Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Qupperneq 50
Helgarblað 11.–14. apríl 201450 Sport
Misheppnuð
stjóraskipti
n Flest stjóraskiptin í enska boltanum í vetur hafa ekki skilað tilætluðum árangri
Chris Hughton varð á dögunum níundi knattspyrnustjórinn í ensku úrvalsdeildinni til að missa starf sitt eftir að hann var rekinn frá
Norwich. Félög grípa oft til örþrifaráða til að tryggja sæti sitt í deildinni og sitt sýnist hverjum um það. Staðreyndin er sú að tölurnar tala
sínu máli. Breska blaðið Daily Mail fjallaði á dögunum um þá knattspyrnustjóra sem hafa verið reknir í vetur og lagði mat á það hvort
stjóraskiptin hafi skilað árangri eða ekki. Miðað við niðurstöður Daily Mail hafa langflest stjóraskiptin í vetur ekki skilað tilætluðum árangri.
1 Chris HughtonStjóri Norwich
Rekinn: 4. apríl
n Norwich ákvað að gefa Hughton
sparkið eftir tap gegn West Brom
um liðna helgi. Ákvörðunin kom
nokkuð á óvart enda er lítið eftir af
tímabilinu og Norwich-liðið fimm
stigum frá fallsæti þegar fimm
umferðir eru eftir. Við starfinu tók
unglingaliðsþjálfarinn Neil Adams
og fær hann það verðuga verkefni
að tryggja sæti Norwich í deildinni.
Verkefnin framundan eru risastór;
leikir gegn Liverpool, Manchester
United, Chelsea og Arsenal. Tíminn
einn mun leiða í ljós hvort stjóra-
skiptin heppnuðust.
2 Rene MeulensteenStjóri Fulham
Rekinn: 14. febrúar
n Rene Meulensteen tók við Ful-
ham-liðinu í desember síðastliðnum
af Martin Jol. Meulensteen entist
ekki lengi í starfi og var rekinn 14.
febrúar síðastliðinn. Við starfinu
tók Felix Magath sem varð þar með
fyrsti Þjóðverjinn til að taka við liði
í ensku úrvalsdeildinni. Undir stjórn
Magath hefur Fulham fengið sex
stig í sjö leikjum og bendir flest til
þess að liðið falli úr deildinni í vor.
Liðið er í 18. sæti, fimm stigum á
eftir Norwich sem er í 17. sætinu.
Óhætt er að segja að stjóraskiptin
hafi ekki skilað tilætluðum árangri
og spurning hvort
Fulham-menn
hefðu ekki bara
átt að halda sig við
Martin Jol.
3 Michael LaudrupStjóri Swansea
Rekinn: 4. febrúar
n Swansea hafði ekki átt neitt
sérstakt tímabil þegar Laudrup
var látinn taka pokann sinn. Besti
maður liðsins, Michu, hafði glímt
við meiðsli nánast allt tímabilið,
en samt sem áður var staða liðsins
þokkaleg; 12. sæti með 24 stig úr 24
leikjum. Garry Monk tók við starfinu
af Laudrup og má segja að staða
liðsins hafi versnað síðan hann tók
við. Swansea hefur nú fengið 33 stig
úr 33 leikjum en er fallið niður í 15.
sæti deildarinnar. Liðið er sex stig-
um frá fallsæti og alls ekki öruggt
með sæti í
úrvalsdeildinni
næsta vetur.
4 Malky MackayStjóri Cardiff
Rekinn: 27. desember
Mackay var ekki rekinn úr starfi
knattspyrnustjóra Cardiff vegna
lélegs árangurs, miklu frekar vegna
þess að hann og eigandi félagsins,
hinn litríki Vincent Tan, áttu ekki
samleið lengur. Þegar Mackay var
rekinn var Cardiff-liðið vissulega
í fallbaráttu, en þó ekki í fallsæti.
Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær
var ráðinn til félagsins en undir hans
stjórn hefur Cardiff-liðið tapað níu
af fjórtán leikjum og viðurkennir
Solskjær að liðið þurfi kraftaverk til
að halda sér í deildinni. Cardiff er í 19.
sæti deildarinnar með 26 stig, sex
stigum frá öruggu sæti.
Hefði Mackay fengið
að klára tímabilið væri
liðið að öllum líkindum í
betri stöðu en það er í.
5 Andre Villas-BoasStjóri Tottenham
Rekinn: 16. desember
Andre Villas-Boas, sem áður var
knattspyrnustjóri Chelsea, var
rekinn frá Tottenham eftir slæm töp
í deildinni, þar á meðal 6–0 gegn
Manchester City og 5–0 gegn Liver-
pool á heimavelli. Þann 16. desember
var Tottenham-liðið samt í þokka-
legum málum í deildinni, 5 stigum
frá Meistaradeildarsæti og 8 stigum
frá toppsætinu. Tim Sherwood tók
við starfinu og lofaði byrjun hans
góðu. Nú þegar lítið er eftir af mótinu
á Tottenham litla möguleika á
Meistaradeildarsæti. Segja má að
árangur Sherwoods hingað til sé á
pari við árangur Villas-
Boas sem er væntanlega
ekki það sem Daniel Levy
og stjórnendur Tottenham
höfðu vonast eftir.
6 Steve ClarkeStjóri West Brom
Rekinn: 14. desember
West Brom var tveimur stigum frá
fallsæti þegar Steve Clarke fékk
sparkið skömmu fyrir jól. Við starfinu
tók tiltölulega óþekktur Spánverji,
Pepe Mel. Þótt West Brom sé enn í
neðri hluta deildarinnar virðist liðið
vera sloppið við fall – og til þess
var leikurinn gerður hjá stjórn West
Brom. Liðið er sem stendur í 16. sæti
úrvalsdeildarinnar, fimm stigum frá
fallsæti, og á auk þess leik til góða á
flest liðin í kringum sig. Þótt árangur
liðsins í vetur hafi valdið vonbrigðum
verður ekki annað sagt en að stjóra-
skiptin hafi heppnast, sé litið til
stöðu liðsins
í dag og
þegar Clarke
var rekinn.
7 Martin JolStjóri Fulham
Rekinn: 1. desember
Eins og fjallað er um í kaflanum
um Rene Meulensteen hefðu
Fulham-menn að líkindum bara
átt að halda sig við reynsluboltann
Martin Jol. Staðreyndin er einföld;
Fulham-liðið er ekkert sérstak-
lega vel mannað og miðað við
leikmannahópinn er eðlilegt að
liðið sé í botnbaráttu. Jol var samt
sem áður rekinn eftir fimm tapleiki
í röð og arftakinn, Meulensteen,
var rekinn eftir fjóra sigurleiki af
sautján. Hvort Jol hefði tekist að
halda Fulham í deildinni skal ósagt
látið, en árang-
ur liðsins væri
varla lakari
en undir stjórn
Meulensteens
og Magaths.
8 Ian HollowayStjóri Crystal Palace
Rekinn 23. október
Það kom kannski ekki sérstaklega
á óvart að forsvarsmenn Crystal
Palace skyldu ákveða að reka hinn
viðkunnanlega Ian Holloway. Liðið
hafði einungis unnið einn af fyrstu
níu leikjum sínum í deildinni og var
fimm stigum frá öruggu sæti. Við
starfinu tók Tony Pulis, fyrrverandi
stjóri Stoke. Undir hans stjórn
hefur Crystal Palace náð flottum
árangri og er nánast öruggt með
sæti í deildinni. Liðið er í 14. sæti, sjö
stigum frá fallsæti. Stjóraskiptin
gengu fullkomlega upp.
9 Paolo Di CanioStjóri Sunderland
Rekinn: 22. september
Ítalinn litríki var rekinn úr starfi eftir
að liðið hafði aðeins fengið eitt
stig úr fyrstu fimm leikjum sínum.
Ákvörðunin kom ekki á óvart enda
hafði Sunderland farið mikinn á
leikmannamarkaðnum um sumarið
og sankað að sér leikmönnum. Gus
Poyet tók við starfinu af Ítalanum
og þótt liðið hafi átt ágæta spretti
undir hans stjórn er liðið í botnsæti
úrvalsdeildarinnar með 25 stig. Ekki
er öll nótt úti enda á liðið sjö leiki
eftir meðan flest liðin fyrir ofan
eiga fimm leiki eftir. Hafi markmið
Sunderland-manna
verið að halda liðinu
í deildinni hafa
stjóraskiptin mis-
heppnast, enn sem
komið er allavega.
Óvíst Mistök
Mistök
Mistök Mistök
Mistök
Mistök
Heppnaðist
Heppnaðist
einar@dv.is