Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Síða 60
60 Fólk Helgarblað 11.–14. apríl 2014
Hatar
gælunafnið
Leikkonan Scarlett Johansson
sagðist í viðtali við Glamour
Magazine á dögunum að hún
bókstaflega hati gælunafnið
„ScarJo“, sem fjölmiðlar hafa
stundum nefnt hana. „Ég tengi
þetta nafn við poppstjörnur
og slíkt. Það er eitthvað letilegt
við það, jafnvel ofbeldislegt og
móðgandi,“ sagði Scarlett í við-
talinu. Johansson leikur í tveim-
ur nýjum myndum núna, fram-
haldsmynd Captain America og
Under the Skin. Leikkonan hefur
í nógu að snúast en hún á einnig
von á barni á næstunni með
unnusta sínum, blaðamanninum
Romain Dauriac.
Beckham-
feðgar í
ræktinni
David Beckham og sonur hans,
hinn fimmtán ára gamli Brook-
lyn, komu löðrandi sveittir út úr
líkamsræktarstöð í Brentwood í
Kaliforníu í vikunni. Þeir tóku vel
á því og er ljóst að David Beck-
ham heldur sér í góðu formi eftir
að hafa hætt knattspyrnuiðkun í
fyrravor. Feðgarnir stigu fæti inn
í stórglæsilega bifreið sem lagt
var fyrir utan stöðina og keyrðu
á veitingastað í nágrenninu þar
sem þeir fengu sér „smoothie“ og
salat til þess að hlaða batteríin.
L
eikkonan Amanda Bynes lét
lögfræðing sinn senda frá sér til-
kynningu á dögunum þar sem
hann þvertekur fyrir að leik-
konan sé með geðklofa. Leikkonan
var handtekin fyrir tæpu ári fyrir að
kasta hasspípu út um glugga á íbúð
sinni á 36. hæð. Í kjölfarið var leik-
konan lögð inn á sjúkrahús vegna
geðrænna vandamála. „Til að það
sé á hreinu, þá var hún aldrei greind
með geðklofa,“ sagði lögfræðingur
leikkonunnar í tilkynningu. Hann
sagði einnig að leikkonan væri á
beinu brautinni og hafi ekki neytt
eiturlyfja í níu mánuði. n
Systkini stór-
stjarnanna
n Rihanna keypti einbýlishús fyrir bróður sinn n Bieber slakar á með litla bróður
Saman á verðlaunahátíð árið 2012 Justin
Bieber hefur átt erfitt með
að þola sviðsljósið undanfarin ár. Til þess a
ð hverfa frá amstrinu sem fylgir
frægðinni heimsækir Bieber fjögurra ára ga
mlan bróður sinn, Jaxon Viddy, og
eyðir tíma með honum. Bieber er afar góðu
r við litla bróður sinn og passar upp
á hann þegar þeir fara út á meðal almennin
gs.
Leiðist
ekki gott
samkvæmi
Rorrey Fenty,
yngri bróðir
Rihönnu, fékk
stórglæsilegt
einbýlishús að
gjöf frá systur
sinni árið 2012.
Þá hefur söng
konan vinsæla
hjálpað bróður
sínum að hefja
sinn eigin rapp
feril. „Rihanna
er mjög náin
bróður sínum
og myndi gera
hvað sem er
til að hjálpa
honum,“ sagði
fjölskylduvinur
við Daily Star.
Rekur tölvu-
fyrirtæki
Á sama tíma og
Brad Pitt sækir
verðlaunahátíðir í
kvikmyndaheim
inum sér Doug,
yngri bróðir hans,
um rekstur tölvu
fyrirtækis sem er
í eigu stórfjöl
skyldunnar. Doug
hefur vegnað vel
á framabrautinni
án þess að Brad
þurfi að rétta
honum hjálpar
hönd.
Stefnir langt í rallinu James, yngri bróðir Rupert Grint, skartar ekki rauðum lokkum eins og stóri bróðir hans. Rupert Grint sló í gegn í hlutverki Ron Weasly í myndunum um galdrastrákinn Harry Potter á meðan James dreymdi um að verða ökumaður í ralli. James er á fullu í rallinu í dag og stefnir á heimsmeistaratitilinn.
Segist ekki vera
með geðklofa