Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 2
Helgarblað 30. maí –2. júní 20142 Fréttir Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121 Algjört orku- og næringarskot „ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan eykst krafturinn yr daginn í vinnunni og ængar seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru jótari að ná sér eftir ængar. Það að taka auka Spirulina sem er lífrænt ölvítamín, fyrir leik er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er líka frábær vörn gegn kve og ensum.“ Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí. lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar TREYSTI Á LIFESTREAM BÆTIEFNIN! Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir og Fríhöfnin. F leiri íbúar við Goðatún í Garða- bæ kanna nú rétt sinn vegna skemmda á eignum sínum eftir að dómur féll sem gerði bæjar- yfirvöldum að greiða konu á níræðis- aldri bætur vegna framkvæmda bæj- arins sem skemmdu hús í hverfinu. Formleg og óformleg skoðun á hús- um eru nú í gangi og hyggjast íbúar leita réttar síns. Sævar Þór Jónsson, lögmaður konunnar og fleiri íbúa, segir að málið sé að vinda upp á sig, enda mikið hagsmunamál fyrir íbúa og bæjaryfirvöld. Um er að ræða framkvæmdir við Silfurtún í Garðabæ frá árinu 2008, en Goðatún og Silfurtún liggja að hvort öðru. Við framkvæmdirnar var grafinn þriggja metra djúpur skurður í mýr- lendi rétt við hús konunnar. Hús kon- unnar var reist á steyptri botnplötu og sökklum, enda byggt á svæði sem er þekkt mýrarsvæði. Framkvæmdirnar í Silfurtúni höfðu áhrif á grunnvatns- stöðu og húsið tók því að síga með til- heyrandi skemmdum. Konan er flutt úr húsinu enda var það óíbúðarhæft. Héraðsdómur komst að þeirri niður- stöðu að Garðabær hefði ekki kannað ástand svæðisins með nægilega góð- um hætti áður en framkvæmdirnar hófust og ekki tekið tillit til sérstöðu svæðisins. Dómur féll í desember en þá höfðu málaferlin staðið frá árinu 2010. Fleiri aðilar í hverfinu skoða nú stöðu sína og eru þrír umbjóðendur Sævars að vinna að rannsóknum á híbýlum sín- um og fleiri íbúar eru í óformlegu ferli. Slíkar rannsóknir taka langan tíma og eru kostnaðarsamar. „Hverfið er undirlagt, það má nánast segja það,“ segir Sævar. Garðabær áfrýjaði mál- inu og verður það tekið fyrir í Hæsta- rétti í haust. Augljóst er að málið varðar hags- muni margra. „Það er ekki boðlegt að búa í íbúðum sem eru svona á hreyf- ingu, það getur opnast niður í jarðveg. Og það er annar húseigandi sem hefur flutt úr sínu húsi. Hún treystir sér ekki vegna heilsufars að búa þar áfram.“ n astasigrun@dv.is „Hverfið er undirlagt“ Fleiri íbúar skoða stöðu sína eftir framkvæmdir í Garðabæ „Mjög ölvaðir unglingar“ Mikið var um tilkynningar um hávaða frá veitingahúsum og heimilum aðfaranótt fimmtudags og nokkuð var um ölvun að sögn lögreglu. Tveir ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu fyrir ölvunarakstur og tveir voru teknir við fíkniefnaakstur. Þá hafði lögreglan afskipti af skóladansleik á höfuðborgar- svæðinu, þar sem mikið var um „mjög ölvaða unglinga“ að sögn lögreglu, og þurftu nokkrir aðstoð við að komast heim. Tafðist vegna farbanns Ríkissaksóknari segir að ástæða þess að dráttur varð á málsmeð- ferðartíma í máli ákæruvaldsins gegn Einari Erni Adolfssyni og Finni Snæ Guðjónssyni sé ekki vegna anna hjá embættinu. Ákæra hafi verið gefin út í málinu þann 21. maí í fyrra, en lögreglan hafi vísað málinu til saksóknara í október 2012. Einar og Finnur voru ákærðir ásamt þriðja aðila fyrir að smygla rúmlega 30 þúsund e-töflum til landsins. „Við þingfestingu málsins 11. júní 2013 upplýsti verjandi eins sakborninganna að hann væri erlendis en væntanlegur til landsins í ágúst-september. Var aðalmeðferð í málinu ákveðin 11. október 2013. Í milliþing- haldi í málinu 4. september 2013 upplýsti verjandi sakbornings- ins sem hafði verið erlendis við þingfestinguna að hann sætti far- banni í Ástralíu,“ segir í tilkynn- ingu frá ríkissaksóknara. Málinu var þá frestað fram í nóvember en þá kom í ljós að málsmeðferðin í Ástralíu gat tekið upp undir eitt ár. Var þá ákveðið að aðskilja ákærurnar og þátt sakborninga til að unnt væri að ljúka málinu. „Þetta formsatriði breytir því ekki að málið var afgreitt hjá ríkissak- sóknara og höfðað með útgáfu ákæru 21. maí 2013.“ Misnotuðu mynd sem tekin var í leyfisleysi „Ég hef ekki talað við einn né neinn um leyfi fyrir einu né neinu“ F ramsókn og flugvallarvinir notuðu tölvugerða mynd frá arkitektastofu í leyfisleysi í heilsíðuauglýsingu sem birtist í Reykjavík Vikublaði um síðustu helgi. Í auglýsingunni er fullyrt að myndin sýni „fyrir- hugaðar byggingar á hafnarbakka Reykjavíkur“ en ljóst er að mynd- irnar sýna einungis mögulega út- færslu á byggingunum. Hugmyndin hefur ekki verið kynnt umhverfis- og skipulagsráði né öðrum nefndum borgarinnar. Í samtali við DV fullyrðir Svanur Guðmundsson, kosningastjóri Framsóknar og flugvallarvina, að myndirnar í auglýsingunni séu „úr skipulagi eða á vef borgarinn- ar“. Björn Axels son, skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar, staðfestir hins vegar að svo sé ekki. „Þessar myndir fylgdu ekki deiliskipulaginu og hafa aldrei verið auglýstar sem slíkar. Í sjálfu sér hafa þær ekkert með borg- aryfirvöld að gera,“ segir hann. Voru réttar myndirnar Þegar DV spyr kosningastjórann hvort óskað hafi verið eftir leyfi til að birta myndirnar segir hann: „Ég hef ekki talað við einn né neinn um leyfi fyrir einu né neinu. Þetta eru bara myndir sem mér voru réttar. Ég var ekkert að rannsaka hvaðan þær komu, en ég er búinn að vera að tala við þá aðila sem eiga myndina eða hafa búið hana til og það er allt í góðu lagi á milli okkar.“ Umrædd mynd var útbúin hjá PK arkitektum. Að sögn þeirra veittu þeir Framsókn og flugvallarvinum ekki leyfi fyrir notkun hennar og ekki er útilokað að arkitektastofan bregðist við vegna málsins. „Allt í góðu ferli“ Kosningastjóri Framsóknar segist hafa verið í sambandi við eigendur lóðarinnar og það sé „allt í góðu ferli“. Þegar honum er bent á að þeir eigi ekki teikningarnar, heldur arkitektastofan, spyr Svanur: „Fyrir hvern teiknar arkitektinn?“ Hann segist þó ætla að rann- saka hvaðan myndirnar séu komn- ar. „Ég hélt að þetta væru opinberar myndir. Hvernig þær bárust ná- kvæmlega til mín hef ég ekki upp- lýsingar um enda hef ég ekki haft tækifæri til að skoða það, en þetta er gert með leyfi eigenda þessa reits.“ Þegar blaðamaður bendir á að myndirnar séu frá arkitektastofunni segir Svanur: „Óskaplega ertu tregur vinur, ertu ekki að heyra það sem ég var að segja? Ég fékk ekki myndina frá þeim. Þú vilt að ég segi eitthvað annað heldur en ég veit.“ Skiptir ekki máli hvernig þau líta út Svanur segist ekki hafa talað í hr- ingi í samtalinu, enda sé umrædda mynd að finna inni á Reginn.is. „Mér var send hún. Hún var send hingað á stofuna, hvernig það ferli var, það veit ég ekki. En hún er á netinu,“ bætir hann við. Svanur hafn- ar því að Fram- sókn og flug- vallarvinir séu að villa um fyrir kjós- endum með því að birta myndina með þeim hætti sem gert er. „Við erum að tala um hæð bygginga og hvernig á að breyta hafnarbakkan- um. Hvernig end- anleg hús koma til með að líta út, það er ekki spurn- ingin í þessu máli,“ segir hann. Þegar DV bendir kosningastjóran- um á að í auglýsingunni standi orð- rétt: „Myndirnar sýna fyrirhugaðar byggingar á hafnarbakka Reykjavík- ur“ sagðist hann verða að ljúka sam- talinu. n „Óskaplega ertu tregur vinur Jón Bjarki Magnússon Jóhann Páll Jóhannsson jonbjarki@dv.is/johannp@dv.is Villandi framsetning Mynd í auglýsingu Framsóknar og flugvallarvina fylgdi ekki deiliskipulagi og sýnir einungis mögulega útfærslu á byggingu sem ekki hefur verið borin undir nefndir og ráð Reykjavíkurborgar. Mynd FAceBook
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.