Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 48
Helgarblað 30. maí –2. júní 201448 Lífsstíll Heiðmörk 38 810 Hveragerði Sími 483 4800̃ Fax 483 4005 www.ingibjorg.iS ingibjorg@ingibjorg.iS GRÓÐURINN Í GARÐINN fáið þið hjá okkur: Sumarblóm Tré og runnar Matjurtaplöntur Rósir Fjölær blóm Skógarplöntur Hreinskilni mikilvæg ef foreldri fær krabbamein Þ egar fólk greinist með krabbamein þá er oft erfitt að ræða það við börnin. Það þarf að gera það á alveg sérstak­ an hátt, án þess að vekja hjá þeim ótta en engu að síður sýna þeim fulla hreinskilni,“ segir Ragnheið­ ur Davíðsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts um bókina Þegar foreldri fær krabbamein. Bókin er gefin út í sam­ vinnu Krafts og Forlagsins. Höfundur bókarinnar er Wendy S. Harpham en bókina þýddi Karl Emil Gunnarsson. Bókin fjallar um hvernig best sé að takast á við það þegar for­ eldrar barna eða nánir aðstandendur greinast með krabbamein. Frá sjónarhóli móður og læknis Höfundur bókarinnar þekkir þetta vel af eigin reynslu. „Wendy Harpham er bandarískur læknir sem greindist sjálf þrisvar sinnum með krabba­ mein. Þegar börnin hennar voru lítil, undir 10 ára aldri, þá áttaði hún sig á því að það vantaði svo mikið ráð­ leggingar til foreldra um hvernig þeir ættu að segja börnum sínum frá því sem er að gerast í krabbameinsferl­ inu,“ segir Ragnheiður. „Wendy skrifaði þessa bók út frá eigin reynslu, bæði sem móðir með krabbamein og líka sem læknir. Það er það sem bókin hefur fram yfir margar aðrar bækur. Hún sameinar þetta tvennt því að þekking Wendy á efninu er yfirgripsmikil, út frá sjónar­ hóli læknis og móður,“ segir Ragn­ heiður. Erfitt að útskýra Með bókinni fylgir minni bók, Begga og áhyggjubollinn, sem sérstaklega er ætluð börnum. „Begga og áhyggju­ bollinn fjallar um Beggu og allar hennar áhyggjur varðandi krabba­ meinið hjá mömmu. Þannig er ver­ ið að auðvelda foreldrum að skýra út ýmsa hluti sem oft er gott að gera í gegnum persónur í sögu.“ Það er skiljanlega alltaf mikið áfall fyrir bæði börn og foreldra þegar að foreldrið greinist með lífshættulegan sjúkdóm. „Sérstaða krabbameins­ ins gagnvart öðrum svona alvarleg­ um sjúkdómum er kannski sú að það er allt svo sýnilegt í kringum krabba­ meinið. Oft missir fólk hárið, það grennist og er kannski að ganga í gegnum alls konar hremmingar í lyf­ jameðferð og slíku. Börnin skilja þetta ekki almennilega og það getur verið erfitt að útskýra þetta fyrir þeim. Bók­ in hjálpar til með það,“ segir Ragn­ heiður. Kraftur fyrir ungt fólk með krabbamein Hugmyndin að því að þýða bókina yfir á íslensku kemur frá Guðrúnu Oddsdóttur sálfræðingi sem hefur unnið mikið með Krafti. „Hún rakst á þessa bók og las hana meðal annars yfir ásamt öðrum sérfræðingum áður en við fórum í að gefa hana út,“ segir Ragnheiður. Stuðningsfélagið Kraftur var stofnað árið 1999 af ungu fólki með krabbamein. „Kraftur er grasrótarfé­ lag sem var stofnað fyrir 15 árum af miklu hugsjónafólki. Ungu fólki sem áttaði sig á að það voru dálítið mikl­ ar sérþarfir sem unga fólkið sem greindist með krabbamein hafði. Þetta eru oft ungar fjölskyldur með börn sem voru með skuld­ ir á bakinu, hús­ næðiskuldir og námslán jafnvel,“ segir Ragnheiður. Í dag eru meðlimir í Krafti 520 talsins. „Við segjum alltaf að þetta sé félag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og að­ standendur en svo hafa stofnfélagarn­ ir elst svolítið en áherslan er samt alltaf á ungt fólk.“ Hjálpa fólki Kraftur er með aðsetur í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. „Við einbeitum okkur að því að hjálpa fólki í gegnum þetta erfiða ferli sem krabbamein er. Við erum með öfluga útgáfustarfsemi og gef­ um út Lífskraft, handbók um krabbamein, sem við gefum fólki. Stóra flagg­ skipið okkar er svo stuðn­ ingsnet Krafts þar sem jafningjar fræða jafningja. Anna Sigríður Jökuls dóttir sálfræðingur er í 30 pró­ senta starfi og heldur al­ veg utan um það. Þar eru einstaklingar sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur sem styðja aðra sem eru að ganga í gegnum svipaða reynslu,“ segir Ragnheiður og get­ ur þess að fyrir tækið Gengur vel ehf. hefði styrkt útgáfuna með einni milljón króna. „Styrkurinn gerði okk­ ur kleift að ráðast í þetta framtak.“ Bókin fæst í húsakynnum Krafts og einnig í öllum bókabúðum. n n Vandasamt að ræða sjúkdóminn n Góð ráð að finna í bók Wendy Harpham um efnið Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is 1.000.000 króna styrkur Í útgáfuhófi vegna bókarinnar afhenti fyrirtækið Gengur vel ehf. Krafti 1.000.000 króna sem styrk til útgáfu bókarinnar. Að sögn Ragnheiðar eru þau afar þakklát með styrkinn þar sem það geri þeim kleift að gefa út bókina. Á myndinni eru frá hægri: Halldóra Víðisdóttir, formaður Krafts, Þuríður Ottesen, forstjóri Gengur vel ehf., Sigrún Kjartansdóttir framkvæmdastjóri, Elísabet Guðmundsdóttir, viðskiptastjóri snyrtivöru, og Svanhildur Ásta Haig, sem er móðir barna sem misstu föður sinn úr krabbameini. Hún talaði um reynslu sína á fundinum. „Wendy skrifaði þessa bók út frá eigin reynslu, bæði sem móðir með krabbamein og líka sem læknir. n Segðu börnunum tíðindin sjálf/ur ef þú mögulega getur. n Hafðu í huga aldur hvers barns og reynslu hvers barns. n Hafðu útskýringarnar einfaldar. n Haltu utanaðkomandi truflun í lágmarki þegar þú talar alvarlega við börnin. n Notaðu orðið „krabbamein.“ n Kenndu þeim að krabbamein sé ekki smitandi. n Búðu þau undir væntanlegar breytingar á uppbyggilegan hátt. n Hjálpaðu þeim að laga sig að breytingum. n Hlífðu þeim við þeim merkjum um sjúkdóm þinn sem auðvelt er að fela. n Gefðu börnunum vald til að velja raunhæfa kosti. n Hvettu börnin til að létta þér lífið eins og hæfir aldri þeirra. n Viðbrögð barnanna mótast af því sem þú segir og hvernig þú segir það. (Bls. 64 í bókinni Þegar foreldri fær krabbamein.) Hvernig á að segja frá? Erfitt Það getur verið erfitt að finna réttu leiðina til þess að segja barni frá krabbameini foreldris. Ragnheiður Davíðsdóttir Segir að það sé mikilvægt að tala á réttan hátt við börn um veikindi foreldra. Höfundurinn Wendy Harpham er höfund- ur bókarinnar. Hún hefur sjálf greinst þrisvar með krabbamein og er læknismenntuð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.