Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 50
Helgarblað 30. maí –2. júní 201450 Sport
Leitin að síðasta púsLinu
n Stöður sem öll liðin í ensku úrvalsdeildinni næsta vetur þurfa að styrkja n Hundruð milljónum punda verður eytt í sumar n Hvað gera United, Chelsea, Arsenal, Liverpool og City?
n Arsenal
Sæti í deild: 4 sæti
Þarf að kaupa: Varnarsinnaðan miðjumann
Æsispennandi úrslitaleikur við Hull City á
dögunum skilaði Arsenal fyrsta titlinum í
ansi mörg ár. Í deildinni hafnaði liðið í fjórða
sæti, enn eitt árið. Það er ekki hægt að segja
að vörnin hafi brugðist. Per Mertesacker
og Laurent Koscielny voru frábærir saman
í hjarta varnarinnar. Mesut Özil, Santi
Cazorla, Alex Oxlde-Chamberlain og Oliver
Giroud eru allt frábærir leikmenn á hinum
enda vallarins. Fjarvera Aarons Ramsey
og Theos Walcott gerði Arsenal erfitt fyrir
að tímabilinu. Liðið þarf á því að halda
að styrkja sig á miðri miðjunni. Ansi mörg
lið stríddu þeim með því að sækja upp
miðja miðjuna. Þar vantar heimsklassa
miðjumann, til að halda jafnvægi í annars
sókndjarfri miðju. Arsenal mun að líkindum
kaupa leikmenn í vörnina og sóknina í sumar
en gætu horft fram á annað slakt tímabil ef
þeir fylla ekki í skarðið á miðju vallarins.
n Aston Villa
Sæti í deild: 15. sæti
Þarf að kaupa: Sóknarmann
Christian Benteke var ekki eins góður á
nýyfirstöðnu tímabili og því síðasta. Hann
skoraði, þrátt fyrir meiðslin, tíu deildarmörk.
Villa leið kannski fyrir það á tímabilinu að
helstu keppinautar styrktu sig allnokkuð
fyrir tímabilið. Þegar Benteke meiddist
var engum sem tókst að fylla skarðið.
Andreas Weimann og Gabriel Agbonlahor
(sem var reyndar töluvert meiddur) eru
báðir fljótir leikmenn og duglegir en eftir að
Benteke meiddist var fátt um fína drætti
í framlínu liðsins. Ef til vill eru nýir tímar í
vændum á Villa Park og sala liðsins til nýs
auðjöfurs, sem mikið hefur verið rætt um í
fjölmiðlum undanfarna daga, gæti orðið til
þess að stórlega verði bætt úr þessu. Villa
kemst ekki upp með að fara inn í annað
tímabil með bara einn „alvöru“ framherja.
Endurkoma Darrens Bent, sem átti afleitt
lánstímabil hjá Fulham, hrekkur skammt.
n Burnley
Sæti í deild: 2. sæti í Championship
Þarf að kaupa: Miðjumann
Burnley kemur upp í úrvalsdeildina með
einhvern ódýrasta og þynnsta hóp sem
sést hefur í áraraðir. Hjá liðinu er liðsheildin
allsráðandi og þeir hafa náð að gera
nokkuð vel úr sínu. Liðið skoraði 72 mörk
á nýafstöðnu tímabili og fékk aðeins á sig
37 – fæst allra í Championship-deildinni.
Liðið skortir áþreifanlega reynslu úr efstu
deild og það er auðvelt að spá liðinu slæmu
gengi á komandi vetri. Miðjan, sem fyrir
var ekkert sérstök, er þegar orðin veikari
með brotthvarfi Michaels Kightly, sem var
á láni frá Stoke. Sean Dyche þarf að styrkja
liðið duglega í sumar enda er skrefið upp
í úrvalsdeild stórt. Því hafa nýliðar oft og
iðulega fengið að finna fyrir. Ef þeir bæta
ekki við sig miðjumanni – eða mönnum –
gæti farið illa. Ljóst er að liðið muni fara
langt á baráttunni en liðið mun ekki vinna
marga leiki á baráttunni einni.
n Chelsea
Sæti í deild: 3. sæti
Þarf að kaupa: Sóknarmann
Jose Mourinho hefur á að skipa einum
öflugasta leikmannahópi heims. Enda náði
liðið góðum árangri á nýafstöðnu tímabili;
annað sætið í ensku úrvalsdeildinni og
undanúrslit í Meistaradeildinni er árangur
sem flestir væru ánægðir með. Það sem
ef til vill hefur vantað í liðið er framherji
sem getur leitt liðið. Fernando Torres hefur
ekki blómstrað hjá liðinu og Demba Ba átti
erfitt uppdráttar. Þá fær Samuel Eto‘o ekki
nýjan samning. Leitin að framherja er þegar
hafin. Mario Mandzukic og Diego Costa
hafa báðir verið orðaðir við Lundúnaliðið
og ljóst má vera að engin skiptimynt dugir
til að kaupa leikmenn af því kaliberi. Svo
má reyndar minna á að Didier Drogba er
með lausan samning. Eftir brotthvarf hans
hefur enginn af framherjum Chelsea slegið
í gegn. Ef liðið fær alvöru 20-30 marka
mann verða liðinu allir vegir færir.
n Crystal Palace
Sæti í deild: 11. sæti
Þarf að kaupa: Sóknarmann
Það er ekki hægt að segja að Marouane
Chamakh hafi farið á kostum á Selhurst
Park á tímabilinu en þegar félagið tilkynnti
að hann fengi ekki nýjan samning varð end-
anlega ljóst að Tony Pulis þarf að kaupa
framherja í sumar. Dwight Gayle sýndi á
lokametrunum að hann hefur burði til að
spila knattspyrnu í ensku úrvalsdeildinni
– en hann mun ekki bera sóknarleik liðsins
uppi heilt keppnistímabil. Pulis þarf að
reiða fram veskið í sumar, ef liðið ætlar
ekki að vera í fallbaráttu á næsta tímabili
eins og það var framan af síðustu leiktíð.
Þá þarf einnig að styrkja liðið á miðsvæð-
inu en þar hefur Ástralinn Mile Jedinak
ráðið ferðinni að undanförnu. Hann þarf
tilfinnan lega aðstoð. Það vantar ekki mikið
upp á að liðið taki enn stærra skref fram
á við, einn til tveir öflugir leikmenn gætu
komið liðinu enn lengra en í fyrra.
n Manchester United
Sæti í deild: 7. sæti
Þarf að kaupa: Miðvörð
United þarf raunar að styrkja fleiri stöður á
vellinum en stöðu miðvarðar. United þarf
betri miðjumenn og jafnvel betri bakverði
og kantmenn líka. Þó má ætla að Louis van
Gaal komi til með að byrja á vörninni enda
eru máttarstólpar liðsins undanfarin ár, Rio
Ferdinand og Nemanja Vidic, farnir frá fé-
laginu. Chris Smalling, Jonny Evans og Phil
Jones geta leyst þessa stöðu en ætli United
sér að vera í titilbaráttu næsta vetur þarf
liðið sterkari miðverði. Án sterkrar varnar
gæti United lent í svipuðum vandræðum og
í vetur þar sem liðið fékk á sig allt of mörg
mörk. Sama hversu góður knattspyrnustjóri
er á hliðarlínunni, þú vinnur ekki titla án
þess að hafa góða vörn. United hefur verið
orðað við öfluga miðverði að undanförnu.
Má þar nefna Mats Hummels, Miranda og
Eliaquim Mangala hjá Porto.
n Newcastle United
Sæti í deild: 10. sæti
Þarf að kaupa: Framherja
Af þeim 43 mörkum sem Newcastle
skoraði í úrvalsdeildinni í vetur komu 14 frá
lánsmanninum Loic Remy og sjö frá Yohan
Cabaye sem er farinn frá félaginu. Þetta er
næstum helmingur marka liðsins. Það er
morgunljóst að Newcastle þarf að kaupa
góðan framherja fyrir átök næsta vetrar.
Papiss Cisse hefur lítið getað undanfarið
eitt og hálft ár og samningur Shola Ameobi
er runninn út. Þá gerði lánsmaðurinn Luuk
de Jong ekkert í vetur, lék 12 leiki og skoraði
ekki eitt einasta mark. Þó að brotalamir séu
í vörninni og á miðjunni verður aðaláherslan
í sumar lögð á að styrkja sóknina. Og það
er eins gott að þeir finni alvörumann því
annars gæti farið illa hjá Alan Pardew og
félögum næsta vetur. Liðið þyrfti helst að
finna nýjan Alan Shearer, eða til vara nýjan
Demba Ba.
n QPR
Sæti í deild: 4. sæti í Championship
Þarf að kaupa: Miðverði
QPR er komið aftur í deild þeirra bestu eftir
nauman sigur á Derby í umspili á dögunum.
í liðinu er ógrynni leikmanna sem hefur
reynslu af því að spila í úrvalsdeildinni, en
gæðin innan hópsins eru vissulega misjöfn.
Ætli liðið sér að halda sæti sínu í deildinni
þarf Harry Redknapp að byrja á því að
styrkja vörnina. Richard Dunne og Clint Hill
voru miðvarðaparið undir lok leiktíðar og þó
að þeir séu reynslumiklir munu þeir aldrei
ráða við hraða framherja úrvalsdeildarinnar.
Þeir þurfa á miðverði, eða miðvörðum að
halda. Rio Ferdinand hefur verið orðaður við
félagið og þó að hann komi með gæði í liðið
er hann ekki sá fljótasti í bransanum. Harry
Redknapp þarf að finna unga og spræka
varnarmenn sem geta ráðið við leikmenn
eins og Sergio Aguero og Luis Suarez.
n Southampton
Sæti í deild: 8. sæti
Þarf að kaupa: Framherja
Það dáðust margir að leikstíl Southampton
í vetur enda lék liðið afar skemmtilegan
fótbolta. Búast má því að leikmenn eins og
Adam Lallana, Luke Shaw og Jay Rodriguez
verði eftirsóttir af öðrum liðum í sumar en
enn sem komið er er ekkert á hreinu í þeim
efnum. Að því gefnu að Southampton
haldi öllum sínum bestu leikmönnum er
nokkuð ljóst að liðið mun leitast eftir því að
styrkja sóknarlínu enn frekar fyrir komandi
átök. Rickie Lambert er farinn að eldast og
eftir að Jay Rodriguez meiddist undir lok
leiktíðar var eins og allur slagkraftur færi úr
sóknarleik liðsins. Daniel Osvaldo floppaði
auk þess gjörsamlega. Southampton þarf
góðan framherja ætli liðið sér að halda
áfram á sömu braut og á síðustu leiktíð og
nýr stjóri þarf að finna slíkan leikmann.
n Stoke City
Sæti í deild: 9. sæti
Þarf að kaupa: Framherja
Markaskorun Stoke dreifðist vel á síðasta
tímabili og skoruðu sex leikmenn fjögur
mörk eða fleiri. Liðið sigldi lygnan sjó í vetur
og náði 9. sætinu að lokum, en marka-
hæstur í liðinu var Peter Crouch með átta
mörk. Stoke-liðið er vel mannað í flestum
stöðum, marki, vörn og miðju, en það
vantar tilfinnanlega alvöru markaskorara.
Svo virðist vera sem Mark Hughes sé þegar
farinn að leita að slíkum leikmanni en
Mame Biram Diouf, fyrrverandi leikmaður
Manchester United og núverandi leikmaður
Hannover í Þýskalandi, er talinn vera efstur
á óskalistanum. Þessi stóri og stæðilegi
Senegali hefur staðið sig vel í Þýskalandi og
gæti hentað leikstíl Stoke-liðsins afar vel.
Hvort hann sé 15–20 marka leikmaður skal
þó ósagt látið.