Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 46
Helgarblað 30. maí –2. júní 201446 Lífsstíll
Þessi uppskrift að grilluðum an-
anas er skemmtileg tilbreyting
sem tilvalið er að hafa sem eftir-
rétt í grillveislunni. Eldunin tekur
aðeins nokkrar mínútur og það er
einfalt að útbúa hann með stutt-
um fyrirvara.
Undirbúningurinn er einfald-
ur. Setjið 1/2 teskeið af kanil og
1/2 bolla af púðursykri í lítinn
plastpoka ásamt hálfum ananas
skorinn í strimla og hrist vel þar
til ananasinn er alveg húðaður.
Skellið pokanum í kæliskáp í
um það bil 30 mínútur
Því næst er ananasnum ein-
faldlega skellt á grillið og hann
hafður þar á meðalhita þar til
hann er orðinn gullinbrúnn.
Gott er að borða hann til
dæmis með vanilluís.
Hafðu í huga að þó svo að þér
líki kannski ekki ananas, ferskur
eða í dós, þá breytir eldunin
bragðinu, þannig að það er um
að gera að prófa.
Sumarlegur
eftirréttur
Gerðu þitt eigið
möndlusmjör
Að búa til sitt eigið möndlusmjör
er oft hollara en að kaupa það úr
búð og auk þess skemmtilegt og
einfalt að gerð. Möndlusmjör er
svipað og hnetusmjör en það er
gaman að breyta til og prófa eitt-
hvað nýtt.
Uppskriftin er sáraeinföld.
Takið tvo bolla af ósöltuðum
möndlum og setjið í matvinnslu-
vél eða blandara ásamt um það
bil hálfri teskeið af salti. Blandið
öllu saman þar til rétt áferð er
komin á blönduna. Einnig má
bæta við örlitlu af olíu.
Einnig er hægt að bragðbæta
smjörið með ýmsu, til dæmis
hunangi eða öðru sætuefni eða
jafnvel kryddi á borð við kanil.
Þ
að er auðvelt að fylla jarðar-
ber með ýmsu góðgæti og búa
þannig til einfalda smárétti
sem henta við mörg tækifæri.
Hér koma nokkrar hugmyndir en það
er hægt að prófa sig áfram og um að
gera að láta sköpunargleðina ráða
ríkjum. Best er að skera ofan af jarðar-
berjunum og nota til dæmis litla skeið
til að hola þau að innan. Svo er bara
að finna góða fyllingu sem passar.
Jarðarber með
ostakökufyllingu
Þeir eru fáir sem láta ekki freistast af
girnilegri ostaköku. Það er sáraeinfalt
að útbúa jarðarber með ostakökufyll-
ingu.
Einfaldast er að hræra saman
rjómaosti og flórsykri og bæta við
örlitlu af vanilludropum.
Ofan á er svo hægt að setja til
dæmis bláber eða mulið hafrakex.
Jarðarber og súkkulaði passa
einnig mjög vel saman. Það hrikalega
gott að fylla jarðarber með súkkulað-
ismjöri, til dæmis Nutella.
Einnig er hægt að búa til gómsætt
krem úr rjómaosti og súkkulaði. Það
getur líka verið gott að prófa sig áfram
með hin ýmsu bragðefni, til dæmis
Baileys, kókos, hvítt súkkulaði og svo
mætti lengi telja.
Enn ein hugmynd er að fylla
jarðarber með dökku súkkulaði og
strá örlitlu sjávarsalti ofan á. Saltið
dregur fram enn sterkara bragð af
súkkulaðinu en varast ber að láta ekki
of mikið, nokkur korn duga.
Það er líka einföld og holl lausn að
fylla jarðarberin með öðrum smátt
söxuðum ávöxtum. Til dæmis með
mangó, eplum, vatnsmelónu eða kíví.
Hér kemur svo ein fyrir allra hörð-
ustu sælkerana. Byrjið á að fylla
jarðarberin með Nutella og hnetu-
smjöri. Því næst er berjunum dýft í
þeytta sykurpúða (hægt að kaupa til-
búið í krukku) og ristið létt yfir loga.
Þetta er tilvalið að prófa sem eftirmat í
grillveislunni í sumar. n
Prófaðu gómsæt fyllt jarðarber
Einfaldar og sniðugar uppskriftir sem allir geta prufað og gefið ímyndunaraflinu lausan tauminn
Einfaldur
banana
sorbet-ís
Ef það gleymist að borða ban-
anana er vinsælt nýta þá til að
búa til bananabrauð en það er
hægt líka hægt að gera margt
annað einfalt, til dæmis banana
sorbet-ís.
Uppskriftin er einföld, sjóðið
saman 1 bolla af sykri og 1 bolla
af vatni. Þegar sykurinn er alveg
leystur upp má bæta þremur
stöppuðum bönununum saman
við. Blandan er því næst fryst í
3–4 tíma. Síðan er blandan tek-
in út og þeytt vel saman með
handþeytara eða í hrærivél og
fryst aftur.
H
ampur hefur lengi haft
slæman stimpil á sér, sér-
staklega í Bandaríkjunum,
þar sem margir setja sama-
semmerki á milli hamps og
kannabisplöntunnar sem notuð er
sem vímugjafi. Hampur sem notað-
ur er bæði í iðnaði og til matargerð-
ar inniheldur þó ekki virka efnið THC
og því með öllu skaðlaus til neyslu.
Lögum breytt
Þessum stimpli vilja framleiðendur
hamps að sjálfsögðu breyta og hafa
síðustu ár unnið hörðum höndum
að því að afmá þennan slæma stimp-
il sem hampur hefur á sér. Löggjafar-
valdið í Bandaríkjunum breytti fyrr á
þessu ári lögum þannig að þau gerðu
skýran greinarmun á hampi og ólög-
legu kannabis, sem opnaði gríðar-
lega stóran markað með vöruna. Þó
eru þar enn við lýði lög sem banna
ræktun hamps til framleiðslu.
Neytendur taka við sér
Mike Fata, forstjóri kanadíska hamp-
framleiðandans Manitoba Harvest,
hefur staðið í ströngu síðustu ár við
einmitt þetta og er nú farinn að sjá af-
rakstur erfiðisins og er nú svo kom-
ið að vörur frá Manitoba Harvest eru
farnar að sjást í meira mæli í hillum
stórra bandarískra verslana á borð
við Costco, Safeway og Whole Food
Market. Fata sagði í viðtali við Busines-
sweek á dögunum að árangurinn sé
gríðarlega mikill og að neytendur séu
farnir að taka við sér. Hann sagði að
gott dæmi væri að stóra verslanakeðj-
an Safeway hefði haft samband og
viljað skoða framleiðslu á brauði sem
inniheldur hampfræ. „Slíkt hefði ver-
ið óhugsandi fyrir fimm árum,“ bætti
hann við.
Mjög próteinrík
„Viðskiptavinir okkar eru ekki það
vitlausir að halda að hampfræ inni-
haldi vímugjafa fyrst þau eru seld í
Costco,“ sagði Jim Taylor. Hann er
formaður félags sem hefur fjárfest í
Manitoba Harvest og bindur mikl-
ar vonir við að hampur verði vinsæl
vara. Enda eru fræin mjög próteinrík
og innihalda meira prótein en bæði
chia-fræ og hörfræ, sem hafa ver-
ið mjög vinsæl vegna þess hve hátt
próteininnihald þeirra er.
Bráðholl ofurfæða
Því er um að gera að prófa hamp-
fræ í matargerðina þar sem þau eru
sannkölluð ofurfæða, stútfull af
próteini, omega-fitusýrum, járni,
magnesíum og fleiri efnum sem eru
bráðholl. Þar sem hlutfall omega-
fitusýra er svona hátt geta hampfræ
haft bólgueyðandi áhrif og eru því
góð við ýmsum kvillum á borð við
gigt, exem og astma, svo eitthvað sé
nefnt. Hátt hlutfall próteins í fræjun-
um gera þau líka tilvalin í prótein-
drykki og eru oft ódýrari kostur en
tilbúið próteinduft sem fæst í versl-
unum. n
Hampfræ eru
holl ofurfæða
n Þessi náfrændi kannabisplöntunnar loksins viðurkenndur
Pestó með hampfræjum
og parmesanosti
Innihald:
n 1 bolli basilíkum
n 1/2 bolli parmesanostur
n 1/4 bolli ólífuolía
n 1/2 bolli hampfræ
Aðferð:
Blandið basilíkum, parmesanostinum og
olíunni vel saman í matvinnsluvél þar til
það er vel maukað. Því næst er fræjunum
bætt saman við og þeim hrært saman við
í stutta stund.