Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Qupperneq 54

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Qupperneq 54
Helgarblað 11.–14. apríl 201454 Menning Sjálfstæður myndlistarbóndi n Tolli opnar glæsilegt gallerí á Laugavegi n Fagnaði með vinum L istamaðurinn Tolli er hæst­ ánægður, eigin herra í nýopnuðu galleríi á Lauga­ vegi 19. Tolli bauð gestum til veislu í gær, fimmtudags­ kvöld, og fagnaði áfanganum en galleríið er rekið af honum sjálfum og fjölskyldu. Í því verða einungis sýnd og seld verk eftir hann. Blaðamaður rak inn nefið og tók listamanninn tali en Tolli er lands­ kunnur fyrir túlkun sína á íslensku landslagi en ekki síður ást sína á náttúrunni. „Ég hef lengi þráð þetta sjálf­ stæði og viljað tengja mig betur við þá sem skoða og kaupa list. Hér má hitta mig og kaupa íslenska mynd­ list „beint af bónda“,“ segir hann og hlær. „Ég hef gjarnan boðið fólki til mín á vinnustofuna og geri það enn þótt að ég hafi opnað þetta gallerí enda mörg verka minna það stór að þau komast ekki einu sinni hingað inn.“ Það sem vakir fyrir Tolla fyrir utan að gefa fólki greiðari aðgang að listinni er að bjóða erlendum ferðamönnum borgarinnar að skoða list sem helguð er landslags­ verkinu. „Hér í miðborginni er líf­ ið að glæðast fyrir tilstilli erlendra ferðamanna. Andinn í miðbænum hefur breyst töluvert, verslanir sjá hag sinn í að bjóða ferðamönnum ýmsan varning, hönnun og minja­ gripi. Mér hefur fundist vanta fleiri gallerí þar sem ferðamenn geta skoðað list sem tengir þá einnig við íslenskt landslag. Við bjóðum þeim upp á mjög góða þjónustu, þegar þeir snúa aftur til heima­ landsins líða aðeins nokkrir dagar þar til listaverkið er komið heim að dyrum.“ Gallerí Tolla á Laugavegi 19 verður opið frá 13 til 18 alla daga. n Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is FREYJU UPPLIFÐU ÆVINTÝRIÐ Á FREYJUHEIMUR.IS Ný ljóðabók frá Þórarni Eldjárn Þórarinn Eldjárn hefur sent frá sér ljóðabókina Tautar og raular. Bók­ in geymir um 70 fjölbreytt ljóð, flest frumort og ný en einnig fáein þýdd. Efnið skiptist í fjóra nokkuð ólíka hluta: óbundin ljóð og hátt­ bundin, prósaljóð og þýðingar. Þetta er tíunda ljóðabók Þórarins ef frá eru taldar alkunnar barna­ ljóðabækur hans og Kvæðasafn. Fyrsta bók Þórarins, ljóðabókin Kvæði, kom út árið 1974 og æ síð­ an hefur hann verið í hópi virtustu og vinsælustu höfunda þjóðarinn­ ar. Hann hefur gefið út tugi bóka: ljóðabækur fyrir börn og full­ orðna, smásagnasöfn, skáldsögur og aðra texta af ýmsu tagi, ásamt margvíslegu þýddu efni. „Góður strákur en þú getur ekkert skrifað!“ „„Þú ert góður strákur en þú get­ ur ekkert skrifað!“ kallaði Dagur Sigurðarson einu sinni til mín yfir allt Mokka. Nú hefur íslenska þjóðin tekið undir það mat,“ seg­ ir Guðmundur Andri Thorson rithöfundur sem komst ekki á blað á sérstökum lista sem bók­ menntaþátturinn Kiljan birti ný­ verið. Á listanum eru taldar upp bestu bækur og höfundar Íslands að mati álitsgjafa Kiljunnar. Fúllyndir haldi sig fjarri E ftir að hafa notið mikillar velgengni í útvarpi og leik­ húsi eru einkaspæjararnir Harry Rögnvalds og Heimir Snitzel mættir á hvíta tjaldið í kvik­ myndinni Harrý og Heimir ­ Morð eru til alls fyrst. Ég verð að viður­ kenna að skemmti mér stórkost­ lega á köflum yfir hverjum fimm aura brandaranum á fætur öðrum. Það er nokkurn veginn myndin í hnotskurn. Það er að vísu sögu­ þráður en hann skiptir nánast engu máli fyrir myndina. Í grófum drátt­ um eru Harrý og Heimir að leita uppi skúrk sem ætlar sér að stela íslenska hálendinu og flytja það til Danmerkur. Myndin á sína allra bestu spretti þegar hún fylgir ekki þessari sögu. Aðstandendur myndarinnar tóku þá lofsamlegu ákvörðun að taka sig á engum tímapunkti alvarlega. Þetta gefur myndinni svo afslappað yfirbragð að áhorfandinn gerir lítið annað en að skemmta sér yfir þeirri vitleysu sem er borin fram á hvíta tjaldinu. Karl Ágúst Úlfsson og Sig­ urður Sigurjónsson eru eins og vel smurðar vélar í sínum hlutverkum eftir að hafa verið með þau í poka­ horninu í rúma tvo áratugi. Svandís Dóra Einarsdóttir gefur þeim lítið eftir í fíflaganginum og Örn Árna­ son er óborganlegur í öllum sínum hlutverkum. Þeir sem vonast eftir einhverju þrekvirki á sviði kvikmyndagerð­ ar ættu að forðast þessa mynd. Þeir sem eru að leita sér að frábærri skemmtun fyrir fjölskylduna ættu óhikað að fjölmenna á þessa mynd sem mun óneitanlega gleðja alla aðdáendur Harrýs og Heimis. n Harry og Heimir Sýnd í Háskólabíó, Laugarásbíó, Smárabíó og Borgarbíó Akureyri. Birgir Olgeirsson birgir@dv.is Dómur Margir litu við Fjölmargir lögðu leið sína til Tolla í góðviðri fimmtudags í Reykjavík. Mynd SiGtryGGur Ari Bóndi í borginni Tolli selur myndlist „beint af býli“ á Laugaveginum. Mynd SiGtryGGur Ari Góðir gestir Góðir gestir fögnuðu opnun gallerísins með Tolla. Mynd SiGtryGGur Ari Fjölskyldan rekur fyrirtækið Tolli og fjölskylda reka galleríið sem er vel staðsett, á Laugavegi 19, til móts við Mál og menningu. Mynd SiGtryGGur Ari
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.