Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Qupperneq 51
Helgarblað 11.–14. apríl 2014 Sport 51
City spilar til
sigurs á Anfield
n Rodgers, þjálfari Liverpool, undirbýr liðið vel fyrir stórleik helgarinnar n Chelsea ekki úr leik
K
nattspyrnuáhugamenn bíða
í ofvæni eftir að sunnu-
dagurinn renni upp en þá
tekur Liverpool, topplið
ensku úrvalsdeildarinnar, á
móti Manchester City á Anfield. Þeir
rauðklæddu eiga aðeins fimm leiki
eftir af deildinni og eru einir í efsta
sæti með 74 stig. City-menn eru í 3.
sæti með 70 stig en eiga þó tvo leiki
til góða á toppliðið. Vinni Liver-
pool þá leiki sem það á eftir er ljóst
að Steven Gerrard, fyrirliði liðsins,
hampar Englandsmeistaratitlinum í
fyrsta skipti á ferlinum.
Toppslagur í Liverpool
„Andrúmsloftið mun verða raf-
magnað,“ segir Brendan Rodgers,
knattspyrnustjóri Liverpool, í að-
draganda leiksins en víðfrægir
stuðningsmenn félagsins hafa tekið
við sér svo um munar á síðastliðn-
um vikum. „Ég leyfi mér þó aðeins
að hugsa um næstu æfingu. Ég þarf
að undirbúa liðið vel og sjá til þess
að æfingavikan fyrir leikinn verði
góð.“
Um síðustu helgi bar Manchester
City sigurorð af Southampton
á heimavelli sínum, 4–1. Spila-
mennska City-manna þótti afar
sannfærandi, sérstaklega í seinni
hálfleik, og virtust þeir ekki þurfa
að hafa mikið fyrir hlutunum.
Manuel Pellegrini tók við stjórn
liðsins í fyrrasumar eftir að hafa stýrt
spænska liðinu Málaga í þrjú ár.
Þar áður sat hann við stjórnvölinn
hjá stórstjörnunum í Real Madrid.
Pellegrini, sem vill síður taka þátt í
sálfræðistríðum eins og kollegi sinn
hjá Chelsea, segir við fjölmiðla að
það sé ekki í boði að koma á Anfield
til þess að verja stigið.
„Við spilum til sigurs,“ útskýrir
Pellegrini. „Ef þú spilar upp á jafn-
tefli þá tapar þú.“ Svo einfalt er það.
Chelsea þarf sigur í Wales
Jose Mourinho, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, hefur talað lið sitt
ítrekað niður í vetur. Hann segir
að Chelsea-liðið þurfi lengri tíma
til þess að það verði jafn sterkt og
vilji stendur til. Það dylst þó eng-
um um að ef Mourinho eygir von
um að bæta við titli í safnið ger-
ir hann allt til þess að tryggja sér
hann. Staðan er sú að Chelsea situr
í 2. sæti, tveimur stigum á eftir Liver-
pool, og á góðan möguleika á að
verða Englandsmeistari. Liðið sæk-
ir Swansea heim á sunnudaginn en
flautað verður til leiks strax á eftir
toppslagnum.
Á laugardaginn tekur Fulham á
móti Norwich City í fallbaráttuslag
helgarinnar. Fulham er í 18. sæti á
meðan Norwich er fimm stigum á
undan í 17. sæti. Fulham verður því
að sigra til þess að geta saxað á for-
skot þeirra gulu.
Norwich hefur verið í sviðs-
ljósinu í vikunni vegna brottreksturs
Chris Hughton, knattspyrnustjóra
liðsins til tveggja ára, og ráðningar
Neil Adams í hans stað. Adams er
fyrrverandi leikmaður félagsins
og hefur stýrt unglingaliðum þess
með góðum árangri. David McNa-
lly, framkvæmdastjóri Norwich, seg-
ir að ef stuðningsmenn liðsins fylki
sér að baki hinum nýráðna stjóra sé
möguleiki á að enda tímabilið á já-
kvæðum nótum. n
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is
Hvað gerir Suarez?
Það má búast við
hörkuleik á Anfield á
sunnudaginn. Mynd ReuTeRS
Dreymdi að Liverpool
sigri í ensku deildinni
Spáir markaleik á sunnudaginn
„Það væri óskandi fyrir land og þjóð
að Liverpool tæki þetta,“ segir Gunnar
Sigurðarson, fjölmiðlamaður með
meiru, þegar blaðamaður slær á þráð-
inn til hans og spyr hann út í stórleik
helgarinnar. „Þeir eru rosalega margir,
Liverpool-stuðningsmennirnir, og þeir
eru nokkuð fáir sem eru aðdáendur
Manchester City.“
Gunnar, sem er harður stuðningsmaður
Ipswich á Englandi, hefur gaman af því
að sjá minni spámönnunum vegna vel.
„Mér hugnast það alltaf þegar litlu liðin
láta til sín taka. Það er tvímælalaust
Liverpool í þessu tilfelli. Þetta City-lið,
með allar þessar olíuleiðslur inn í
borgina, er ekki minn dansleikur.“
Gunnar er þess utan afar hrifinn af
leikstíl Liverpool-liðsins sem er afar
beinskeyttur og áhorfendavænn. Hann
segir Liverpool vera að spila „sinn
bolta“ í fyrsta skipti í mörg ár og það
sé vel. „Það eru allir á því að Liverpool-
boltinn sé ótrúlega skemmtilegur.
Það er gaman að horfa á hann,“ segir
Gunnar og bendir á síðustu leiki liðsins í
því samhengi.
„Mig dreymdi að Liverpool myndi vinna
ensku úrvalsdeildina. Því lýg ég ekki,“
segir Gunnar og greinir frá draumnum.
„Ég var staddur með félaga mínum
heima hjá mér og síðustu sekúndurnar
voru að fjara út í leik sem endaði með
því að Liverpool varð enskur meistari.
Ég fylltist einhverri þreytu yfir að allir
væru að fagna en að sama skapi var ég
ánægður með það.“
Aðspurður hvernig leikurinn muni fara
segir Gunnar það nánast ógerlegt að
spá fyrir um leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Það sé fegurðin við enska boltann.
„Engum lifandi manni með mælanlega
greindarvísitölu hefði dottið í hug að
spá fyrir um velgengni Liverpool í ár
fyrir tímabilið,“ nefnir hann máli sínu
til stuðnings. Hann ætlar þó að fylgja
draumnum og spáir Liverpool sigri í
leiknum.
„Ég spái 5–4 fyrir Liverpool,“ segir
Gunnar. „Þá sjaldan sem mig dreymir
fótbolta hefur það oftast ræst.“
Galdramaður með knöttinn
Hazard hefur verið frábær í blárri
treyju Chelsea í vetur. Mynd ReuTeRS
Harður stuðningsmaður
Ipswich Gunnar Sigurðarson
fjölmiðlamaður.
Toppliðin eiga
þessa leiki eftir
1 Liverpool – 74 stig
Manchester City (h)
Norwich (ú)
Chelsea (h)
Crystal Palace (ú)
Newcastle United (h)
2 Chelsea – 72 stig
Swansea (ú)
Sunderland (h)
Liverpool (ú)
Norwich (h)
Cardiff City (ú)
3 Manchester City – 70 stig
Liverpool (ú)
Sunderland (h)
WBA (h)
Crystal Palace (ú)
Everton (ú)
Aston Villa (h)
West Ham (h)