Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 66
Helgarblað 30. maí –2. júní 20142 Sjómannadagur
Óhefðbundinn
meðafli
Dragnótabáturinn Geir ÞH fékk
óvenjulegan meðafla á dögun-
um. Frá þessu er greint í sjó-
mannadagsblaði Fiskifrétta.
Geir ÞH var við veiðar í Lóna-
firði út af Þorshöfn á Langanesi
þegar selkópur kom um borð
með dragnótinni. Sigurður Ragn-
ar Kristinsson skipstjóri sagði í
samtali við Fiskifréttir að líklega
hefði kópurinn laumað sér í pok-
ann þegar verið var að hífa um
borð. Þeim litla heilsaðist vel og
eftir myndatöku og stutt spjall
var honum gefið frelsið á ný.
Björgunar-
sveit fær
viðurkenningu
Björgunarsveitin Ernir í Bol-
ungarvík þykir gegna mikilvægu
starfi í samfélagi sem treystir
mikið á sjósókn. Frá þessu grein-
ir fréttavefur BB. Því mun sveitin
hljóta heiðursviðurkenningu sjó-
mannadagsins í Bolungarvík og
200 þúsund króna styrk að auki,
til kaupa á fjarskiptabúnaði. Það
er Verkalýðs- og sjómannafélag-
ið í Bolungarvík og menningar-
og ferðamálaráð Bolungarvíkur
sem standa að viðurkenningunni
og styrkveitingunni. Á sjómanna-
deginum fyrir ári var sveitin
kölluð út til leitar en hún er
mikilvægur hlekkur í hátíðar-
höldum á sjómannadeginum í
Bolungarvík. Þrátt fyrir útkallið
tókust hátíðarhöldin vel , en ung-
liðar hlupu í störf þeirra eldri og
sinntu gæslu á hátíðinni.
Söl í staðinn
fyrir beikon
Þ
að sem er best við þetta er
að í þessu fæði er mikið af
snefilefnum og steinefnum
sem eyðast úr líkamanum,“
segir Eyjólfur Friðgeirsson
líffræðingur sem stofnaði árið 2005
félagið Íslenska hollustu til að þróa
og framleiða hollustufæðu.
Eyjólfur hefur sett á markað
hátt í tvo tugi vara og framleiðir allt
mögulegt úr þara, sölum, fjallagrös-
um og öðru úr íslenskri náttúru.
Hann hefur hlotið fjölda viður-
kenninga og selur söl og fleiri vör-
ur til þekktra veitingastaða víða um
heim. Meðal annars til Noma, sem
á dögunum hlaut viðurkenningu
sem besti veitingastaður heims.
„Ég sel meðal annars til Noma
veitingahússins, sem er eitt fínasta
veitingahús í heimi. Þeir steikja
sölin upp úr smjöri og steikja svo
grænmetið upp úr þessu bragð-
bætta smjöri. Ég sel mikið af sölum
til veitingastaða, sjálfur borða ég
oftast sölin sem snakk. En stund-
um steiki ég söl. Ef þú ert til dæmis
grænmetisæta getur þú skipt út
beikoni fyrir söl, egg og söl í stað-
inn fyrir egg og beikon.“
Var áður fátækrafæði
Hann fer oft ótroðnar slóðir, safnar
hráefninu hérlendis og vill endur-
vekja þjóðlega matargerð. Ís-
lendingar nýttu þara og söl í mat-
argerð fyrr á öldum og bættu sér
þannig upp næringar- og efnis-
skort. Hér á landi var að sjálfsögðu
lítil sem engin kornrækt og því var
hægt að nota grös og söl í brauð-
bakstur og fleira. Eyjólfur segir slíka
sjálfsbjörg aukast en um 12 tegund-
ir af þara og sölum við strendur Ís-
lands eru nýtanlegar til matargerð-
ar.
„Það er að aukast, það var notað
mikið í gamla daga. Fólk er að byrja
að nota þetta aftur. Þetta var fá-
tækrafæði en næringarríkt. En sölin
voru alltaf borðuð af öllum hópum.
Íslendingar sóttu sérstaklega í
sölin í brauðbakstur því það vant-
aði alltaf kornmeti hér á landi.
Því notuðu Íslendingar mikið
fjallagrös. Það er jafnmikið af kol-
vetni í fjallagrösum og í hveiti, en
mun heilsusamlegra.“
Gott í matseldina
Í austurlenskri matargerð er sjávar-
gróðurinn nýttur vel. Það finnst
Eyjólfi gott að gera með íslenskan
sjávargróður.
„Ég hef tekið söl og marínerað
upp úr eplaediki, mjög gott með
sushi. Eins með grilluðum fiski.
Ég er líka að selja beltisþara sem
er ræktaður í Stykkishólmi. Hann
er þunnur og góður að borða eins
og snakk, út á fiskrétti eða í salöt.
Svo hef ég líka verið með stórþara.
Hann er harður en ákaflega góður
í matseld. Hann er til dæmis góður
í pottrétti. Hann bindur vatnið vel
og það er hægt að nota hann til að
þurrka upp pottrétti í stað þess að
jafna út með hveiti.“
Hér að neðan fylgir uppskrift
sem er bæði ljúffeng og afar holl. n
Spínat og söl
n 250 gr spínat
n 1 lítill kúrbítur, skorinn í sneiðar
n 1–2 hvítlauksgeirar, skornir í litla
teninga
n ólífuolía
n ¼–½ bolli söl
n basilíka, kúmen, kóríander, sítróna.
Aðferð:
n Gufusjóðið spínat og kúrbít.
n Mýkið hvítlaukinn í olíu, kryddið.
n Bætið sölunum í og látið mýkjast í 1–2
mínútur. Takið af hellunni og setjið safa
úr ¼–½ sítrónu saman við.
n Hellið yfir spínatið og kúrbítinn.
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Beltisþari Eyjólfur
á þaraveiðum.
Fenginn selur hann
hér heima og víða um
heim, jafnvel á fræga
veitingastaði sem
kunna gott að meta.
Mikið vöruúrval Eyjólfur er óþreytandi í nýsköpun og hefur vörulína hans með íslenskum
sjávargróðri og fjallagrösum vaxið ár frá ári.
„Ef þú ert til dæmis græn-
metisæta getur þú skipt
út beikoni fyrir söl, egg og söl í
staðinn fyrir egg og beikon.
Armband sem eykur öryggi
Þróa hugmyndina en vantar fjármagn
V
ið erum að þróa öryggis-
armband fyrir sjómenn.
Það virkar þannig að þetta
er lítið og nett armband
sem sjómenn eru alltaf með á sér
og taka varla eftir. Ef sjómaður
dettur frá borði þá virkjast arm-
bandið um leið og sendir frá sér
neyðarboð þannig að það verður
hægt að staðsetja manninn um
leið og hann dettur útbyrðis,“ segir
Halldór Guðni Traustason. Hann
og fimm samnemendur hans í
Háskólanum í Reykjavík; Haukur
Sigurgeirsson, Hákon Garðar
Þorvalds son, Röskva Vigfúsdóttir,
Svanhildur Kamilla Sigurðardóttir
og Mikael Ingason, unnu að stofn-
un fyrirtækis í kringum hugmynd
sem þau fengu í þriggja vikna
áfanga í HR. Fyrirtæki þeirra ber
nafnið Navitech og hugmyndin er
sú að þróa armband fyrir sjómenn
til þess að tryggja öryggi þeirra.
Að sögn Halldórs er hugmyndin
sú að armbandið yrði tengt við þau
kerfi sem eru staðalbúnaður í öll-
um bátum í dag. Ef sjómaður fellur
frá borði þá verður hægt að stað-
setja hann um leið og því meiri lík-
ur á að bjarga honum.
Hugmyndin er enn á tilrauna-
stigi en hópurinn hefur fengið
mjög góðar viðtökur við henni að
sögn Halldórs. Þau leita nú leiða til
þess að geta þróað armbandið en
til þess vantar fjármagn. „Við höf-
um fengið gríðarlega góðar mót-
tökur en okkur vantar fjármagn,“
segir hann. n
viktoria@dv.is
Auka öryggi Armbandinu er ætlað að auka öryggi sjómanna. Mynd SiGtryGGur Ari
Frækin
björgunarverk
Í tilefni þess að tuttugu ár eru
liðin frá fræknum björgunar-
afrekunum verður vígður
minnis varði í Vöðlavík norðan
við Reyðarfjörð laugardaginn
31. maí. Vígslan er partur af sjó-
mannadagsfögnuði Eskfirðinga.
18. desember 1993 var allri
áhöfn Bergvíkur VE-105 bjarg-
að í land með fluglínutækjum
björgunarsveitanna og þann 10.
janúar 1994 var sex af sjö manna
áhöfn björg un ar- og drátt ar-
skips ins Goðans bjargað við afar
erfiðar aðstæður.
Í tilefni vígslunnar verður
einnig framkvæmd björgunar-
æfing í Vöðlavík klukkan 14.00 á
föstudag.
n Ljúffengur sjávargróður n Frægur veitingastaður kaupir söl
Armbandið Hugmyndin er að
armbandið verði lítið og nett og
sjómenn beri það alltaf þegar
þeir eru á sjó.