Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 62
Helgarblað 30. maí –2. júní 201462 Fólk
Með umráðarétt yfir
fallegu húsi á Hofsósi
Sveitarómantík í Skagafirði hjá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur
V
ið sjóinn í hinum fallega bæ
Hofsósi í Skagafirði stend-
ur bárujárnsklætt timbur-
hús sem heitir Nöf. Húsið
er steinsnar frá Vesturfara-
setrinu svokallaða, fallegu safnahúsi
sem hefur að geyma sýningar um
ferðir Íslendinga til Vesturheims í
um miðbik nítjándu aldar og fram að
byrjun þeirrar tuttugustu. Nöf stend-
ur upp á dálítilli hæð við ómerkta
götu sem Vesturfarasetrið stend-
ur einnig við. Húsið var áður í eigu
Vesturfarasetursins ses., samlagsfé-
lagi sem heldur utan um eignarhald
og rekstur Vesturfarasetursins.
Spurningar um húsið
Íbúar í Skagafirði hafa sumir hverjir
spurt sig að því – og fiskisagan flýg-
ur sannarlega í litlum plássum á
landsbyggðinni – hvort það geti ver-
ið að Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra og eiginkona
hans, fjárfestirinn Anna Sigurlaug
Pálsdóttir, eigi þetta fallega hús. Fjöl-
miðlamaðurinn Eiríkur Jónsson hef-
ur fjallað um það á fréttasíðu sinni að
þau hjónin venji komur sínar í hús-
ið með reglulegu millibili. Notkunin
á húsinu er þó ekki mikil samkvæmt
einum íbúa á Hofsósi sem DV ræddi
við.
Tveir íbúar í Skagafirðinum sem
DV ræddi við sögðu að slíkar sögur
hefðu sannarlega gengið og ákvað
DV því að grafast fyrir um eignarhald
hússins. Enginn gat hins vegar svar-
að því með fullri vissu hver ætti þetta
hús sem sker sig nokkuð út vegna
legu sinnar við sjóinn á besta stað í
bænum – betra bæjarstæði er sjálf-
sagt vandfundið, að minnsta þegar
litið er til útsýnar til hafs.
Faðirinn eigandi – Anna
með umráðarétt
Samkvæmt opinberum upplýsingum
er faðir eiginkonu Sigmundar Dav-
íðs, Páll Samúelsson, eigandi hússins
en hann keypti það af Vesturfara-
setrinu í lok árs 2005 fyrir tíu millj-
ónir króna. Húsið virðist af myndum
vera gamalt en er það ekki því það
var byggt árið 2004 af Vesturfarasetr-
inu og selt næsta ár til Páls. Húsið er
tæpir 154 fermetrar að stærð og er
fasteignamat þess rétt um 9,4 millj-
ónir króna en brunabótamatið 42
milljónir.
Í upplýsingum um eignarhald
hússins kemur hins vegar fram að
Anna Sigurlaug Pálsdóttir sé um-
ráðandi hússins þó hún eigi það
ekki. Faðir hennar er skráður sem
100 prósent eigandi. Engar upplýs-
ingar finnast í opinberum gagna-
grunnum eins og hjá ríkisskatt-
stjóra um af hverju og hvenær
Anna Sigur laug varð umráðamaður
hússins. Þar segir bara að Anna
Sigur laug sé umráðamaður þess
og er hún því skráð sem einn af
eigendum hússins.
Arfur
Ástæður auðlegðar Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar og Önnur
Sigurlaugar Pálsdóttur, hafa aldrei
komið fyllilega fram. Fyrir liggur
að þau er skráð fyrir eignum upp
á á meira en 1.200 milljónir króna
og er Sigmundur Davíð langefnað-
asti þingmaður þjóðarinnar. Páll
Samúelsson er fyrrverandi eigandi
Toyota-umboðsins sem hann seldi
fyrir metfé, um sjö milljarða króna,
til eignarhaldsfélags í eigu Magnúsar
Kristinssonar árið 2005. Frá því hef-
ur verið greint í DV að ástæða ríki-
dæmis Sigmundar Davíðs og Önn-
ur Sigur laugar sé að öllum líkindum
fyrirframgreiddur arfur.
Hugsanlegt er að umráðarétturinn
laglega yfir húsinu á Hofsósi sé hluti
af þeim eignaskiptum sem áttu sér
stað við þessi snemmbúnu arfskipti.
DV hafði samband við Jóhannes
Þór Skúlason, aðstoðarmann Sig-
mundar Davíðs, til að spyrjast
fyrir um húsið en náði ekki tali af
honum. n
„Samkvæmt opin-
berum upplýs-
ingum er faðir eiginkonu
Sigmundar Davíðs, Páll
Samúelsson, eigandi
hússins.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Nöf Húsið á Hofsósi stendur á besta stað ofan
við fjöruna steinsnar frá Vesturfarasetrinu.
Hjónin Sigmundur Davíð og
Anna Sigurlaug hafa umráðarétt
yfir húsi á Hofsósi sem áður var í
eigu Vesturfarasetursins en var
selt til föður Önnur Sigurlaugar
árið 2005. MyND róbert reyNISSoN
Selja fötin sín
Skötuhjúin María Birta og Elli
Egilsson halda fatamarkað á
sunnudaginn á Kex Hostel. Þau
eru stödd á Íslandi núna en
eru búsett í Los Angeles. Elli
og María hafa búið til sérstaka
fatamarkaðs síðu á Instagram
þar sem þau setja inn myndir frá
markaðnum. María Birta setti inn
mynd af skarti og segir að hún
harmi að þurfa selja þetta allt þar
sem þetta sé svo fallegt en hún
geti ekki tekið allt með sér til Los
Angeles. Markaðurinn verður frá
klukkan 12–17.
Trúlofaður
hlaupakóngur
Hlauparinn Kári Steinn Karlsson
og Aldís Arnardóttir eru trúlofuð.
Séð og heyrt segir frá því í nýjasta
tölublaði sínu að Kári Steinn
hafi farið á skeljarnar og beðið
um hönd sinnar heittelskuðu á
Nesjavöllum. Aldís hafði boðið
Kára á ION hótel í tilefni afmæl-
is hans og hlauparinn toppaði
kvöldið með því að biðja Aldísar.
Þau Aldís og Kári hafa verið
saman í þrjú ár.
Tóku lagið
saman
Björt framtíð stóð fyrir
karókíkvöldi í kosningamiðstöð
sinni við Austurstræti á miðviku-
dag. Dóri DNA steikti kjúkling
ofan í gesti sem skiptust á að taka
lagið í karókí. Unnusta, Dóra,
Magnea Guðmundsdóttir arki-
tekt, er einmitt í framboði fyrir
Bjarta framtíð og skipar þar 6.
sæti listans í Reykjavík. Meðal
þeirra sem tóku lagið voru fram-
bjóðendurnir S. Björn Blöndal,
Elsa Yeoman og Ilmur Kristjáns-
dóttir.
Færir sig yfir Edda mun
verða einn af þáttastjórn-
endum í Íslandi í dag.
MyND SIGtryGGur ArI
Edda Sif í Íslandi í dag
„Örugglega verið erfiðara fyrir mig að vinna þarna heldur en marga aðra.“
É
g er mjög spennt fyrir því að
vinna í þættinum,“ segir Edda Sif
Pálsdóttir í viðtali í nýjasta tölu-
blaði Séð og heyrt. DV sagði frá
því fyrir nokkru að Edda Sif væri að
færa sig af RÚV yfir á Stöð 2. Í við-
talinu segir hún frá því að hún komi
til með að starfa í lífsstílsþættinum
Íslandi í dag.
Edda Sif er dóttir Páls Magnús-
sonar, fyrrverandi útvarpsstjóra,
og hefur staðið sig vel sem íþrótta-
fréttamaður á RÚV og í þættinum
Skólahreysti.
Í viðtalinu segir hún einnig frá því
að hún hafi verið að klára meistararit-
gerð í blaða- og fréttamennsku frá HÍ
en þar fjallar hún um það hvers vegna
fólk hættir í blaða- og fréttamennsku
og fer að gera eitthvað annað.
Hún er líka spurð út í hvernig
það hafi verið að vinna þar sem fað-
ir hennar var hæstráðandi. „Ég held
að fólk hafi ekki áttað sig á því að það
hafi örugglega verið erfiðara fyrir mig
að vinna þarna heldur en marga aðra.
Maður var alltaf með þetta á bak við
eyrað, hvort sem það var meðvitað
eða ekki, og þurfti svolítið að passa
sig. Ég var ekkert að biðja um launa-
hækkun eða trana mér fram og þurfti
þeim mun meira að hugsa um að
vinna vinnuna mína vel.“ Aðspurð
hvað föður hennar hafi fundist um
umræðuna segir hún: „Ég held að
hann hefði gjarnan viljað vera laus
við að ég væri að vinna þarna. Okk-
ur var enginn greiði gerður með því.
Hann hefur samt starfað í þessu svo
lengi þannig ég held hann hafi ekki
velt sér upp úr því. Við unnum bara
okkur störf.“ n