aðaláhugamálið
mitt. Ég er vön að kaupa mér
föt sjálf og selja þau svo aftur
stuttu seinna en langaði til að vanda
mig betur þegar ég væri að kaupa
mér sjálf föt og hætta að láta þau
svona auðveldlega frá mér,“ segir Sig
rún Guðmundsdóttir sem hefur opn
að vefsíðuna kizu.is.
Þar selur hún svokallaða „ vintage“
gullmola ásamt því að halda úti
skemmtilegu tískubloggi. Þar er að
finna notuð föt sem hún finnur í búð
um og á mörkuðum í Leipzig þar sem
hún á heima en þangað flutti hún
í fyrra ásamt kærasta sínum, lista
manninum Árna.
Sigrún hefur alltaf verið mikill
fagurkeri og finnst gaman að finna
gullmola í verslunum með notuð föt.
„Ég elska að finna gamla og gleymda
fjársjóði í búðum og á mörkuðum og
gefa þeim nýtt líf,“ segir hún og viður
kennir að með því að halda úti búðinni
sé hún líka að svala ákveðinni verslun
arþörf hjá sjálfri sér. „Með þessu móti
get ég haldið áfram að versla þótt fötin
séu ekki handa mér sjálfri,“ segir hún.
Fötin eru líka á hagstæðara verði
en oft hér heima. „Meira að segja með
sendingarkostnaði þá eru þau ódýr
ari en ég er auðvitað ekki að halda
úti dýru leiguhúsnæði eða starfsfólki
og þess vegna eru þau ódýrari,“ segir
hún og bætir við: „Mér finnst ekki að
notuð föt eigi að kosta mikinn pening
nema ef þau eru merkjavara.“
Slóðin á vefverslunina er kizu.is.n
viktoria@dv.is
Svalar eigin kaupþörf Sigrún hefur
gaman af því að gramsa á mörkuðum og í
búðum sem selja notaðan fatnað. Með því
að opna vefverslunina svalar hún líka vissri
kaupþörf.
V
íðar buxur, síð pils,
magabolir, hattar og
pastellitir eru tísku
straumar sumarsins
2014.
Breska tískutímaritið Glam
our greinir frá heitustu tísku
straumum sumarsins á vef
síðu sinni. Þar má sjá að
pastellitir, meðal annars föl
grænn og ferskjulitir, sem og
silfur og hvítt, koma til með
að vera litir sumarsins, sér
staklega í kventísku. Litina
má sjá í helstu sumarvör
unum þetta árið, meðal
annars í fataverslunum,
snyrtivörum og auðvitað
fylgihlutum.
Magabolur
Magabolir, sérstaklega
við síð, víð pils og
hólkvíðar buxur eiga að
líkindum eftir að njóta
mikilla vinsælda. Pils
in þykja sérstaklega
klæðileg ef þau eru úr
silki eða satínefnum.
„Þær eru þægilegar,
ótrúlega smart,“ segja
ritstjórar Glamour svo
um víðar buxur sem ná
hátt upp á mjaðmirnar.
Þá leggja þær til að við síð
og víð pils, sem ná niður á
miðjan sköflung sé best að
nota stutta, þrönga boli, jafnvel
magaboli. Þá sé einnig smart að
vera í þykkum peysum við pils úr
léttum efnum. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Þetta eru trend
sumarsins
Kopar skartgripir, pastellitir og magabolir eru það sem koma skal
Pastel og magabolur
Hvítt naglalakk, magabolur
við sítt pils og hattur er
meðal þess sem Glamour
boðar að verði í tísku í sumar.