Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Síða 48
Helgarblað 30. maí –2. júní 201448 Lífsstíll
Heiðmörk 38
810 Hveragerði
Sími 483 4800̃
Fax 483 4005
www.ingibjorg.iS
ingibjorg@ingibjorg.iS
GRÓÐURINN Í GARÐINN
fáið þið hjá okkur:
Sumarblóm
Tré og runnar
Matjurtaplöntur
Rósir
Fjölær blóm
Skógarplöntur
Hreinskilni mikilvæg ef
foreldri fær krabbamein
Þ
egar fólk greinist með
krabbamein þá er oft erfitt að
ræða það við börnin. Það þarf
að gera það á alveg sérstak
an hátt, án þess að vekja hjá
þeim ótta en engu að síður sýna þeim
fulla hreinskilni,“ segir Ragnheið
ur Davíðsdóttir, framkvæmdastjóri
Krafts um bókina Þegar foreldri fær
krabbamein. Bókin er gefin út í sam
vinnu Krafts og Forlagsins.
Höfundur bókarinnar er Wendy S.
Harpham en bókina þýddi Karl Emil
Gunnarsson. Bókin fjallar um hvernig
best sé að takast á við það þegar for
eldrar barna eða nánir aðstandendur
greinast með krabbamein.
Frá sjónarhóli móður og læknis
Höfundur bókarinnar þekkir þetta vel
af eigin reynslu. „Wendy Harpham
er bandarískur læknir sem greindist
sjálf þrisvar sinnum með krabba
mein. Þegar börnin hennar voru lítil,
undir 10 ára aldri, þá áttaði hún sig
á því að það vantaði svo mikið ráð
leggingar til foreldra um hvernig þeir
ættu að segja börnum sínum frá því
sem er að gerast í krabbameinsferl
inu,“ segir Ragnheiður.
„Wendy skrifaði þessa bók út frá
eigin reynslu, bæði sem móðir með
krabbamein og líka sem læknir. Það
er það sem bókin hefur fram yfir
margar aðrar bækur. Hún sameinar
þetta tvennt því að þekking Wendy á
efninu er yfirgripsmikil, út frá sjónar
hóli læknis og móður,“ segir Ragn
heiður.
Erfitt að útskýra
Með bókinni fylgir minni bók, Begga
og áhyggjubollinn, sem sérstaklega
er ætluð börnum. „Begga og áhyggju
bollinn fjallar um Beggu og allar
hennar áhyggjur varðandi krabba
meinið hjá mömmu. Þannig er ver
ið að auðvelda foreldrum að skýra
út ýmsa hluti sem oft er gott að gera í
gegnum persónur í sögu.“
Það er skiljanlega alltaf mikið áfall
fyrir bæði börn og foreldra þegar að
foreldrið greinist með lífshættulegan
sjúkdóm. „Sérstaða krabbameins
ins gagnvart öðrum svona alvarleg
um sjúkdómum er kannski sú að það
er allt svo sýnilegt í kringum krabba
meinið. Oft missir fólk hárið, það
grennist og er kannski að ganga í
gegnum alls konar hremmingar í lyf
jameðferð og slíku. Börnin skilja þetta
ekki almennilega og það getur verið
erfitt að útskýra þetta fyrir þeim. Bók
in hjálpar til með það,“ segir Ragn
heiður.
Kraftur fyrir ungt fólk með
krabbamein
Hugmyndin að því að þýða bókina
yfir á íslensku kemur frá Guðrúnu
Oddsdóttur sálfræðingi sem hefur
unnið mikið með Krafti. „Hún rakst á
þessa bók og las hana meðal annars
yfir ásamt öðrum sérfræðingum
áður en við fórum í að gefa hana út,“
segir Ragnheiður.
Stuðningsfélagið Kraftur var
stofnað árið 1999 af ungu fólki með
krabbamein. „Kraftur er grasrótarfé
lag sem var stofnað fyrir 15 árum af
miklu hugsjónafólki. Ungu fólki sem
áttaði sig á að það voru dálítið mikl
ar sérþarfir sem unga fólkið sem
greindist með krabbamein hafði.
Þetta eru oft
ungar fjölskyldur
með börn sem
voru með skuld
ir á bakinu, hús
næðiskuldir og
námslán jafnvel,“
segir Ragnheiður.
Í dag eru meðlimir
í Krafti 520 talsins.
„Við segjum alltaf
að þetta sé félag
fyrir ungt fólk sem
greinst hefur með
krabbamein og að
standendur en svo
hafa stofnfélagarn
ir elst svolítið en áherslan er samt
alltaf á ungt fólk.“
Hjálpa fólki
Kraftur er með aðsetur í húsnæði
Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
„Við einbeitum okkur að því að hjálpa
fólki í gegnum þetta erfiða ferli sem
krabbamein er. Við erum með öfluga
útgáfustarfsemi og gef
um út Lífskraft, handbók
um krabbamein, sem við
gefum fólki. Stóra flagg
skipið okkar er svo stuðn
ingsnet Krafts þar sem
jafningjar fræða jafningja.
Anna Sigríður Jökuls dóttir
sálfræðingur er í 30 pró
senta starfi og heldur al
veg utan um það. Þar eru
einstaklingar sem greinst
hafa með krabbamein og
aðstandendur sem styðja
aðra sem eru að ganga í
gegnum svipaða reynslu,“
segir Ragnheiður og get
ur þess að fyrir tækið Gengur vel
ehf. hefði styrkt útgáfuna með einni
milljón króna. „Styrkurinn gerði okk
ur kleift að ráðast í þetta framtak.“
Bókin fæst í húsakynnum Krafts
og einnig í öllum bókabúðum. n
n Vandasamt að ræða sjúkdóminn n Góð ráð að finna í bók Wendy Harpham um efnið
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
1.000.000 króna styrkur Í útgáfuhófi vegna bókarinnar afhenti fyrirtækið Gengur vel ehf.
Krafti 1.000.000 króna sem styrk til útgáfu bókarinnar. Að sögn Ragnheiðar eru þau afar þakklát
með styrkinn þar sem það geri þeim kleift að gefa út bókina. Á myndinni eru frá hægri: Halldóra
Víðisdóttir, formaður Krafts, Þuríður Ottesen, forstjóri Gengur vel ehf., Sigrún Kjartansdóttir
framkvæmdastjóri, Elísabet Guðmundsdóttir, viðskiptastjóri snyrtivöru, og Svanhildur Ásta Haig,
sem er móðir barna sem misstu föður sinn úr krabbameini. Hún talaði um reynslu sína á fundinum. „Wendy skrifaði
þessa bók út frá
eigin reynslu, bæði sem
móðir með krabbamein
og líka sem læknir.
n Segðu börnunum tíðindin sjálf/ur ef þú
mögulega getur.
n Hafðu í huga aldur hvers barns og
reynslu hvers barns.
n Hafðu útskýringarnar einfaldar.
n Haltu utanaðkomandi truflun í lágmarki
þegar þú talar alvarlega við börnin.
n Notaðu orðið „krabbamein.“
n Kenndu þeim að krabbamein sé ekki
smitandi.
n Búðu þau undir væntanlegar breytingar
á uppbyggilegan hátt.
n Hjálpaðu þeim að laga sig að breytingum.
n Hlífðu þeim við þeim merkjum um
sjúkdóm þinn sem auðvelt er að fela.
n Gefðu börnunum vald til að velja
raunhæfa kosti.
n Hvettu börnin til að létta þér lífið eins
og hæfir aldri þeirra.
n Viðbrögð barnanna mótast af því sem
þú segir og hvernig þú segir það.
(Bls. 64 í bókinni Þegar foreldri fær
krabbamein.)
Hvernig á að segja frá?
Erfitt Það getur verið erfitt að finna
réttu leiðina til þess að segja barni frá
krabbameini foreldris.
Ragnheiður Davíðsdóttir Segir að það sé mikilvægt að tala á réttan hátt við börn um
veikindi foreldra.
Höfundurinn Wendy Harpham er höfund-
ur bókarinnar. Hún hefur sjálf greinst þrisvar
með krabbamein og er læknismenntuð.