Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 8
Helgarblað 30. maí –2. júní 20148 Fréttir
Prestur vildi sitja
einn að dúntekju
n Græðir á túnum sem hann gerir ekkert fyrir n Hefur eina verðmætustu ána
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
T
il að standa straum af hærri
fasteignagjöldum ákvað
presturinn á Melstað, sr.
Guðni Þór Ólafsson, að
hann myndi einn njóta
góðs af dúntekju í Hrútey, sem er í
eigu prestsetursins á Melstað. Þetta
herma heimildir DV, en hefð var
fyrir því að bændur í Eyjanesi, sem
er skammt frá Hrútey, nýttu helm-
ing dúntekjunnar.
Aðspurður um ástæðu þess að
svo sé ekki lengur segir Guðni Þór
að fyrir því séu „einkaástæður.“
Samkvæmt fasteignamati er æðar-
varp á landinu metið á tæpa 1,4
milljónir króna.
Kastljós fjallaði um hlunnindi
prestsetra í síðustu viku en þar kom
meðal annars fram að í landi Mel-
staðar sé ein verðmætasta áin á
landinu, sem tilheyrir prestsetri.
Þar kom einnig fram að leiga sem
prestar greiða getur aldrei verið
hærri en 83.000 krónur.
Deildu um leigu túna
Auk dúntekjunnar þá leigir Guðni
Þór út tún sem tilheyra prestsetr-
inu. Túnin voru áður móar sem
bændur á svæðinu hreinsuðu og
þurrkuðu upp. Þeir girtu túnin
einnig af og greiddu hóflega leigu
fyrir notkun á þeim, samkvæmt
heimildum DV. Þegar gengi krón-
unnar var fellt á níunda áratugn-
um lækkaði leigan verulega og það
var svo ekki fyrr en fyrir nokkrum
árum að Guðni vildi hækka hana
aftur. Gaf hann engar skýringar á
því, en bændum þótti eðlilegt að
greiða sanngjarnt gjald fyrir nýt-
ingu túnanna. Guðni Þór vildi hins
vegar taka mun hærra gjald en það
sem bændurnir höfðu í huga og
urðu þeir frekar ósáttir, samkvæmt
heimildum DV. Þeir leggja sjálf-
ir mikla vinnu í ræktun túnanna,
viðhald á girðingum og fleira sem
til fellur. Spruttu upp deilur á milli
þeirra og Guðna, og leituðu bænd-
urnir til lögfræðings. Á endan-
um náðist sátt á milli aðilanna og
úr varð að bændurnir greiða lægri
leigu en Guðni vildi upphaflega.
Vildi uppfæra
til markaðsverðs
„Við náðum að lokum samkomu-
lagi. Samkvæmt þeim samningi
sem er í gildi þá var ákveðin leiga
föst krónutala en upp úr aldamót-
um var endurskoðunarákvæði
virkt. Það hafði ekkert verið gert
fyrr en ég fór af stað fyrir 2–3 árum
í samstarfi við lögfræðing Bisk-
upsstofu. Þá var óskað eftir því að
leigugjaldið yrði endurskoðað og
uppfært til markaðsverðs. Bænd-
urnir voru tregir til, enda bar nokk-
uð mikið á milli,“ segir Guðni Þór
í samtali við DV. Hann vill að öðru
leyti ekki tjá sig um hlunnindi prest-
setra og hvort það sé sanngjarnt að
prestar njóti hlunninda í fjársvelt-
um sóknum, líkt og spurt var um í
umfjöllun Kastljóss. Sérstakur ráð-
gjafahópur mun taka þessi mál
til skoðunar. „Þetta er í skoðun og
maður bara hlítir því sem kemur út
úr því,“ segir Guðni Þór.
Miðfjarðará metin á 8 milljónir
Í umfjöllun Kastljóss í síðustu viku
um hlunnindi kirkjujarða sem
prestar nýta kom fram að prestar
fá tugi milljóna króna árlega í arð
af þeim. Meðal annars voru verð-
mæti veiðiáa talin upp samkvæmt
því sem fram kemur í fasteigna-
mati. Miðfjarðará tilheyrir Melstað
og áin þar er metin á tæpar 8 millj-
ónir króna. Það er ein verðmætasta
áin sem tilheyrir prestsetri og því
ljóst að Guðni Þór nýtur mjög góðs
af jörðinni.
Í þættinum var rætt við Agn-
esi M. Sigurðardóttur, biskup Ís-
lands, sem segir fyrirkomulagið
ekki sanngjarnt. Hún hefur skip-
að sérstakan ráðgjafahóp, sem á að
fjalla um hlunnindi kirkjujarða og
prestsetra. Í hópnum, sem vinnur
launalaust, eru Óskar Magnús-
son útgefandi og í sóknarnefnd
Breiðabólstaðarsóknar, Svana
Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika
og varaformaður sóknarnefndar
Seltjarnarnessóknar, og Steinunn
Valdís Óskars dóttir, fyrrverandi
borgarstjóri og í sóknarnefnd
Laugarnessóknar.
Þjóðkirkjan stefndi
landeiganda
Fyrir stuttu greindi DV frá máli
Kára H. Jónssonar, sem á í deilum
við Þjóðkirkjuna vegna dúntekju.
Kirkjan telur sig eiga heimtingu á
dúntekjuhlunnindum á grundvelli
ítaks í hólma á jörð Kára og að hefð
hafi myndast fyrir því að sóknar-
presturinn á Staðarstað á Snæfells-
nesi njóti góðs af. Málið er nú kom-
ið fyrir dóm, en Kára var stefnt í
Héraðsdómi Vesturlands og verður
málið tekið fyrir þann 3. júní næst-
komandi. „Ég bauð þeim að við
myndum semja um þetta frekar en
að gera úr þessu dómsmál og ég var
þá tilbúinn að greiða þeim eitthvað
ákveðið til að „settla“ málin. En því
var aldrei svarað öðruvísi en með
stefnu,“ sagði Kári í samtali við DV
fyrr í þessum mánuði.
Í stefnunni segir að „um aldir“
hafi verið talið að æðarvarp í
Gamlahólma tilheyri kirkjujörðinni
við Staðarstað. Hlunnindin hafi
alla tíð verið nýtt af sitjandi presti
á Staðarstað og því hafi verið litið á
æðarvarpið sem kirkjuítak. Þannig
hafi sóknarpresturinn á Staðarstað
getað tínt æðardún í hólmanum,
selt hann sjálfur og stungið ágóð-
anum í eigin vasa. n
„Bændurnir voru
tregir til, enda bar
nokkuð mikið á milli.
JÖFNUÐUR ER RÉTTLÆTI
H V E R N I G V I LT Þ Ú F O RG A N G S R A Ð A ?
RAUNHÆF ÁÆTLUN TIL FJÖGURRA ÁRA:
Borgin greiðir nú þegar 32 milljarða á ári (90%)
en foreldrar 3 milljarða (10%) – stígum skrefið til fulls
Hækkum framlög til skóla- og frístundasviðs
um 750 m.kr á ári (0,9% af heildartekjum borgarsjóðs)
Lækkum gjaldskrár um 25% á ári
Upprætum fátækt og misskiptingu í samfélaginu.
Aukum ráðstöfunartekjur barnafjölskyldna.
Kynntu þér málið á www.gjaldfrelsi.is Finndu okkur á Facebook (Vinstri græn borg)
GJALDFRJÁLS
LEIKSKÓLI, GRUNNSKÓLI
OG FRÍSTUNDAHEIMILI
Mun færri
gjaldþrot
Gjaldþrot fyrirtækja síðustu 12
mánuði, frá maí 2013 til apríl 2014,
hafa dregist saman um sautján
prósent samanborið við tólf
mánuði þar á undan. Þetta kemur
fram í tölum sem Hagstofa Íslands
birti á miðvikudag. Alls voru 879
fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta
á tímabilinu. Flest gjaldþrot voru
í byggingarstarfsemi og mann-
virkjagerð, eða 167 talsins.
Þá hefur nýskráningum einka-
hlutafélaga síðustu 12 mánuði,
frá maí 2013 til apríl 2014, fjölgað
um sjö prósent samanborið við
12 mánuði þar á undan. Alls voru
1.956 nýskráð félög á tímabilinu.
Flestar nýskráningar voru í fjár-
mála- og vátryggingastarfsemi,
eða 322 talsins.
Haukur til LÍÚ
Haukur Þór Hauksson hefur verið
ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, LÍÚ. Í tilkynningu frá sam-
bandinu kemur fram að Haukur
Þór hafi um árabil starfað hjá
þrotabúi Kaupþings og þar áður
fyrir Kaupþing banka. Hann er
með Cand.oceon-próf frá Háskóla
Íslands. Hann er einnig löggiltur
verðbréfamiðlari og hefur lokið
hinu alþjóðlega ACI-miðlunar-
prófi. Í tilkynningunni býður Kol-
beinn Árnason, framkvæmdastjóri
LÍÚ, fyrir hönd samtakanna, Hauk
velkominn til starfa.
Nýtur hlunninda „Þetta er í skoðun og
maður bara hlítir því sem kemur út úr því,“
segir Guðni Þór.
Frá Melstað Prestsetrinu á Melstað fylgja
þó nokkur hlunnindi. Meðal annars dúntekja í
Hrútey, en þar nýtti bóndi á nálægum sveitar-
bæ helming á móti prestinum í langan tíma.
Því var hins vegar breytt fyrir nokkrum árum
því presturinn þurfti að standa straum af hærri
fasteignagjöldum tengdum prestsetrinu.