Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 11
Fréttir 11
Húsnæðismál
Velferðar- og heilbrigðismál
Samgöngur
Helgarblað 30. maí –2. júní 2014
Leiðarvísir um Loforðin í reykjavík
Reykjavíkurborg bjóði sveigjanleg starfslok.
Fólk geti minnkað við sig eftir 62 ára aldur
en þurfi ekki að hætta alfarið fyrr en við
74 ára aldur þar sem því verður við komið.
Söfn borgarinnar bjóði ókeypis menningar-
dagskrá að degi til og frístundastarf verði
fjölbreyttara. Mannréttindi fatlaðs fólks
verði tryggð.
Heimaþjónusta og heimahjúkrun í öllum
hverfum borgarinnar verði samþætt,
boðið upp á víðtækari stuðning og fólki gert
kleift að búa heima hjá sér ef það svo kýs.
Tekið verði upp frístunda- og lýðheilsukort
fyrir eldri borgara og valkostum fjölgað
með uppbyggingu þjónustuíbúða í eigu
borgarinnar.
B-listi
Framsóknar og flugvallarvina
Þ-listi
Pírata
S-listi
Samfylkingar
D-listi
Sjálfstæðisflokksins
V-listi
Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs
Málefni innflytjenda
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti
Framsóknar og flugvallarvina, er formaður
Landssambands framsóknarkvenna o
Sveinbjörg er héraðsdómslögmaður að
mennt og löggiltur fasteignasali. Hún
gegndi starfi verkefnastjóra á fasteignafjár-
festingarsviði hjá Askar Capital í Lúxemborg
og starfaði hjá Ernst & Young og Investum.
Íbúðum verði fjölgað í Reykjavík og aðgang-
ur tryggður að mismunandi búsetuformi.
Félagsbústaðir verði efldir og ólöglegt
húsnæði upprætt. Unnið verði að lækkun
leiguverðs og stuðningi við úthverfi.
Komið verði í veg fyrir meint skipulagsslys
sem Framsókn telur að starfandi borgar-
stjórnarmeirihluti stefni að. Að öðru leyti
er stefna Framsóknar og flugvallarvina í
skipulagsmálum óskýr. Umhverfisstefna
engin.
Ekki fengust svör við beiðni DV um að
Framsókn og flugvallarvinir útveguðu
blaðinu útlistun á stefnu sinni í heilbrigðis-
og velferðarmálum.
Frístundakort verði samnýtt fyrir systkini,
hleypt verði af stað lestrarátaki í grunnskól-
um og framlög til leik- og grunnskóla aukin.
Byggð verði knattspyrnuhöll í Reykjavík.
Staðið verði vörð um flugvöllinn á þeim
grundvelli að hann sé nauðsynlegur öryggi
þjóðarinnar. Allar samgöngur verði efldar og
staðið verði vörð um einkabílinn og valfrelsi
fólks um hvernig það vill ferðast.
Stutt verði við virðisaukandi þjónustu fyrir
flugtengda starfsemi.
Haldnar verði íbúakosningar um lóðaúthlut-
anir til trúfélaga.
Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata, er
tölvunarfræðingur að mennt og vinnur við
forritun hjá Hagstofu Íslands. Hann tók þátt
í kosningabaráttu Pírata fyrir síðustu þing-
kosningar. Halldór er zen-búddisti og hefur
tekið virkan þátt í að móta stefnu Pírata
eftir að flokkurinn var stofnaður.
Aðferðafræði og form aðalskipulags verði
endurskoðað í því skyni að auka lýðræði og
gegnsæi. Miðbæjarkjarnar í hverfum verði
efldir til að skapa bæjarstemmingu.
Ekki verði lagðar sérstakar kvaðir á þá sem
þiggja framfærslu frá Reykjavíkurborg.
Embætti umboðsmanns borgarbúa verði
styrkt, innheimta skulda einstaklinga við
Reykjavíkurborg verði mannúðlegri.
Stutt verði við mismunandi áherslur og
rekstrarform skóla og aukið frelsi nemenda,
foreldra og kennara. Boðið verði upp á
sérskólaúrræði. Komið verði betur til
móts við tekjulága við gjaldtöku í skólum.
Frístundakortið verði framfærslutengt. Í
forvörnum verði lögð áhersla á fræðslu en
ekki hræðslu.
Almenningssamgöngur verði efldar í
samvinnu við íbúa borgarinnar. Leitað verði
annarra leiða en hraðahindrana til að draga
úr umferðarhraða. Áhersla verði lögð á
þéttingu byggðar svo lengi sem hún sé ekki
á kostnað útivistarsvæða. Framtíðarstað-
setning flugvallarins verði ákveðin í sátt
milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar.
Lögð verði áhersla á þátttökufjárlagagerð
með aðkomu borgarbúa og félagasamtaka.
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylk-
ingarinnar, var kosinn í borgarstjórn fyrir
Reykjavíkurlistann árið 2002, er formaður
borgarráðs og var borgarstjóri um stutt
skeið árin 2007 og 2008. Dagur er læknir
að mennt og jafnframt með meistarapróf
í mannréttindum og alþjóðalögum frá
Háskólanum í Lundi.
Leigu- og búsetaíbúðum verði fjölgað
um 2.500 til 3.000 og staðsetning nýrra
íbúða verði skipulögð í takt við búsetuóskir
Reykvíkinga. Tryggt verði að íbúðirnar
henti barnafjölskyldum í herbergjafjölda og
stærð. Húsnæðisstuðningur verði tengdur
persónulegum aðstæðum fólks, óháð því
hver á eða rekur íbúðina.
Græni trefillinn umhverfis höfuðborgar-
svæðið og strandlengjuna verði verndaður.
Sköpuð verði falleg torg, líflegir leikvellir
og almenningsgarðar bæði stóri og smáir.
Tryggt verði að skipulagsákvarðanir gildi
ekki til eilífðar í krafti úreltra skaðabóta-
ákvæða. Íbúar hafi aðgang að óröskuðum
náttúrusvæðum.
Börn verði tekin yngri inn í leikskólana í
áföngum með það að markmiði að þau hefji
leikskólanám í síðasta lagi haustið sem þau
verða 18 mánaða. Þrýst verði á ríkisvaldið að
standa við fyrirheit um lengingu fæðingar-
orlofsins og að barnafjölskyldur upplifi ekki
óvissu þegar fæðingarorlofi lýkur.
Almenningssamgöngur verði efldar, meðal
annars með forgangsakreinum svo strætó-
farþegar þurfi aldrei að sitja fastir í umferðinni.
Þarfir hjólandi, gangandi og hreyfihamlaðra
verði settar í forgang við endurhönnun gatna.
Hjólastígakerfi verði bætt, sem og göngu- og
hjólaleiðir í kringum skólana. Flugvöllurinn fari
með tíð og tíma úr Vatnsmýrinni.
Faglegir fulltrúar verði áfram kosnir í stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur. Ábyrg fjármálastjórn
borgarinnar verði tryggð og að rafræn
gagnagátt um fjármál og rekstur borgar-
innar verði opnuð. Borgin skapi hagkvæm
skilyrði fyrir atvinnulífið með traustum
en einföldum leiðum, góðri þjónustu og
hvötum fyrir stór og lítil fyrirtæki.
Hugað verði að eldra fólki af erlendum upp-
runa sem hefur skertan bótarétt. Stuðlað
verði að framþróun í baráttu transfólks
og vakin verði athygli á málstað þess og
sjálfsákvörðunarrétti. Barist verði gegn kyn-
bundnu ofbeldi og heimilisofbeldi og hugað
að þörfum barna í þeim aðstæðum.
Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, starfaði sem
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar í tólf ár og tók
svo við stöðu formanns Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Halldór útskrifaðist með MBA
í viðskiptafræði og MS í mannauðsstjórnun
og er löggiltur fasteigna- og skipasali og
sjúkraflutningamaður.
Áhersla á valfrelsi og að mæta þjónustuþörf
hratt. Heimaþjónusta verði boðin út og
val í matarsendingum til aldraðra aukið. Í
málefnum fatlaðra á fé að fylgja þörfum.
Stutt verði áfram við tilraunaverkefni NPA,
sem verði áfram verkefni borgarinnar í
samkomulagi við ríkið.
Lóðaframboð verði aukið og leyfis- og
umsóknarferlið við byggingaframkvæmdir
einfaldað. Byggingaraðilar verði hvattir til
að byggja smáar íbúðir og gjaldskrá taki
mið af íbúðastærð. Samningar verði gerðir
við byggingaraðila um að þeir borgi niður
lóðaverðið á 25 árum sem festir leiguverð
hverrar íbúðar á sama tíma.
Gras verði slegið oftar og betur, gömul
jólatré sótt og snjómokstri sinnt alls staðar
í borginni. Byggð verði þétt um alla borg,
dregið úr notkun nagladekkja og umhverfis-
vottun fáist fyrir Reykjavíkurborg
Fólki verði hjálpað til sjálfshjálpar.
Þiggjendur aðstoðar verði virkjaðir til
samfélagsverkefna á vegum borgarinnar
og boðið verði upp á millibilsúrræði. Losnað
verði við biðlista með því að gefa fólki kost
á sálfræðiþjónustu, heimaþjónustu og öðru
hjá einkaaðilum.
Frístundastyrkurinn verði hækkaður upp í
40.000 krónur með hverju barni. Þjónusta
í sundlaugum verði bætt. Fjárframlag fylgi
nemendum og valfrelsi sé tryggt. Skóli án
aðgreiningar endurskoðaður. Öllum börnum
standi dagvistun til boða og daggjöld fylgi
barni. Mælikvarðar á árangur skóla verði
gerðir aðgengilegir.
Sundabraut verði sett á dagskrá. Aukið
flæði í umferðinni til að koma í veg fyrir
umferðarhnúta. Bætt verði við göngubrúm,
hringtorgum og vistgötum. Strætóskýli
verði betrumbætt og þjónustutími strætó
lengdur. Innanlandsflug verði ekki flutt til
Keflavíkur. Borgarbúar komi að endanlegri
ákvarðanatöku um Reykjavíkurflugvöll.
Álögur á fjölskyldur verði minnkaðar og
skattar lækkaðir. Áhersla verði lögð á að-
hald í rekstri og skuldir borgarinnar greiddar
niður. Hlúð verði að nýsköpunarfyrirtækjum.
Jafnframt verði einkaaðilum gefinn kostur
á fyrirtækjarekstri á sviði grunnþjónustu,
skóla og velferðar í samkeppni við hið
opinbera.
Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna í
Reykjavík, hefur starfað sem borgarfulltrúi
frá árinu 2009 og var varaborgarfulltrúi þrjú
ár þar á undan. Hún útskrifaðist með BA-
próf í uppeldis- og menntunarfræðum við
Háskóla Íslands árið 1998 og hefur starfað
sem deildarstýra, framkvæmdastýra, rann-
sóknastjóri, stundakennari og fleira.
Búsetukostir séu fjölbreyttir, stuðningur
sveitarfélags vegna húsnæðis sé sanngjarn
og tillit tekið til félagslegra aðstæðna.
Byggðar verði 2.500 leigu- og búsetu-
réttaríbúðir á kjörtímabilinu og unnin verði
raunhæf áætlun um útrýmingu biðlista eftir
félagslegu leiguhúsnæði.
Stuðlað verði að aukinni endurnýtingu og
endurvinnslu. Varðstaða um neysluvatn
og loftgæði. Lögð verði áhersla á sjálfbæra
þróun, skynsamlega landnýtingu, þéttingu
byggðar, góðar og ódýrar almenningssam-
göngur og ábyrga umgengni. Hjóla-, reið- og
göngustígar verði efldir og Reykjavík verði
lýst plastpokafrítt svæði.
Velferðarþjónusta verði byggð upp í
samráði við hagsmunafélög notenda. Fjár-
hagsaðstoð sveitarfélaga verði samræmd
og lágmarksframfærsla tryggð. Fólki verði
hjálpað að hjálpa sér sjálft, með tilboðum
en ekki þvingunum. Fjárhagsaðstoð borgar-
innar verði hækkuð og ekki skilyrt. Félagsleg
ráðgjöf og stoðþjónusta verði efld.
Gjaldheimta fyrir leikskóla, skólamáltíðir
og frístundastarf verði afnumin. Framlög
til skóla- og frístundasviðs verði hækkuð í
þessu skyni. Markaðsvæðingu skólastarfs
sé hafnað og jöfn tækifæri tryggð. Stuðlað
verði að jafnréttisfræðslu í öllu skóla- og
uppeldisstarfi og unnið gegn áhrifum
staðalmynda og klámvæðingar.
Almenningssamgöngur verði efldar og
áhersla lögð á vistvæna samgönguhætti.
Stuðlað verði að fækkun bílferða með
þéttingu byggðar og skynsamlegri land-
nýtingu. Flugvöllurinn fari með tíð og tíma
úr Vatnsmýrinni.
Varðstaða um eignarhald borgarinnar á
Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélögum
hennar. Kynjuð og græn starfs- og fjárhags-
áætlunargerð, aukið samráð og gegnsæi við
rekstur borgarinnar.
Stutt verði við aukna þátttöku innflytjenda
og fatlaðs fólks í Reykjavík. Kynbundinn
launamunur verði upprættur. Unnið verði
gegn kynbundnu ofbeldi með markvissum
aðgerðum í samstarfi við lögreglu, heil-
brigðis- og menntakerfi.