Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Side 46
Helgarblað 11.–14. apríl 201446 Lífsstíll
Skyggnst
ofan í rjúkandi
jökuleldstöð
Það er ekki oft á lífsleiðinni
sem fólki býðst sá girnilegi
göngumöguleiki að ganga á jökli
að nýrri jökuleldstöð til að skoða
hrikalegar afleiðingar eldgoss
undir jökli og jökulhlaups. Og það
allt á einum góðum göngudegi!
Gosið undir Eyjafjallajökli
breytti landslagi jökulsins tölu-
vert og enginn fjallamaður ætti
að láta það framhjá sér fara að
skoða afleiðingar þessara nýaf-
stöðnu hamfara.
Á laugardaginn býður Ferða-
félag Íslands upp á göngu á
Eyjafjallajökul af Þórsmerkur-
vegi um Grýtutind og Skerin.
Ferðin ber nafnið Skyggnst í iður
jarðar og skráning fer fram á
skrifstofu FÍ í síma 568-2533 fyr-
ir kl. 15 á föstudag.
Kræklingar
í Hvalfirði
Nú fer hver að verða síðastur að
tína gómsætan krækling í soðið
áður en of hlýtt verður. Á laugar-
daginn sameinast Ferðafélag
barnanna, Ferðafélag Íslands
og Háskóli Íslands í kræklinga-
ferð í Hvalfjörð. Byrjað verður á
því að fræðast um kræklinginn
og svo verður tínt og safnað en
líka smakkað því. Kveikt verður á
prímus í flæðarmálinu til að sýna
hvernig gott er að elda þennan
dásemdarmat.
Gísli Már, sem er prófessor við
Líf- og umhverfisvísindadeild Há-
skóla Íslands, og Halldór Pálmar,
forstöðumaður Rannsóknaseturs
Háskóla Íslands á Suðurnesjum,
leiða ferðina á slóðir kræklingsins
við Fossá í Hvalfirði.
Þátttakendur mæti í stígvélum
og taki með sér ílát fyrir krækling.
Brottför: Kl. 9.45 á einkabílum
frá Öskju, náttúrufræðahúsi Há-
skóla Íslands. Þátttaka er ókeypis
og allir velkomnir.
Í snjóhúsi í
Tindfjöllum
Á meðan sumir vilja sitja páskana
af sér í upphituðum sumarbústað
við súkkulaði- og lambakjötsát
kjósa aðrir að verja fríi sínu á
ögn meira krefjandi hátt, berjast
áfram á gönguskíðum, beita ísöx-
um og mannbroddum til að klífa
ísaða fjallstinda og sofa í snjóhúsi
þess á milli.
Harðhausum landsins og öll-
um hinum sem vilja prófa eitt-
hvað nýtt og ævintýralegt stendur
til boða að taka þátt í hinni full-
komnu vetrarfjallamennskuferð
núna um páskana. Farið verður í
Tindfjöll í alls konar vetrar ævintýri
– tindar toppaðir, snjóhús gerð,
fræðst um snjóflóð og gengið á
gönguskíðum. Gist verður í snjó-
húsum, tjöldum eða inni í skála.
Nánari upplýsingar á fi.is
L
augavegurinn sem liggur
milli Landmannalauga og
Þórsmerkur er án efa fræg-
asta og vinsælasta gönguleið
landsins. Leiðin er að jafnaði
gengin á fjórum dögum og hefst í
Landmannalaugum. Þaðan er geng-
ið í Hrafntinnusker, þá í Álftavatn
eða Hvanngil og svo í Emstrur og
ferðin endar í Þórsmörk. Á leiðinni
gista ferðalangar í skálum Ferða-
félags Íslands eða á tjaldstæðum á
þeim gististöðum sem nefndir hafa
verið. Hinn hefðbundni Laugaveg-
ur er 55 kílómetra langur svo af því
má ráða að þegar deilt er á fjóra
daga eru dagleiðir ekki mjög langar.
Margir ganga með allan sinn farang-
ur á bakinu en afar vinsælt er að fara
svokallaðar „trússferðir“. Þá er far-
angur og matur ferðalanga fluttur á
bílum í hvern náttstað fyrir sig og því
þurfa þeir einungis að bera nesti til
dagsins og skjólfatnað. Af þessum
sökum er Laugavegurinn gönguleið
sem flestir göngugarpar á öllum
aldri geta farið án þess að leggja of
hart að sér.
„Hinn óeiginlegi Laugavegur“
En til eru aðrir Laugavegir en hinn
hefðbundni. Undanfarin ár hefur
Ferðafélag Íslands efnt til göngu-
ferða eftir leið sem kölluð er: „Hinn
óeiginlegi Laugavegur“. Þá er ferð-
ast milli Landmannalauga og Þórs-
merkur á fjórum dögum og gist í
Hrafntinnuskeri, Hvanngili, Emstr-
um og Langadal. Gengnar eru
fáfarnar slóðir um Jökulgil, Reykja-
fjöll, Torfajökul, Kaldaklof, Súlu-
hryggi, Almenninga, Fauskatorfur
og fleiri staði sem fáir göngumenn
heimsækja. Á hverju kvöldi koma
svo göngumenn inn á hinn fjölfarna
hefðbundna Laugaveg og gista í
skála en allur farangur er fluttur. Það
voru Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa
Sigrún Jónsdóttir, fararstjórar hjá
Ferðafélagi Íslands, sem skipulögðu
þessa óvenjulegu gönguleið og hafa
sinnt henni undanfarin ár.
Hinn óeiginlegi Laugavegur er
nærri 80 kílómetrar að lengd og
nokkuð erfiðari en hinn hefðbundni.
Oft þarf að klífa brattar brekkur,
þvera kröpp gil og vaða ár við erfiðar
aðstæður svo þessi ferð gerir meiri
kröfur til úthalds og hörku ferða-
langa en hin venjulega leið.
Örfá sæti laus um
verslunarmannahelgina
Hinn óeiginlegi Laugavegur verður
genginn í sumar og hefur verslun-
armannahelgin orðið fyrir valinu.
Þarna gefst því einstakt tækifæri til
þess að komast undan látlausum
fréttaflutningi um umferðina og
veðrið sem enginn hefur áhuga á
og verja frekar fjórum dögum á afar
fáförnum og sjaldséðum slóðum á
Fjallabaki.
Á leið ferðalanga verða fáséð nátt-
úruundur á borð við kolsýruhveri og
tvílitan foss að ógleymdum hinum
ótrúlegu ölkeldum sem leynast í gilj-
unum bak við Háskerðing í Kalda-
klofsfjöllum. Sá sem hefur kropið
þar niður og bergt af kaleik sjálfr-
ar náttúrunnar, ískalt og svalandi
ölkelduvatn, verður eftir það tengd-
ur landinu sterkari böndum en áður.
Með fullum þægindum
Óeiginlegi Laugavegurinn er trúss-
aður sem þýðir að allur farangur
og matur er fluttur milli skála fyr-
ir ferðalangana sem ganga aðeins
með léttan dagpoka yfir daginn. Það
eru áhrifamikil viðbrigði að ganga
allan daginn án þess að sjá slóðir
eða aðra göngumenn umfram hóp-
inn sem er á ferðinni en koma síðan
að kvöldi dags í fjölþjóðlegan ys og
þys í skálanum.
Daginn eftir lesta göngumenn
sig á hinum hefðbundna Lauga-
vegi en hinir hverfa aftur á vit hins
óþekkta og fáfarna.
Að vanda eru það Páll Ásgeir
Ásgeirsson og Rósa Sigrún
Jónsdóttir sem stýra förinni. Þau
hjónin eru reyndustu fararstjórar
Ferðafélagsins og meðal víðförlustu
Íslendinga um eigið land og þekkja
leyndardóma þess flestum öðrum
betur.
Enn eru nokkur sæti laus í þessa
ævintýraferð og hægt að setja sig í
samband við Ferðafélag Íslands með
því að hringja í síma 568-2533 eða
senda póst á netfangið: fi@fi.is n
Hinn óeiginlegi
Laugavegur
n Um afkima og leyndardóma Fjallabaks n Fáséð náttúruundur
Háskaslóðir Göngumenn
við frussandi hver við Háu-
hveri efst í Reykjafjöllum.
Þorstanum svalað Gengið til altaris við
ölkeldurnar austan Háskerðings.
Náttúruperla Á Uppgönguhrygg á leið
ofan í Jökulgil. Torfajökull er í baksýn.
Á niðurleið Göngumenn feta sig eftir Uppgönguhrygg á leið í Hattver.
Fagur foss Hópur við Tvílitafoss í
afskekktu gili skammt frá Háuhverum.