Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Side 62
Helgarblað 11.–14. apríl 201462 Fólk
Leikritið Unglingurinn verður sett upp í Noregi í sumar
Þ
að var bara hringt í okkur
og við beðin um að koma,“
segir Björk Jakobsdóttir,
leikstjóri leikritsins Ung-
lingsins sem hefur verið
mjög vinsælt síðan það var sett
upp í október í Gaflaraleikhúsinu
í Hafnarfirði. Æskulýðsfélag ís-
lenska safnaðarins í Noregi, sem
er hluti af Þjóðkirkjunni, hafði
samband við hópinn og bauð hon-
um að koma og setja verkið upp í
Noregi.
Björk ætlar ásamt Óla Gunnari
Gunnarssyni og Arnóri Björnssyni,
stjörnum sýningarinnar, að halda
sýningar á fjórum stöðum í Noregi
í sumar. Sýningarnar verða haldn-
ar snemma í júní í Bergen, Stavan-
ger, Kristianssand og Ósló.
Skemmtilegra en
að hanga á hóteli
Hópurinn leitaði nýlega á náðir
Íslendinga í Noregi um að hýsa
leikhópinn á ferðalaginu og við-
brögðin létu ekki á sér standa. „Ég
vil bara þakka Íslendingum í Nor-
egi kærlega fyrir frábær viðbrögð á
Facebook þegar við vorum að leita
að gistingu. Það er ótrúlegt hvað
það er gott lið sem býr í Noregi,
það bara rigndi inn boðum. Svo er
líka miklu skemmtilegra að fara til
Noregs og hitta fólk í staðinn fyr-
ir að hanga einhvers staðar á rán-
dýru norsku hóteli,“ segir Björk.
Björk segir margt skemmtilegt
vera í farvatninu eftir að sýningum
á verkinu lýkur. „Svo er búið að
taka Unglinginn upp og hann
verður vonandi sýndur í sjónvarp-
inu núna næsta haust. Þannig að
þetta er búið að vera svo gaman
og svo mikið ævintýri. Við erum að
nálgast 10.000 áhorfendur á þessa
litlu sætu unglingasýningu,“ segir
hún.
Alls ekki bara fyrir unglinga
„Þeir skrifuðu þetta sjálfir. Það var
mjög fyndið þegar fólk mætti á
frumsýninguna með svona með-
virknisvip. En svo held ég að þeir
hafi komið fólki svakalega á óvart.
Annar þeirra tengist mér náttúru-
lega þannig að ég hefði aldrei farið
að gera þetta nema af því að hand-
ritið þeirra var bara alveg brilljant,“
segir Björk en Óli Gunnar er sonur
hennar. Hún segir leikritið vera
ferska nálgun á málefni unglinga.
„Það er allt of oft sem við erum að
skrifa þetta eins og eitthvert full-
orðins-forvarnar-fussumsvei,“
segir Björk og hlær.
„Það er algjör misskilningur að
þetta sé bara fyrir unglinga. Ég vil
endilega hvetja alla fjölskylduna
til að mæta, fullorðnir hafa ekki
minna gaman af þessu, þetta er
bara fyrir átta ára og upp úr,“ segir
Björk.
„Ég hef nú á tilfinningunni
að þessu sé ekki lokið hjá þeim.
Þeir eru töluvert beðnir um að
skemmta þannig að maður er nú
í óða önn að bóka þá á hinar og
þessar skemmtanir. En miðað við
hversu skapandi þeir eru hef ég
enga trú á því að þeir séu hættir.“
Björk segir þau afar þakklát
fyrir hversu vel þeim hefur verið
tekið. „Við viljum bara þakka fyrir
frábærar undirtektir og þá sérstak-
lega unglingum á Íslandi. Þetta
er frábær dýrategund, íslenskir
unglingar. Allt þus um að heimur
versnandi fari getur ekki verið satt,
miðað við þessa unglinga sem við
erum með,“ segir hún að lokum. n
„Íslenskir unglingar
frábær dýrategund“
Jón Steinar Sandholt
jonsteinar@dv.is
„Það er allt of oft
sem við erum að
skrifa þetta eins og eitt-
hvert fullorðins-forvarn-
ar-fussumsvei.
Unglingarnir í útrás
Óli Gunnar Gunnarsson,
Björk Jakobsdóttir og
Arnór Björnsson setja
upp leikritið Unglinginn
fyrir Íslendinga í Noregi.
Mynd ÞORRI
Vinsæll fyrir vestan
Mugison hefur alltaf leikið á
Aldrei fór ég suður.
Spilar hugsanlega á Aldrei fór ég suður
Átti upphaflega að vera erlendis með Dröngum um páskana
Þ
að stóð til að ég væri úti
þessa páskana með Dröng-
um sem var ástæðan fyrir
því að ég ákvað að draga
mig í hlé,“ segir tónlistar-
maðurinn Örn Elías Guðmunds-
son, betur þekktur sem Mugi son,
sem er ekki meðal listamanna á
tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég
suður á Ísafirði í ár. Fyrirhugað-
ir tónleikar með Dröngum féllu
þó niður og því verður Mugison
staddur fyrir vestan um páskana.
Kristján Freyr Halldórsson,
einn af aðalskipuleggjendum há-
tíðarinnar, segir Mugison eiga
mikið í Aldrei fór ég suður en hann
stofnaði hátíðina ásamt föður sín-
um árið 2003. Tónlistarmaðurinn
kunni hefur hingað til spilað á
hverri einustu hátíð frá upphafi. En
er möguleiki á að Mugison bætist
í hóp listamanna þar sem tónleik-
arnir með Dröngum féllu niður?
„Það er ekkert lokað fyrir það,“
segir Kristján Freyr dulur. „Mér
finnst ákaflega gott að vita af
honum þarna. Ég játa því hvorki né
neita að það geti komið til þess.“
Mugison segist vera opinn fyrir
því að spila á hátíðinni úr því sem
komið er. „Ég hugsa að ég fái alla-
vega að taka Gúanó stelpuna á
kassagítarinn,“ segir Mugison en
Gúanó stelpan er einkennislag há-
tíðarinnar. n
ingosig@dv.is
Vilborg stefnir
á toppinn
Vilborg Arna Gissurardóttir er
nú á leið upp Everest í Nepal.
Komist hún á leiðaraenda verð-
ur hún fyrst íslenskra kvenna
til þess. Á miðvikudag var hún í
hæðaraðlögun, en hún hafði þá
náð 4.200 metra hæð á fjallinu og
var í Pherichie-búðunum. Hæðar-
vandamál gera oft vart við sig
eftir að fólk kemst í 4.000 metra
hæð, en þau ætluðu sér að vera
í búðunum í tvo daga og hefja
ferðina aftur upp fjallið á föstu-
dag. „Héðan eru svo fimm dagar
upp base camp,“ segir Vilborg
Arna í ferðapistli á heimasíðu
sinni sem þýðir að hún ætti að ná
á toppinn fyrir páska. Hún segist
bera „óendanlega virðingu“ fyrir
Everest og segir það afar fallegt
fjall en að þetta sé mikil áskorun.
Draumur
um árshátíð
Theódóra Mjöll Skúladóttir Jack,
hárgreiðslukona og umsjónar-
maður sjónvarpsþáttarins Lífs-
stíll sem sýndur er á Stöð 3, segist
hafa verið mjög spennt þegar hún
fékk boð á árshátíð 365 miðla í
hádeginu sama dag og árshátíðin
var haldin um síðustu helgi. „Alla
mína ævi hefur mig dreymt um
að vinna hjá stórfyrirtæki BARA til
þess að geta farið á flotta árshá-
tíð!“ sagði Theódóra á bloggsíðu
sinni á heimasíðunni Trendnet.
Þar greinir hún frá því að Friðrika
Hjördís Geirsdóttir og Skúli Mog-
ensen hafi haldið veglegt fyrirpartí
fyrir árshátíðina á heimili sínu fyrir
starfsfólkið. „Nú hef ég ákveðið að
vinna eins lengi og ég get fyrir 365
til að komast á hverju ári á svona
fína árshátíð,“ segir Theódóra.
Glímdi við
ofskavíða
Heiðar Örn Kristjánsson, for-
sprakki Pollapönks og verðandi
Eurovison-fari, greinir frá því í Séð
og heyrt þessa vikuna að hann
hafi glímt við ofsakvíða sem ung-
ur maður. „Þegar ég var rúmlega
átján ára til tvítugs þá átti ég við
mikinn ofsakvíða að stríða. Fékk
erfið kvíðaköst sem leiddu til þess
að ég fór til geðlæknis til að leita
mér hjálpar sem mér fannst mjög
erfitt. Kvíðinn hefur sem betur
fer batnað til muna í dag,“ segir
Heiðar í viðtalinu. „Köstin komu
algjörlega án fyrirvara. Allt hring-
snérist og mér fannst ég vera að
deyja,“ segir hann en segist ekki
hafa viljað ræða þetta opinber-
lega fyrr, þar sem almenningur
hafi sýnt geðsjúkdómum lítinn
skilning og jafnvel fordóma. Hann
segir gríðarlega mikilvægt að fjalla
um fordóma, en sem kunnugt er
fjallar íslenska Eurovison-lagið
þetta árið einmitt um það að út-
rýma þurfi fordómum.